Morgunblaðið - 26.05.1998, Qupperneq 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Síðari umferð þingkosninga í Ungverjalandi
Helsti andstæðingur kommúnista kjörinn á þing
Reuters
CHRISTINE Loh, einn af leiðtogum Borgaraflokksins, fagnar sigri í
kosningunum i Hong Kong í gær.
Sigur
lýðræðis-
sinna í
Hong
Kong
Hong Kong. Reuters.
MARTIN Lee, harður gagnrýnandi
kommúnistastjómarinnar í Kína,
vann aftur þingsæti sitt í kosning-
um í Hong Kong í gær, þeim fyrstu
eftir að krúnunýlendan fyrrverandi
hvarf undir Kína. Vann flokkur
hans, Lýðræðisflokkurinn, níu af
þeim 20 sætum, sem valin eru
beinni kosningu.
Lee var rekinn af þingi 1. júlí í
fyrra þegar Kínverjar tóku við
stjóm í Hong Kong en hann hefur
ekki aðeins gagnýnt kommúnista-
stjómina í Kína, heldur einnig
Tung Chee-hwa, sem Kínverjar
skipuðu sem eins konar ríkisstjóra í
Hong Kong. Hefur hann sakað
Tung um bamaskap, að átta sig
ekki á eðli kommúnistastjómarinn-
ar og um að hafa skert borgaraleg
réttindi íbúa í Hong Kong, 6,6 millj-
óna manna.
Lee ítrekaði þessa gagnrýni á
Tung strax og ljóst var orðið, að
hann hafði náð kjöri og lagði jafn-
framt áherslu á, að hann ætlaði að
berjast fyrir auknu lýðræði í Hong
Kong og Kína.
Kínastjórn „skipar“
meirihlutann
Eins og fyrr segir vann
Lýðræðisflokkurinn níu af 20 sæt-
um, sem kosið er um, og flokkar
hlynntir lýðræði ráða því alls 14
sætum af 60. 30 þingsæti em valin
af litlum hópum innan atvinnulífsins
og 10 af sérstakri 800 manna kjör-
nefnd, sem Kínastjóm skipaði.
Hvetur Lee til beinna kosninga um
öll þingsætin og einnig um embætti
Tungs.
Auk Lees náðu kjöri tveir aðrir
baráttumenn fyrir auknu lýðræði,
Emily Lau og Christine Loh, og sig-
ur þeirra allra er sætari fyrir það,
að kjörsókn var óvanalega mikil. I
síðustu kosningum undir breskri
stjóm var hún rúm 35% en 53% nú.
Hópur óháðra eftirlitsmanna frá
ýmsum löndum fylgdist með kosn-
ingunum í óþökk kínverskra stjóm-
valda, sem meðal annars bönnuðu
þeim að fara inn á kjörstaði. Kváðust
þeir þó ekki efast um, að kosning-
amar hefðu farið heiðariega fram en
sögðu það hneykslanlegt hvemig
valið væri í 40 þingsæti af 60.
Hægrisveifla er stjórn-
arflokkar gjalda afhroð
Búdapest. Reuters.
HÆGRIMENN unnu mikinn kosn-
ingasigur í Ungverjalandi um helg-
ina, þegar síðari umferð þingkosn-
inga fór fram þar í landi. Forystu-
menn „Ungverska borgaraflokks-
ins Fidesz“ hófu í gær þreifmgar
um myndun nýrrar ríkisstjómar,
en sögðust ekld myndu láta „þvinga
sig“ til neinna samninga.
Sögðu forystumenn flokksins að
val á leiðum í stjómarmyndunar-
viðræðum yrði rætt á sérstöku
flokksþingi á morgun, miðvikudag.
„Fidesz fékk 1,5 milljónir atkvæða
og á tilkall til þess að mynda ríkis-
stjóm,“ sagði varaformaður flokks-
ins, Tamas Deutsch, í sjónvarps-
viðtali.
Núverandi stjómarflokkar,
Sósíalistaflokkurinn og frjálsir
demókratar, guldu afhroð í kosn-
ingunum. Mið- og hægriflokkar
unnu 55,18% þingsæta, en 386
þingmenn eiga sæti á þjóðþinginu í
Búdapest.
Fidesz-flokkurinn hlaut 148
þingsæti, eða 38,34%. Bændaflokk-
urinn „Sjálfstæðir smáeignamenn"
fékk 48 þingsæti og Ungverski
lýðræðisvettvangurinn, banda-
menn Fidesz, 17 sæti. Róttæki
hægriflokkurinn „Ungverskt rétt-
læti og líf“, sem miðjuflokkamir
Reuters
VIKTOR Orban, formaður Fidesz-flokksins og ótvfræður sigurvegari
þingkosninganna í Ungveijalandi. Þess er vænzt að hann verði yngsti
forsætisráðherrann í sögu Ungverjalands á þessari öld.
hafa útilokað samstarf við, fékk í
fyrsta sinn fulltrúa kjöma á þing
og hlaut 14 þingsæti.
Yngsti forsætisráðherrann
Sósíalistar fengu 134 þingsæti
og Fijálsir demókratar 24. Eftir
þennan mikla ósigur sagði öll
flokksforysta frjálsra demókrata af
sér.
Búizt er við því að Arpad Göncz,
forseti Ungveijalands, tilkynni
formlega endanleg úrslit kosning-
anna fyrir þinginu á fímmtudaginn.
Hefð er fyrir því að forsetinn feli
sigurvegara kosninganna stjómar-
myndunammboð, og gangi það eft-
ir yrði Viktor Orban, leiðtogi
Fidesz, yngsti forsætisráðherrann
í sögu Ungverjalands á þessari öld,
en hann er 35 ára.
Kosningaúrslitin era álitin mikill
persónulegur sigur fyrir Orban, en
flokkurinn beið mikinn ósigur í
kosningunum fyrir fjóram áram. I
kosningabaráttunni nú lagði
Fidesz mest upp úr hefðbundnum
fjölskyldugildum og áherzlu á lög
og reglu. I síðustu kosningum fékk
Fidesz aðeins 5,18% atkvæða, en
þá var Orban nýtekinn við forystu
flokksins, sem þróaðist upp úr
vinstrisinnaðri námsmannahreyf-
ingu. Undir forystu Orbans breytt-
ist flokkurinn í borgaralegan
miðjuflokk.
Átök glæpagengja með tilheyr-
andi sprengjutilræðum í og við
Búdapest að undanfömu era talin
hafa ýtt mjög undir þá þróun, að
kjósendur snerust á sveif mið
Fidesz.
Stjómvöld í nágrannaríkinu
Slóvakíu, þar sem stór ungverskur
minnihluti býr, sögðu í gær að sig-
ur Fidesz myndi hjálpa til við að
bæta samskipti ríkjanna.
Fjórir mánuðir í kosningar til Sam-
bandsþingsins í Þýzkalandi
Kohl bætir
stöðu sína
Bonn. Reuters.
HELMUT Kohl, kanzlari Þýzka-
lands og leiðtogi kristilegra
demókrata (CDU), virðist hafa
tekizt að snúa vöm í sókn í kosn-
ingabaráttunni fyrir kosningar til
þýzka Sambandsþingsins í haust
eftir að flokksmenn hans fylktu
sér að baki honum á flokksþingi í
liðinni viku.
Þegar fjórir mánuðir era til
kosninga bentu tvær skoðana-
kannanir, sem birtar vora í gær,
til þess að CDU hafi tekizt að
saxa nokkuð á fylgisforskot jafn-
aðarmannaflokksins SPD og
kanzlaraefnis hans, Gerhards
Schröders. Undanfarna mánuði
hefur forskot SPD verið á bilinu
8-10 prósentustig.
Tvennt þykir hafa hjálpazt að
við að bæta stöðu Kohls í kapp-
hlaupinu við Schröder í augum
kjósenda. Flokksþingið tók af öll
tvímæli um stuðning flokks-
manna Kohls við hann og
ákvörðun héraðsleiðtoga SPD í
sambandslandinu Sachsen-An-
halt um að fara ekki að tilmælum
Schröders við myndun nýrrar
héraðsstjómar er talið hafa
grafíð undan stöðu Schröders,
þar sem hann hefur frá því hann
var útnefndur kanzlaraefni þurft
að sanna fyrir kjósendum að
hann hafí ótvíræð tök á eigin
flokki.
I könnun Forsa-stofnunarinn-
ar hafði CDU bætt stöðu sína um
2%, eða í 37%, en SPD misst 2%
og sé nú með 43% fylgi. Sam-
kvæmt könnun Emnid-stofnun-
arinnar er fylgi CDU 37% og
SPD óbreytt í 43%.
Þetta er í fyrsta sinn frá því í
febrúar sem CDU bætir stöðu
sína gagnvart SPD í skoðana-
könnunum.
Upphafið að
vatnaskilum?
„Stóra spumingin er sú hvort
þetta sé upphafið að vatnaskilum
í kosningabaráttunni og hvort
CDU hafi tíma til að vinna upp
forskot SPD,“ sagði Manfred
Guellner, rannsóknastjóri hjá
Forsa. „Eg tel líklegast að hér sé
ekki um þáttaskil að ræða.
Næstu þrjár til fjórar vikur
verða CDU mjög mikilvægar. Til
þess að eiga kost á því að vinna
kosningamar í september verður
flokkurinn að hafa unnið fjögur
prósentustig til viðbótar fyrir
júnflok.“
Athygli vakti einnig í gær, að
Kohl rak úr þjónustu sinni Peter
Hausmann, sem hafði gegnt
stöðu talsmanns stjómar Kohls
frá því í janúar 1995. Hausmann
hafði að undanfömu mátt þola
gagnrýni úr röðum flokksmanna
sinna fyrir að hafa ekki staðið sig
í að sýna stefnu og aðgerðir
stjórnarinnar í æskilegu ljósi.
Einkum var hann talinn hafa
klúðrað málum á leiðtogafundi
Evrópusambandsins í upphafi
mánaðarins, þar sem hart var
tekizl á um það milli Frakka og
Þjóðverja hver ætti að gegna
embætti aðalbankastjóra Evr-
ópska seðlabankans fyrstu átta
árin eftir að Efnahags- og mynt-
bandalagið, EMU, verður að
veraleika. Frásagnir fjölmiðla af
frammistöðu Kohls á þessum
átakafundi vora neikvæðar.
Hvatt til
varúðar
við gervi-
frjóvgun
London. Reuters.
HOLLENSKIR læknar
hvetja til aukinna rannsókna
og meiri varúðar við gervi-
frjóvgun en nú er viðhöfð í
grein, sem þeir rita í breska
læknablaðið The Lancet.
Segja þeir hættu á, að litning-
ar skaddist við fijóvgunina
með hugsanlega alvarlegum
afleiðingum fyrir börnin síðar
meir.
I greininni segir einn lækn-
anna, dr. Egbert te Velde, frá
rannsóknum á bömum, sem
vora getin þannig, að einni
sæðisframu var komið fyrir í
eggi. Telur hann hættu á, að
við þessa meðhöndlun geti
litningar skaðast og það síðan
haft áhrif á þroska bamsins.
Vegna þess segir hann nauð-
synlegt að gera miklu meiri
tilraunir með frjóvgunarað-
ferðir, til dæmis á dýrum, og
beita þeim ekki í stóram stfl
fyrr en ljóst sé, að engin
hætta sé á ferðum.
Við ástralska rannsókn á
250 bömum, sem getin vora
með fyrmefndum hætti, og
jafn stóram samanburðarhópi
annarra bama kom í ljós, að
ársgömul voru bömin örlítið á
eftir í þroska. Þá vora
drengirnir aðeins á eftir
stúlkunum.