Morgunblaðið - 24.03.1998, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1998 33
MENNTUN
Ljósmynd/Arnaldur Halldórsson
STANDUR fyrir geisladiska.
Ingigerður Baldursdóttir hann-
aði standinn en hún lauk námi
frá hönnunarbrautinni síðast-
liðið vor.
Hagnýt og fagur-
fræðileg þekking
Næsta haust hefst kennsla 1 gluggaútstill-
ingum við Iðnskólann í Hafnarfírði en fram
að þessu hafa þeir sem vilja leggja þær
fyrir sig þurft að fara utan til náms.
s
AUNDANFORNUM mánuð-
um hafa kennarar við hönn-
unarbraut Iðnskólans í Hafn-
arfirði verið að þróa nám í glugga-
útstillingum með þróunarstyrk frá
menntamálaráðuneytinu. Áhuginn á
slíku námi er mikill, að sögn Þor-
kels G. Guðmundssonar, deildar-
stjóra hönnunardeildar, ef marka
má þær fyrirspumir sem honum
hafa borist síðan fréttist af fyrirætl-
aninni. Fyrirhugað er að kennslan
hefjist á hausti komanda. Segir Þor-
kell að stjómendur í Iðnskólanum
leggi metnað sinn í að hafa fmm-
kvæði að nýjungum í námsframboði.
Stúdentspróf styttir námið
„Nemendur munu geta sótt
marga sömu áfanga og nemendur
okkar á hönnununarbrautinni
sækja,“ segir hann. Þar á meðal er
námskeið í markaðsfræðum. Nám-
ið verður fjögurra anna starfs-
námsbraut sem lýkur með starfs-
réttindum. Markmið námsbrautar-
innar verður að nemendur öðlist
hagnýta og fagurfræðilega þekk-
ingu til að stilla út vörum eða mun-
um á faglegan og listrænan hátt,
svo sem í glugga, á gólf og hillur,
jafnt fyrir sýningar, söfn og versl-
anir. Býst Þorkell við að flestir
nemendur hafi lokið stúdentsprófi
þegar þeir hefja nám við deild-
ina og munu þeir þá yfirleitt
fá nám sitt metið svo þeir
þurfa ekki að taka nám-
skeið í almennum bók-
legum greinum.
Komast frekar inn
í erlenda skóla
Hönnun hefur verið kennd við
Iðnskólann í Hafnarfirði í um tíu ár.
Námið er vinsælt og segir Þorkell
að undanfarið hafi um 100 nemend-
ur hafið nám á hverri önn. Námið er
til 80 eininga. Þorkell leggur
áherslu á að námið í hönnuninni sé
fyrst og fremst undirbúningsnám
enda fái nemendur ekki nein rétt-
indi þegar því lýkur. Námið eykur
aftur á móti mjög möguleika
þeirra sem hafa áhuga á arki-
tektúr og hvers konar hönnun
á að fá inngöngu i hönnun-
arskóla erlendis en sífellt
erfiðara verður að fá
skólavist í slíkum skólum.
Nemendur frá Iðnskólanum hafa
fengið inni í hönnunarskólum í
Bandan'kjunum, Hollandi, Þýska-
landi, Italíu og í hinum norrænu
löndunum.
Flestir nemendur í hönnuninni
hafa lokið stúdentsprófi og nokkrir
KOLLANA
hannaði Æv-
ar Gunnars-
son meðan
hann nam við
hönnunar-
brautina.
hafa lokið námi
frá Myndlista-og handíðaskólanum.
Rík áhersla er lögð á verklegan þátt
námsins og fá nemendur tækifæri
og aðstoð til að smíða þá hluti sem
þeir hafa hannað.
; BALENO;
BALENO
BALENO
AflmMir, rúmgóðir, öruggir og einstaklega
hagkvœmir í rekstri
TEGUND:
1,3GL 3d
1,3GL 4d
l,6GLX4d
1,6 GLX 4x4 4d
l,6GLXWAGON
WAGON 4x4
VERÐ:
1.140.000 KR.
1.265.000 KR.
1.340.000 KR.
1.495.000 KR.
1.445.000 KR.
1.595.000 KR.
TEGUND: VERÐ:
GLS 3d 980.000 KR.
GLX 5d 1.020.000 KR.
TEGUND:
JLX SE 3d
JLX SE 5d
DIESEL 5d
V6 5d
VERÐ:
1.580.000 KR.
1.830.000 KR.
2.180.000 KR.
2.390.000 KR.
SWIFT
baleno
HðOErlfi
SUZUKI
AFL OG
ÖRYGGI
SUZUKI
VTTARA
Komdu
og sestu inn!
Sjáðu rýmið og alúðina
við smáatriði.
Skoðaðu verð og
gerðu samanburo.
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
Sími 568 51 00.
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Úlafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, sími 462 63 00.
Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf., Miðási 19, simi 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50.
Keflavík: BG bílakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrísmýri 5, simi 482 37 00.
S UZUKI
BALENO • SWIFT • VITARA