Morgunblaðið - 24.03.1998, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1998 29
Að vera sú kona
sem maður kýs
Aldarfj órðungur frá
vígslu Kjarvalsstaða
BÆKUR
Félagsvísindi
DOING & BECOMING
Women’s Movements and Women’s
Personhood in Iceland 1870-1990.
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
doktor í mannfræði. 255 blaðsíður.
Félagsvísindastofnun Háskóla Islands
og Háskólaútgáfan. Reykjavík, 1997.
BOKIN Doing & Becoming er
doktorsritgerð Sigríðar Dúnu
Kristmundsdóttur sem hún lagði
fram í mannfræðideild
Rochester-háskóla í
New York árið 1990,
þar sem fjallað er um
kvennahreyfingar á Is-
landi frá 1870 til 1990.
Gerð er grein fyrir
þremur mismunandi og
samliggjandi tímabilum
í sögu kvennabaráttu á
Islandi; konunum, hug-
myndum þeirra og bar-
áttuaðferðum. Lýst er
samspili kvennabaráttu
og þjóðfélags og hvern-
ig menningarleg íhalds-
semi og þjóðfélags-
breytingar hafa sitt að
segja um tilurð hennar
og mótun. Áhersla er
lögð á félagslega pér-
sónu konunnar og
hvemig hún leitast við
að skapa sjálfa sig og
endurskapa með bar-
áttu sinni.
Fyrsta tímabilið sem
höfundur gerir grein
fyrir spannar árin 1871-
1926 þegar íslenskar
konur tóku fyrst að
berjast opinberlega fyrir réttindum
sínum og annarra kvenna. Annað
tímabilið rís hæst árið 1970 með
Rauðsokkahreyfingunni og hið
þriðja með Kvennaframboðinu árið
1982.
Hvert tímabil er flokkað í kafla
sem settir eru saman með tilliti til
atburða, þjóðfélagslegra breytinga
og stöðu konunnar í því samhengi,
hugmyndafræði og loks réttinda.
Fyrstur er rétturinn til þess að tjá
sig, þá rétturinn til vinnu og loks
rétturinn til þess að vera metinn að
verðleikum. Lykilhugtök hug-
myndafræði hvers tímabils eru síð-
an menntun, kosningaréttur, tján-
ingarfrelsi og sjálfstæði, þá jafn-
rétti og loks kvenfrelsið eða réttur-
inn til þess að vera sú kona sem
maður kýs.
Ritgerð Sigríðar Dúnu er fyrsta
víðtæka greiningin á kvennahreyf-
ingum á Islandi, frá því fer að bóla á
þeim undir lok 19. aldar til okkar
tíma, eins og reyndar segir á bókar-
kápu, og er því skyldulesning sem
slík, auk þess að vera skilmerkilega
upp sett, greinargóð og upplýsandi
fyrir lesandann sem ekki þarf endi-
lega að vera heimagangur í veröld
fræðimannsins til þess að hafa gagn
af.
Fylgi Kvennalistans dvínaði mik-
ið í Alþingiskosningunum árin 1991
og 1995 en Sigríður Dúna færir rök
fyrir því í ritgerð.sinni að skilgrein-
ingin á hinni félagslegu persónu
konunnar og fullgilding þehrar per-
sónu sé þungamiðja íslenskra
kvennahreyfinga í áranna rás.
Höfundur fjallar um breytingar á
kvennahreyfingunni frá 1990 í for-
mála að bókinni og skrifar fylgis-
hrunið meðal annars á reikning mis-
ræmis í hugmyndum um félagslega
persónu konunnar; að ímynd
Kvennalistans hafi verið á þá lund
að kona þyrfti að vera móðir og að
hún væri að grunni til siðferðilega
æðri vera, þótt margar fylgiskonur
listans hafi ekki verið þeirrar skoð-
unar. Vantað hafi konuna sem á
kvölina og völina, kýs barnleysi,
óstýrilæti og óþekkt samkvæmt við-
teknum hugmyndum um kvenhlut-
verkið.
Endurskilgreining hinnar félags-
legu persónu konunnar stendur því
enn yfir og nefnir Sigríður Dúna
sem dæmi nálgun Sjálfstæðra
kvenna sem mikið kvað að íyrir síð-
ustu Alþingiskosningar, þar sem
konan er skilgreind út frá réttind-
um sínum og skyldum sem einstak-
lingur, ekki út frá líffræðilegu hlut-
verki sínu.
Lokaorðin eru lausleg þýðing á
formála höfundar.
„Eins og rannsóknin leiðir í ljós
myndast kvennahreyfingar út frá
hugmyndum um félagslega persónu
konunnar og þær baráttuaðferðir
sem beita þarf til þess að gera hana
að veruleika. Atburðir þessa ára-
tugar, sem gerð er grein fýrir hér,
gefa til kynna að endurskilgreining
á félagslegri persónu konunnar
standi yfir. Það gæti leitt til kafla-
skipta í sögu íslenskra kvenna-
hreyfinga. Hvort baráttan verður
virk eða hljóðlát, háð innan vébanda
öflugra kvennasamtaka eða hefð-
bundinna stjórnmálaflokka, verður
tíminn að leiða í ljós.
Hafa þarf í huga að sífellt fleiri
radda gætir í kvenréttindaumræðu
á íslandi. Kvenfrelsiskonur og þeir
sem berjast fyrir kvenréttindum
eru ekki á einu máli um skilgrein-
ingu á grundvallaratriðum eins og
félagslegri persónu konunnar. Auk
þess eru kvenréttindakonur orðnar
sammála um að vera ósammála,
sem gefur til kynna að ein öflug
samtök kvenna séu ekki líklegur
kostur í náinni framtíð." (8-9)
Konur, hvað næst?
I DAG er aldarfjórðungur liðinn frá
vígslu Kjarvalsstaða, fyrsta varan-
lega hússins sem reist er hér á landi
sérstaklega til sýninga á myndlist.
Tildrög byggingar hússins voru
þau að snemma á sjöunda áratugn-
um var orðið ljóst að gamli lista-
mannaskálinn við Kirkjustræti gæti
ekki öllu lengur þjónað hlutverid
sínu sem eitt helsta sýningarhús
borgarinnar. Samtök listamanna,
sem ráku listamannaskálann, höfðu
fengið fyrirheit um leyfi til að reisa
sýningarskála á Miklatúni og fengið
Hannes Kr. Davíðsson til að vinna
tillögu að sýningarsal.
Árið 1965 á áttræðisafmæli Jó-
hannesar S. Kjarvals var greint frá
ávörðun borgarráðs að gangast fyr-
ir byggingu sýningarhúss þar sem
hvort tveggja væri, húsrými ætlað
verkum Kjarvals í eigu borgarinnar
og sýningarsalur er kæmi í stað
gamla listamannaskálans. Hannes
Rr. Davíðsson var fenginn til að
endurskoða tillögur sínar í sam-
ræmi við breyttar forsendur.
Fyi'sta skóflustungan var tekin á af-
mæli Reykjavíkur, 18. ágúst 1966,
af Jóhannesi S. Kjarval. Húsið var
formlega opnað tæpum sjö árum
síðár, hinn 24. mars 1973, með sýn-
ingu á verkum Kjarvals.
Með tilkomu Kjarvalsstaða eign-
aðist myndlistin í landinu varan-
legri og betri aðstöðu en áður hafði
boðist. Á þeim árum sem liðin eru
frá opnun Kjarvalsstaða hefur
margt breyst. Lagður hefur verið
gi-unnur að þeirri stofnun sem nú
kallast Listasafn Reykjavíkur, sem
er samheiti yfir listaverkaeign
borgarinnar, Kjarvalssafn, As-
mundarsafn, Errósafn, byggingar-
listasafn og útilistaverk í eigu
borgarinnar.
Starfsemin hefur smám saman
þróast frá upphaflegu hlutverki
sem listaskáli yfir í að vera lista-
safn. Nýir þættir hafa orðið veiga-
miklir í starfseminni, svo sem varð-
veisla og umhirða listaverka, rann-
sóknarvinna, bókasafn og starf-
semi fræðsludeildar, sem er vax-
andi þáttur í rekstri safna um allan
heim. I tilefni 25 ára afmælis Kjar-
valsstaða verður efnt til mótttöku á
Kjarvalsstöðum í dag kl. 17. Þar
flytja ávörp Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri, Guðrún
Jónsdóttir, formaður menningar-
málanefndar, og Eiríkur Þorláks-
son, forstöðumaður Listasafns
Reykjavíkur.
I tilefni afmælisins verður einnig
sett upp á Kjarvalsstöðum sýning
um bygginguna, listamannaskál-
ann við Kirkjustræti og loks Hafn-
arhúsið sem hýsa mun aðalstöðvar
Listasafns Reykjavíkur á nýrri öld.
Opið er á Kjarvalsstöðum alla
daga frá kl. 10-18. Um þessar
mundir er í austursal hússins sýn-
ing á verkum úr Kjarvalssafni, sem
Thor Vilhjálmsson rithöfundur hef-
ur valið.
I miðrými eru verk eftir ungan
myndlistarmann, Ólaf Elíasson, og
í austursal er sýning listakonunnar
Rúríar sem ber yfirskriftina Para-
dís - Hvenær?
Helga Kr. Einarsdóttir
Hvítt
Klæðningin Grátt
sem þolir gpÉll
íslenska ||1 Blntt
veðróttu Fílabein
Leitið tilboða
ÁVALLT TIL Á LAGER
HONDA
3(LyjLa 1 . 4 i
7 5 h e s t ö f l
Traustur bíll fyrir ungt fólk á öllum aldri
nnifalið í verði bílsins
M400cc 16 ventla vé( með tölvustýrðri innsprautun
ILoftpúðar fyrir ökumann og farþega
IRafdrifnar rúður og speglar
ÞVindskeið með bremsuljósi
ÞÚtvarp og kassettutæki
kHonda teppasett
>14" dekk
► Samlæsingar
>ABS bremsukerfi
►Ryðvörn og skráning
Verð á götuna: 1.295.000,
Aðrar vélarstærðir einnig á lager, viðbótarbúnaður tilgreindur:
Honda Civic 1.6 VTi VTEC
1.890.000,-
160 hestöfl
15" álfelgur
Rafdrifin sóllúga
6 hátalarar
Sportinnrétting
Leöurstýri og leðurgírhnúður
Honda Civic 1.5 LSi VTEC
1.490.000,-
115 hestöfl
Fjarstýðar samlæsingar
Höfuðpúðar aftan
4 hátalarar
Hæðarstillanlegt ökumannssæti
Honda Civic 1.4 Si
1.375.000,-
90 hestöfl
Sjálfskipting 100.000,-
EJ
HONDA
Sími: 520 1100
HARRY Carlsson 1933.