Morgunblaðið - 24.03.1998, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1998 47
MINNINGAR
ÞORGEIR KRISTINN JÓNSSON
OG BJÖRG KRISTÓFERSDÓTTIR
+ Þorgeir Kristiiin Jóns-
son fæddist á Felli í
Fellshreppi í Strandasýslu
24. mars 1898. Hann lést á
Hrafnistu í Reykjavík 23.
mars 1977. Foreldrar hans
voru Pálína Krisljánsdóttir
og Jón Halldórsson. Var
Þorgeir einn af átta systkin-
um, og er ein systra hans á
lífi.
Eiginkona Þorgeirs
Kristins var Björg Kristó-
fersdóttir, f. 22. des. 1886,
d. 9. mars 1971. Foreldrar
hennar voru Margrét Hákonar-
dóttir og Kristófer Sturluson.
Eignuðust þau 17 börn og var
Björg áttunda barn þeirra. Börn
Bjargar og Þorgeirs eru Júlíus
Gunnar, f. 1925, Ebba Aðalheið-
ur Eybólín, f. 1926, og Kristófer,
f. 1929. Afkomendur þeirra
munu nú vera um 80 talsins.
í dag er öld liðin frá fæðingu
Þorgeirs tengdaföður míns. Eg
hugsa til hans og mér hlýnar um
hjartarætur, góðar minningar
gleðja. Því sendi ég þessa kveðju
vinum hans og ættingjum.
Þau Björg kona hans voru bæði
Breiðfirðingar af bestu gerð og
dvöldu þar fram yfir miðjan aldur,
lengst af í Breiðafjarðareyjum.
Upp úr 1940 fluttust þau suður í
Borgarfjörð og Þorgeir gerðist
starfsmaður á Laugalandi í Staf-
holtstungum. Þar var þá í upp-
byggingu garðyrkjustöð, og versl-
un var rekin þar um árabil. Starf-
aði Þorgeir við hana rúmlega tvo
áratugi. Ég veit að margir muna
Þorgeir í búðinni á Laugalandi.
Þar var oft margt um manninn og
Þorgeir jafnan glaður og hress í
viðmóti.
A þessum stað var lífið oft
spennandi. Tveir stórir skólar voru
á staðnum, Húsmæðraskól-
inn á Varmalandi og Bama-
skóli Mýrasýslu, vel sóttir
heimavistarskólar.
Staðurinn fylltist því af
ungu fólki hvert haust, og
margir áttu leið í búðina til
Þorgeirs. Hann var vinsæll
og eignaðist vini víða um
land sem ég veit að muna
hann enn.
Björg og Þorgeir lifðu síð-
ustu æviár sín á Hrafnistu í
Reykjavík. Þau voru sam-
rýnd hjón, virtu hvort annað
og báru mikla umhyggju hvort fyr-
ir öðru, ekki síst er á ævina leið og
heilsan tekin að bila. Þau voru góð-
ar manneskjur, sem gáfu þjóð
sinni mikið, þrjú mannvænleg
böm og um 80 afkomendur, sem
gjaman hafa erft svipmót þeirra
og miklu mannkosti. Öllu þessu
fólki flyt ég kveðju mína og heilla-
óskir í dag.
Blessa minningu Bjargar og
Þorgeirs. Þakka ævi þeirra og
störf.
Ég endurtek, góðar minningar
gleðja.
Ólína Gísladóttir.
BJARNI
ÞÓRÐARSON
+ Bjarni Þórðarson fæddist á
Reykjum á Skeiðum 1. apríl
1914. Hann lést á Sjúkrahúsi
Suðurlands 1. mars síðastliðinn
og fór útför hans fram frá Skál-
holtskirkju 7. mars.
Elsku afi. Við komum hér sam-
an til að skrifa nokkur minningar-
orð um þig. Ég held að við höfum
eklri ennþá gert okkur grein fyrir
því að þú sért dáinn. Þegar við
komum upp að Reykjum verður þú
ekki þar. Þó að við höfum alltaf
vitað að þú myndir fara að lokum
fær það alltaf á mann að heyra
fréttirnar. Við munum sakna þess
að hafa þig ekki heima á Reykjum
og geta ekki skriðið upp í rúm hjá
ömmu og afa þegar við gistum. En
það gerðum við alltaf þegar við
vorum yngri og héldum vöku fyrir
ykkur ömmu. Það var líka alltaf
svo gaman að sjá þig leika við
yngstu krakkana. Þú varst alltaf
svo bamgóður. Nú er svo skrítið
að heimsækja bara ömmu en ekki
afa í þetta stóra hús.
Við getum ekki lengur farið með
afa út í bragga að gefa lömbunum.
Við munum líka þegar strákarnir
9*
£
%
^ £
Þegar andlát
ber að höndum
Útfararstofa kirkjugarðanna ehf.
Sími 551 1266
Allan sólarhringinn
voru að hjálpa þér að leysa í hlöð-
unni og þú gerðir það bara með
berum höndum og varst helmingi
fljótari en þeir og þeir voru alveg
búnir eftir að þeir höfðu reynt að
halda í við þig. Við litum alltaf upp
til þín líka fyrir það hvað þú varst
stór og sterkur.
Við eigum ótal minningar um
þig sem við munum aldrei gleyma.
Við vitum að nú líður þér vel hin-
um megin og við kveðjum þig með
þínum eigin orðum sem þú kvaddir
okkur alltaf með.
Bless, góði minn.
Þín barnabörn.
Td-Hum jujotoj! flo úfl ym
miMtVIWJlUt
4JÓT-EL ftOK
usmyjtfliu • (oii
Upplýsingar í s: 551 1247
Crfisdrykkjur
UsKinoohú/id
Gfin-mn
Sími 555-4477
í rúmgóðum sýningarsölum okkar eigum
við ávallt íyrirliggjandi margar gerðir
legsteina og minnisvarða úr íslenskum
og erlendum steintegundum.
Verið velkomin til okkar eða
hafið samband og fáið myndalista.
Íg S.HELGASON HF
ISTEINSMIÐJA
Wl. v«(&
SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP.,SÍMI:557-6677/FAX:557-8410
t
Elskuð móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÞÓRDÍS DAGBJÖRT DAVÍÐSDÓTTIR,
Vegamótastíg 9,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtu-
daginn 26. mars kl. 13.30.
Guðrún D. Ágústsdóttir, Sverrir Júlíusson,
Birgir Ágústsson, Edda Kjartansdóttir,
Einar H. Ágústsson, Herdfs Hergeirsdóttir,
Áslaug Ágústsdóttir Santini, John Santini,
Gunnar Ágústsson, Sigríður Þorvaldsdóttir Kolbeins,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Astkær sambýliskona mín, móðir, dóttir,
tengdadóttir, systir okkar, barnabarn og mág-
kona,
GUÐRÚN BJÖRG ANDRÉSDÓTTIR,
Blikahólum 12,
Reykjavík,
er lést af slysförum laugardaginn 7. mars sl.,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju í dag,
þriðjudaginn 24. mars, kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hennar, er bent á Styrktarsjóð Guðrúnar Bjargar Andrésdóttur, sem var
stofnaður fyrir feðgana Guðmund Atla og Pál Sævar, sem eiga um sárt
að binda. Sparisjóður Hafnarfjarðar, Garðabæ, 1121, nr. 887.
Páll Sævar Sveinsson,
Guðmundur Atli Pálsson,
Kjartan Þórðarson,
Erna Þórðardóttir,
Ásmundur Ingimundarson,
Völundur Þorbjörnsson,
Sigrún Sveinsdóttir,
Sveinn Guðmundsson,
Gerður Tómasdóttir,
Kristrún Klara Andrésdóttir,
Ásta Kristfn Andrésdóttir,
Guðmundur Páll Andrésson,
Sigrún Berglind Andrésdóttir,
Sigurjón Hákon Andrésson,
Guðrún Sigurjónsdóttir,
Anna Margrét Sveinsdóttir, Hrafnkell Proppé,
Halldór Sveinsson, Ása Kristín Óskarsdóttir
og aðrir vandamenn.
t
Hjartans þakkir til allra, sem sýnt hafa okkur
samúð og veitt aðstoð við fráfall sonar míns,
bróður okkar, mágs, og frænda,
ÁSGEIRS SALBERGS KARVELSSONAR
bónda,
Kýrunnarstöðum,
Dalasýslu.
Karvel Hjartarson,
Hrafnhildur Karvelsdóttir,
Hjördís Karvelsdóttir og fjölskylda,
Bjarni Karvelsson og fjölskylda,
Sigríður G. Karvelsdóttir og fjölskylda.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför
HARALDAR ODDSSONAR
málarameistara,
áðurtil heimilis Sólvöllum 2,
Akureyri.
Eggert Haraldsson, Egilína Guðmundsdóttir,
Haukur Haraldsson, Halldóra Ágústsdóttir,
afabörn og langafabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vin-
arhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður og stjúpföður,
WILL HARRISON KÁRA PERRY,
Ásbúð 106,
Garðabæ.
Öllum þeim, sem hjúkruðu honum og hjálpuðu
í veikindum hans, er þakkað af alhug.
Hulda Óskarsdóttir Perry, Valgerður Gísladóttir,
Michaelle Lee Bagneski, Bolli Gfslason.
Lokað
Lokað verður frá kl. 14.00 í dag, þriðjudag, vegna útfarar
GUÐRÚNAR BJARGAR ANDRÉSDÓTTUR.
Guðmundur Arason ehf.,
Skútuvogi 4,
Reykjavík.
Lokað
Verslun Hans Petersen í Bankastræti verður lokuð frá kl. 14.00
í dag, þriðjudaginn 24. mars, vegna jarðarfarar
GUÐRÚNAR BJARGAR ANDRÉSDÓTTUR.
Verslun Hans Petersen h/f,
Bankastræti.