Morgunblaðið - 24.03.1998, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1998 53
FRÉTTIR
Fossdekk opnað á Selfossi
Ráðstefna
um samgöng-
ur 21. aldar
HALDIN verður ráðstefna um sam-
göngumál 21. aldar í Kiwanishúsinu
að Engjateig 11, Reykjavík, föstu-
daginn 27. mars, kl. 9-17. Ráðstefn-
an er á vegum Tæknifræðingafélags
Islands og Verkfræðingafélags Is-
lands.
Ráðstefnuna setur Jóhannes
Benediktsson, formaður TFÍ, og síð-
an ávarpar samgönguráðherra ráð-
stefnugesti. Umræður hefjast að því
búnu með erindum um vegakerfíð,
þróun í flutningum og vegaáætlun til
næstu 12 ára. Síðan er spáð fram
eftir næstu öld í þróun samgangna
og í þróun umhverfis- og skipulags-
mála. I lok ráðstefnunnar verður
gerð grein fyrir frumherjum fyrri
tíma og hvernig menn brugðust við
hugsjónum þeirra og spám á sínum
tíma og hvemig þær rættust.
Fyrirlesarar eru: Helgi Hall-
grímsson vegamálastjóri: Vega-
kerfið og flutningar, þróun og horf-
ur, Jón Rögnvaldsson aðstoðar-
vegamálastjóri: Vegaáætlanir, að-
ferðir og verkefni, Rögnvaldur
Jónsson, framkvæmdastjóri tækni-
sviðs Vegagerðarinnar: Fram-
kvæmdir og þjónusta á vegum,
Steingrímur J. Sigfússon, alþingis-
maður: Viðhorf dreifbýlis, Stefán
Hermannsson borgarverkfræðing-
ur: Þróun samgangna á höfuðborg-
arsvæðinu, Guðrún Jónsdóttir arki-
tekt: Hlutverk almenningssam-
gangna á 21. öldinni, Ómar Ragn-
arsson fréttamaður: Á að spyrja
notendur ráða eða bara þingmenn?
Trausti Valsson skipulagsfræðing-
ur: Byggðaþróun á Islandi og sam-
spil hennar við samgöngumál, Auð-
ur Sveinsdóttir landslagsarkitekt:
Samspil eða barátta umhverfís og
samgangna, Einar Valur Ingi-
mundarson umhverfisverkfræðing-
ur: Nýir orkugjafar í samgöngu-
tækni, J. Ingimar Hansson verk-
fræðingur: Að horfa fram eða aft-
ur. Spáð í spilin í fortíð og nútíð og
um ráðstefnuslit sér Pétur Stefáns-
son, formaður VFI. Leyfðar verða
stuttar fyrirspurnir í lok hvers er-
indis.
Skráning stendur nú yfír á skrif-
stofu TFÍ og VFÍ að Engjateig 9,
Reykjavík, og þar eru veittar nánari
upplýsingar.
Sjálfstæðisfélögin í
Reykjanesbæ
Framboðslisti
samþykktur
FÉLAGSFUNDUR í fulltrúaráði
sjálfstæðisfélaganna í Reykjanes-
bæ samþykkti á fundi sínum sl.
föstudag framboðslista flokksins
fyrir sveitarstjórnarkosningar í maí
nk.
Framboðslistann skipa: 1. Ellert
Eiríksson bæjarstjóri, Keflavík, 2.
Jónína A. Sanders hjúkrunarfræð-
ingur, Keflavík, 3. Þorsteinn Erl-
ingsson, skipstjóri og útgerðar-
Selfossi. Morgunblaðið
NÝVERXÐ var opnað nýtt dekkja-
verkstæði á Selfossi. Fyrirtækið
heitir Fossdekk og er fjölskyldu-
fyrirtæki í eigu Þórðar Sigur-
vinssonar, konu hans og þriggja
barna. Fjölskyldan hefur reynslu
á þessu sviði, en Þórður hefur
rekið dekkjaverkstæði, Þjón-
maður, Keflavík, 4. Björk Guðjóns-
dóttir verslunarmaður, Keflavík, 5.
Böðvar Jónsson fasteignasali,
Njarðvík, 6. Steinþór Jónsson hót-
elstjóri, Keflavík, 7. Gunnar Odds-
son, tryggingaráðgjafi og knatt-
spyrnuþjálfari, Keflavík, 8. íris
Jónsdóttir myndlistarmaður,
Keflavík, 9. Anna María Sveins-
dóttir, verslunarmaður og körfu-
boltaþjálfari, Keflavík, 10. Rík-
harður Ibsen verkamaður, Kefla-
vík, 11. Helgi Þ. Kristjánsson lög-
reglumaður, Njarðvík, 12. Thelma
Björk Jóhannesdóttir nemi, Kefla-
vík, 13. Ásgeir Jónsson lögfræðing-
ur, Keflavík, 14. Ingibjörg
Hilmai'sdóttir leikskólastjóri,
Keflavik, 15. Guðmundur Péturs-
son framkvæmdastjóri, Keflavík,
16. Jónína Hermannsdóttir hús-
móðir, Njarðvík, 17. Júlíus Jónsson
forstjóri, Keflavík, 18. Svanlaug
Jónsdóttir ritari, Keflavík, 19. Sig-
urður Garðarsson verkfræðingur,
Keflavík, 20. Sigríður Friðjónsdótt-
ir, aðstoðarmaður tannlæknis,
Njarðvík, 21. Jón Borgarsson vél-
virki, Höfnum og 22. Guðrún S.
Gísladóttir húsmóðir, Keflavík.
Bæjarstjóraefni flokksins er Ell-
ert Eiríksson.
ustustöðina, í Þorlákshöfn í
14 ár.
Sonur Þórðar, Sigurbjörn Ingvi
Þórðarson, verður framkvæmda-
stjóri Fossdekks og honum til að-
stoðar verður Axel Pálsson. Húsnæði
Fossdekks er í eigu Þórðar, 345 fm
iðnaðarhúsnæði á Gagnheiði 57.
Fræðslufundur
um staðla í
skjalastjórn
FRÆÐSLUNEFND Félags um
skjalastjórn boðar til fræðslufundar
um staðla er tengjast ríkisstjórn.
Fundurinn verður haldinn miðviku-
daginn 25. mars kl. 15.30 í fyrir-
lestrasal á 2. hæð í Þjóðarbókhlöðu.
Staðlanefnd félagins annast dag-
skrá um staðla sem tengjast skjala-
stjóm. Flutt verða þrjú stutt erindi
þar sem rætt verður það sem er efst
á baugi í staðlamálum.
Erindin eru sem hér segir: Stef-
anía Júlíusdóttir, Landlæknisemb-
ættinu, kynnir verkefni sem felst í
því að semja staðal um samræmda
skráningu heimilda og annað erindi
þar sem hún kynnir FS 130, sem er
staðall um íslenskar kröfur í upplýs-
ingatækni; síðan mun Salbjörg
Óskarsdóttir, Staðlaráði Islands,
ræða um ástralska staðalinn um
skjalastjórn, AS 4390 og hvernig
honum hefur verið tekið hjá alþjóð-
legu staðlasamtökunum ISO.
Allir eru velkomnir og öllum
heimill ókeypis aðgangur.
Þingkonur efna
til fundahalda
NÍU þingkonur standa um þessar
mundir fyrir fundum um allt land
um sameiginlegt framboð A-flokk-
anna og Kvennalistans fyrir næstu
Alþingiskosningar.
Fyrstu fundirnir voru um helgina
á Akranesi, Eskifu’ði og Selfossi.
Næstu fundir verða í kvöld, þriðju-
dagskvöld. Annar fundurinn verður í
Kaffileikhúsinu í Hlaðvarpanum kl.
20-22. Hinn fundurinn verður í Hafn-
arborg í Hafnarfii'ði kl. 20-22.
Á fimmtudagskvöldið verða svo
tveir fundir. í Fjörgyn í Grafarvogi
kl. 20-22 og í kvenfélagssalnum í
Hamraborg í Kópavogi kl. 20-22.
Þingkonumar níu sem að fundun-
um standa eru Ásta R. Jóhannesdótt-
ir, Ásta B. Þorsteinsdóttir, Bryndís
Hlöðversdóttir, Guðný Guðbjörns-
dóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Mar-
grét Frímannsdóttir, Rannveig Guð-
mundsdóttir, Sigríður Jóhannsdóttir
og Svanfríður Jónasdóttir.
Málstofa á
Bifröst
HREGGVIÐUR Jónsson, sjón-
varpsstjóri Stöðvar 2, flytur fyrir-
lestur á málstofu Samvinnuháskól-
ans á Bifröst miðvikudaginn 25.
mars. Fyrirlesturinn nefnir Hregg-
viður „Markviss stjómarstörf‘. Mun
hann fjalla um hver séu í raun og
veru hlutverk stjómarmanna í fyrir-
tækjum, hvernig eigi að tryggja
skilvirk vinnubrögð stjórna og
hvernig sé best að haga samskiptum
eigenda, stjórna og stjórnenda.
Fyrirlesturinn hefst kl. 15.30 í
Hátíðarsal Samvinnuháskólans. All-
ir em boðnir velkomnir.
Skátasöngur í
Friðrikskapellu
SKÁTAKÓRINN í Hafnarfirði og
Skátakórinn í Reykjavík standa fyr-
ir sameiginlegum tónleikum í Frið-
rikskapellu miðvikudaginn 25. mars
kl. 20.30.
Á efnisskránni era blanda af
skátalögum og öðrum lögum og
munu kórarnir bæði syngja saman
og sitt í hvoru lagi. Þá verður boðið
upp á hljóðfæraleik og samsöng.
Kórstjórar era Kristana Þórdís
Ásgeirsdóttir og Steingrímur Þór-
hallsson. Allir era velkomnir og að-
gangur er ókeypis.
Fyrirlestur um
endurvinnslu á
pappír
RAGNA Halldórsdóttir, fræðslu- og '
kynningarfulltrúi Sorpu, flytur fyr-
irlestur í Alviðra miðvikudaginn 25.
mars kl. 20.30. Hún fjallar um end-
urvinnslu og leggur sérstaka
áherslu á allt sem viðkemur pappír.
Græna smiðjan í Hveragerði og
Husl á Selfossi kynna afurðir sínar
unnar úr pappír. Skráning verður á
staðnum á námskeið í pappírsgerð.
Kaffíveitingar. Allir velkomnir.
LEIÐRÉTT
Jóhannes Helgi
í SAMTALI við Jóhannes Helga í
þættinum í húsi listamanns sl.
sunnudag urðu þau leiðu mistök að '
að þeir Finnbogi Rútur og Hanni-
bal Valdimarssynir voru sagðir
„hálfbræður". Þetta er alrangt.
Þeir bræður voru albræður og
raunar áttu þau systkini engin hálf-
systkini. Viðkomandi era innilega
beðnir velvirðingar á þessari mis-
sögn.
I vinnslu blaðsins á þessu samtali
við Jóhannes Helga urðu auk þess
til nokkrar villur sem flestar má
auðveldlega lesa í, nema brengl sem
varð í lýsingu Jóhannesar á Karli
Kristjánssyni. Rétt er lýsingin svo-
felld:
„Maður skynjaði ‘ ósjálfrátt
sviptigin fjöll og hvanngræna dali
meðan fágaður rómur hans reis og
hneig í þingsölunum," o.s.frv.
Þetta leiðréttist hér með.
Úr dagbók lögreglunnar
Á SJÖTTA tug ökumanna var
sektaður vegna hraðaksturs um
helgina og sautján ökumenn
voru stöðvaðir vegna gruns um
að aka bifreiðum sínum undir
áhrifum áfengis. Þrjátíu
árekstrar voru tilkynntir lög-
reglu.
A laugardag kl. 12:15 var lög-
reglu tilkynnt að skemmdir
hefðu verið unnar á bifreið sem
stóð í stæði við Óðinsgötu. Ræs-
ishlemmi hafði verið hent á fram-
rúðu og hún brotnað.
Á sunnudag kl. 18:15 var flutn-
ingabifreið kyrrsett við Fossá
vegna ólöglegs frágangs á farmi.
Aðfaranótt sunnudags var lög-
reglu tilkynnt um átök á veit-
ingahúsi í miðborginni. Aðili sem
tók þátt í átökunum hafði tekið
upp gas og úðað á nokkra pilta.
Þrír vora fluttir á slysadeild til
aðhlynningar. Á sunnudags-
morgun kl. 7:14 lenti leigubíl-
stjóri í átökum við farþega sem
hann var að flytja. Farþegarnir
hlupu á brott.
Morgunblaðið/Sig. Fannar
SIGURBJÖRN Ingvi Þórðarson og Axel Pálsson til þjónustu reiðubúnir.
lyfjabúð, Mosfeilsbæ
BOURJOIS
KYNNING
á nýju vor-
og sumarlitunum
verður á morgun
miðvikudag
frá kl. 13-18.
Glæsilegur
varalitapensill fylgir
kaupum á varalit.
TIL SÖLU
Gott fyrirtæki til sölu
Til sölu er ein vinsælasta trimformstofa lands-
ins. Stofan er vel búin tækjum og búnaði.
Frekari upplýsingr einungis veittar á skrifstofu
Viðskiptamiðlunar, en ekki í síma.
iðskiptamiðiunin
iTiiTiriiignirn
Veltir ehf., Suðurlandsbraut 16,
108 Reykjavík, sími 581 1800, fax 581 1881.
Hæstiréttur á Egilsstaði
Flutningur Hæstaréttar gæti verið liður í að
rjúfa miðstýrt valdahreiður og endurreisn
réttarkerfisins.
Skýrsla um samfélag, sem lýsir réttarfari
íslendinga, fæst í Leshúsi, Bókhlöðustíg 6b,
opið kl. 16.00-19.00.
Byggingakrani
Til sölu byggingakrani Piner, gerð T-63
(63 tm) ásamt sporum.
Upplýsingar í símum 567 1773 og 567 1691
frá kl. 8.00-16.00.
Fyrirtæki til sölu
Vegna sérstakra aðstæðna er fyrirtæki til sölu
sem hefuryfir að ráða góðum vöruumboðum
er hafa algera sérstöðu á markaðnum. Áætluð
velta á næstu bremur árum 150 millj.
Góð framlegð. Hentar vel tveimur aðilum.
Verðhugmynd 9—10 millj. Áhugasamir aðilar
leggi inn fyrirspurnir á afgreiðslu Mbl. merktar:
„Agóði — 2000" fyrir 30. mars.
Eitt blað
fyrir alla!
JFlorðwaíilíitiit)
- kjarni málsins!