Morgunblaðið - 24.03.1998, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Formaður bankaráðs Landsbanka íslands
Tillaga um sölu á eignar-
hlut í YIS dregin til baka
Island og
Kanada
skrifa undir
viðskipta-
samning
ISLAND og Kanada undimta í dag
tvíhliða samkomulag um samvinnu
á sviði efnahags- og viðskiptamála.
Samkomulagið gefur færi á mjög
auknu samstarfi ríkjanna á ýmsum
sviðum og er hliðstætt þeim samn-
ingum sem Kanada hefur nú þegar
gert við Noreg og Sviss um tvíhliða
viðskipti.
Fundur kanadískra og íslenskra
embættismanna er jafnframt und-
anfari að samningaviðræðum
Kanada og EFTA-ríkjanna um frí-
verslunarmál. Aðalsamningamaður
Kanada í þeim viðræðum, John
Klassen, er staddur hér á landi til
að undirrita samninginn við ísland
auk sendiherra Kanada á íslandi,
Marie-Lucie Morin, sem aðsetur
hefur í Ósló.
A fundi þeirra með fulltrúum
ráðuneyta fara, skv. upplýsingum
úr utanríkisráðuneytinu, fram
nauðsynlegar undirbúningsviðræð-
ur að iyrstu lotu fríverslunarvið-
ræðna Kanada og EFTA.
—..... --------
Hafísinn úti fyrir
Vestíjörðum
Siglingaleið
um Horn
ófær
HAFÍSINN heldur áfram að teppa
siglingaleiðina um Hom. Olíuskipið
Kyndill og Mælifell Samskipa héldu
austurleiðina frá Sauðárkróki í
gærmorgun í stað þess að fara um
Vestfirðina, en það lengir leiðina
um rúman sólarhring. Reykjafoss,
strandferðaskip Eimskipafélagsins,
hélt vestur tO Isafjarðar í morgun
frá Reykjavík og vonast til að kom-
ast þangað í kvöld, en skipið er ný-
komið austurleiðina frá Sauðár-
króki.
Landhelgisgæslan hefur ekki
komist í ískönnunarleiðangur síðan
á fimmtudaginn sl. vegna veðurs,
og fá skip eru á miðunum, svo litlar
upplýsingar liggja fyrir um rek íss-
ins.
Þór Jakobsson hjá Veðurstofu
íslands sagði að vindáttir hefðu
verið óhagstæðar vegna íssins und-
anfarið og líklega yrði svo áfram.
Suðvestanáttir undanfarið hafa lík-
lega hrakið ísinn nær Vestfjörðum
og norðan stormur sem spáð er
áfram næstu daga hrekur ísinn fyr-
ir norðan Vestfirði að landi.
Morgunblaðið/Jóhannes Tómasson
ÞESSI pyttur mun vera lítill
miðað við það sem gerist á veg-
um í Landbroti og Meðallandi.
Sátu heima
vegna
aurbleytu
VEGURINN um Landbrot og Með-
alland var ófær fólksbílum vegna
aurbleytu í gær. Samkvæmt upplýs-
ingum lögreglu á Kirkjubæjar-
klaustri tók fólk höndum saman um
það að sitja heima enda léti það ekki
bjóða sér að þurfa að berjast yfir
veginn við illan leik til að komast í
skóla og vinnu.
Hjá Vegagerðinni fengust þær
upplýsingar að vegurinn væri mjög
slæmur yfirferðar þar sem klakinn
væri að fara úr honum. Vegna þrá-
beini íbúanna hefði verið hafist
handa við bráðabrigðaviðgerðir síð-
degis í gær. Ekki stæði hins vegar til
að farið yrði út í varanlegar viðgerð-
ir á þessu stigi þar sem það væri
ómögulegt á meðan vegurinn væri
svona blautur. Það væri hins vegar
alls ekki óeðlilegt að það drægist í
nokkra daga að gert væri við
skemmdir af völdum aurbleytu.
Þessi staða gæti alltaf komið upp,
sérstaklega úti á landsbyggðinni þar
sem vegir væru lélegir.
HELGI S. Guðmundsson, foi-mað-
ur bankaráðs Landsbanka íslands,
hefur ákveðið að draga til baka
hugmyndir sínar á bankaráðsfundi
á fimmtudaginn var um að Lands-
bankinn selji stærstan eignarhlut
sinn í Vátryggingafélagi Islands og
losaði þannig um fjármagn til
kaupa á hlut í Fjárfestingabanka
atvinnulífsins eða öðrum arðbær-
um fjárfestingarkosti, eins og fram
kom í Morgunblaðinu á laugardag-
inn var.
Helgi dró hugmyndina til baka á
FORYSTUMENN sjómannasam-
takanna mótmæla harðlega fram-
setningu og útreikningum LÍÚ á
hækkun launa sjómanna við fækk-
un í áhöfn, sem greint var frá í
Morgunblaðinu sl. laugardag.
Segja þeir þessa uppsetningu í
engu samræmi við veruleikann
heldur sé hún „áróður og lyga-
þvæla“, eins og Guðjón A. Krist-
jánsson, formaður FFSÍ og Sævar
Gunnarsson, formaður Sjómanna-
sambandsins, komust að orði.
Segja þeir að útgerðarmenn
bregðist ætíð við fækkun í áhöfn
skipa með því að lækka fiskverðið
og beri því ekki hærri launakostn-
að af þeim sökum.
fundi í bankaráði Landsbankans á
sunnudaginn, sem var sérstaklega
boðaður til þess að fjalla um þetta
mál. Helgi sagði í samtali við Morg-
unblaðið að öll sú umræða sem fram
hefði farið um málið undanfarna
daga gerði það að verkum að hann
sæi ekki að það þjónaði nokkrum
tilgangi að vera með þessa hug-
mynd áfram upp á borðinu.
Óvarlega farið með upplýsingar
Helgi sagði að ástæðan fyrir því
að þetta mál hefði komist í hámæli
Komast fram hjá þessu
með því að lækka fiskverðið
„Þetta er haugalygi, eins og þeir
hafa sett þetta upp, vegna þess að
þeir hafa sjálfir stillt fiskverðið af
miðað við mannafjöldann. Ef
fækkað hefur í áhöfninni hafa þeir
bara lækkað fiskverðið. Ef þeir
færu eftir kjarasamningum og
verðið væri eðlilegt, þá væri þetta
rétt en þær aðferðir sem þeir hafa
notað til að komast fram hjá þessu,
eru einfaldlega þær, að í staðinn
fyrir að láta verðið halda sér ef
fækkar í áhöfninni, þá lækka þeir
bara verðið. Þannig stilla þeir hlut-
ina af. Þeir hafa í raun aldrei verið
væri að hans mati sú að meðan
hann var að undirbúa þessar hug-
myndir hefði hann þurft að hafa
samband við þrjá sérfiæðinga í
þessum efnum til að geta undirbúið
umræðuna nægilega vel. Þar hafi
verið farið óvarlega með upplýs-
ingar um málið að hans mati. Hann
telji sig hafa nokkuð örugga vit-
neskju þar um og taki það því al-
farið á sig að upplýsingar um til-
löguna hafi komist í hámæli. Þar sé
samstarfsfólki hans í bankanum
alls ekki um að kenna.
að greiða það sem þeir hafa sagt
þjóðinni að þeir hafi verið að
greiða. Það er bara lygi og ekkert
annað,“ segir Guðjón.
Sævar Gunnarsson tók í sama
streng og sagði útreikningana sem
birtir hefðu verið áróður útvegs-
manna. Gagnrýndi hann Morgun-
blaðið harðlega fyrir birtingu
þeirra. Sagði hann að um væri að
ræða tilbúin dæmi, sem ættu sér
enga stoð í raunveruleikanum.
„Veruleikinn er sá að þetta hef-
ur ekki verið vandamál hjá útvegs-
mönnum vegna þess að þeir hafa
stillt fiskverðið þannig af að launa-
kostnaðurinn er eins og það væru
fleiri menn um borð,“ segir Sævar.
Sjómenn mótmæla útreikningum LÍtí
„Aróður og lygaþvæla“
Yfirlýsing
frá Mannlífi
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfar-
andi yfirlýsing frá tímaritinu Mannlífi:
„í öðru tölublaði tímaritisins Mannlífs
birtist stutt grein frá opnun Hvalfjarðar-
ganga. Sést þar Halldór Blöndal, samgöngu-
ráðheira, með glas og vínflösku í hendi og
síðan undir stýri á bifreið sinni. Af texta og
myndum mætti ráða að ráðherrann hefði ek-
ið bifreiðinni eftir að hafa neytt áfengis.
Margir er þarna voru viðstaddir hafa haft
samband við tímaritið og bent á að með
grein og myndum sé mjög hallað réttu máli.
Ráðherra hafi alls ekki neytt áfengis.
Mannlíf harmar að með umræddri grein
og myndum skuli vegið ómaklega að ráð-
herranum og biðst afsökunar á málsmeðferð
sinni. Sökum fjölmiðlaumfjöllunar um grein-
ina og myndirnar að undanförnu velur tíma-
ritið þá leið að biðja Morgunblaðið að birta
afsökunarbeiðni þessa.“
Morgunblaðið/Ólafur Jens Sigurðsson
ÞÝSKA vikurflutningaskipið Stewart, sem er 4 þúsund
tonn að stærð, sést hér á standstað en skutur þess sat
upp við norðurhafnargarðinn á Rifi.
Strandaði 1 hafn-
armynninu á Rifi
Hellissandi - Á laugardag um hádegisbil strandaði
þýska vikurflutningaskipið Stewart fyrir innan hafn-
armynnið í Rifi. Það var á leið inní höfnina til að taka
vikur fyrir Lava hf. til útflutnings. Vegna hvassviðris
snerist skipið í innsiglingunni og tók niðri. Farið var
að falla út þegar óhappið varð og gekk á með afar-
hvössum suðvestan vindi sem að öllum líkindum olli
óhappinu. Vindhraði varð allt upp í 10 -12 vindstig
sumstaðar í verstu hviðunum.
Unnið var að því að losa skipið með togvírum sem
stórvirkar vinnuvélar toguðu í úr landi. Einnig voru
bátarnir Gísli J. Johnsen björgunarbátur SVFI og
Esjar SH komnir skipinu til aðstoðar í höfninni. Þá
var vélum skipsins beitt til að reyna að losa það.
Skipið náðist óskemmt að bryggju á flóði klukkan
10.50 á laugardagskvöld. Það lá enn við bryggju í
Rifshöfn í gær.