Morgunblaðið - 26.05.1998, Page 41

Morgunblaðið - 26.05.1998, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1997 41 — HESTAR Fram- kvæmdir á Melgerðis- melum á lokastigi UNDIRBÚNINGUR fyrir landsmótið á Melgerðismelum í sumar er nú á lokastigi. Jón Ólafur Sigfússon fram- kvæmdastjóri mótsins sagði að verið væri að ganga frá útboð- um á veitingasölu sem yrði í höndum Bautans á Akureyri og vel gengi með útleigu á sölutjöldum. Sagði hann að undirtektir varðandi sölutjöld- in hefðu verið mjög dræmar þar til að svæðaskipting vegna hitasóttarinnar var afnumin. Þá hafi fyrirtækin tekið við sér og væri útlitið mjög gott um þessar mundir. I vikunni verður byrjað á áburðardreifíngu á svæðinu og uppgræðslu en Jón sagði að nokkur tonn af áburði frá Landgræðslunni væru komin á staðinn. Þá væri eftir ýmiskon- ar frágangur á svæðinu. Dag- ana 12. til 14. júní nk. verður haldin kynbótasýning á Mel- gerðismelum og sagði Jón að stefnt væri að því að þá yrði svæðið tilbúið. Jón sagði að mun léttara væri yfír öllu er varðaði undir- búning fyrir landsmótið eftir að svæðaskiptingin var afnum- in og hann skynjaði vel að nú tryðu menn því að landsmótið yrði haldið. Hann viðurkenndi að andrúmsloftið hafi oft á tið- um verið býsna þrúgandi þeg- ar hitasóttarfárið stóð sem hæst en nú ráði léttleikinn ríkj- um og hann sé sannfærður um að á Melgerðismelum verði haldið glæsilegt landsmót. ar E. Ágústsson, 8,20. 2. Vænting frá Ytri-Reykjum, eig.: Snorri R. Snorrason og Stefanía B. Sigurðardóttir, kn.: Senita Pukki, 8,05. 3. Móða frá Hafnarfirði, eig. og kn. í fork.: Ragnar E. Ágústsson, kn. í úrsl.: Hinrik Þ. Sigurðsson, 8,13. 4. Funi frá Hóli, eig.: Haraldur Þor- geirsson, kn.: Jón P. Sveinsson, 7,90. 5. Fífa frá Tungu, eig.: Páll Ólafs- son og Sæmundur Gunnarsson, kn.: Páll Ólafsson, 7,92. Skeið - 150 metrar 1. Hraði frá Sauðárkróki, eig. og kn.: Logi Laxdal, 15,04 sek. 2. Áslaug, kn.: Auðunn Kristjáns- son, 15,88 sek. 3. Rökkvi frá Raufarfelli, eig.: Guðni Þorvaldsson, kn.: Adolf Snæbjörnsson, 15,98 sek. 4. Hrafnfaxi, kn.: Logi Laxdal, 16,26 sek. 5. Snúður, kn.: Atli Guðmundsson, 16,38 sek. Skeið - 250 metrar 1. Jörfí frá Höfðabrekku, eig. og kn.: Atli Guðmundsson, 25,16 sek. 2. Frosti frá Ey, eig.: Auðunn Krist- jánsson, kn.: Logi Laxdal, 26,11 sek. 3. Súper-Stjarni frá Múla, eig. og kn.: Sigurður V. Matthíasson, 27,34 sek. 4. Komma frá Ketilsstöðum, eig.: Snorri R. Snorrason og Stefanía B. Sigurðardóttir, kn.: Páll Ólafs- son, 27,83 sek. Brokk - 300 metrar 1. Hugur frá Skarði, eig.: Halldóra Hinriksdóttir, kn.: Hinrik Þ. Sig- urðsson, 45,14 sek. 2. Dímon frá Brúsholti, eig.: Margrét H. Vilhjálmsdóttir, kn.: Rósa B. Þorvaldsdóttir, 47,20 sek. 3. Óttar frá Þingnesi, eig. og kn.: Eyjólfur Þorsteinsson, 52,08 sek. 4. Muggur, eig. og knapi.: Guðrún Guðmundsdóttir, 58,72 sek. Valdimar Kristinsson Tónlist fyrir alla ÁRIÐ 1994 afhenti norska þjóðin Islend- ingum í tilefni 50 ára lýðveldisafmælisins peningaupphæð sem varið skyldi til tónlist- aruppeldis ungs fólks á íslandi. Sett var á lagg- imar stofnun til þess að nýta gjöfína svo að sem flest ungmenni fengju að njóta gjafar- innar. Stofnunin var skýrð Tónlist fyrir alla og er enn starfandi. Hvort féð dugir enn eða hver rekur stofn- unina nú veit ég ekki, enda er það ekki tilefni þessarar greinar heldur það að þótt kennslustundum í listgreinum fari væntanlega enn fækkandi í grunnskólum og ekki sé gert ráð fyrir þeim í framhaldsskólum þá eru hér til stofnanir sem gera góða hluti í tónlistaruppeldi. Þar má nefna Sinfóníuhljómsveit Islands sem hefur á að skipa frábærum hljóðfæraleikurum og heldur tón- leika fyrir skólafólk á skólatíma. Einnig hafa ýmis samtök og ein- staklingar staðið fyrir kynningum á tónlist í skólum. Ég ætla ekki að tíunda það frekar hér heldur snúa mér að stofnuninni Tónlist fyrir alla. Hinn 27. mars síðastliðinn kom Blásarakvintett Reykjavíkur í heimsókn í Borgarholtsskóla í Grafarvogi á vegum Tónlistar fyrir alla. í skólanum er ákaf- lega sundurleitur hóp- ur nemenda. Málmsmíða- og bíliðna- brautir starfa þar, verklegar og bóklegar brautir ásamt fomámi og þroskabraut fyrir fatlaða. Ég leyfi mér þó að fullyrða að eitt eigi nemendur sameig- inlegt upp til hópa og það er að hafa farið á mis við hinn mergjaða tónlistarheim. Þeir telja einfaldlega tón- leika með sígildri tón- list ekki ætlaða sér. Nokkur eftirvænting ríkti meðal kennara um það hvem- ig unga fólkið tæki þessari upp- ákomu að skylda það til að hlusta á sígilda tónlist. Listamennirnir komu á slaginu kl. 10 fram í bílaskálann, þar sem tónleikamir voru haldnir, og hófu leikinn. I fyrstu var kliður eins og oft er í fjölmenni, en viti menn - þeir vora ekki nema hálfnaðir með fyrsta lagið þegar kliðurinn þagnar og maður fann fyrir þeirri djúpu þögn sem myndast þegar hlustað er grannt. Éftir þennan látlausa inngang kynntu þeir hljóðfærin sín fyrir fólkinu og töluðu þannig að þingheimur skildi. Undruðust nokkrir sem kringum mig stóðu hversu einfóld hljóðfærin höfðu verið í upphafi, og hvað var hægt að spila án rafmagns. Þama vora hljóðfæraleikarar Blásarakvint- ettsins búnir að „ná“ hinum sund- urleita hópi og það var mikil upplif- un að sjá krakkana leggja við hlustir, færa sig upp stigann til að sjá betur og heyra klappið magn- ast eftir því sem lögunum fjölgaði. Á milli laga mátti heyra athuga- semdir eins og: „Glætan að maður geti sungið „Ríðum ríðum“ svona“; eða „þeir era líka alveg rosalegir snillingar". Svona mætti lengi telja og virtist vera sama hvaða tónlist var leikin, hrifningin var söm yfir Bach og „Býflugunni". Og þar komum við að kjarna málsins: „Þeir era svo miklir snillingar." Það er lofsvert að Tónlist fyrir alla velur og fær allra bestu listamenn, þjóðarstoltið okkar, til að spila fyr- ir ungt fólk og kynna fyrir því tón- list frá ýmsum tímum. Það er lofs- Hrifningin var söm yfír Bach og „Býflugunni“, segir Anna Ingólfs- dóttir, í frásögn af heimsókn Blásara- kvintetts Reykjavíkur í Borgarholtsskóla. vert að starfsmenn stofnunarinnar skilji að ungt fólk á skilið það besta, og óþolinmótt ungt fólk, ókunnugt efninu, þarf það besta til að hrífast með og skilja. Ungt fólk er nefnilega næmt fyrir gæðum og glöggt á brestina. Þessi stund hleypti nýju blóði í tónlistaram- ræðu í skólanum og Tónlist fyrir alla áorkaði þar mikilli hjálp í kennslu og vakti áhuga nemenda og ekki síður kennara á sígildri tónlist. Kærar þakkir. Höfundur er tónlistarkennari í Borgarholtsskóla. Anna Ingólfsdóttir 6FT"' ...efþúáttekkieirrtak <» Litir: Rautt, karrígult, dökkblátt, liósgrátt. Stærðir: S-XXL verð kr. -sportvöRufiiís Fosshálsi 1 - S. 577 5858 Skeifunni 19-S. 5681717 aviar GOTT FÓLK / Sl,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.