Morgunblaðið - 23.01.1998, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998 19
Ástandið í
Israel eins
og hjá nas-
istum
FIÐLULEIKARINN Yehudi
Menuhin, sem er gyðingur,
líkti ástandinu í Israel við
ástandið í Þýskalandi á valda-
tíma nasista í
viðtali við Le
Figaro í gær.
Hann sagði
því hlutverki
Israels að
vera hið fyr-
irheitna land
ofsóttrar
þjóðar vera
lokið. Mikil-
vægasta hlutskipti Israels nú
væri að vinna að friði í Mið-
austurlöndum þó svo það virt-
ist í auknum mæh ómögulegt.
Sagði hann að þeir sem vildu
Jerúsalem út af fyrir sig hefðu
alltaf orðið undir í stríðsátök-
um því hún væri borg eilífðar-
innar. Líklegt þykir að um-
mæli Menuhins valdi uppnámi
í ættlandi hans.
Fulltrúi SÞ
hitti Suu Kyi
FULLTRÚI Sameinuðu þjóð-
anna í málefnum Búrma, Al-
varo De Soto, ræddi við leið-
toga herforingjastjórnarinnar
og Aung San Suu Kyi, leiðtoga
stjórnarandstöðunnar, um
stjómmálaástandið í landinu í
gær en varðist allra fregna af
viðræðunum.
Atvinnulausir
herskáir
UM 100 herskáir franskir at-
vinnuleysingjar ruddust inn á
skrifstofur franska jafnaðar-
mannaflokksins í París í gær
og mótmæltu því að stjóm
Lionels Jospins forsætisráð-
herra skyldi hafna hækkun at-
vinnuleysisbóta. Lögregla um-
kringdi húsið en fór ekki inn.
Fjögur helstu baráttusamtök
atvinnulausra Frakka hafa
boðað til mótmæladags um
land allt næstkomandi þriðju-
dag er franska þingið tekur til
umræðu framvarp stjórnar-
innar um styttingu vinnuvik-
unnar úr 39 stundum í 35.
Mansell
missti prófíð
BRESKA kappaksturshetjan
Nigel Mansell, sem varð
heimsmeistari í Formúlu-1
1992, var sviptur ökuleyfi til
sex mánaða í gær, eftir að
hafa verið stöðvaður fyrir of
hraðan akstur þriðja sinni.
Þjóðverjar
stela verjum
ÞRIÐJI hver smokkur sem
Þjóðverjar nota er stoKnn, að
sögn blaðsins Berliner Mor-
genpost. Hefur það upplýsing-
arnar eftir samtökum verslun-
arinnar (HDE) sem segir
Þjóðverja stela 38% smokkum
sem þeir nota vegna tepru-
skapar. Engri vörategund er
stolið hlutfallslega jafn mikið.
Næst á þeiiTÍ skrá kemur vin-
sælt hrakkukrem.
Mcnuhin
Schröder talinn
eiga sigur vísan
Hannover. Reuters.
GERHARD Schröder virðist eiga
sigur vísan í kosningum til þings
Neðra-Saxlands, þar sem hann
gegnir embætti forsætisráðherra.
Kosningar fara fram í Neðra-
Saxlandi 1. marz.
Samkvæmt niðurstöðum nýrrar
skoðanakönnunar fær flokkur
Schröders, jafnaðarmannaflokkur-
inn SPD, 46% atkvæða í kosningun-
um, en kristilegir demókratar
(CDU), aðeins 35%. Schröder hefur
áður sagt að hann sé sjálfkrafa úr
leik sem væntanlegt kanzlaraefni
SPD ef flokkurinn tapaði meira en
tveimur prósentum atkvæða frá
síðustu kosningum í Neðra-
Saxlandi, þegar SPD fékk 44,3%.
Fyrr í vikunni vísuðu Schröder
og keppinautur hans um útnefn-
ingu sem kanzlaraefni SPD, flokks-
formaðurinn Oskar Lafontaine, á
bug orðrdmi um dsætti hefði komið
upp á milli þeirra vegna þess
hvenær fiokkurinn eigi að útnefna
formlega kanzlaraefni sitt, en í
tímaritsviðtali sem birtist á mánu-
dag sagði Sehröder að þessi
ákvörðun verði að liggja fyrir í
seinasta lagi 7. marz. Hér gera
Schröder (t.v.) og Lafontaine að
gamni sínu á fundi í Bonn.
Reuters
Afsláttur
150 sparkbílar IUUU
450 ökklaskór 500 k
300 barnaháskólabolir 500 k
300 dömupeysur 350 k
1000 búðingsform 50 kr.
1000 borðmottur 50 kr.
rstir koma fyrst.v
Komdu og gerðu góð kaup!
Ofurtilboð eru einungis fáanleg í verslunum Hagkaups
Skeifu, Kringlu, Akureyri og Nfarðvík.
HAGKAUP
fifrirfiölsktfldnHa