Morgunblaðið - 24.03.1998, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1998 31
LISTIR
Agætir kirkjutónleikar
TOjVLlST
Fella- og Hólakirkja
KÓRTÓNLEIKAR
Flutt voru trúarlega verk og frum-
flutt kóverk eftir Þorkel Sigurbjörns-
son. Sunnudagurinn 22. mars 1998.
UM síðustu helgi, nánar tiltekið
laugardag og sunnudag sl., stóðu
kirkjukórar í Reykjavíkurprófasts-
dæmi eystra og Sinfóníuhljómsveit
áhugamanna fyrir tónleikum í
Fella- og Hólakirkju og var undir-
ritaður á sunnudagstónleikunum.
Kórsöngur hefur á síðustu áratug-
um verið vaxandi þáttur í starfsemi
safnaða og það sem meira er, að til
starfans hefur safnast vel kunnandi
söngfólk og stjórnendur, er birtist
einnig í því, að kirkjukórarnir hafa
ráðist í að flytja erfið tónverk, svo
sem og gerðist á tónleikum kóranna
um síðustu helgi.
Tónleikamir hófust á því að kór-
arnir sungu fjögur kirkjuleg verk
undir stjórn Harðar Bragsonar,
orgelleikara við Grafarvogskirkju.
Fyrsta viðfangsefnið var kóralradd-
setning á fomu sálmalagi við text-
ann Krossferli að fylgja þínum eftir
Hallgrím Pétursson, er Róbert A.
Ottósson gerði og var söngur kórs-
ins mjög fallega mótaður og hreinn.
Annað viðfangsefnið var samskipan
kóralfospils eftir J.S. Bach um
sálmalagið 0, höfuð dreyra drifið og
flutnings kóranna á samnefndum
sálmi eftir Hans Leo Hassler en í
raddsetningu J.S. Bach. Kóralfor-
spilið var mjög fallega flutt, en það
gerði Lenka Mátétová orgelleikari
við Fella- og Hólakirkju. Locus iste,
eftir Anton Braekner, er falleg tón-
smíð, sem kórinn söng fallega og
hlut Harðar Bragsonar lauk með
því að flytja Víst ertu, Jesús, kóng-
ur klár. Fyrst var þó orgelforspilið
eftir Pál Isólfsson, sem Daníel Jón-
asson lék og síðan var sálmurinn
fluttur í víxlsöng kóranna, ein-
söngvara og tónleikagesta. Ein-
söngvaramir vom Lovísa Sigfús-
dóttir og Gunnar Jónsson og var
flutningurinn fallega framfærður og
tónleikagestir tóku vel undir í
fyrsta og síðasta versi þessa fallega
sálms.
Næst á efnisskránni var Davíðs-
sálmur 120, tónsettur af Otto Ols-
son og var þetta ágæta tónles-kór-
verk vel flutt undir stjórn Kjartans
Sigurjónssonar, orgelleikara Digra-
neskirkju. I tveimur síðustu verk-
unum fyrir hlé mætti Sinfóníhljóm-
sveit áhugamanna til leiks í flutn-
ingi Ave verum corpus eftir Mozart,
sem Daniel Jónasson stjómaði.
Deila má um hvort þetta meistara-
verk skuli flutt á látlausan máta,
eins og hér var gert, eða með skarp-
ari andstæðum í styrk og hraða.
Það liggur ef til ekki ljóst fyrir af
hendi Mozarts, en það er aftur á
móti ljóst í Agnus Dei eftir George
Bizet. Þarna gat að heyra ann-
marka þeirrar skipunar að hafa
orgel og söngpall aðskilinn frá
sjálfu kirkjuskipinu. Kórinn og
hljómsveitin vora staðsett niður við
altari en einsöngvari uppi á orgel-
palli og þegar sterkt var sungið, var
einsöngvarinn, Sigríður Gröndal, í
keppni um hljómrými í mótstreymi
kórhljómsins, í stað þess að standa
fyrir framan kórinn og njóða með-
streymis kórs og hljómsveitar í
hljóman. Þrátt fyrir þessa ann-
marka var flutningurinn góður,
undir stjóm Jón Olafs Sigurðssonar
orgelleikara Seljakirkju. Orgel-
konsertarnir, sem aðallega eru
samdir fyrir hljómborð og þrátt fyr-
ir að vera fallega samin tónlist, eru
frekar rislítil verk, enda margir
hugsaðir sem innskotsverk á tón-
leikum. Konsertinn op. 4 nr. 1 í g-
moll er falleg tónsmíð og var mjög
vel leikinn af Lenku Matéovu, sér-
staklega lokakaflinn, sem er leik-
andi skemmtilegur. Einnig kom
leikur hljómsveitarinnar nokkuð á
óvart, með hreinum og skýrlega
mótuðum leik, undir stjórn Ingvars
Jónassonar. Sama má segja um leik
hljómsveitarinnar í þremur þáttum
úr Sálumessu Mozarts og Suss-
mayrs, Dies irae, Confutatis og
Lacrimosa, en það var helst í síðast
nefnda þættinum, sem merkja mátti
ótsöðuga inntónum hjá hljómsveit-
inni, Kóramir og hljómsveitin undir
stjóm Jóns Olafs Sigurðssonar
gerðu margt mjög vel og ættu sem
best að geta flutt þetta meistara-
verk í heild, þó doppel-fúgan í upp-
hafl og í lokin kunni að vera við erf-
iðari mörkin.
Þessum ágætu tónleikum lauk
með framflutningi verks eftir Þor-
kel Sigurbjömsson, við þýðingu
Sigurbjörns Einarssonar, á texta
eftir Bolander og nefnist verkið En
-. Verkið er samið fyrir blandaðan
kór og hljómsveit og er í heild fal-
lega hljómandi og lagrænt. Rithátt-
ur hljómsveitarraddanna er mikið
til einraddaður og reyndi þvl mjög á
einleikshæfni hljóðfæraleikaranna,
sem auðvitað áttu nokkur erfið
augnablik. Smá einsöngsstrófa í
seinni hluta verksins var sungin af
Guðrúnu Lóu Jónsdóttur, er átti í
nokkram vandræðum með tónstöð-
una í síðustu strófunni en söng að
öðra leyti nokkuð vel. Framflutn-
ingnum var stjórnað af Kjartani
Sigurjónssyni, er auðsjánlega hafði
meiri afskipti af kórnum en hljóm-
sveitinni, sem eins og fyrr segir átti
1 nokkram vandræðum með eitt og
annað í fíngerðum rithætti hljóm-
sveitarraddanna. Það er nokkur
munur á að stjóma kór eða hljóm-
sveit og mátti nokkuð merkja þessa
aðgreiningu í öryggi kórstjóranna.
I heild voru þetta ágætir tónleik-
ar og margt að heyra, er gefur til
kynna að saman gætu kóramir
staðið fyrir flutningi tónverka af
stærri gerðinni og eins og heyra
mátti, sérstaklega í orgelkonsert
Handels og sálumessu Mozarts og
Sussmayrs, getur Sinfóníuhljóm-
sveit áhugamanna leikið býsna vel
og er hljómsveitin farin að njóta
þess að hafa æft reglulega, haldið
tónleika í nokkur ár og að stjórn-
andinn, Ingvar Jónasson, sem er
reyndur og góður hljóðfæraleikari,
hefur unnið gott starf með Sinfóníu-
hljómsveit áhugamanna.
Jón Asgeirsson
Heilbrigðisvandi fanga
Stjórn Verndar heldur málþing um
heilbrigðisþjónustuna í fangelsum og
heilbrigðisvanda fanga í Norræna húsinu
fimmtudaginn 26. mars.
Málþingið hefst kl. 13.30
Aðgangur ókeypis og öllum heimill
meðan húsrúm leyfir
Stjórn Verndar
tangahjálp
\ eá/af/run/
,/{<■../<"/ r/t. á
'.¥%<’./<//<y<t (
P/trJ<f///■<//•
PAr ^Jat/
Prf Y«</f«///
p/u
’/t/
íyU/<4tPm«r
PÁeifauwfí/
pfiUífa/f.Mn/
p/iejxutmn/
p/?<-., /au*<f/t/
. /i . ./«’</’<<«/
P/ieú /<iu retfíl
, /\<ííf«//j'«>tf
yifj /<«// «/> /
. /{< ■/««r/r«f
‘p/Íeú/<f«/«fí/
.//{<■ >/«/<r«/i/
pjieúffíutt/fí/
■ /«',/««r<t/:/
:¥te$J«.«re/nf
PfO-Jmim/U
■ PitxUAfzt/urt/
'l f <./,« P/^t/ f
PlP/m PP«A
'PKú/m > /'í
fhPjrPl ■ ■
'f!eJy« pP/rt
' L
p/• ■>//</ PZ/tZ'/t
P/ r J/’O p/\n ■ |
P!<.,//■« PP/ff/t
'l/P/m
Pt < Jf« PK/r-jt
Pf P/ra . «
'f! tJ/ « JP/ye/t
Pf‘‘Jr« f/tr<’H
)! r Jya Pffye/t
Py,ú/r<r PKr<-/t
7/ t'Jy« JJ'.yru
"'/!' < ■ ',//• f trCfí
)/:eí/s« JJtren
P't'■>/«{ l' /f/:/'/}
Pf’&Jro Pf 'tMu
t >;/« PZf’/ < /t
mars til 4. aprtl
ERAMGAR
Restaurant
WESTRAPIREN
Matreiðslumeistatar frá Westra Piren í
Gautaborg verða með sælkeradaga á
Hótel Holti. Mikael Öster er með stjörnu í
Guide Michelin og er þekktur fyrir franska
matargerð (french cuisine) í hágæðaflokki.
Fróðleiksmolar um frönsk vín verða fyrir
matargesti á undan borðhaldi.
% IVV Ilill
Takmarkaður gestafjöldi hvert kvöld.
Borðapantanir ístma 552 5700
EITT verka Línu Rutar.
Lína Rut sýnir
á Kaffi 17
NÚ stendur yfir sýning á verkum
Línu Rutar Karlsdóttur á Kaffi 17,
Laugavegi.
Lína Rut útskrifaðist eftir fjög-
urra ára nám í Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands 1994. A sýningunni
eru 17 olíumálverk. Hún stendur til
15. apríl og er opin mánudaga til
fimmtudaga kl. 11-18, fóstudaga kl.
11-19 og laugardaga kl. 11-16.
----------------------
Ferðir Guðríðar
NÆSTU sýningar á Ferðum Guðríð-
ar i Skemmtihúsinu verða laugar-
daginn 28. febrúai- og sunnudaginn
1. mars. Sýningar eru á ensku og
hefjast klukkan 20.
Miðapantanir eru í verslun Kor-
máks og Skjaldar, Skólavörðustíg.
Morgunverðarfundur
Miövikudaginn 25. mars 1998, kl. 8:00 - 9:30 í Sunnusal, Hótel Sögu
HLUTVERK ATVINNULIFSINS
í MENNINGU OG LISTUM
• Gegnir atvinnulífið hlutverki í íslenskri menningu?
• Eru forráðamenn fyrirtækja hræddir við samtímalist?
• Lifa listaverkin lengur en fyrirtækin?
• Hvað gera menningin og listirnar fyrir atvinnulífið?
• Eiga fyrirtæki eða ríki að vera bakhjarlar listamanna?
FRAMSÖGUMENN:___________________________________________
Siguröur Gísli Pálmason, framkvæmdastjóri Hofs sf.
Stefán Baldursson, Þjóðleikhússtjóri
Þátttakendur í pallborösumræðum auk framsögumanna:
Ágúst Einarsson, alþingismaður
Edda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri í Galleríi Ingólfsstræti 8
Eiríkur Þoriáksson, forstöðumaður Kjarvalsstaöa
Friðrik Þór Friðriksson, framkvæmdastjóri ísl. kvikmyndasamsteypunnar ehf.
Fundargjald (morgunveröur innifalinn) kr. 1.500,-
rundurinn er opinn en æskilegt er
að tilkynna þátttöku fyrirfram í síma 588 6666
VERSLUNARRAÐ ISLANDS
4