Morgunblaðið - 24.03.1998, Qupperneq 68
Atvinnutryggingar
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Fiskur
hættir
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
hætta rekstri Fisks 2000 á
Blönduósi en hópur manna hef-
ur frá áramótum kannað mögu-
leika á áframhaldandi rekstri.
Að sögn Kristjáns Þórs
Gunnarssonar, eins eiganda
Fisks 2000, er nokkuð síðan
starfseminni var hætt og
starfsmönnum sagt upp störf-
um. Síðast var unnið í húsinu í
desember sl. en þar unnu að
meðaltali milli 25 og 30 manns
við að flaka kola. Fyrirtækið
tók til starfa árið 1996 í sam-
vinnu við Hollendinga. „Það
samstarf gekk ekki upp,“ sagði
Kristján. Hann sagði ekki úti-
lokað að reksturinn hæfist á ný,
hann hefði heyrt að einhverjir
hefðu lýst áhuga á að taka upp
rekstur að nýju.
420 kr.
fyrir kg
af slægðri
ýsu
VERÐ á ýsu á fiskmörkuðum er nú
hærra en nokkru sinni, þar sem lítið
framboð er af henni um þessar
mundir vegna sjómannaverkfallsins.
I gær var sett enn eitt metið á Fisk-
markaði Snæfellsness, þar sem
dragnótabáturinn Steinunn SH-167
fékk 420 krónur fyrir kílóið af stórri
..gslægðri ýsu. Birgir Guðmundsson,
Tisksali í Sæbjörgu, kveðst hættur
að kaupa ýsu meðan verðið er svo
hátt, þar sem hann gerir ekki ráð
fyrir að neytendur vilji kaupa hana
dýru verði. I fiskborði Hagkaups í
Kringlunni er heldur lítið af fiski og
hefur verð á ýsu, lúðu og steinbít
hækkað til muna.
Auk þess sem Steinunn seldi
stóra slægða ýsu á 420 krónur í gær
seldi línubáturinn Snorri afi IS-519
stóra óslægða ýsu á 300 krónur kíló-
ið. Samkvæmt upplýsingum frá
Fiskmarkaði Snæfellsness hefur
verð á ýsu aldrei farið svo hátt á
hérlendum fiskmarkaði. Þá var verð
á þorski einnig mjög hátt og fór
.óslægður blandaður línufiskur á 129
krónur kílóið og óslægður blandað-
ur stór þorskur á 145 krónur kílóið.
„Við getum ekkert keypt í dag því
við getum ekki selt á þessu verði,“
sagði Birgir Guðmundsson í samtali
við Morgunblaðið í gær. Fyrir utan
það að framboðið er heldur lítið
bendir hann á að markaðurinn er-
lendis, t.d. í Bandaríkjunum, sé orð-
inn mjög sterkur og kaupi allan
besta fiskinn á því verði sem upp er
sett.
Kílóið af ýsuflökum, sem lengi vel
kostaði 498 krónur í Hagkaup, er nú
— ý.omið upp í 698 krónur en að sögn
Páls Inga Magnússonar, deildar-
stjóra matvöru í Hagkaup í Kringl-
unni, hefur það til skamms tíma ver-
ið 555 krónur eða frá því að fram-
boðið fór að minnka fyrr í vetur. Þá
kostar kílóið af stórlúðu nú 998
krónur í stað 799 króna áður og kíló-
ið af steinbít 498 krónur í stað 398
fcróna áður. Verð á öðrum fiski hef-
ur lítið breyst, að sögn Páls.
Liðið ár var fyrsta tapárið í sögu Islenskra sjávarafurða
Flutningur kostaði um 400 millj.
ÍSLENSKAR sjávarafurðir hf.
voru reknar með 310 milljóna króna
tapi á síðasta ári, samkvæmt sam-
stæðureikningi. Er það 470 milljón-
um kr. verri afkoma en árið 1996
þegar hagnaður nam 160 milljónum.
Gert er ráð fyrir því að reksturinn
nái jafnvægi á ný í ár og að 150
milljóna króna hagnaður verði af
honum.
Tapið á rekstri Islenskra sjávar-
afurða hf. skýrist meðal annars af
kostnaði við lokun eldri fiskrétta-
verksmiðju Iceland Seafood í
Bandaríkjunum og opnun nýrrar á
öðrum stað. Auk verulegs rekstrar-
taps verksmiðjunnar hefur á síð-
ustu tveimur árum verið gjaldfærð-
ur kostnaður við flutninga, lífeyris-
skuldbindingar og starfslokasamn-
inga, samtals að upphæð 5,6 millj-
ónir dollara eða um 400 milljónir
króna.
ÍS varð einnig fyrir tjóni vegna
þess sem í fréttatilkynningu er sagt
óvænt og skyndileg uppsögn á sam-
starfssamningi ÍS og útgerðarfé-
lagsins UTRF í Rússlandi. Loks er
nefndur til sögunnar kostnaður við
kaup fyrirtækisins á franska fram-
leiðslu- og dreifingarfýrirtækinu
Gelmer SA og sameiningu þess við
dótturfélag ÍS í Frakklandi.
Gert ráð fyrir hagnaði
„Eins og öllum má vera ljóst eru
það stjórn og starfsmönnum ís-
lenskra sjávarafurða hf. mikil von-
brigði að félagið skuli nú í fýrsta
skipti í sjö ára starfsemi þess vera
gert upp með tapi. A það ber þó að
líta að samkvæmt áætlunum var
gert ráð fyrir tapi vegna þess mikla
átaks sem ráðist var í með flutningi
verksmiðjunnar í Bandaríkjunum
þar sem aftur á móti óvænt samn-
ingsslit í Rússlandi komu félaginu í
opna skjöldu," segir í fréttatilkynn-
ingu frá ÍS.
Rekstraráætlanir samstæðu IS
gera ráð fyrir stóraukinni veltu á
yfirstandandi ári, meðal annars
vegna kaupa á franska fyrirtækinu
Gelmer, og að veltan verði um 32
milljarðar. Gert er ráð fyrir að
reksturinn nái jafnvægi á nýjan leik
og samstæðan skili um 150 milljóna
króna hagnaði.
■ 310 milljóna/20
Morgunblaðið/Kristinn
GUÐJÓN A. Kristjánsson formaður FFSÍ horfði til hafs meðan hann ræddi símleiðis við félaga sína í sjómannastétt í húsakynnum ríkissáttasemj-
ara í gærmorgun. Af skiljanlegum ástæðum var hvergi fleytu að sjá.
Ríkisstj órnin útilok-
ar ekki lagasetningu
„ÞAÐ eru afskaplega litlar líkur á
að sjómenn og útvegsmenn geti
nálgast hverjir aðra þannig að þeir
leysi deiluna í samningum sín á
milli,“ sagði Þorsteinn Pálsson sjáv-
arútvegsráðherra í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi. Fjallað
verður um stöðu mála á fundi ríkis-
stjórnar fyrir hádegi í dag og kveðst
Þorsteinn ekki útiloka lagasetningu
á verkfall sjómanna.
„Við munum ræða þetta á fundi
ríkisstjómarinnar og taka þá
ákvörðun um hvemig við teljum rétt
að bregðast við núverandi stöðu,“
segir Þorsteinn. Sáttafundi sjó-
manna og útvegsmanna sem hófst kl.
11 í gær var slitið rúmri klukku-
stundu síðar og hefur ekki verið boð-
að til annars fundar. Málsaðilar
kenna hverjir öðmm um að svo fór.
Forsvarsmenn sjómanna gengu á
fund sjávarútvegsráðherra um miðj-
an dag í gær til að gera honum grein
fyrir stöðu samningamála frá þeirra
sjónarhóli og forsvarsmenn útvegs-
manna gerðu slíkt hið sama síðdegis.
Gátu samið á nokkrum tímum
Ráðherra segir ljóst að ekki er til-
efni til nýrra funda á milli deiluaðila
næstu daga. Þá sé tilgangslaust að
fara með frumvörp um kvótaþing og
verðlagsstofu skiptaverðs inn á Al-
þingi ef vinnufriður sé ekki samtím-
is tryggður. „Eftir að frumvarps-
drögunum var skilað taldi ég að
hefðu aðilar vilja til að semja þyrftu
samningar ekki að taka meira en
þrjá klukkutíma. Eftir fund með
þessum aðilum á laugardag mat ég
stöðuna svo að annaðhvort næðist
samkomulag á nokkrum stundum
eða menn stæðu frammi fyrir mjög
langvarandi verkfalli, sem gæti stað-
ið vikum eða jafnvel mánuðum sam-
an. Það væri afskaplega dýrkeypt í
ljósi þess að það sem út af stendur
er ekki flóknara en svo að ef menn
vilja semja geta þeir leyst málin á
nokkrum klukkustundum. En þeir
hafa haft þrjár vikur og eftir fund-
inn í [gærjmorgun er alveg útséð
um að þeir geti nálgast hver annan
að mínu mati,“ segir Þorsteinn.
„Síðan á laugardag hafa málin að-
eins þróast til verri vegar. Ég er
mjög svartsýnn á framhaldið og
held ekki að það sé ástæða til ann-
ars,“ segir Kristján Ragnarsson for-
maður LÍtJ. Guðjón A. Kristjánsson
formaður FFSÍ segir að útvegs-
menn hafi slitið fundi í gær með
skorti á samningsvilja og segir hann
kergju í þeim vegna frumvarps-
draga þriggja manna nefndar.
■ Málsaðilar sjá ekki/6