Morgunblaðið - 26.05.1998, Side 25
MORGUNB LAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1997 25
ÚR VERINU
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra um tillögur Hafrannsóknastofnunarinnar
Erfiðar aðgerðir
sem gripið var til
eru að skila árangri
„ÞESSI ráðgjöf er um margt
ánægjuleg. Hún staðfestir viðreisn
þorskstofnsins og að þær erfiðu
aðgerðir sem við
gripum til á sín-
um tíma eru að
skila árangri.
Aðrir stofnar
eru flestir í
ágætu jafnvægi,
þannig að í heild
verður þó nokk-
ur aukning þó
að við þurfum
að draga lítil-
lega saman í rækju og ýsu, en það
hefur alltaf legið ljóst fyrir að með
vaxandi þorskstofni yrði að draga
úr rækjuveiðunum því þar er beint
samhengi á milli,“ segir Þorsteinn
Pálsson sjávarútvegsráðherra um
skýrslu Hafrannsóknastofnunar-
innar um tillögur varðandi há-
marksafla á næsta fískveiðiári.
„Samkvæmt mati Þjóðhags-
stofnunar getur þetta aukið
verðmæti útfluttra sjávarafurða
um 2,5 tii 3 milljarða og lands-
framleiðslan aukist um 0,5%.
Ríkissjóður fær væntanlega um
700-800 milljónir króna í auknar
tekjur af þeim ástæðum á næsta
ári,“ sagði Þorsteinn.
Hann sagði að hann gerði ráð
fyrir því að ákvörðun um aflaheim-
ildir á næsta fiskveiðiári verði tek-
in innan skamms, en venjan væri
að samráðsfundur væri haldinn
með helstu hagsmunaaðilum í
sjávarútvegi áður en lokaákvörðun
væri tekin.
Hefði verið
óhætt að fara
í 270 þúsund
tonn
„Mér finnst að menn hefðu
getað leyft sér að auka þorsk-
veiðina meira, en það er búin að
vera stöðug
uppbygging í
þorskstofninum
síðustu þrjú ár-
in og uppbygg-
ingin umfram
það sem menn
gerðu ráð íyrir
að hún myndi
verða. Eg held
því að það hefði
verið óhætt að
auka veiðina um að minnsta kosti
20% og fara í svona 270 þúsund
tonn,“ segir Guðjón A. Rristjáns-
son, forseti Farmanna- og fiski-
mannasambands Islands.
Guðjón segir að líta verði til
þess að hrygningarstofn þorsks-
ins sé kominn upp í 540 þúsund
tonn og hann hafi stækkað veru-
lega frá síðasta ári og áhættan í
því að auka veiðina sé því hverf-
andi.
„Mér finnst þeir því óþarflega
varkárir. Það eru sjálfsagt allir
sammála um það að halda áfram
að byggja þorskstofninn upp
þannig að það megi stefna að 300
þúsund tonna veiði eða meira, en
ég tel að menn séu óþarflega
varkárir miðað við það hvernig
þróunin hefur verið og miðað við
það góðæri sem virðist vera í
sjónum, stóran loðnustofn og til-
tölulega hlýjan sjó. Stækkun
þorskstofnsins hefur líka ákveðn-
ar neikvæðar hliðar og við sjáum
hvaða áhrif hann hefur á rækju-
stofninn þar sem gert er ráð fyrir
að minnka veiðina úr 75 þúsund
tonnum sem hún mátti vera á
þessu fiskveiðiári og fara með
hana niður í 45 þúsund tonn. Þeir
eru að tala um að heildarveiðin
geti orðið 60 þúsund tonn en það
má geyma 15 þúsund tonn á milli
ára. Þar eru menn því raunveru-
lega að skera niður veiðina á út-
hafsrækjunni, sem skiptir
auðvitað verulegu máli atvinnu-
lega séð á stórum svæðum lands-
ins, um 30 þúsund tonn, eða um
það bil 40%. Það er rosalega harð-
ur niðurskurður hjá þeim útgerð-
um og stöðum sem hafa verið að
byggja sig upp í rækjuveiði á und-
anförnum árum, en það er
auðvitað afleiðing af stækkandi
þorskstofni og hlýju árferði fyrir
norðan land. Eg hefði því talið að
það væri allt í lagi að láta þetta
spila aðeins saman og fara svolítið
hraðar í þorskinn, en ég held að
við hefðum ekki unnið okkur
neinn stórskaða með því,“ sagði
Guðjón.
Hann sagðist jafnframt hafa
viljað sjá einhverja aukningu í
grálúðunni, en þar væru afla-
brögð miklu betri á þessu ári en
menn hefðu gert ráð fyrir. Líkt og
í þorskinum væri aukning í loðnu
og allt gott um það að segja, en
hins vegar væri boðaður mikill
niðurskurður í síld.
„Það er talað um að heildar-
veiðin geti orðið 90 þúsund tonn
miðað við að það séu færð 25
þúsund tonn á milli ára. Með
þeirri tillögu er raunverulega ver-
ið að leggja til að veiði næsta fisk-
veiðiárs sé heimiluð upp á 65
þúsund tonn í staðinn fyrir 100
þúsund. Það er þá 35% niður-
skurður frá þvi í fyrra. Reyndar
erum við alveg sammála því að
fara varlega þar því veiðarnar
gengu það illa á síðasta hausti að
skipstjórarnir innan Farmanna-
og fiskimannasambandsins álykt-
uðu einmitt um það að það yrði
ekki farið í haustveiðarnar fyrr en
búið væri að fara í mælinga-
leiðangur. Eg geri því ráð fyrir að
það verði farið og reynt að átta
sig á því hver staðan er í síldar-
stofninum áður en veiðarnar
verða hafnar að einhverju marki
og annað finnst mér óeðlilegt."
Jákvæður
árangur
uppbygg-
ingarstarfs
„Þessi skýrsla sem hér er lögð
fyrir okkur er mjög jákvæð og
undirstrikar að við höfiim verið á
réttri leið í af-
stöðu okkar til
umgengni um
fiskistofnana,“
segir Kristján
Ragnarsson,
formaður
Landssambands
íslenskra út-
vegsmanna.
„Þorskstofn-
inn vex verulega
og veiði úr honum eykst um 32
þúsund tonn sem er auðvitað um-
talsvert þegar þetta er þriðja árið í
röð sem verið er að auka þetta aft-
ur eftir mikinn niðurskurð og
miklar þrengingar sem við þurfum
að ganga í gegnum í því samhengi.
Það eru þó neikvæðir þættir í
þessu því það er heimilaður mjög
lítill grálúðuafli og það er minnkun
í ýsu og umtalsverð minnkun í
rækju sem þó er til bráðabirgða og
getur verið leiðrétt í haust. Hins
vegar er mikil aukning í loðnu-
veiðinni þannig að í heildina tekið
er skýrslan undirstrikun um
jákvæðan árangur af því uppbygg-
ingarstarfi sem hér hefur verið
unnið þar sem samtök útvegs-
manna hafa farið fyrir í því að
mæla með vísindalegum ráðum og
að við skulum fara eftir þeim. Eg
held að við getum verið stoltir af
þeirri afstöðu, ekki síst þegar við
lesum það nú í erlendum blöðum
að íslenskir útgerðarmenn ættu að
vera til fyrirmyndar öllum öðrum
útgerðarmönnum í heiminum
vegna þess hve ábyrg þeirra af-
staða er til fiskistofnanna og
stefna þeirra um það að þeir séu
nýttir með sjálfbærum hætti. Eg
tel að það sé undirstrikað í skýrslu
Hafrannsóknastofnunarinnar að
við höfum verið á réttri leið,“ sagði
Kristján.
Mikilvægt að
leyft sé að
jafna sveiflur
milli ára
Pétur Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Félags rækju- og hörpudisk-
framleiðenda, segir að tillögur
Hafrannsókna-
stofnunarinnar
komi í sjálfu sér
ekki á óvart, en
hann sé hins
vegar hissa á því
og mótfallinn að
tillaga stofnun-
arinnar
varðandi úthafs-
rækjuna miðist
við heildarafla
að meðtöldum veiðiheimildum sem
flytjast frá undangengnu fisk-
veiðiári.
„Ég hef heyrt það að menn hafa
í sjálfu sér haft svolítinn ugg í
brjósti varðandi rækjuna því hún
hefur veiðst minna vestur fi'á og
verið blandaðri og minni heldur en
undanfarin ár. Ég hef nú hins veg-
ar haldið að menn væru með ein-
hverjar aðrar skýringar á þvi held-
ur en einungis þær að það hafi ver-
ið veitt of mikið, þannig að því
leytinu er ég kannski svolítið hissa
á hvað þetta dettur niður. Að öðru
leyti þá held ég nú að menn séu
eftir sem áður í talsvert mikilli
rækjuveiði, og sögulega séð eru
þetta þrátt fyrir allt talsvert mikl-
ar heimildir," sagði Pétur.
„Ég er hins vegar hissa á því að
menn skuli vera að blanda svona
saman heimildum frá fyrra fisk-
veiðiári og því er ég ósammála.
Það verða væntanlega eftir ein-
hverjar heimildir frá fyrra ári og
mér finnst mjög óeðlilegt að heim-
ildimar séu ekki bara ákvarðaðar
á svipaðan hátt eins og áður. Núna
fyrir maí og restina af fiskveiðiár-
inu eru í rauninni til heimildir fyrir
allt að 10 þúsund tonnum á mánuði
og ég held að það sé mjög mikil-
vægt að leyft sé að jafna sveiflur á
milli ára. Það er því stílbrot ef ver-
ið er að hverfa frá því og því er ég
algjörlega á móti.“
Kemur mis-
jafnlega niður
á einstaka
landshluta
„Margt af þessu kemur ekki á
óvart, en auðvitað er aukningin í
þorskinum það ánægjulegasta við
þetta. Ég held
að það hafi
kannski ekki
mátt búast við
hærri tölu en
þama er, eða um
15% aukningu,"
segir Amar Sig-
urmundsson,
formaður Sam-
taka fískvinnslu-
stöðva.
,3-uðvitað veldur það ákveðnum
áhyggjum að það er samdráttur í
rækjuveiðunum, bæði úthafsrækju
og innfjarðarækju. Svo koma aftur
ljósu punktamir sem em þá aukn-
ing í úthlutun á loðnunni, en svo
aftur samdráttur í ýsu og humri.
Þetta kemur að sjálfsögðu mis-
jafnlega niður á einstaka lands-
hluta, en fyrstu viðbrögðin í heild-
ina tekið era auðvitað þau að mað-
ur er mjög ánægður með það hvað
þorskstofninn er að rétta úr kútn-
um. Það eitt og sér mun auðvitað
hafa áhrif fyrir vinnsluna og að
sjálfsögðu allan sjávarútveginn, og
það era jákvæðu tíðindin í þessu.
Þetta mun þvi heldur bæta stöðu
sjávarútvegsins, en óneitanlega
kemur þetta þó misjafnlega niður
þar sem vægi þorsksins er dálítið
misjafnt eftir landshlutum."
Friðrik Már Baldursson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar
Tillögiu nar fela í sér 3%
aukningu í aflaverðmæti
ÞJÓÐHAGSSTOFNUN hefur að beiðni
sjávarútvegsráðuneytisins lagt mat á efna-
hagsleg áhrif af tillögum Hafrannsóknastofn-
unar um hámarksafla
kvótabundinna tegunda
lyrir fiskveiðiárið
1998/1999. Að mati
Þjóðhagsstofnunar fela tii-
lögur Hafrannsóknastofn-
unar í sér 3% aukningu í
aflaverðmæti, talið í
þorskígildum sem sam-
svarar 2,5 til 3 milljörðum
króna í auknu útflutnings-
verðmæti. Það er um það
bil 1,3-1,5% af heildarútflutningi og 0,4-0,5%
af landsframleiðslu.
Þjóðhagsstofnun spáir því að útflutnings-
verðmæti sjávarafurða nemi á almanaksárinu
1998 samtals 95,5 milljörðum króna. Að sögn
Friðriks Más Baldurssonar, setts forstjóra
Þjóðhagsstofnunar, er þorskaukningin lang-
mikilvægust, en Hafrannsóknastofnun leggur
til 32 þúsund tonna aukningu í þorski sem
svarar til 14,7% aukningar frá tillögum
síðasta árs. Nærri lætur að vægi þorsksins sé
meira en þriðjungur í þorskígildum talið.
Loðnan er sömuleiðis afar mikilvæg hvað
vægi varðar, en ef hún er undanskilin, telur
Þjóðhagsstofnun að aflaverðmætið aukist
ekki nema um 2,1%.
í mati Þjóðhagsstofnunar era tillögur Haf-
rannsóknastofnunar frá því í fyrra fyrir fisk-
veiðiárið 1997/1998 bornar saman við tillögur
stofnunarinnar nú eða fyrir fiskveiðiárið
1998/1999.
Uppsveifla í verði
Að sögn Friðriks Más er hér um töluverða
aukningu í útflutningsverðmæti að ræða, en
ekkert í líkingu við það sem var árið 1996
þegar útflutningsverðmætið jókst um 8,8%
milli ára. „Útflutningsverðmæti sjávarafurða
á fostu verði dróst saman um 3,2% frá 1994 til
1995. Síðan jókst verðmætið um 8,8% árið
1996, það dróst saman um 1% árið 1997 og við
spáum þvi að verðmætið verði óbreytt 1998.
Inni í þessum tölum era ekki þær viðskipta-
kjarabreytingar, sem hafa verið að eiga sér
stað, en við höfum verið að sjá talsvert mikla
uppsveiflu í verði núna og ef hún verður
viðvarandi má búast við að þetta verði mjög
gott ár.“
Forstjóri Þjóðhagsstofnunar segir að
auðvitað feli tillögur Hafrannsóknastofnunar
í sér vissa staðfestingu á þeim væntingum,
sem uppi hafa verið varðandi aukningu, en
jafnframt fylgi vandi vegsemd hverri. „Mikill
uppgangur er nú í efnahagslífinu og því er
mikilvægt að þetta verði notað á skynsamleg-
an hátt í stað þess að auka útgjöld og sigla
aukningunni þar með jafnóðum út úr þjóðar-
búinu,“ sagði Friðrik Már.
Friðrik Már
Baldursson
Þorsteinn
Pálsson
Guðjón A.
Kristjánsson
Kristján
Ragnarsson
Pétur
Bjarnason
Arnar
Sigurmundsson