Morgunblaðið - 24.03.1998, Qupperneq 1
112 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
69. TBL. 86. ÁKG.
ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Danmörk
Jeltsín Rússlandsforseti víkur Tsjernomyrdín og allri sljórn hans frá
Dregur úr
líkum á
verkfalli
Kaupmannahöfn. Morgunblaðid.
MEÐ samningum Dansk Industri,
DI, og verkalýðsfélaga í iðnaði um
helgina er stærstu hindrun yfir-
standandi samninga í einkageiranum
rutt úr vegi og um leið dregur úr lík-
um að til verkfalls komi. Samning-
arnir eiga að gilda í tvö ár. Eiginleg-
ir launasamningar eru gerðir í fyrir-
tækjunum, en samningur DI og
verkalýðsfélaganna er rammasamn-
ingur. Mikil reiði ríkir víða í garð DI
fyrir að hafa dregið samninga á lang-
inn og hindrað aðra í að semja.
Með samningum nú er greitt fyrir
meiri sveigjanleika í vinnutíma og
eins lagður rammi að því að starfs-
fólk geti unnið fjarvinnu heima fyrir
með tölvu- og nettengslum. Mari-
anne Jelved efnahagsráðherra segir
þetta helsta ávinning með samning-
unum nú, þar sem haldið sé áfram á
þeirri braut að auka sveigjanleika
danska vinnumarkaðarins.
Nú kemur til kasta félaga í öðrum
greinum að semja, þar sem Dansk
Industri átti að ríða á vaðið, en búist
er við að þeir samningar gangi fljótt
fyrir sig. Mikil reiði er í ýmsum fé-
lögum yfir seinagangi iðnaðarsamn-
inganna.
Stjórnarskipti ekki talin
veikja umbótastefnuna
Moskvu. Reuters.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
vék í gær Viktor Tsjemomyrdín
forsætisráðherra og allri stjórn
hans frá og kvaðst vilja blása nýju
lífi í efnahagsumbæturnar. Þessi
ákvörðun kom flestum á óvart en
fjármálasérfræðingar í Moskvu og
stjórnvöld í öðrum ríkjum sögðu að
stjórnarskipti ættu ekki að veikja
umbótastefnuna og gætu jafnvel
styrkt hana.
Jeltsín kvaðst hafa vikið stjórn-
inni frá vegna þess að henni hefði
ekki tekist að leysa efnahagsvanda
landsins og markmið nýrrar stjórn-
ar yrði að hraða efnahagsumbótum
og bæta kjör rússnesks almennings.
Nýju ráðherramir þyrftu að
tryggja „áþreifanlegan árangur" og eyða minni
tíma í pólitískt baktjaldamakk en fyrri stjórn.
Forsetinn bað Tsjernomyrdín að undirbúa
þingkosningar á næsta ári og forsetakosningar
árið eftir. Jeltsín fól síðan Sergej Kíríjenko, 35
ára orkumálaráðherra, að gegna embætti for-
sætisráðherra þar til ný stjórn verður mynduð.
„Þetta tilboð kom mér algjöriega á óvart. Ég
frétti af þessu í morgun," sagði
Kíríjenko við fréttamenn og bætti
við að engin breyting yrði á þeirri
stefnu sem Jeltsín kynnti á þinginu í
liðnum mánuði.
Ekki er vitað hvern Jeltsín hyggst
velja í forsætisráðherraembættið
þegar hann myndar nýja stjórn.
Fréttaskýrendur í Moskvu sögðu að
Ivan Rybkín aðstoðarforsætisráð-
herra væri á meðal þeirra sem
kæmu til greina í embættið en
Sergej Jastrzhembskí, talsmaður
forsetans, sagði líklegt að Kíríjenko
yrði fyrir valinu.
Anatolí Tsjúbajs, fyrsti aðstoðar-
forsætisráðherra, einn þeirra sem
var vikið frá, sagði líklegt að flestir
ráðherranna myndu halda embættum sínum eft-
ir uppstokkunina. Hann kvaðst ekki vita hvaða
embætti hann fengi við stjórnarskiptin.
Ákvörðun Jeltsíns kom ráðamönnum í Banda-
ríkjunum og Evrópuríkjum á óvart, en þeir sögð-
ust ekki hafa miklar áhyggjur af stjórnarskipt-
unum. Embættismenn í Kreml sögðu að utanrík-
isstefna Rússa myndi ekki breytast og Bill Clint-
on Bandaríkjaforseti kvaðst ekki hafa ástæðu til
að draga þá yfiriýsingu í efa.
„Ég hygg að þetta sé öllum fyrir bestu,“ sagði
Edúard Shevardnadze, forseti Georgíu, og ráða-
menn í öðrum fyrrverandi sovétlýðveldum létu
sér fátt um finnast.
Gengi rússneskra verðbréfa hækkaði um 2% í
gær og fjármálasérfræðingar í Moskvu sögðu að
stjórnarskipti ættu ekki að hindra frekari um-
bætur, þvert á móti kynni þeim að verða hraðað.
Gæti Ieitt til deilu
við þingið
Ákvörðun Jeltsíns kom rússneskum stjórn-
málamönnum í opna skjöldu og meðal þeirra
voru skiptar skoðanir um afleiðingarnar. Einn
þeirra varaði við því að ákvörðunin gæti Ieitt til
nýrrar deilu við þingið, sem þarf að samþykkja
þann forsætisráðherra sem forsetinn tilnefnir.
Jevgení Prímakov utanríkisráðherra var beð-
inn að gegna embætti utanríkisráðherra áfram
þar til ný stjórn verður mynduð og talið er að
hann og Igor Sergejev varnannálaráðherra haldi
embættum sínum.
■ Vill blása nýju lífi/34
Reuters
GÍFURLEGUR mannfjöldi fagnaði Clinton í Accra í gær og virtist sem forsetanum væri allt að því nóg um.
Tólf daga Afríkuheimsókn Bill Clintons hafín
Ahersla á lýðræðisþróun
Accra í Ghana. Reuters.
BILL Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, hóf tólf daga Afríkuheimsókn
í Ghana í gær og gerði þar að um-
talsefni hagkvæmni lýðræðis, við-
skipta og réttlætis, auk þess sem
hann atyrti herstjómina í Nígeríu.
„Við viljum leggja Afríkubúum lið
til þess að koma á lýðræði," sagði
Bandaríkjaforseti við um 250 þús-
und áheyrendur á Sjálfstæðistorg-
inu í Accra, höfuðborg Ghana.
í ræðu sinni skírskotaði Clinton
oft til nafntogaðra Afríkumanna,
sem og Bandaríkjamanna af
afrískum uppruna, t.d. Martin
Luther King, og hvatti ungt fólk í
Afríku til þess að vinna að bjartari
framtíð. Hrósaði forsetinn lýðræð-
isþróun í álfunni en fór um leið
hörðum orðum um herstjórnina í
Nígeríu.
Clinton og Hillary, kona hans,
heimsækja sex ríki í þessari för,
sem er sú umfangsmesta sem sitj-
andi Bandaríkjaforseti hefur farið
til Mríku. í gær lá leiðin frá Ghana
til Úganda, en einnig fara forseta-
hjónin til Rúanda, Suður-Afríku,
Botswana og Senegal.
Þúsundir Ghanabúa vom á flug-
vellinum er Clinton hjónin komu
og nokkur hundruð þúsunda til
viðbótar voru meðfram veginum er
ekið var til Accra. Á Sjálfstæðis-
torginu veifuðu margir bandaríska
fánanum og létu falla vinsamleg
orð um Bandaríkin og forseta
þeirra.
„Ég er ánægður, ég er ánægður.
Ég er hamingjusamur maður, ég
hef séð Bill Clinton," sagði ghan-
ískur blaðamaður á torginu.
Clinton hélt til Úganda í gær-
kvöld, og verður þar í tvo daga og
segja fréttaskýrendur að fór hans
þangað sé til marks um velvilja
bandarískra stjórnvalda í garð for-
seta landsins, Yoweri Museveni.
Afi ekur
í bæinn
Stokkhólmi. Reuters.
104 ÁRA sænskur ökuþór virti
rauð ljós að vettugi, skemmdi
kyrrstæða bfla og ók uþp á
gangstétt þegar hann fór í
sunnudagsbíltúr á gráu ‘68
Cortínunni sinni. Segja sænsk-
ir fjölmiðlar að líklega sé hann
elsti maður sem ákærður hefur
verið fyrir umferðarlagabrot.
Lögregla var kölluð til er bfll
sást fastur þversum á götu, gat
ekki beygt og hafði verið ekið á
tvo bfla. Hans Rundkvist, lög-
reglumaður, tjáði Expressen
að ökuþórinn aldraði hefði sagt
lögreglu að hann æki bíl sínum
daglega.
*
Norður-Irland
Síðasta
lotan
hafín
Belfast. Reuters.
SÍÐASTA lota viðræðna um framtíð
Norður-írlands hófst með harkaleg-
um skoðanaskiptum deiluaðila í
Belfast í gær. Sinn Fein, stjórnmála-
armur írska lýðveldishersins (IRA),
mætti aftur tfl viðræðnanna eftir að
hafa verið meinuð þátttaka í 18 daga.
Viðræðurnar eru haldnar að undir-
lagi írskra og breskra stjórnvalda og
vona þau að samkomulag verði tflbú-
ið 9. aprfl. Sinn Fein var vikið frá við-
ræðunum vegna meintrar aðildai'
IRA að tveim morðum í Belfast
David Trimble, leiðtogi Flokks
sambandssinna Ulsters (UUP), gaf í
skyn að IRA hefði átt aðild að fjölda
hermdarverka sem unnin hafa verið
nýlega og öfgahópar taldir hafa stað-
ið að. Krafðist Trimble þess að það
sem rætt hefði verið hingað til yrði
endurskoðað, þ.á m. skilyrði um af-
vopnun skæruliða. Sagði Trimble að
sprengja, sem lögregla eyddi í bæn-
um Dundalk á Irlandi á sunnudag,
hefði verið verk „sprengjusmiða
IRA“. Trimble sagði ekki hægt að
leyfa „fólki að taka þátt í viðræðun-
um á fölskum forsendum", og skír-
skotaði þar til Sinn Fein.
Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein,
sagði Trimble standa í vegi fyrir því
að árangur næðist. Adams sagðist
telja að það væri „fræðilegur mögu-
leiki“ á að ná samkomulagi fyrir 9.
apríl, að því gefnu að leiðtogar
flokka allra aðila og stjórnvöld bæði
á írlandi og Bretlandi gerðu sitt
ýtrasta til þess að breyta stefnu við-
ræðnanna.