Morgunblaðið - 20.12.1997, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1997 61
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Golli
AÐVENTULJÓSUNUM hefur verið komið fyrir í gluggum
Landakotsspítala.
Gáfu Landakoti
50 aðventuljós
Gönguferð frá sól
risi til sólseturs
Á VETRARSÓLSTÖÐUM, sunnu-
daginn 21. desember, stendur
áhugafólk um gönguferðir með
ströndinni, Strandgönguhópurinn,
fyrir gönguferð frá sólrisi til sólset-
urs með strönd Kollafjarðar og
Skerjafjarðar.
Lagt verður af stað frá bæjar-
skrifstofum Kópavogs kl. 11.21.
Þaðan verður farið út á Borgarholt
og niður að ströndinni og eftir
strandstíg eins og kostur er út fyrir
Seltjarnarnes og að bæjarskrifstof-
unum á Seltjarnarnesi og upp á Val-
húsahæð. Þaðan aftur niður á
ÁRNI Þór Sigurðsson, borgarfull-
trúi og formaður hafnarstjórnar
Reykjavíkur, hefur tekið við for-
mennsku í Hafnasambandi sveitar-
félaga af Kristjáni Þór Júlíussyni,
fráfarandi bæjarstjóra á Isafírði.
Kristján Þór sagði af sér for-
mennsku í Hafnasambandinu í
kjölfar þess að hann hvarf úr stóli
bæjarstjóra fyrr í mánuðinum.
Árni Þór hefur verið varaformaður
sambandsins undanfarin þrjú ár.
Stjóm Hafnasambandsins er
strandstíg og niður að Reykjavíkur-
höfn, áfram að Ráðhúsi Reykjavík-
ur og upp á Skólavörðuholt. Þar
lýkur Vetrarsólstöðugöngunni kl.
15.30.
Um kvöldið á sólstöðumínútunni
kl. 20.07 verður skotið upp flugeldi
af Valhúsahæðinni.
Tilgangurinn með gönguferðinni
er að hvetja ofangreind sveitarfélög
til að ljúka við að leggja göngustíg
með allri strönd þeirra og auðvelda
innkomu á þá sem víðast, segir í
fréttatilkynningu. Öllum er velkom-
ið að taka þátt í göngunni.
skipuð 8 mönnum, einum fulitrúa
úr hverju kjördæmi. Kristján Þór
hefur verið fulltrúi Vestfjarða síð-
an 1994 og formaður frá sama
tíma.
Nýr fulltrái Vestfjarða verður
Halldór Jónsson, bæjarfulltrái á
Isafirði. Ami Þór Sigurðsson hefur
verið fulltrái Reykjavíkur frá 1994.
Þá var Ólafur M. Kristinsson, hafii-
arstjóri í Vestmannaeyjum, kjörinn
nýr varaformaður en Ölafur er full-
trái Suðurlands í stjórninni.
VINAFÉLAG Sjúkrahúss Reykja-
víkur afhenti Landakotsspítala 50
aðventuljós sem búið er að koma
upp í gluggum sjúkrahússins.
Vináttufélag Sjúkrahúss Reykja-
víkur var stofnað 10. febrúar 1983
þá undir nafninu Félag velunnara
Borgarspítalans. Formaður frá
byrjun hefur verið Egill Skúli Ingi-
bergsson, verkfræðingur.
I fréttatilkynningu frá félaginu
segir: „Félagið hefur á liðnum ár-
um sérstaklega reynt að leggja sig
eftir þeim þáttum sem hættir til að
sitja á hakanum hjá fjárveitinga-
valdinu. Má þar nefna t.d. bein
kaup á tækjum eða stuðning við
kaup á tækjum sem auðvelda
læknisaðgerðir og gera þær þján-
ingarminni fyrir sjúklinginn, kaup
á húsgögnum í aðstandendaher-
bergi, gerð kapellu o.fl.“
Visa greiði
fyrir mistök
í innheimtu
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt Visa
ísland til að greiða SÁÁ tæpar 1,6
milljónir króna vegna mistaka sem
urðu við innheimtu styrktarfram-
laga. ,
SÁA safnaði styrktarframlögum
frá u.þ.b. 800 Visa-korthöfum vorið
1994 og átti að færa umsamda upp-
hæð á kortareikning þeirra árlega.
í september það ár fór SÁÁ að
ganga eftir greiðslunum, sem sam- ^
tökin töldu Visa hafa innheimt. Allt
fram í febrúar 1995 gerðu starfs-
menn Visa leit að peningunum, sem
þeir töldu hafa farið inn á biðreikn-
ing og gleymst þar. í ljós kom að
Visa hafði fyrir mistök litið svo á að
greiðslurnar ætti fyrst að inn-
heimta í maí 1995, í stað maí 1994.
Ástæðan var sú að listi yfir loforðs-
gjafa var ekki tölvufærður fyrr en
liðið var á maí 1994 og tók „kerfið"
það svo að innheimta ætti í næsta
maímánuði á eftir.
Eiga að geta treyst
vinnubrögðum og ráðgjöf
Hæstiréttur segir ekki hægt að
líta svo á að Visa hafi haft réttmæta
ástæðu til að ætla að gjöldin ættu
fyrst að koma til greiðslu í maí
1995. Ef vafi hefði leikið á þessu
hafi Visa borið að gera SÁÁ grein
fyrir þvi og leiðbeina um réttan frá-
gang gagna. „Verður að hafa í huga
að stefndi sérhæfir sig í þjónustu af
þessu tagi og eiga viðskiptavinir
hans að geta treyst því að vinnu-
brögð og ráðgjöf séu með vönduð-
um hætti,“ segir Hæstiréttur.
LEIÐRÉTT '
í FRÉTT frá Alþingi um umræður
um stjóm fiskveiða á miðvikudag
var ranglega sagt frá því að tveir
þingmenn stjói-narflokkanna hefðu
greitt atkvæði gegn c-lið fyrstu
greinar. Hið rétta er að fjórir þing-
menn stjórnarflokkanna greiddu at-
kvæði gegn ákvæðinu, þ.e. þeir Guð-
jón Guðmundsson og Guðmundur
Hallvarðsson, þingmenn Sjálfstæð-
isflokks og Guðni Ágústsson og
Magnús Stefánsson, þingmenn
Framsóknarflokks. Beðist er vel-
virðingar á þessum mistökum.
Skotið verður upp
flugeldi á Valhúsa-
hæð kl. 20.07
Seltjar
Nýr formaður Hafna-
sambands sveitarfélaga
Móttaka
sorps
um jól og áramót
Móttökustöð Sorpu í Gufunesi
verður opin sem hér segir
desember til 3. janúar 28. des. sunnudag lokað
29. des. mánudag 6:30 - 18:00
20. des. laugardag 7:30 - 18:00 30. des. þriðjudag 7:30 - 16:15
21. des. sunnudag lokað 31. des. miðvikudag lokað
22. des. mánudag 7:30 - 18:00 1. jan. fimmtudag lokað
23. des. þriðjudag 6:30 - 19:00 2. jan. föstudag 7:30 - 16:15
24, des. miðvikudag lokað 3. jan. laugardag 7:30 - 16:15
25. des. fimmtudag lokað
26. des. föstudag lokað Spilliefnamóttakan í Gufunesi
27. des. laugardag 7:30 - 16:15 verður opin á sama tíma
Gleðileg jól!
S@RPA
SORPEYÐING
HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs
Gufunesi, sími 520 2200