Morgunblaðið - 24.03.1998, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1998 59
FÓLK í FRÉTTUM
Cameron
og Titanic
Yfír 100 þúsund íslendingar hafa séð Tit-
anic eftir James Cameron. Hver er þessi
leikstjóri sem gert hefur hana að vinsæl-
ustu bíómynd sem gerð hefur verið?
Arnaldur Indriðason leitaði svara við því,
skoðaði feril hans og hugmyndir varðandi
Titanic, sem varð til uppúr einni einni setn-
ingu sem Cameron festi á blað.
EGAR þetta er skrifað
stefnir Titanic James Cam-
erons í að verða vinsælasta
mynd sem gerð hefur verið
en hún hefur grætt meira en milljarð
dollara í kvikmyndahúsum um allan
heim. A Islandi hafa rúmlega 100
þúsund manns séð hana sem er fá-
heyrð aðsókn. Titanic
var í þokkabót útnefnd
til alls 14 Óskarsverð-
launa og var búist við
hún hreppti þau ófá á
afhendingunni sem
fram fór í nótt. Maður-
inn sem á allan heiður
skilinn fyrir velgengni
myndarinnar er leik-
stjórinn, handritshöf-
undurinn og framleið-
andinn, James Camer-
on. Hann eyddi óheyri-
legum dollaraupphæð-
um til þess að gera þá
mynd sem hann vildi
gera, barðist eins og
Ijón við bókhaldara
tveggja kvikmyndavera,
fórnaði sínum eigin
launum og hagnaði af myndinni og
hafði á endanum glæsilegan sigur.
Byrjaði hjá Roger Corman
Cameron er auðvitað enginn byi-j-
andi og hann segir sjálfur að Titanic
komi í rökréttu framhaldi af öðrum
myndum sínum. Hann er fæddur í
Kanada og ólst upp við Niagarafoss-
ana og gerði ungur um það hálfgerða
heimildarmynd sem hann kallaði Ni-
agara: Eða hvemig ég hætti að hafa
áhyggjur og fór að líka við fossana.
Hann nam eðlisfræði í háskóla í Kali-
forníu og stundaði ýmis störf þar til
hann rak á fjörur B-mynda kóngsins
Rogers Cormans og gerði fyrir hann
myndina „Pirana 11“ eða Mannætu-
fiskana II sem verður að kallast
heldur bágborið upphaf. Cameron
vai- sískrifandi, reyndi fyrir sér á
skáldsagnasviðinu í skóla og setti
saman kvikmyndahandrit ásamt fé-
laga sínum, Bill Wisher, sem síðar
skiáfaði með honum Tortímandann
II. Það var einmitt fyrri Tortím-
andamyndin sem vakti fyrst athygli
á hinum nýja hasarmyndaleikstjóra.
Það var einskonar framtíðartryllir
sem þó gerðist í nútímanum og
kynnti fyrir alvöru nýja stórstjörnu
til sögunnar, Amold
Schwarzenegger. I kjöl-
farið fylgdu framhalds-
myndin „Aliens", „The
Abyss“, sem kalla má
einu mistök Camerons á
ferlinum, Tortímandinn
II, sannkallað tölvu-
brellufest, og síðan
Sannar lygar, ósköp
venjuleg hasarmynd
sem Cameron gerði sér-
staklega óvenjulega
m.a. með hjálp Harrier-
þotu.
Hann leikstýrir engu
sem hann hefur ekki
skrifað sjálfur. Upphaf
Titanic rekur hann til
hugmyndar sem hann
setti niður á blað og var
ekki nema ein setning:
Saga með upphaf og endi í flaki Tit-
anie neðansjávar ... klippt saman
með minningum einhvers sem komst
lífs af ... þarf leyndardóin eða dríf-
andi plott. Annað var það ekki. Með
þetta settist hann niður og ski'ifaði
lýsingu á sögunni. „Eg er sérstak-
lega heillaðui' af hugmyndinni um
heimsendi," er haft eftir honum. Það
er bersýnilegt í Tortímandamyndun-
um þar sem heimurinn hefur þegar
farist en samt ekki ennþá og
„Strange Days“, sem hann fram-
leiddi, gælir við sömu hugmynd í
kiángum árþúsundaskiptin. „Og Tit-
anic er partur af þessu. Ef líta má á
skipið sem smækkaða mynd af heim-
inum og fólkið á þriðja farrými eru
íbúar þriðja-heims-ríkja og fólkið á
fyrsta fyrrými er fólkið sem hefur öll
völdin í heiminum þá verður
heimsendir þegar Titanic sekkur.
Svo Titanic er enn ein heimsenda-
sagan og lýsir því hvernig fólk
LEIKSTJÓRI með
fullkomnunaráráttu;
James Cameron.
Hoffman
heiðraður
► LEIKARINN Dustin Hoffman
var heiðraður af ameríska
hreyfimyndasafninu nú á dög-
unum, en þetta var í þrettánda
sinn sem þessi árlegu verðlaun
eru veitt. Þau ganga undir
nafninu „Salute“ og fékk
Hoffman þennan forláta Steub-
en-kristalsvasa af tilefninu.
Pappírs-
drengur
Almodovars
SPÆNSKI kvikmyndagerðarmað-
urinn Pedro Almodovar, sem leik-
stýrði síðast myndinni „Live Flesh“,
á í viðræðum um að gera fyrstu
mynd sína á enska tungu. Er það
glæpamynd sem nefnist Pappírs-
drengurinn eða „The Paperboy".
Handritið skrifaði Pete Dexter en
myndin gerist síðla á sjöunda ára-
tugnum og fjallar um fjölskyldu
blaðamanns sem kemst í tengsl við
dauðadæmdan fanga.
Ef hann tekur að sér að gera
myndina um Pappírsdrenginn kæmi
hann að handritsvinnunni til þess að
gefa því það yfirbragð sem hann hef-
ur verið þekktur fyrir.
„Live Flesh“ var t.d. byggð á skáld-
sögu breska sakamálahöfundarins
Ruth Rendell en handritið var endur-
skrifað frá gi-unni af Almodovar.
WINSLET og DiCaprio í Titanic; þau áttu að leiða
áhorfendur inn í skipið.
bregst við þegar endirinn
blasir við því.“
Maðurinn andspænis
tækninni
Að því leyti lítur Cameron
á Titanic sem rökrétt fram-
hald fyn-i mynda sinna. Þótt
hún sé ólík þeim á flestan
máta er þemað það sama.
En í Titanic er Cameron í
fyrsta sinn að fást við atburð
úr sögunni. „Það er nýtt fyr-
ir mér. Saga myndarinnar
er fyrst og fremst saga um
ástarsamband, ástarsaga, en
allar myndir mínar eru
tengdar í sömu þemunum.
Þær fjalla um sjálfsfórnina,
þær skyldur sem maðurinn
hefur gagnvart öðru fólki og
umheiminum, hvernig reyn-
ir á ástina þegar blasa við
stórkostlegar hættur - þetta
er ég að skoða í öllum mín-
um myndum. Hvemig mað-
urinn bregst við tækniþró-
uninni, hvernig tæknin get-
ur verið til góðs og hvernig
til ills og hvernig hún getur
komið aftan að fólki.“
Cameron segist hafa leit-
ast við að koma áhorfendum
fyrir um borð í Titanic svo
þeir hefðu tilfinningu fyrir
því sem fram fór þegar skip-
ið sökk. Þetta reyndi hann
að gera með ástarsögunni á
milli Kate Winslet og Leon-
ardo DiCaprio; hlutverk
þeirra er að draga áhorfend-
ui' inn í myndina og um borð
í skipið. Hann nefnir eina af
uppáhaldssenum sínum í
myndinni þar sem honum
finnst að tekist hafi að sam-
eina mynd og áhorfendur í eitt. „Það
er þegai- Jack sendir Rósu í leit að
hjálp. Hann er hlekkjaður fastur og
hún hleypur um gangana og finnur
engan sem getur hjálpað henni. Allt í
einu slokknar á Ijósunum og við fór-
um í nærmynd og þú heyrir aðeins
STJARNA er fædd; Schwarzenegger í
Tortímandanum.
LINDA Hamilton í Tortímandanum II;
Cameron segir myndir sínar fjalla um
sama efnið, heimsendi.
andardrátt hennar. Það er ekkert á
tjaldinu nema birtan af augum henn-
ar og þú heyrir aðeins andardráttinn.
Og þá kemur þetta ofboðslega málm-
hljóð úr skrokki skipsins og berst eft-
ir því endilöngu. Á því andartaki held
ég að þú, áhorfandinn, sért kominn
um borð í skipið þegar það er að
sökkva og þú verður Rósa.“
Rannsóknarvinna er þýðingarmik-
ill pai'tur af starfi Camerons og sér-
staklega í tilfelli Titanics. Hann fór 12
ferðir niður að flaki skipsins í rúss-
neska kafbátnum Keldysh og tók
myndir sem síðar nýttust honum í
bíómyndinni. Nær upprananum er
vart hægt að komast og honum
fannst eftir það að aUt sem fram
kæmi í myndinni yrði að vera sem lík-
ast því sem var í raunveraleikanum.
„Okkur langaði til að búa til skáldaða
sögu á sagnfræðilegan hátt. Ef vitað
er fyrir víst að þetta eða hitt átti sér
stað höfum við það þannig. Ekkert
sem við sýnum í myndinni er þannig
að það gæti ekki hafa gerst. Nær
verður ekki komist. Það er líkast því
að áhorfendur fari inn í tímavél og
ferðist aftur í tímann og um borð í
skipið." Þvi til staðfestingai' nefnir
hann að vélbúnaðurinn sem notaðui'
vai' í myndinni til þess að losa björg-
unai'bátana frá skipinu var smíðaður
af sama fyrirtæki, Wellan Davit, og
sá um að smíða búnaðinn í Titanic.
Myndir um fólk en ekki brellur
Cameron kynnti sér nákvæmlega
vitnisburð þeirra sem komust lífs af
og bar saman við það sem sagnfræð-
ingar hafa ritað um Titanic og heldur
því blákalt fram að það sem gerist
um borð í hans mynd, að frádreginni
ástarsögunni, hafi raunverulega átt
sér stað. „Þegar þú eyðir tveimur ár-
um í það að bera saman lýsingar
sjónarvotta og það sem skrifað hefur
verið um slysið finnur þú margt sem
stangast á en líka nægilega sam-
hljóða lýsingu á tilteknum atburði til
þess að geta leyft þér að nota það.“
Hann gerir sér ljósa grein fyrir því
að ábyrgð hans er nokkur „þvi í okk-
ai' menningu eiga flehn eftir að vita
meira um Titanic-slysið frá leikinni
bíómynd en ef fólk mundi lesa rann-
sókn þingnefndarinnar frá árinu
1912. Áð því leyti fylgh' því talsverð
ábyrgð að gera sögulega bíómynd."
En hvenær hefur kvikmyndaleik-
stjóri, sem kafar hvað eftir annað
niður á hafsbotn í leit að svöram,
fengið forvitninni svalað eða full-
nægt þekkingunni? „Hvenær?" segir
hann, ,jæja, nú er nóg komið. Eg
veit hvenær ég hef það sem ég þarf
þegar ég get svarað mínum eigin
spui-ningum,“ segir hann. Það tók
hann samanlagt fimm ár að hætta að
spyrja um Titanic.
Cameron segist vera leiður á því
að tala um brellurnai' í myndunum
því fyrst og fremst segist hann gera
myndir um fólk og hvernig það teng-
ist öðru fólki. Fáir vilji þó hlusta á
þær pælingar en spyrja hann lát-
laust um hvernig hann hafi farið að
því að kvikmynda hitt eða þetta
brelluatriðið. Hann lítur ekki svo á
að kvikmyndabrellur séu það sem
skipti mestu máli í myndum hans.
Það er erfitt að taka undir það þegar
maður hefur séð þær og fylgst með
því sem hann hefur verið að gera.
Hann er fyrst og fremst stórkostleg-
ur brellumyndasmiður eins og
myndin Titanic sannar. En hann vill
vera eitthvað annað og meira og
sjálfsagt er metsölumyndin hans
leiðin að því marki.
BINDI
30%
GILDIR TIL 28.03.'98
„A WELL-TIED TIE IS THE FIRST SERIOUS STEP IN LIFEM
Oscar WIlde 18541900
VORUM AD TAKA UPP NÝJA SENDINGU AF GLÆSILEGUM FATNADI
BOOK'S
LAU GAVEGI 61
sfMl 551 8001