Morgunblaðið - 20.12.1997, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 20.12.1997, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1997 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Forseti í fjórðu tilraun Kim Dae Jung, nýkjörinn for- seti Suður-Kóreu, hefur baríst lengi gegn ranglæti og fyrir því að setjast á forsetastól. Stefnumál hans eru engu að síður að mörgu leyti óljós. ÞRAUTSEIGJA og réttlætiskennd hafa drifið Kim Dae Jung, nýkjörinn forseta Suður- Kóreu, áfram í gegnum mikla erfíðleika. Hann hefur mætt miklu ranglæti, honum hafa verið sýnd fleiri en eitt banatilræði og hann hefur setið í fangelsi og stofufangelsi í á annan áratug. Nú hefur hann hins vegar uppskorið laun erfíðis síns, 73 ára gamall. Áhrifín af kjöri hans eru óljós, ekki síst vegna þess að hugmyndir hans, sérstaklega í efna- hagsmálum, eru um margt óljósar. Stuðningsmenn Kim Dae Jung kalla hann Nelson Mandela Kóreu og samlíkingin þykir ekki fjarri lagi. Báðir hafa helgað líf sitt baráttunni gegn óréttlæti og þurft að gjalda dýru verði. Þegar Mandela hlaut friðarverð- laun Nóbels var Kim einn þeirra sem tilnefnd- ir voru og nú hafa báðir mennirnir verið kjöm- ir forsetar í heimalandi, þar sem báðir mættu áður svo miklu mótlæti. Mandela og Kim eiga það einnig sameigin- legt að vera fulltrúar almennings, fulltrúar sem hafa mátt þola miklar raunir. Mandela var haldið í fangelsi í aldarfjórðung, líf Kims hefur oftar en einu sinni hangið á bláþræði. Líf hans hefur verið sagt gott efni í kvik- mynd og stuðningsmenn hans segja að vegna ofsóknanna á hendur Kim sé hann nánast í dýrlingatölu í huga margra. Kim er orðinn 73 ára og barátta hans við að komast í forsetastól hefur staðið meira og minna í fjóra áratugi. Ástæður þess að Kim hefur átt svo erfítt uppdráttar eru ýms- ar. Hann er fulltrúi jafnaðarmanna og hefur verið sakaður um að vera helst til hallur undir kommúnistana í norðri. Andstæðingar hans segja hann ennfremur hijáðan af „for- setasýki"; hann hafí verið heltekinn af hug- myndinni um að verða forseti. Þá hafa hug- myndir hans í efnahagsmálum þótt óljósar enda gætti áhrifa kjörs hans þegar í stað á fjármálamörkuðum í gær. Tvö banatilræði Ólán Kims lá m.a. í því að óvinir hans hafa verið valdamiklir einræðisherrar sem virtust hafa alla þræði í hendi sér fram und- ir lok siðasta áratugar. Þegar forsetar á borð við Park Chung Hee, Chun Doo Hwan og Roh Tae Woo sögðu almenningi að hata Kim síuðust skilaboðin inn. Þetta voru mennirnir sem gerðu Suður-Kóreu að efnahagslegu stórveldi og þeir sem réðu yfir fjármagni réðu flestu öðru. Forsetakosningarnar nú báru vott um breytta tíma í Suður-Kóreu því nú hefur fjölmiðaöldin hafíð innreið sína. í fyrsta sinn var sjónvarpið áhrifaríkast í kosningabarátt- unni og telja má víst að ekki hafí verið átt við úrslit kosninganna, eins og gerðist árið 1971, er Kim tapaði forsetakosningunum naumlega. Óháðir eftirlitsmenn voru þá þeirr- ar skoðunar að Kim hefði unnið slaginn, ef ekki hefði komið til kosningasvindl andstæð- Reuters KIM Dae Jung, nýkjörinn forseti Suð- ur-Kóreu, og eiginkona hans setja reykelsi á eld sem logar til minningar um þá sem látið hafa lífið í styrjöldum. ings hans, Parks. Meðan á kosningaslagnum stóð ók vörubíll á Kim, sem lifði af en hefur haltrað síðan. Hann fullyrðir að um banatil- ræði hafí verið að ræða. Ög í kjölfar kosninga- sigursins sigaði Park öryggissveitum sínum á Kim. Honum var rænt, er hann var staddur á hóteli í Japan, farið með hann út á sjó og voru sveitarmeðlimir í þann veginn að drekkja Kim er flugvél skaut viðvörunarblysi að þeim. Kim fullyrðir að þar hafí útsendarar banda- rísku leyniþjónustunnar verið að verki en það hefur aldrei verið sannað. Hins vegar er full- víst að þrýstingur bandarískra stjórnvalda er ein ástæða þess að Kim hefur haldið lífí á þeim tæpu þremur áratugum sem liðnir eru. Fangelsi og útlegð Árið 1980 stóðu lýðræðissinnar fyrir mikl- um mótmælum í Kwangju í Suður-Kóreu og var Kim einna fremstur í flokki og á meðal þeirra fyrstu sem var handtekinn. Fjöldi fólks var myitur en það er ekki fyrr en á síðasta ári sem almenningur gat í raun áttað sig á því hvað gerst hafði, er Roh og Chun, fyrrver- andi forsetar, voru dæmdir fyrir aðild sína að málinu. Kim hefur eytt sex árum ævi sinnar í fang- elsi, öðrum sjö í stofufangelsi og hálfu öðru ári í útlegð í Bandaríkjunum. Þegar hann sat í fangelsi fékk hann að eiga samskipti við fjölskyldu sína með því að senda henni eitt ritskoðað bréf á mánuði. Bréfín voru síðar gefín út á bók sem nefnist „Skrif úr fang- elsi“ en þar harmar Kim það m.a. hve andóf hans gegn valdhöfum hafí gert fjölskyldu hans erfítt fyrir. Þar kemur einnig fram trú- arstyrkur Kims en hann er kaþólskur. Kim voru bönnuð afskipti af stjómmálum fram til ársins 1987. Þá bauð hann sig fram í forsetakosningum, eins og Kim Young Sam, fráfarandi forseti. Báðir voru andófsmenn sem ræddu um mannréttindi, efni sem var almenningi í Suður-Kóreu framandi. Báðir töpuðu en Kim Young Sam vann í forsetakosningunum 1992, sem nafni hans, Dae Jung, bauð sig einnig fram í og í kjölfar þess hugðist hann draga sig í hlé. Þegar hann skipti um skoðun hafði fólk það helst á móti honum að hann væri of gamall en Kim lét slíka gagnrýni sem vind um eyru þjóta. Hann hefur hins vegar heitið því að hætta á miðju kjörtímabili og láta völdin í hendur Kim Jong Pil, samstarfsmanni sínum. Þá hefur Kim sagt það eitt af markmiðum sínum að draga úr völdum forsetans. Efnahagsmál Akkilesarhællinn? Enginn efast um hugrekki Kims og þraut- seigju en það sama verður ekki sagt um efna- hagsmálin. í fyrra sendi hann frá sér bók þar sem hann lýsti sig fylgjandi æ frjálsara markaðskerfi en yfirlýsingar hans í kosninga- baráttunni þóttu ekki styðja það. Hann var fyrstur frambjóðenda til að viðurkenna þörf- ina á efnahagsaðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins við Suður-Kóreu, en hefur ekki tjáð sig um það til hvaða umbóta hann hyggist grípa, svo að landið geti mætt þeim skilyrðum sem sjóðurinn setur. Víst er að hann á erfítt verk fyrir höndum; hann er fulltrúi verkalýðsfé- laga, sem horfa nú fram á aukið atvinnu- leysi og treysta því að Kim komi þeim til aðstoðar á þeim erfiðu tímum sem nú fara í hönd. Kim hefur enda lýst því yfir að hann vilji semja að nýju við sjóðinn um aðstoð. Europe Tax-free Shopping á íslandi hf. Kaplahrauni 15 • 220 HafnarfjörÖur • Sími 555 2833 Fax 555 2823 • www.taxfree.se • ets@islandia.is Svtma einfalt er það: • Verslið í aðildarverslunum Europe Tax-free Shopping • Sýnið ávísun ásamt vöru við brottför • Endurgreiðsla í m.a. Landsbanka íslands, M Landsbanki íslands Keflavíkurflugvelli Atbugið Til að geta nýtt sér þessa þjónustu þarf að framvísa fullgildri sönnun sem staðfestir fasta búsetu erlendis, sem gceti veri s.s. 1. Stimpill í vegabréfi (sem staðfestir búsetu í viðkomandi landi). 2. Persónuskilríki / nafnskírteini frá viðkomandi latidi (ath. gildistíma). 3. Löggild skilríki / búsetuvottorð frá þjóðskrá viðkomandi lands. Ef viðkomandi getur ekki framvísað einhverjum af ofatmefndum skilríkjum (1-2-3) sem staðfesta fasta búsetu erlendis, má benda á búsetuvottorð frá þjóðskrá / Hagstofu íslands (kostar kr. 200,-). Endurnrelðslan er 15% TAX FREE íslendlimar busettir erlendis neta nn verslað pr nusemr er JAX-FREE hérá Aðildarverslanir Europe Tax-free Shopping eru S50 talsins um allt land
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.