Morgunblaðið - 26.05.1998, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1997 59
BRÉF TIL BLAÐSINS
Þrjár feilnótur
- í einni
Frá Kjartani Ólafssyni:
FÁEINIR minnispunktar fyrir út-
varpsstjóra Ríkisútvarpsins, fram-
kvæmdastjóra Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands og framkvæmdastjórn
Listahátíðar í Reykjavík 1998.
Á aðalfundi Tónskáldafélags Is-
lands 25. apríl síðastliðinn voni
samþykktar
ályktanir til
þriggja ríkisrek-
inna stofnana
sem hafa með
tónlist og tón-
listarflutning að
gera. Á aðal-
fundinum kom
fram sú afdrátt-
arlausa skoðun
meðlima
Tónskáldafélags
íslands að íslenskri tónlist væri
ekki sinnt sem skyldi hjá viðkom-
andi stofnunum og voru lögð til
grundvallar þessum ályktunum
þau lög og reglur sem þær starfa
eftir og hlutur íslenskrar tónlistar
á undanfórnum árum hjá þeim.
Forstöðumenn stofnananna sáu
ástæðu til að svara þessum álykt-
unum á opinberum vettvangi þar
sem þeir staðhæfðu að engin hald-
bær rök lægju á bak við þær.
Listahátíð í Reykjavík
Listahátíð í Reykjavík stendur
nú yfír þar sem alls era flutt 3 ís-
lensk tónverk. Forsvarsmaður
Listahátíðar sagðist vera „stolt af
því að gera svo vel við íslensk
tónskáld" í sínu svari.
Forsvarsmenn Tónskáldafélags-
ins undrast þessa yfirlýsingu í ljósi
þeirra staðreynda sem liggja fyrir.
Fulltrúi Tónskáldafélags Islands í
fulltrúaráði Listahátíðar hefur
tekið lauslega saman hlut íslenski'-
ar tónlistar á undanförnum ánim
og hefur komið í ljós að varla hefur
minna verið flutt af íslenskri tónlist
á Listahátíð en í ár.
Ef skoðuð eru síðustu 12 ár, eru
á Listahátíð 1986 flutt 20 íslensk
tónverk, þar af 9 frumflutt, árið
1988 vai- flutt 21 verk, þar af 9
frumflutt, árið 1990 voru 8 verk
flutt (þ.á m. kirkjuópera og
hljómsveitaverk) þar af 5 frum-
flutt, 1992 voru 10 verk flutt, þar af
6 frumflutt, 1994 voru 5 verk flutt
(þ.á m. eitt heilskvölds ballett-
verk), og árið 1996 voni flutt 12
verk (þ.á m. ný_ íslensk ópera) þai-
af 7 frumflutt. í ljósi þessara stað-
reynda og með hliðsjón af 1. grein
samþykkta fyrir Listahátíð í
Reykjavík frá 1995 þar sem segir
m.a.: „Leitast skal við að kynna
sérstaklega íslenskar og norrænar
listir, auk alþjóðlegra lista“, er
hlutur íslenskrar tónlistar á Lista-
hátíð í Reykjavík 1998 afar rýr
miðað við undanfarin ár.
Sinfóníuhljómsveit íslands
í 2. grein laga nr. 36 um Sin-
fóníuhljómsveit íslands frá 1982
segir m.a: „Sérstaka áherslu ber að
leggja á flutning og kynningu ís-
lenskrar tónlistar, utan lands sem
innan, ef tilefni gefast.“ Fulltrúi
Tónskáldafélags Islands í verk-
efnavalsnefnd Sinfóníuhlj ómsveit-
ar íslands tjáði félagsmönnum fyr-
ir skömmu að nýráðinn aðal-
hlj ómsveitarstj óri hlj ómsveitarinn-
Kjartan
Ólafsson
ar ætlaði sér ekki að stjórna verk-
um eftir íslensk tónskáld, eða yfir-
leitt nýjum tónverkum. Þáverandi
stjórn Tónskáldafélags Islands
sendi harðorð mótmæli gegn þess-
ari stefnuyfirlýsingu nýráðins aðal-
stjórnanda hljómsveitarinnar.
Stjórnandinn dró síðan í land á
þann veg; að hann myndi þurfa um
2 ár til þess að skoða íslensku verk-
in áður en þau yrðu tekin til flutn-
ings. Þess má geta að aðal-
hljómsveitarstjórinn er aðeins
ráðinn til 2 ára í senn. Niðurstaðan
er sú að af 18 hljómsveitarverkum
sem voru lögð fram í verkefnavals-
nefnd á síðasta ári verða 7 verk
flutt á næsta starfsári en 11 munu
bíða flutnings um óákveðinn tíma,
til viðbótar þeim 23 sem beðið hafa
flutnings frá síðustu árum. Það
þarf ekki að taka fram að aðal-
stjórnandinn mun ekki stjórna
neinu íslensku verki á komandi
starfsári.
Ríkisútvarpið
Ríkisútvai-pið hefur í reglum sín-
um þau ákvæði að stuðla að varð-
veislu og kynningu á íslenskri
menningu. Undir þann lið flokkast
hljóðritun á íslenskri tónlist. Á
undanförnum ánam hafa hljóðrit-
anir á íslenskri tónlist dregist sam-
an, þrátt fyrir yfirlýsingar for-
svarsmanna útvarps. Nákvæmar
tölur hafa ekki fengist gefnar upp
hjá RUV en tónlistarmönnum er
það löngu ljóst að þessar upptökur
hafa verið að dragast saman að
undanfómu. Það er hægt að slá
fram tölum í tugum milljóna sem
framlag RÚV til tónlistar almennt
en lítill hluti skilar sér til þess
málaflokks sem er kannski sá mik-
ilsverðasti, hljóðritanir á íslenskri
tónlist til flutnings og varðveislu.
Þessi málaflokkur snýr ekki ein-
ungis að íslenskum tónskáldum
heldur einnig að tónlistarfólki í
landinu svo og menningu þjóðar-
innar í héild.
Ályktanir Tónskáldafélags ís-
lands byggjast ekki eingöngu á
einróma niðurstöðu aðalfundarins
á þessu ári, skjalasafn félagsins
sýnir einnig að þetta eru málefni
sem félagsmenn hafa verið að berj-
ast fyrir á undanfórnum árum og
áratugum. Það er skylda félagsins
að gæta að hagsmunum íslenskrar
tónlistar og tónskálda og ber að
hafa það í huga að Tónskáldafélag
Islands er ekki aðeins félagsskapur
tónskálda á Islandi, heldur fag-
félag sem berst fyinr hagsmunum
allra tónskálda á Islandi, hvort sem
þau eru meðlimir eða ekki!
Þess ber að lokum að geta að til-
gangur þessara ályktana er ekki að
spilla samskiptum Tónskálda-
félagsins við þessar stofnanir.
Félagið hefur átt góð samskipti við
allar þessar stofnanir og ber alls
ekki að vanmeta framlag þein-a til
íslenskrar tónlistar. Með þessum
ályktunum vill Tónskáldafélag ís-
lands bjóða fram krafta sína til að
örva og auka nýsköpun íslenskrar
tónlistar og þá jafnframt til ís-
lenskrar menningar.
KJARTAN ÓLAFSSON,
formaður Tónskáldafélags íslands.
f N
BIODROGA
jurtasnyrtivörur
pallhúsin komin!
Við bjóðum raðgr. til allt að 36 mán.
Pallhús sf., Ármúla 34,
síltli 553 7730 og 561 0450.
MATHYS^
Vatnsvörn
STÖÐVIÐ LEKANN MEÐ
FILLC0AT
ÁRVÍK
ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
Komið út úr skápnum
Sumartilboð
Frá Kristjáni Ottóssyni:
LAGNAMENN virðast vera svart-
ir sauðir byggingaiðnaðarinns, allt
að því settir afsíðis í samfélaginu.
Stöðugt sitjum
við við borðs-
endann og hlust-
um á „vísindin"
frá öðrum. Það
lítur út fyrir að
tæknimenntað
fólk geti frekar
setið og hlustað
en tjáð sig og
Kristján sagt sína mein-
ottósson ingu. Fari menn
í ræðustól þurfa þeir helst að vera
óvirkir alkar eða einfaldlega
pólitískir.
Hvernig stendur á þessu lítillæti
lagnamanna? Hvort er það heiguls-
háttur eða vantrú á það sem menn
eru að vinna að? Því lætur þú,
lagnafélagi, ekki heyra oftar í þér á
prenti eða á fundum. Ég sakna
þessa „neista" í fagið að menn trúi
á hið jákvæða sem fagið stendur
fyrir. Lagnamenn gegna mikilvægu
hlutverki í samfélaginu, þeir eiga
að vera stoltir af því.
Ég viðurkenni fúslega að það
krefst kjarks að standa upp og
segja/skrifa sína meiningu. Eftir það
verða menn oftast að svara fyrir
skrifin sín. Það er ekki furða að
menn spyrji sjálfa sig hvort eitthvað
vit sé í því sem þeir vora að segja.
Eða ætti maður ekki bara að þegja?
„Sá sem ekki er tilbúinn að tapa,
getur aldrei orðið góður sigurveg-
ari.“
Lagnamenn hafa frá mörgu að
segja hvort sem um er að ræða
orkusparnað, betra inniloft, aukið
hreinlæti, bætta heilsu eða einfald-
lega aukinn skilning á þætti lagna-
manna í öllu þessu. Ég vil hvetja
lagnamenn til að stíga á stokk og
blanda sér meira í umræðuna um
þessi málefni. Okkur ber að vera í
forsvari fyrir því að auka skilning á
mikilvægi heilsu, þrifnaðar og inni-
lofts.
Fagmenn, standið upp á fundum,
talið á mannamótum, útskýrið ykk-
ar málefni fyrir öðrum fagmönnum
og fólkinu í landinu. Ef þú heyrir
eitthvað sem þér fínnst vera rangt
eða ekki rétt farið með staðreyndir,
skalt þú leiðrétta það, hringja í út-
varpsþáttinn, skrifa í Fréttabréf
Lagnafélags Islands eða svæðis-
blöð. Mundu bara að vera stuttorð-
ur og kjarnyrtur. Mundu að halda
þér við efnið í skrifum þínum og
umræðum. Hér er verkefni fyrir
alla í faginu, lagnamenn eru of mik-
ilvægir til að gleymast útí horni.
Það er þitt „félagi“ að leiðrétta
þetta.
KRISTJÁN OTTÓSSON,
framkvæmdastj óri
Lagnafélags Islands
Nýbýlavegi 12, sími 554 4433
Er vöðvabólga að hrjá
þig í baki, öxlum eða
handleggjum?
Stirðleiki í mjöðmum
og þreyta í fótum?
Vantar þig
blóðstreymi og
Þá hentar
okkar þci
sýnt að
hentar
i á öllurn
hefúr
í langan
styrkir
til
endar
Getur eldra fólk notið góðs af þessum bekkjum?
Já, þessi Ieið við að hreyfa líkamann er þægileg, liðkar og gefur góða slökun.
Og er þess vegna kjörin fyrir eldra fólk.
Guðrún Ingvarsdóttir
Ég hef stundað æfingabekkina í rúmt ár og hafa
þeir hjálpað mér í baráttunni við slit- og vefjagigt.
Auk þess sem vöðvar hafa styrkst og vöxtur lagast.
Allt er þetta jákvætt og gott innlegg í
heilsubankann. Ég vildi að ég hefði kynnst þessu
æfmgakerfi miklu fyrr.
Við erum einnig með göngubraut,
þrekstiga og tvo auka nuddbekki.
Svala Haukdal
Ég hef stundað æfingabekkina meira og minna síðan 1989.
Vegna þrálátra bakverkja og vökvasöfnunar, átti ég erfitt
með að stunda leikfimi. Síðan ég byrjaði hef ég verið laus
við verki og ég fæ alla þá hreyfingu og slökun sem ég þarf.
Hjá Æfingabekkjum Hreyfingar fæ ég einnig einkaþjálfun,
persónulegt viðmót og yndislegt umhverfi. Eg hvet allar
þær konur sem geta, að kynna sér æfingakerfið, það er
fyllilega þess virði.
C Frír kynningartími
Æfingabekkir Hreyfingar, Ármúla 24, sími 568 0677
Ath. breytfan opnunartíma
Opið mánudaga og miðvikudaga kl. 14-20
Þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 09-20
f
i
i