Morgunblaðið - 26.05.1998, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
BÆJAR- OG SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 1998
Fyrsti fundur meirihlutans í Reykjavík eftir kosningar
Morgunblaðið/Golli
NÝKJÖRINN borgarstjórnarflokkur R-listans kom sanian til fyrsta fundar í hádeginu í gær.
Staðan ólík núna og
fyrir fj'ónim árnm
MEIRIHLUTINN í borgarstjóm
Reykjavíkur, fulltrúar R-listans,
hittust á sínum fyrsta fundi eftir
kosningar í gær þar sem farið var
yfír stöðu mála. Meðal þess sem
rætt var um voru mál Hrannars B.
Arnarssonar, 3. manns á lista
flokksins, en fjármál hans settu
svip sinn á kosningabaráttu flokks-
ins og gaf Hrannar út þá yfirlýs-
ingu í gær að hann ætli ekki að
taka sæti í borgarstjóm fyrr en
hann hefur hreinsað mannorð sitt.
„Við höfum nú svo sem tímann
fyrii' okkur því ný borgarstjórn
tekur ekki við fyrr en 15 dögum eft-
ir kosningar. Svo þarf ekki að boða
hana til fyrsta fundar fyrr en innan
15 daga eftir þann dag,“ sagði Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri í samtali við Morgunblaðið.
Hún sagði stöðuna núna nokkuð
breytta frá því eins og hún var fyr-
ir fjórum árum. „Þá var um pólitísk
umskipti að ræða og úr því staðan
er ekki þannig í dag höfum við
auðvitað betri tíma.“
Okkur liggur ekkert á
Hún sagði að með nýju fólki í
borgarstjórn væri einhverra breyt-
inga að vænta í skipan ráða og
nefnda á vegum borgarinnar en
sagði flokkinn ekki byrjaðan að
fara yfir það.
Að sögn Ingibjargar er ekki enn
ljóst hver forseti borgarstjórnar
verður.
Næsti fundur verður á morgun
og þá verður aðferðafræðin sem
viðhafa á í borgarstjórn orðin skýr-
ari að sögn Ingibjargar og þá fara
fleiri hlutir að skýrast að hennar
sögn. „En eins ég segi: okkur ligg-
ur ekkert á.“
Sjálfstæðismenn hittast
síðar í vikunni
Sjálfstæðismenn hittust ekki til
viðræðna í gær en að sögn Árna
Sigfússonar oddvita flokksins er
fundur ráðgerður síðar í vikunni.
Árni segir að brýnt sé að kosinn
verði nýr oddviti borgarstjórnar-
fiokksins en hann ætlar ekki að
leiða ílokkinn áfram.
Sj álfstæðisflokk-
urinn fékk
41,35% atkvæða
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
fékk 41,35% greiddra atkvæða í
þeim kaupstöðum og kauptúnum
þar sem flokkurinn bauð fram lista,
samkvæmt útreikningum Morgun-
blaðsins. Um er að ræða 36 byggð-
arlög þar sem greidd voru alls
145.992 atkvæði. Þar af fékk Sjálf-
stæðisflokkurinn 60.370 atkvæði
eða 41,35% atkvæða.
Um er að ræða Ólafsfjörð,
Bessastaðahrepp, Vesturbyggð,
Blönduós, Mýrdalshrepp, Reykja-
vík, Seltjamarnes, Vestmannaeyj-
ar, Bolungarvík, Sandgerði, Fella-
hrepp, Vestur-Húnavatnssýslu, Ár-
borg, A-Skaftafellssýslu, Dalvík
(þ.e. Dalvík, Árskógsströnd og
Svarfaðardal), Borgarbyggð, Aust-
ur-Hérað, Akranes, Akureyri,
Hafnarfjörð, Grindavik, Garðabæ,
Austfirði (þ.e. Neskaupstað, Reyð-
arfjörð og Eskifjörð), Ölfushrepp,
Vopnafjarðarhrepp, Stykkishólm,
Snæfellsbæ, Skagafjörð, Siglufjörð,
Seyðisfjörð, Reykjanesbæ, Mos-
fellsbæ, Kópavog, Isafjarðarbæ,
Hveragerði og Húsavík.
Framsókn hlaut
22,13% atkvæða
í 28 þessara byggðariaga bauð
Framsóknarflokkurinn fram B-
lista. í þeim byggðarlögum greiddu
71.193 atkvæði. Þar af hlaut
Framsóknarflokkurinn samtals
15.759 atkvæði eða 22,13%.
Byggðarlögin 28 eru Garðabær,
Grindavík, Hafnarfjörður, Akur-
eyri, Akranes, Austur-Hérað,
Borgarbyggð, Dalvík, A-Skafta-
fellssýsla, Árborg, Vestur-Húna-
vatnssýsla, Fellahreppur, Sand-
gerði, Mýrdalshreppur, Austfirðir
(þ.e. Neskaupstaður, Reyðarfjörð-
ur og Eskifjörður), Ölfushreppur,
Vopnafjarðarhreppur, Stykkis-
hólmur, Snæfellsbær, Skagafjörð-
ur, Siglufjörður, Seyðisfjörður,
Reykjanesbær, Mosfellsbær, Kópa-
vogur, ísafjarðarbær, Hveragerði,
Húsavík.
I 29 byggðarlögum, þ.e. ofantöld-
um 28 og Blönduósi, hlutu sameig-
inleg félagshyggjuframboð án þátt-
töku Framsóknarflokksins, þ.e. eft-
ir atvikum Alþýðuflokkur, Alþýðu-
bandalag, Kvennalisti og óháðir,
20.976 atkvæði eða 29,60%. Þar
greiddu alls 71.803 atkvæði.
í fimm byggðarlaganna 36 sem
fyrst er getið, þ.e. Reykjavík, Vest-
mannaeyjum, Seltjamarnesi, Ólafs-
firði óg Bolungarvík, buðu félags-
hyggjuflokkarnir og Framsóknar-
flokkurinn fram sameiginlega. Þar
greiddu alls 72.019 atkvæði. Þar af
hlutu sameiginlegu framboðin
36.824 atkvæði eða 51,13%.
í þeim 34 byggðarlögum þar sem
félagshyggjuflokkarnir buðu sam-
eiginlega fram en ýmist með eða án
þátttöku Framsóknarflokksins
greiddu alls 143.822 manns atkvæði.
Þar af hlutu sameiginlegu fram-
boðin 57.800 atkvæði eða 40,18%.
----------------------
Upphaf talningar
R-listinn
vann á einu
atkvæði
SAMKVÆMT staðfestum heimild-
um Morgunblaðsins tíðkast það hjá
einstökum talningamönnum og um-
boðsmönnum flokka á talningastað í
Reykjavík að við upphaf talningar
era til gamans teknir 100 seðlar upp
úr kjörkössunum og þeir taldir.
Niðurstaðan er síðan borin saman
við lokatalningu atkvæða og hefur
jafnan gefið glettilega góða mynd af
lokaúrslitum kosninganna.
Að sögn heimildamanna var þessi
„skoðanakönnun" að venju gerð í ár
og var óvenjuleg að því leyti að hún
sýndi að mjög mjótt myndi verða á
munum. Leikar fóru þannig að R-
listinn fékk 50 atkvæði en D-listi
Sjálfstæðisflokks fékk 49 atkvæði.
Sem kunnugt er var munurinn á
milli flokkanna í kosningunum 8%
að þessu sinni.
Einnig var í ár gerð öllu smærri
könnun. Teknir voru 7 seðlar og
samkvæmt heimildum féllu atkvæði
úr þeirri „örkönnun" þannig að R-
listinn fékk 4 atkvæði en D-listinn
fékk 3.
Athugasemd gerð við nærveru sjónvarpsmanna þar sem atkvæði voru talin
Flokkun atkvæða
sást í bakgrunni
Á LAUGARDAGSKVÖLD urðu
margir varir við að í sjónvarps-
fréttunum um kvöldmatartímann
voru send út viðtöl frá tveimur
talningastöðum, í beinni útsend-
ingu, við oddvita yfirkjörstjórna
sem tekin vora inni í salnum þar
sem atkvæði vora geymd eða var
verið að flokka. Samkvæmt kosn-
ingalögum er ekki löglegt að
óviðkomandi aðilar séu staddir á
flokkunarstað atkvæða áður en
kjörfundi lýkur.
Jón Steinar Gunnlaugsson hrl.,
sem sæti á í yfirkjörstjóm í
Reykjavík, segist hafa verið furðu
lostinn þegar hann sá viðtal við for-
menn kjörstjóma í Kópavogi og á
Akranesi, inni í salnum eftir að at-
kvæði voru farin að berast. „Ég lít
svo á að það sé tvímælalaust ólög-
legt að sjónvarpsmenn séu í beinni
útsendingu inni í sal þar sem flokk-
un atkvæða fer fram eins og þama
var gert.“
Fyrir luktum dyrum
í kosningalögum er gert er ráð
fyrir því að talning fari fram eftir
að kjörfundi lýkur, að sögn Jóns
Steinars. Þar er meginreglan sú að
talning á að fara fram fyrir opnum
dyrum þannig að kjósendum gefist
kostur á að vera viðstaddir eftir því
sem húsrúm leyfir. „Það er megin-
reglan og er til að gæta hagsmuna
almennings og þess fá fjölmiðlar að
vera viðstaddir. Svo segir í lögun-
um að heimilt sé að hefja flokkun
atkvæða og undirbúa talningu
þeirra fyrir luktum dyrum áður en
kjörfundi lýkur en sem kunnugt er
hefst talning atkvæða eftir að kjör-
fundi lýkur.“
Jón segir að þama sé skýrt
ákvæði um það að sé þessi heimild
notuð þá skuli það fara fram íýrir
luktum dyrum. „Hagsmunimir eru
slíkir að það má ekki undir
nokkram kringumstæðum fréttast
hvað fi*am fer þarna. Mönnum á
ekki að gefast nokkur kostur á því
að spá í það og koma upplýsingum
um það hvernig atkvæði eru að
falla fyrr en kjörfundi lýkur því
það getur haft áhrif á kosninguna.
Menn eru þá ekki nógu vel að
sér í kosningalögunum?
„Það virðist vera einhver hörgull
á því.“
Vildum ekki reka þá út
Jón Atli Kristjánsson, formaður
yfirkjörstjómar í Kópavogi, segir
að yfirkjörstjóm þar hafi verið vel
kunnugt um þær reglur sem gilda
eiga á talningastað en hafi metið
málið sem svo að í lagi væri að hafa
fréttamenn í öraggri fjarlægð frá
þeim stað þar sem flokkun at-
kvæða fór fram. „Okkur er vel
kunnugt um þetta lagaákvæði en
þannig var mál með vexti að salur-
inn í íþróttahúsinu í Digranesi er
mjög stór, og þetta viðtal var utan
talningasvæðisins sem lögreglan
vaktaði inni í salnum þannig að það
sem gerðist er að í bakgranni
viðtalsins sést yfir svæðið.“
Upphaflega vora sjónvarpsmenn
komnir með vélar sínar inn á taln-
ingasvæðið sjálft að sögn Jóns
Atla. „Það var svo að minni ósk að
þetta var allt flutt í burtu frá sjálfu
talningasvæðinu sérstaklega til að
uppfylla þetta lagaákvæði og þar
sem salurinn er svo stór var taln-
ingasvæðið okkar bara í bakgranni
í fréttinni. I Reykjavík hefur það
oft verið þannig að verið er að
mynda í gegnum dymar inn í sal-
inn og við voram með okkar útgáfu
af því. Við vildum ekki vera að reka
sjónvarpsmennina út úr húsinu og
þetta var því bara leyst svona.“
Telurðu sem sagt að það sem
sást hafi ekki átt að geta haft áhrif
á fólk sem heima sat og átti eftir að
kjósa?
„Nei það var ekki okkar álit,
ekki með nokkrum hætti.“
Þið tölduð ekki ástæðu til að
flytja vélarnar út úr húsinu?
„Við vorum bara með hluta af
gólfinu og ég held að það hafi ekki
verið nokkur ástæða til að halda að
nokkur hefði getað séð hvað var að
gerast á svæðinu. Við vissum það
að kjörstjómir annarsstaðar höfðu
túlkað þetta ekkert ósvipað og við.“
Samkvæmt ströngustu reglum
Sá háttur er almennt hafður á á
talningarstöðum að þeir eigi að
vera lokaðir og innsiglaðir og undir
lögregluvernd um leið og atkvæði
koma í hús. Leitað er í salnum og
hann tæmdur áður en honum er
lokað, símar eru teknii' af taln-
ingamönnum og slökkt á sjónvörp-
um meðal annars og engum
óviðkomandi á að hleypa í salinn.
„Ég er sannfærður um það að
það hefur til dæmis óvíða verið
gengið jafnvel eftir því að enginn
væri með farsíma og annað á sér
innandyra eftir að flokkun atkvæða
hófst. Umboðsmenn flokkanna
vora þama auk fulltrúa frá yfir-
kjörstjóm og bæjarstjórn meðal
annarra og lögreglan og enginn
þeirra gerði athugasemd við neitt,“
sagði Einar Jón Ólafsson formað-
ur, yfirkjörstjórnar á Akranesi, í
samtali við Morgunblaðið.
Hann sagði að enginn flokkun
hefði verið komin af stað þegar
sjónvarpið sendi út úr íþróttahús-
inu en öll atkvæði fóru þaðan yfir í
Brekkubæjarskóla í innsigluðum
kjörkössum þar sem þau vora
flokkuð og talin og allt hefði farið
þar fram samkvæmt ströngustu
reglum. „Þetta er alveg úr lausu
lofti gripið,“ sagði Einar.