Morgunblaðið - 20.12.1997, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1997 25
ERLENT
Tyrkir hóta ESB inn-
limun Norður-Kýpur
London, Nikósíu. The Daily Telegraph, Reuters.
TYRKNESKIR embættismenn segja
að efni Evrópusambandið til aðildar-
viðræðna við stjórn grískumælandi
Kýpveqa á næsta ári geti svo farið
að Tyrkland gi'ípi til þess ráðs að
innlima norðurhluta Kýpur, sem
tyrkneskt herlið hefur hersetið í
meira en tvo áratugi. ESB ákvað í
síðustu viku að bjóða hinni alþjóð-
lega viðurkenndu stjórn Kýpur til
aðildarviðræðna en frestaði því hins
vegar ótímabundið að taka afstöðu
til aðildarumsóknar Tyrklands.
Hátt settur tyrkneskur embættis-
maður tjáði frönsku fréttastofunni
Agence France Press að í stað „sam-
runa“ Norður-Kýpur og Tyrklands,
sem tyrknesk stjórnvöld hafa viljað
beita sér fyrir, gæti komið til þess
að norðurhluti eyjarinnar yrði innli-
maður í Tyrkland. Tyrkneskumæ-
landi íbúar á Kýpur hafa lýst yfir
stofnun sjálfstæðs lýðveldis í norður-
hlutanum en ekkert ríki nema Tyrk-
land viðurkennir stjórn þess. Fjöldi
Tyrkja hefur flutzt búferlum til eyj-
arinnar. Evrópusambandið hefur átt
í viðræðum við hina alþjóðlega viður-
Brussel. Reuters.
AÐEINS þriðjungur íbúa Evrópu-
sambandsins (ESB) telur sig vera
lausan við kynþáttafordóma, sam-
kvæmt niðurstöðum Eurobaro-
meíer-könnunar sem birt var í
gær. Þriðjungur sagðist aftur á
móti mjög svo eða að verulegu
leyti aðhyllast kynþáttahyggju
(vera „rasistar"), og þriðjungur
sagðist „að einhveiju leyti“ vera
þannig þenkjandi.
Padraig Flynn, sem fer með
félagsmál í framkvæmdastjórn
ESB, lýsti niðurstöðunum sem
„áfalli", en þær voru kynntar í
gær á ráðstefnu sem haldin var
í Brussel til að marka lok „Evr-
ópsks árs gegn kynþáttafordóm-
um“.
Að meðaltali í öllum 15 aðild-
kenndu stjórn, sem er skipuð grísku-
mælandi Kýpvetjum, en jafnframt
reynt að miðla málum á milli þjóðar-
brotanna.
„í versta falli gæti þetta leitt til
innlimunar. Kæmi til þess, gæti svo
farið að Norður-Kýpur yrði samein-
uð Mersin-héraði.“
Mesut Yilmaz, forsætisráðherra
Tyrklands, sagði á fimmtudag að
ákvörðun ESB gæti leitt til klofnings
á Kýpur. „Röng ákvörðun Evrópu-
sambansins mun sennilega leiða til
skiptingar eyjarinnar," sagði hann.
Segja ESB hafa eyðilagt
möguleika á lausn deilunnar
Rauf Denktash, leiðtogi Kýpur-
Tyrkja, sagði í gær að stjórn hans
arlöndum sambandsins sögðust
9% aðhyllast kynþáttahyggju
mjög sterklega, 24% sögðust vera
„talsverðir rasistar" og 33% sögð-
ust vera það að einhveiju leyti.
í könnuninni voru spurningar
lagðar fyrir 16.154 manns í aðild-
arlöndunum 15 í marz og apríl á
þessu ári.
Hlutfall þeirra sem sögðust
„mjög miklir rasistar" var hæst í
Belgíu, 22%, næst í Frakklandi,
16%, og þar næst í Austurríki,
14%. Að viðbættum þeim sem
sögðust „talsvert miklir rasistar"
komu sömu þrjú lönd út með
hæsta hlutfallið, 55% í Belgíu, 48%
í Frakklandi og 42% í Austurríki.
Lægst var þetta hlutfall í Lúx-
emborg og Svíþjóð.
tæki undir ummæli Yilmaz. Evrópu-
sambandið hefði með boði sínu til
stjórnar grískumælandi eyjar-
skeggja eyðilagt möguleika á lausn
Kýpurdeilunnar, sem gæti byggzt á
stofnun sambandsríkis.
Sjálfskipað þing Kýpur-Tyrkja
mun efna til aukafundar í dag og
ræða viðbrögð við ákvörðun ESB.
Glafkos Klerides, forseti Kýpur,
sagði hins vegar að hótanir Yilmaz
skiptu engu máli. Ríki heims myndu
ekki leyfa að spenna ykist á Kýpur
vegna hugsanlegra áhrifa á ástandið
í Mið-Austurlöndum og á Balkan-
skaga. „Ég held að við þurfum ekki
að hafa áhyggjur af að gerð verði
alvara úr þessum hótunum," sagði
Klerides.
Bæði Frakkland og Grikkland hafa
varað Tyrki við hvers kyns áætlunum
um „samruna" eða innlimun Norður-
Kýpur. í yfirlýsingu franskra stjóm-
valda segir að stefna Tyrkja sé
„blindgata" og ekki í þágu þeirrar
viðleitni tyrkneskra stjórnvalda að fá
aðild að Évrópusambandinu.
Kynþáttafordómar
útbreiddir í ESB
Við styðjum við bakið á þér!
Jean-Dominique Bauby
Glerh
k ogj
, Allar þœr tilfinningar, sem mannshjartað
Mþekkir, finnast á þessum síðum. “
GUÐRÚN FINNBOGADÓTTIR
M ÞÝDDIBÓKINA
um fegurð mannsam
BÓKA & BLAÐ.
Líkaminn er í gler-
hylki, hugurinn er
fiðrildi sem flögrar
um lendur minninga
og tilfinninga.