Morgunblaðið - 05.12.1997, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 05.12.1997, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1997 57 50 ára frábær reynsla. MS-sjúkdóminn en hefur þó síður en svo misst skopskynið. Nú að honinn: „Ég fer í nálastungur með reglu- legu millibili vegna þess sjúkdóms sem á mig herjar. Vinur minn Öm sér um stungumar og hefur hann aðsetur á hæðinni fyrir ofan Garðs- apótek í Reykjavík. Tröppumar upp á stofuna til hans era mér frek- ar erfiðar og nýt ég því gjaman að- stoðar dóttur minnar þegar að meðferð kemur. Svo var það eitt sinn, er við feðginin voram að feta okkur upp tröppumar og fórum afar hægt, að séra Pálmi Matthíasson verður á vegi okkar. Prestinum heilsaði ég að sjálfsögðu en sagði síðan: „Þú sérð það, Pálmi minn, að ég mun aldrei komast á þessum fótum til himna.“ Klerkur var ekkert að taka undir þetta, heldur svaraði að bragði: „Hafðu ekki áhyggjur af því, góði. Það er komin lyfta!“ ★ Og næst að landsliðsþjálfara okk- ar í handbolta, Þorbimi Jenssyni: Einhverju sinni á Bogdantíman- um var haldinn svokallaður krísufundur til að hreinsa andrúms- loftið í landsliðshópnum. Þungt hafði verið í leikmönnum og áttu þeir nú að segja hug sinn. Enginn vildi þó byija, en eftir nokkra stund, hrekkur upp úr Alfreð Gísla- syni: „Ég vil fá annan homamann í vinstra homið.“ Guðmundur Guðmundsson, góð- vinur Alfreðs, hafði spilað í þeirri stöðu og því skildi enginn hvað Alli var að fara, þangað til hann bætti við: „Það er orðið svo leiðinlegt að gefa niður á Gumma. Hann er svo lítfll." Eftir þetta gátu allir tjáð sig. ★ Sumarið 1986 lentu þeir upp á kant hvor við annan, hinn góðkunni dómari Eyjólfur Ólafsson og Sigur- björn Viðarsson, vamarjaxlinn í Þór á Akureyri. Tildrögin voru þau að einhverju sinni var Eyjólfur á línunni er Þór var að spfla. Heyrð- ist honum þá Sigurbjöm uppnefna sig apa. Þetta reyndist þó misskiln- ingur en eitthvað sat þetta í Þórs- Aloe Vera húð- og hársnyrtivörur frá Jason 84% Aloe Vera — gera aðrir betur? ÚTSÖLUSTAÐIR: APÓTEKIN, KAUPFÉLÖG, VERSLANIR KÁ OG ÝMSAR SÉRVERSLANIR DREIFING: NIKO ehf. Sími 568 0945 Leikir og fróðleildr fyrir alla! =~7 / / / ^JilOaCdar j.oCacjj.aj'ir Leikur einn að f inna #/// Bnar MmM Farestveit&Cohf Borjartúni 21 TS 5*2 2*01 og 5*2 2*00 KitchenAid DRAUMAVÉL HEIMILANNA! KM90: Verð frá kr. 29.830 stgr. m/hakkavél. Margir litir. Fæst um land allt. sjaldnast orð þegar lýsa þarf mönn- um eða atburðum. Einhverju sinni var Hemmi að lýsa körfuknattleik og sagði þá meðal annars: „Það er ótrúlegt að horfa á þessa ungu stráka og engu líkara en að þeir hafi fæðst með boltann í hönd- unum.“ Eftir smáþögn bætti Hemmi við: „Það hefur ábyggflega verið erfitt fyrir mæðumar." ★ Það var í knattspymuleik á Valla- gerðisvelli í Kópavogi. Blikinn Vign- ir Baldursson lendir í hörkunávígi við andstæðing sinn sem hefur bet- ur. Hinn landskunni knattspymu- dómari og lögreglumaður, Grétar Norðfjörð, dæmir ekkert á rimm- una og lætur leikinn halda áfram. Nokkra síðar blæs Grétar hins vegar með látum í flautuna, kallar Vigni til sín og sýnir honum gula spjaldið. Vignir bregst illur við og segir: „Hvað á þetta að þýða? Ég sagði ekki eitt aukatekið orð!“ „Ég veit það vel,“ svaraði Grétar Norðljörð um hæl, „en ég sá augna- ráðið.“ ★ Akureyringurinn Gunnar Níels- son var eitt sinn að lýsa leik Leifturs við ónefnda andstæðinga í beinni út- sendingu á Bylgjunni. Varð honum tíðrætt um að Radko Mladic væri langbesti leikmaður Norðanmanna. Það var ekki fyrr en undir lok leiks- ins að einhver benti Gunnari á að umræddur maður væri hershöfðingi og eftirlýstur stríðsglæpamaður, sem hefði aldrei tfl íslands komið, og vísast aldrei spilað knattspymu heldur - leikmaðurinn héti hins vegar Slobodan Milisic. ★ Stefán Hallgrímsson tugþrautar- kappi rak um árabil Ukamsræktar- stöð. Eitt sinn komu til hans frakka- klæddir menn, með skjalatöskur undir hendi og ábúðarmiklir á svip. Þeir kynna sig og segjast vera komnir tfl að athuga um vaskinn. „Hann er þama,“ svarar Stefán og bendir þeim út í hom þar sem gat að líta slitinn vask. „Óg hann lekur.“ ★ Hinn eldhressi Lárus H. Jónsson er ávallt kynnir á heimaleikjum Aftureldingar í handbolta. Hann var hér á árum áður nokkuð liðtæk- ur knattspymumaður og hefur meðal annars afrekað það að skora mark í öllum fjóram deildum fs- landsmótsins. Láras, eða Lalli eins og hann er kallaður, glímir nú við BOGDAN og Guðjón Guðmundsson á góðri stund. Pólveijinn rak Guð- jón 17 sinnum. aranum. Skömmu síðar átti Eyjólf- ur að dæma einn leikja Þórs. Vind- ur Sigurbjöm sér þá að honum og spyr: „Viltu banana?“ ★ Guðbjöm Jónsson, sem lengi lék knattspymu með KR og þjálfaði síðan þá röndóttu, á að venju góða spretti. Hér kemur einn: Meistaraflokkur KR varð bikar- meistari undir minni stjóm 1966. Eftir úrslitaleikinn fögnuðum við eins og vera ber; komum saman og borðuðum og héldum þvi næst út á lífið. Ég hafði reyndar ætlað heim til konu minnar eftir matinn, en strákamir tóku það ekki í mál og heimtuðu að ég kæmi með þeim í djammið. Og ég lét undan. Fyrsti viðkomustaðurinn var Mímisbar á þriðju hæð Hótel Sögu, flottur bar með útsýni yfir Vesturbæinn. Eftir dágóða stund þar vfldu menn reyna fyrir sér annars staðar og því stig- um við nokkrir inn í lyftu, ansi þröngt farartæki að mínu mati, og ýttum á hnappinn. Lyftan lokaðist, fór eilítið niður, en síðan ... stopp. Rafmagnið var farið af apparatinu. Við æptum og kölluðum en enginn varð okkar var. Skömmu síðar heyrðst hins vegar kallað upp lyftu- göngin: „Fer maturinn ekki bráðum að koma?“ Höfðum við þá troðið okkur inn í SJÁÁSÍÐU58 Tæknival býður mikið úrval af skemmti- og fræðsluefni á tölvutæku formi. Við erum sérlega stolt af úrvali okkar af fræðandi og þroskandi leikjum fyrir yngri börnin sem við köllum fróðleiki. Einnig höfum við mikið úrval annarra tölvuleikja. Hjá okkurfinnur þú gagn og gaman fyrir alla fjölskylduna. Það er auðvelt að finna skemmtilega jólagjöf hjá okkur! Tæknival Skeifunni 17 • 108 Reykjavík • Sími 5504000 Reykjavíkurvegi 64 • 220 Hafnarfiröi • Sími 550 4020 wwvv.taeknival. is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.