Morgunblaðið - 05.12.1997, Síða 71
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1997 71
BREF TIL BLAÐSINS
Er þetta íslenskt
réttarfar í hnotskurn?
Frá Ásdísi Krístjánsdóttur:
í MORGUNBLAÐINU 9. október
sl. birtist grein eftir Pál Þórhalls-
son, þar sem fjallað var um dóm
Hæstaréttar í máli sem ég, undir-
rituð, höfðaði gegn Lífeyrissjóði
starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar
vegna sviptingar makalífeyris.
Málið snerist um það að eftir
að ég missti eiginmann minn árið
1990 fékk ég greiddan lögboðinn
makalífeyri úr sjóðnum, allt til
ársins 1994, er ég, að mati sjóðs-
ins, hafði hafið „samvistir“ með
manni og taldi sjóðurinn þá að
samkvæmt reglum sjóðsins bæri
að fella niður greiðslur makalífeyr-
is. Umrædd „samvist" var af hálfu
okkar beggja hins vegar ekki jafn-
gildi hjónbands, heldur byggðist
fyrst og fremst á félagsskap á al-
gjörum jafnréttisgrundvelli þar
sem við höfðum styrk hvort af
öðru, eftir sáran makamissi okkar
beggja.
I meintri „samvist" höfum við
algjörlega aðskilinn fjárhag. Ég
keypti 50% hlut í einbýlishúsi
mannsins og greiði af honum lög-
boðin gjöld, við erum með sinn sím-
ann hvort, greiðum orkugjöld til
helminga og allan annan kostnað
af rekstri heimilis.
Innbú mitt var nákvæmlega
skráð er ég flutti í þetta húsnæði
og sú skráning staðfest af sonum
mínum ásamt börnum mannsins.
Samskonar skráning fór fram á
innbúi hans og var staðfest af
sömu aðilum.
Pjárhagslega lifum við því sem
algjörlega sjálfstæðir einstakling-
ar, eins og skattframtöl okkar sýna
öll árin, þó að við búum undir sama
þaki. Við samnýtum eldhús og
þvottahús. Ég hefi ekki þegið eina
krónu frá meintum „sambýlis-
manni“ mínum.
í dómþingi Héraðsdóms Norður-
lands eystra kemur fram að það
sem ég og mín vitni (sem voru
þijú) staðfestum fyrir dómi, þótti
ekki trúverðugt. Með öðrum orð-
um, við lugum, þrátt fyrir að við
værum áminnt um sannsögli og
viðurlög við röngum frambuði fyrir
dómi. Ekki þótti ástæða til að beita
þeim viðurlögum þrátt fyrir að við
færum með ósannindi að mati dóm-
ara. Engin vitni voru til kvödd fyr-
ir hönd lífeyrissjóðsins. Hvers
vegna? Kannski vegna þess að
þeir sem til mín og minna mála
þekkja vita að ég hef ekki lagt í
vana minn að fara með ósannindi.
Niðurstaða málsins er þessi: Ég
er dæmd af meirihluta Hæstaréttar
íslands í óvígða sambúð, þrátt fyr-
ir öll þau gögn sem lögð hafa ver-
ið fram um hið gagnstæða. Enn
fremur vil ég að komi fram að
reglugerð lífeyrissjóðsins fæ ég
ekki í mínar hendur fyrr en með
tilkynningu um makalífeyrismissi.
Ég vissi með öðrum orðum ekk-
ert um rétt minn né skyldur gagn-
vart sjóðnum frá 1990-1994.
Ætli þetta sé ekki bara eðlilegt
og löglegt? Allt sem hinir „sterku“
(þ.e. stjórn lífeyrissjóðsins, Hér-
aðsdómur Norðurlands eystra og
Hæsiréttur íslands), segja er hinn
eini sannleikur, en allt sem ég
hefi lagt til málsins ásamt umsögn-
um tilkvaddra vitna er „ótrúverð-
ugt“.
Er það virkilega svo að þessir
aðilar geti neytt mig til „sambúð-
ar“ að þeirra skilningi, þótt ég
hvorki vilji það né ætli mér það?
Hvar liggja mörkin, hverjir mega
eiga fasteignir með öðrum og nýta
án þess að verða stimplaðir „sam-
búðaraðilar"?
Ég vona svo að lokum að þessi
grein geti frætt lesendur um mína
hlið málsins og orðið öðrum víti
til varnaðar og fólk athugi vel sín
mál, ef einhverjir eru í svipaðri
stöðu og ég.
ÁSDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR,
Skólagarði 10, Húsavík.
Ótraust póstkerfi
Beltisstaður
borgar stj órans
Frá Jóni Kjartanssyni:
í ÚTV ARPSVIÐTALI fimmtu-
dagsmorguninn 27. nóv. sl. reyndi
borgarstjórinn í Reykjavík að veija
helsta afreksverk sitt í húsnæðis-
málum, þ.e. að selja leiguíbúðir
borgarinnar og hækka leiguna.
Viðtal þetta átti víst að vera svar
við samskonar viðtali við undirrit-
aðan tveimur dögum fyrr. Borgar-
stjóri sagði fiest sem ég nefndi
byggt á misskilningi en gleypti svo
allan misskilninginn og renndi hon-
um niður með því að staðfesta
hvert einasta atriði sem ég til-
greindi. Eitthvað hefur þetta farið
illa niður sem stundum gerist ef
menn éta eitthvað ofan í sig, því
borgarstjóri fór að tala um högg
undir beltisstað. Ástæðan var sú
staðreynd að fyrirhugaðar breyt-
ingar á leigukjörum koma ekki til
framkvæmda fyrr en eftir kosning-
ar. Samningarnir sem nú gilda
renna bara út 1. júlí, sagði Ingi-
björg Sólrún án þess að blikna,
rétt eins og guð almáttugur ráði
því hvenær leigusamningar renna
út_ og ekki í mannlegu valdi að
stýra því. Líklega er fólki ætlað
að trúa þessu eða þá hinu að þeir
sem ákváðu gerð samninganna í
fyrra og þar með hvenær þeir
renna út, viti bara hreint ekkert
um það hvenær kosið er á Islandi!
Ekki veit ég hvoru megin beltis-
staðar þau högg lenda sem fólkið
fær vegna þessara afreka R-lista-
manna, en þung geta þau orðið
sums staðar. Ekki aðeins leigjend-
umir verða fyrir þessum höggum,
heldur einnig margt af því fólki
sem einu sinni var kallað alþýða
og sumir eru enn að reyna að
kenna sig við. í þau 20 ár sem
mín afskipti af húsnæðismálum ná
til, hefur ástand þessara mála oft-
ast verið slæmt en aldrei eins og
núna. Sívaxandi straumur fólks í
leit að leiguíbúð kemur alls staðar
að lokuðum biðlistum. Allt fé fé-
lagslega kerfisins hefur farið og
fer í dýrar eignaríbúðir í Grafar-
vogi (nema það sem fer í skaða-
bætur) sem alþýðan getur ekki
keypt. Þetta er glæsileg framtíðar-
sýn í lok kjörtímabilsins eða hitt
þá heldur, félagslega kerfinu lokað
og leiguíbúðirnar seldar. Hvað
hefðu „félagshyggjuöflin" sagt ef
Sjálfstæðisflokkurinn stæði við
stjómvölinn?
JÓN KJARTANSSON
frá Pálmholti,
formaður Leigjendasamtakanna.
Frá Rúnari Óla Bjamasyni:
FYRIR tveim vikum fékk ég inn
um bréfalúguna tilkynningu um
almenna sendingu frá pósthúsinu
við Stórholt í Reykjavík. Til að
spara mér ferðina þangað uppeftir
hafði ég samband við pósthúsið sím-
leiðis og bað um að láta flytja send-
inguna á pósthúsið við Rauðarár-
stíg. Þetta hef ég oft gert áður og
aldrei lent í vandræðum með það,
þótt afgreiðslufólk pósthússins
komi yfirleitt af ijöllum þegar beðið
er um slíka þjónustu.
Þegar ég hugðist vitja sendingar-
innar á pósthúsinu við Rauðarárstíg
tveim dögum síðar var mér svarað
því að sendingin væri ekki komin
en hún væri væntanleg. Þótti mér
ekkert óvenjulegt við þetta og ég
kom því aftur daginn eftir. Mér
mættu þá sömu svör og daginn
áður en gjaldkerinn sem afgreiddi
mig talaði um einhver gjöld sem
væru skyld sendingunni. Mér þótti
það ólíklegt þar sem sendingin var
mjög smá og engin gjöld voru tekin
fram á tilkynningarseðlinum sem
ég hafði milli handanna. Kom þá í
ljós að sendingin sem sögð var
væntanleg og skyld til gjalda var
böggull sem ég hafði sótt á þetta
Jólagjöfin er frá
Elizabeth Arden
Glæsilegar
gjafapakkningar.
Ráðgjafi verður í
verslun okkar
í dag og á morgun.
sama póshús löngu áður. Ég bað
gjaldkerann um að fletta upp réttri
sendingu og það var sama sagan.
Hún var væntanleg en ekki komin.
Nú er þessi sending búin að vera
væntanleg í tæpar tvær vikur. Ég
hef eytt miklum tíma í símtöl við
hina og þessa aðila á báðum um-
ræddum pósthúsum, sem og á
póstmiðstöðinni í Ármúla þar sem
allar sendingar fara víst í gegn.
Mér þykir það í hæsta máta ólík-
legt að það skuli taka tvær vikur
eða jafnvel meira að koma litlum
pakka leið sem tekur hálftíma að
keyra í mikilli umferð.
Það eina sem nokkur starfsmað-
ur Pósts og síma hefur getað sagt
mér er að bíða og vona. Ég hef
enga leið til að vita hvort sendingin
er glötuð fyrir fullt og allt. Hún
gæti altént komið í leitimar eftir
mörg ár, ekkert veit ég um það og
starfsfólk Pósts og síma veit að
virðist lítið betur. Þó sendingin hafi
ekki verið mikils virði í peningum,
er þetta ómetanlegt tjón fýrir mig
persónulega. Að hugsa sér að við
treystum þessu fólki fyrir póstinum
okkar.
RÚNAR ÓU BJARNASON,
Laufengi 26,112 Reykjavík.
Motjcrn Bcmiiv (jlasÁÍÍ
H Y G E A
// !//•/ iröru i•(•/•«» /// //
Laugavegi 23, s. 5114533.
r
TIlJiOÐ
jHjáðmyjidaAtofa
Qunnwta Jngimwtðioiuvt
Suðurveri, sími 553 4852
Mig langar að þakka börnum mínum, fjölskyld-
um þeirra, œttingum, vinum, svo og kvennakór
Hreyfils, sem glöddu mig með miklum hlýhug,
gjöjum, skeytum og viðveru sinni á áttrœðis-
qffrueli mínu.
Þið öll gerðuð okkur hjónum daginn ógleym-
anlegan.
Megið þið njóta gleðilegra jóla og farsœls
nýs árs. Lifið heil.
Kveðja.
Páll Sverrir Guðmundsson
og Björgheiður Eiríksdóttir.
Mikið úrval afbarnaskóm
eg: 181
Litir: Svartir, brúnir
og bláir
Stærðir: 31-37
Verð kr. 4.995
Teg: Tops 009
Litir: Svartir og
vínrauðir
Stærðir: 24-34
Verð kr. 1.995
8
Póstsendum samdægurs -5% Staðgreiðsluafsláttur
Ath.: Dýrainniskór
í miklu úrvali
Ioppskórinn
Veltusundi v/ Ingólfstorg, sími 552 1212
J