Morgunblaðið - 05.12.1997, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 05.12.1997, Blaðsíða 70
70 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1997 MCRGUNBLAÐIÐ Tommi og Jenni BREF BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 Listasafns- milljónir Magnús Jónsson Frá Magnúsi Jónssyni: ER KOSTNAÐUR við listasafn í Hafnarhúsinu 500 milljónir (Árni Þór Sigurðsson Mbl.) að hámarki 400 milljónir (Árni Þór Sig- urðsson Mbl.) eða 700 milljónir (Árni Sigfússon Mbl.) ég bara spyr? Er Ámi Þór Sigurðsson eða Árni Sigfússon að ljúga að Reyk- víkingum, eða Ijúga þeir báðir. Annar þeirra fer ekki með rétt mál svo mikið er víst, en hvor er það? Borgarverkfræð- ingur bendir á að miðað við fyrirliggj- andi áætlun um endurbætur á Hafn- arhúsinu án kaupverðs (125 milljón- ir) og búnaðar (20 milljónir) sé 130 þús. á fm, um er að ræða 3.500 fm eða 455 milljónir ef við leggjum síðan 125 milljónir og 20 milljónir við eru þetta 600 milljónir. Árni Þór heldur því fram að 125 milljóna kaupverð hússins kosti Reykjavík ekki neitt vegna þess að gerð vom eignaskipti við hafnarsjóð, hann áttar sig ekki á því að hefði borgin selt hafnarsjóði þessar eignir hefði borgarsjóður hagnast um 125 milljónir eða meira, hann virðist ekki heldur átta sig á því að þessi eign sem látin var í skiptum kostaði borgarbúa ótaldar milljónir. Það er ekkert annað en útúrsnún- ingur að tala annarsvegar um kaup- verð og hinsvegar um kostnað vegna breytinga og halda því síðan fram að kostnaðurinn vegna kaupanna komi endanlegu fermetraverði í end- urbættu húsinu ekkert við menn sem halda slíku fram ættu að finna sér annan starfsvettvang en hjá hinu opinbera. Séu teknar þær tölur sem formaður byggingamefndar hafnar- hússins iætur fara frá sér í blaða- greinum í Mbl. er kostnaðurinn um 600 milljónir hvernig sem reiknað er eða sem svarar til 6.000 króna á hvert mannsbam í Reykjavík, 4 manna fjölskylda fær því 24.000 kr reikning fyrir listasafni. Vel á minnst þessi upphæð er nokkum veginn sú sama og er innheimt í svokölluðum klóakskatti árlega. R-lista mönnum fínnst þetta ekkert dýrt og benda á að D-lista menn hafí eitt svo mikið sem 140 milljónum í hönnunar og undirbúnings kostnað vegna Korp- úlfsstaða, þeim fínnst með öðmm orðum í lagi að bmðla með fé af því að áður höfðu aðrir bruðlað með fé borgaranna. Nýlega lauk Rauði krossinn við að byggja glæsilega byggingu undir starfsemi sína, það hús fullbúið kostaði 121 þús. á fm, og þeir þurftu ekki að kaupa húsið fyrst. Mér er spum, hvaða endurbæt- ur em það sem kosta 130 þús. á fm í Hafnarhúsinu, sérstaklega ef tekið er mið því að af 3.500 fm em 2.800 fm sýningarsalir? „salir“ sem em bara gólf, loft og veggir, engin hús- gögn engin eldhús, engin baðherbergi eða þvottahús, bara salir, hvað er svona dýrt? í leiðara Morgunblaðsins er þessu annars þarfa listasafni fagn- að og líkt við Pompidou-safnið í Par- ís, sennilega hefði það safn aldrei risið ef Parísarbúar einir hefðu feng- ið reikninginn fyrir safninu en ekki öll franska þjóðin, þar kostaði fm aðeins 95 þús. á gengi frankans í dag (samkvæmt upplýsingum á al- netssíðu Pompidou-safnsins). Árni Þór (í Mbl.) segir að þeir sletti skyr- inu sem eigi það, en er hann sem formaður þessarar bygginganefndar ekki að sletta skyrinu okkar með því að samþykkja og mæla með að borg- arsjóður eyði sem svarar 50 þús. meira en Rauði krossinn á hvem fer- metra í sínu húsi? Ég legg til að borgarsjóður fái þá aðila sem hönnuðu og byggðu hús Rauða krossins til þess að byggja listasafn í Reykjavík því þá fengjum við ekki 3.500 fm listasafn heldur 5.000 fm listasafn fyrir 600 milljónirnar okkar. MAGNÚSJÓNSSON verktaki. Hei, strákur! Láttu mig fá rauða litinn þinn! Allt í lagi, ég kastaði honum ofan í bréfakörfu kennar- Ertu að leita eftir einum á’ann, strákur? Reyndu það, og ég skal gefa þér tvo fyrir einn! Jæja, kannski að mér falli vel þessi græni. .. ans ... ef þú vilt fá hann farðu þá og sæktu hann! Talsmaður íslenskrar hug’sunar Frá Baldri Oskarssyni: NÝÚTKOMIN Bók Gunnars Dal, LÍFIÐ EFTIR LÍFIÐ, er fyrsta fram- lag íslensks höfundar til ritunar mystiskrar skáldsögu. Því hefur stundum verið fleygt, og einnig í umsögn um þessa bók, að Gunnar sé talsmaður Vedabóka og indver- skrar heimspeki. Það er gamall mis- skilningur sem hann svarar sjálfur á eftinninnilega hátt í samtalsbók- inni Að elska er að lifa og út kom fyrir nokkmm árum. Þar segir Gunnar á þessa leið: „Nei, ég hef aldrei verið talsmað- ur indverskrar menningar. Ég er talsmaður íslenskrar menningar. Einmitt vegna þeirra sérréttinda að vera Islendingur þarf hugsun mín ekki að litast af hagsmunum stór- veldis. Ég hef frelsi sem íslendingur til að skoða heiminn jafnt í austri sem í vestri. Ég hef síst talað meira um austrið en vestrið og það geta menn lesið í bókum mínum. Ég byrj- aði að vísu að skrifa um indverska hugsun og austurlenska hugsun ein- faldlega vegna þess að hún er upp- hafið í tíma. Síðar skrifaði ég ekki minna um gríska hugsun og enn síðar um evrópska hugsun og hugs- un Vesturlandabúa. En ég hef alls staðar reynt að sýna fram á að þetta er allt eðlileg samfelld þróun.“ LÍFIÐ EFTIR LÍFIÐ er mjög sér- stök íslensk skáldsaga og hliðstæðu hennar er raunar ekki að finna í erlendum verkum, eins og sjá má td. á lokakafla bókarinnar. Það er mjög mikill fengur að þess- ari bók Gunnars, einkum fyrir þá menn sem trúa í einlægni á fram- haldslíf á kristnum grundvelli. Hver læs maður ætti að sjá að þungamiðj- an í þessari skáldsögu er Kristur og íslensk viðhorf en hvorki hindúismi eða Vedabækur. Kjami hennar er sú trú að hver maður sem tengist Kristi verði hreinn vegna hans. BALDUR OSKARSSON, viðskiptafræðingur. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.