Morgunblaðið - 26.05.1998, Síða 27
MORGUNB LAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1997 27
ERLENT
Réttarhöld á Spáni vegna „óhreina stríðsins“
Fyrrverandi ráðherra
sakaður um mannrán
Reuters
JOSE Barrionuevo, fyrrverandi innanríkisráðherra, og Rafael Vera,
fyrrverandi öryggismálaráðherra, að loknum vitnaleiðslum í gær.
Þeir eru sakaðir um að hafa stjórnað „óhreina stríðinu" gegn
baskneskum aðskilnaðarsinnum á síðasta áratug.
Madrid. Reuters.
RÉTTARHÖLD hófust á Spáni í
gær yfir fyrrverandi ráðherra, sem
bendlaður er við „óhreina stríðið“
gegn baskneskum aðskilnaðarsinn-
um á síðasta áratug. Kom þá meðal
annars fram, að hann og aðrir
embættismenn hefðu skipulagt
mannrán.
Jose Amedo, fyrrverandi lög-
reglumaður og einn af 12 mönnum,
sem hafa verið ákærðir, sagði í gær
við réttarhöldin í Madrid, að Jose
Barrionuevo, fyrrverandi innan-
ríkisráðherra, hefði lagt blessun
sína yfir tilraun til að ræna
baskneskum kaupsýslumanni í Suð-
ur-Frakklandi 1983. Kvaðst Amedo
hafa haft milligöngu milli yfirvalda
og þeirra, sem voru ráðnir til að
ræna manninum.
Segundo Marey var rænt á heim-
ili sínu og haldið í tíu daga en þá
hafði komið í ljós, að hann var alls
ekki ETA-liði. Var honum þá sleppt
ásamt nótu þar sem sagði, að GAL,
leynileg samtök, sem börðust gegn
baskneskum aðskilnaðarsinnum,
bæru ábyrgðina.
Talin hafa drepið
28 menn
GAL stundaði mannrán,
sprengjutilræði, pyndingar og morð
á árunum 1983 til 1987, á stjómar-
tíma sósíalista, og eru samtökin
sökuð um að hafa drepið 28 menn.
Felipe Gozalez, þáverandi forsætis-
ráðherra, neitar allri vitneskju um
samtökin og hefur ekki verið
ákærður en hann mun samt bera
vitni við réttarhöldin. GAL-
hneykslið átti sinn þátt í ósigri
sósíalista fyrir hægriflokki Jose
Maria Aznars fyrir tveimur árum.
Bairionuevo, sem er enn þing-
maður fyrir sósíalista, og Rafael
Vera, fyrrverandi öryggismál-
aráðherra, eru hæstsettu menn,
sem ákærðir hafa verið í þessu máli.
Eiga þeir þungan dóm í vændum
verði þeir fundnir sekir en þeir bera
allt af sér.
Israelar hafna
tillögu Banda-
ríkjastjórnar
Jerúsalem. Reuters.
ÍSRAELSKA ríkisstjórnin hafn-
ar einróma tillögu Bandaríkja-
manna um að Israelar afhendi
Palestínumönnum 13% lands á
Vesturbakkanum til viðbótar, að
því er Moshe Katzav, aðstoðar-
forsætisráðherra, sagði í gær.
„Það er ekkert ósamkomulag
varðandi þrettán prósentin,"
sagði hann í viðtali við ísraelska
útvarpið í gær.
Benjamin Netanyahu, forsæt-
isráðherra, hefur sagt að ekki
komi til greina að ganga að til-
lögu Bandaríkjamanna, sem mið-
ar að því að hefja á ný friðarum-
leitanir Israela og Palestínu-
manna, sem legið hafa niðri frá
því í mars í fyrra. Ráðherrar í
stjórninni segja að af öryggis-
ástæðum geti Israelar ekki geng-
ið að tillögunni.
ísraelska blaðið Ha’aretz
greindi frá því í gær að Netanya-
hu hafi undanfarin kvöld átt lang-
ar viðræður í síma við Dennis
Ross, sendimann Bandaríkja-
stjórnar fyrir botni Miðjarðar-
hafs, um möguleika á frekara
landsafsali.
Yasser Arafat, forseti heima-
stjórnar Palestínumanna, hefur
gengið að tillögu Bandaríkja-
manna. Sl. sunnudag hvatti hann
Bandaríkjamenn til að greina
frá tillögunni opinberlega og
kenna ísraelum um að ekki hefði
náðst árangur í samningavið-
ræðum.
Samkvæmt bráðabirgðasam-
komulagi sem fyrrverandi ríkis-
stjóm Israels gerði við Palestínu-
menn eiga Israelar að láta verða
af svonefndri annarri og þriðju
brottfor herliðs frá Vesturbakk-
anum, sem þeir hernámu í sex-
dagastríðinu 1967, en þar býr um
ein og hálf milljón Palestínu-
manna.
Gingrich í ísrael
Bandaríkjaþing myndi taka því
vel ef ríldsstjóm Bills Clintons
forseta legði til að Israelum yrði
veittur einn milljarður dollara í
neyðaraðstoð til þess að tryggja
að fyllsta öryggis ísraelskra
borgara yrði gætt ef Palestín-
umönnum yrði afhent meira land
á Vesturbakkanum. Þetta sagði
Newt Gingrich, forseti þingsins, í
samtali við Ha’aretz í gær.
„Ef friðarsamningar nást
myndu flestir Bandaríkjamenn
vilja veita stuðning og aðstoð,“
sagði Gingrich. ísraelskir fjöl-
miðlar hafa greint frá því að þeg-
ar Netanyahu fór til Bandaríkj-
anna fyrr í þessum mánuði nefndi
hann við Clinton þörfina á aðstoð
er næmi um einum milljarði doll-
ara til að standa straum af vega-
lagningu og öðram öryggisráð-
stöfunum á Vesturbakkapum.
ÚT UM ALLT LAND ROVER
Land Rover Discovery er öflugur feröajeppi fyrir þá sem fara
ekki alltaf auöveldustu leiðina. Slíkur bíll hentar sérstaklega
vel við margbreyttar íslenskar aöstæöur.
Discovery kemur þér hvert sem þú vilt fara og þægindunum
er ekki fórnaö. Uppgötvaðu landiö upp á nýtt í þolgóðum en
jafnframt glæsilegum farkosti.
SJALFSKIPTUR
KOSTAR AÐEINS
FRÁ 3.0B0.D00 KR.
Umboösadilar:
Kefiavík: Bílar og þjónusta, s: 421 7180 • Akranes: Bílasalan Bílás, s: 431 2622 • Bolungarvík: Bifreiöaverkstæöiö Nonni, s: 456 7440
Sauðárkrókur: Bifreiðaverkstæðið Áki, s: 453 5141 • Akureyri: Bílaval, s: 462 1705 • Húsavík: Bílaleiga Húsavíkur, s: 464 1888 • Egilsstaðir: Bílasalan Ásinn, s: 471 2022
Hornafjörður: HP & synir, s: 478 1577 • Selfoss: Bílasala Suðurlands, s: 482 3700 • Vestmannaeyjar: Bílaverkstæði Haröar & Matta, s: 481 2733
Suöurlandsbraut 14
Sími: 575 1200
Söludeild Land Rover: 575 1210
bl@bl.is