Morgunblaðið - 26.05.1998, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1997 63
FÓLK í FRÉTTUM
Evrópsk kvik-
myndagerð
uppskar ríku-
lega í Cannes
Kvikmyndahátíðinni í Cannes lauk á
sunnudaginn með afhendingu Gullpálmans
og annarra viðurkenninga. Pétur Blöndal
fylgdist með hátíðarhöldunum.
ÞAÐ ÞURFTI ekki að koma
neinum á óvart að kvikmynd
ítalska leikstjórans Theo Ang-
elopoulos Eilífð og einn dagur eða
„Mia eoniotita ke mia mera“ hreppti
gullpálmann í Cannes. Enda spáði
Friðrik Þór Friðriksson því í samtali
við Morgunblaðið í síðustu viku. Og
ekki kom það Angelopoulos á óvart
sem sýndi engin svipbrigði þegar
hann gekk upp á svið til að veita
verðlaununum viðtöku úr hendi kín-
versku leikkonunnar Gong Li og
franska leikarans Jean Reno.
„Það er rétt að ég hef unnið til
annarra verðlauna," sagði Ang-
elopoulos við blaðamenn eftir at-
höfnina, spurður um hvaða þýðingu
gullpálminn hefði samanborið við
önnur verðlaun sem hann hefði unn-
ið til á ferlinum.
„Gullpálminn er ágætur
út af fyrir sig, - en það
sem er mér dýrmætast
var að vera viðstaddur
sýningu myndarinnar
hér í Cannes. Þær
viðtökur sem myndin
fékk hjá áhorfendum í lokin voru
bestu verðlaun sem hugsast getur.“
Eins og í kvikmynd
Með bandaríska leikstjórann
Martin Scorsese í forsæti dóm-
nefndarinnar vekur óneitanlega at-
hygli hve ríkulega evrópskar mynd-
ir uppskáru á hátíðinni eða öll helstu
verðlaunin. Annar ítalskur leik-
stjóri, Roberto Benigni, fékk Grand
Prix-verðlaun íyrir myndina Lífið er
fallegt eða „La vita e bella“. Benigni
var vægast sagt upprifinn af gleði,
hljóp upp á svið og féll
að fótum Scorseses. Að
því loknu rauk hann á
hvem meðlim dóm-
nefndarinnar og
þakkaði íyrir sig með
faðmlagi. „Þetta er
frábært!" sagði hann
brosandi út að eyrum
við blaðamenn. „Mér
líður eins og í kvik-
mynd, - eins og í
draumi. Mig langar
helst til að dansa tangó
uppi á borði. Svo er
stórkostlegt að fá að sitja í næsta
stóli við Angelopoulos,“ bætti hann
við og klappaði á öxlina á samlanda
sínum. „Ég hef séð allar myndirnar
hans, en hann hefur auðvitað ekki
séð mínar. Annars væru myndirnar
hans allt öðruvísi," hélt hann áfram
og skellihló.
„Við höfum hist einu sinni áður,“
sagði Angelopoulos og brosti í eitt
af fáum skiptum þetta kvöld. „Það
var fyrir nokkram árum við eitt-
hvert hátíðlegt tilefni. Þá gekk
Benigni til mín, kynnti sig og spurði
hvort hann mætti snerta mig.“
Leikkonumar Elodie Bouchez og
Natacha Regnier úr frönsku mynd-
inni Draumalíf englanna eða „La vie
revee des anges" deildu verðlaunum
fyrir besta leik í kvenhlutverki. „Ég
hef aldrei verið jafn nátengd per-
sónu sem ég hef leikið,“ sagði
Elodie. „Á sama tíma hef ég aldrei
þurft að bæta jafnmiklu við persón-
una frá sjálfri mér. Það var erfitt að
skilja við hana; hún brast í grát.“
„Öll hlutverk eru erfið,“ sagði
Natacha. „Ég heillaðist af hlutverk-
inu og þeirri innri baráttu sem per-
sónan stendur í.“ Skotinn geðþekld
Peter Mullan var valinn besti karl-
leikari fyrir frammistöðu sína í
mynd Ken Loach „My Name Is
Joe“. „Scorsese nefndi mig á nafn,“
sagði hann sigri hrósandi þegar
hann tók við verðlaununum. „Ef
orðið taka fylgir á eftir næst þegar
hann nefnir mig á nafn verð ég
ennþá ánægðari."
Dómnefndin hreifst af Hófínu
Danski leikstjórinn Thomas
Vinterberg deildi sérstökum verð-
launum dómnefndarinnar íyrir
myndina Hófíð eða „Festen" með
franska leikstjóranum Claude Mill-
er fyrir myndina Bekkj-
arferðina eða „La classe
de neige“. Vinterberg
sagði að þetta væri við-
urkenning fyrir alla
dönsku leikstjórana
fjóra sem skrifað hefðu
undir samning um að
framleiða eina mynd hver eftir
svokölluðum „dogma“-reglum. Snú-
ast þær um að „endurnýja" kvik-
myndagerð með því m.a. að nota
aðeins handbæra upptökuvél, enga
búninga, enga leikmynd, enga lýs-
ingu, enga fórðun og enga tónlist
umfram það sem er til staðar.
„Ég er bæði upp með mér og
undrandi,“ sagði Vinterberg á
blaðamannafundi eftir athöfnina.
„Reglurnar veittu mér bæði inn-
blástur og mesta frelsi sem ég hef
kynnst sem leikstjóri og þennan
árangur má þakka
bræðralaginu. Þetta
er mikil upphefð fyrir
danska kvikmynda-
gerð.“ Hann tók var-
lega í það þegar hann
var spurðm’ hvort
hann hygðist gera
aðra „dogma“-mynd.
„Ég hef verið að
brjóta heilann um
þetta,“ sagði hann.
„Ég efast um að svo
verði vegna þess að
grunnurinn sem regl-
urnar byggjast á kveður á um end-
urnýjun en ekki endurtekningu."
Valdís Óskarsdóttir sá um að
klippa myndina Hófið og greindi
hún frá því í viðtali við Morgun-
blaðið í síðustu viku að hún ynni
bráðlega að annarri „dogma“-mynd
í samstarfí við leikstjórann Soren
Ki'agh Jacobsen.
Allir leikstjórar óttast gagnrýni
Hal Hartley var valinn besti
handritshöfundur fyrir myndina
„Henry Fool“ og John Boorman
besti leikstjóri fyrir myndina „The
General". Sá síðamefndi sagði að
allir leikstjórar óttuðust gagnrýni, -
hvað sem þeir létu uppi um það.
Ýmislegt hefði verið skrifað um þær
myndir sem hann hefði gert en
aðeins einu sinni hefði hann verið
beðinn afsökunar á dómi. Það hefði
verið einn af gagnrýnendum Le
Monde. Hann hefði komið til sín og
beðið hann innilega afsökunar á
dómi sem hann hefði birt um
Eilífð,
einn dagur
og Gullpálmi
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
LEIKKONURNAR Natacha Regnier og Elodie Bouchez deildu verð-
launum fyrir besta leik í kvenhlutverki.
ÍTALSKI leikstjórinn BENIGNI fékk Grand DANSKI leikstjórinn
Angelopoulos hreppti Prix-verðlaun fyrir Vinterberg hafði
gullpálmann í Cannes. myndina Lffið er fallegt. ástæðu til fagna.
ákveðna mynd, sér hefði liðið illa á
umræddum tíma og þetta hefði ver-
ið rangur dómur. „Þetta var mjög
vond kvikmynd - en hún var ekki
svona slæm,“ hefði hann klykkt út
með að segja.
Bandaríska myndin „Velvet Gold-
mine“ vann til verðlauna fyrir
listræna uppbyggingu og Marc
Levin fékk „Camera D’Or“-verð-
launin fyrir myndina „Slam“ en um
þau keppa leikstjórar sem eru með
sína fyrstu mynd á hátíðinni.
Gullpálmann í flokki stuttmynda
fékk mynd Xavier Giannoli
„L’Interview“ og dómnefndarverð-
launum deildu David Lodge fyrir
myndina „Horseshoe" og Lynne
Ramsay fyrir „Gasman“. Loks fékk
kvikmyndatökumaðurinn snjalli
Vittorio Storraro sérstök tækniverð-
laun fýn'r „Univision“-kerfi sem
hann notaði við tökur myndarinnar
„Tango“ og gerir það að verkum að
hægt er að laga myndir að mismun-
andi stórum skjám án þess að klípa
af myndarammanum, t.d. þegar bíó-
myndir eru sýndar í sjónvarpi.
Cinefoundation var sérstaklega
stofnuð til þess að styðja við bakið á
ungum leikstjórum sem eru að út-
skrifast úr kvikmyndaskólum um
allan heim. Er ætlunin að þetta
verði stökkpallur fyrir leikstjórana
auk þess sem þeim verði gert kleift
að framleiða sína fyrstu kvikmynd í
fullri lengd. Fyrstu verðlaun fékk
Adam Guzinski fyrir „Jakub“, önn-
ur verðlaun hreppti Asif Kapadia
fyrir Sauðaþjófinn eða „The Sheep
Thief‘ og þriðju verðlaun fékk
Manu Kurewa fyrir „Mangwana."
Þá er bara að sjá hvort þessir ungu
leikstjórar eiga eftir að skjóta upp
kollinum á komandi hátíðum.
EKKI Ml
<2
\ 1 »•<>!>
t I » V < > I >
^j^awawj
Sonic-7211 er vandah sjónvarpstæki á frábæm verbi!
Myndlampinn er flatur 28' Black f ST (90°) - svartur skjár, sjálfvirk
stöðvaleit, tímarofi, 2 Scart-tengi, textavarp, 40 W Nicam Ster eo-
magnari, hljómgóbir hátalarar, tengi (yrir heymartól o.fl.
LC CB-21A86X er vandab sjónvarpstæki á frábæru
verbi! Myndlampinn er flatur 21 * Black FST (90°)
- svartur skjár, sjálfvirk stöbvaleit, tímarofi, Scart-
tengi, textavarp, tengi fyrir heymartól o.fl.
(2?.90Ö£
LG CB-20E40X er vandab sjónvarpstæki á frábæru
verbi! Myndlampinn er 20’ Black Matrix, sjálfvirk
stöbvaleit, tímarofi, Scart-tengi, textavarp, tengi
fyrir heymartól o.fl.
LG W215P er 2 hausa myndbandstæki meb 80 stöðva
minni, abgerba-stýringu á skjá sjónvarps, breiðtjalds-
móttöku, Scart-tengi, upptökuminni, myndleit meb |og-
hjóli, stafrænni sporun o.m.fl. Odýrt og gott!
LC MS-1905C er 19 lítra örbylgjuofn,
750W, 5 mismunandi stillingum, 60 mín.
klukku, snúningsdiski o.m.fl.
NOKIA 71L3 TN: 28" Black INVAR -100 riba, 40W
Nicam Digital Stereo, textavarp, 99 stöbva minni, sérlega
fullkomib valmyndakerfi, 2 Scart-tengi ab aftan, RCA
og S-VHS-tengi ab framan, fullkomin fjarstýring o.m.fl.
axon GSM
LC CB-28A50T er 28" sjónvarp með Black Line Super-
myndlampa, 100 stöðva minni, öllum abgerbum á skjá,
textavarpi, 40W Nicam Stereo-magnara, bamalæsingu,
svefnrofa, tengi fyrir sjónvarpsmyndavél ab framan, 2
Scart-tengjum, S-VHS-tengi og mörgu fleira.
Maxon 3300 GSM-
síminn er abeins 195
grömm og hann er
meb númeraminni og
fleira og fleira.
Bjóbum einnig mikib
úrval annarra GSM-
síma og fylgihluta á
góbu verbi!
LG MB-3907 er 19 lítra örbylgjuofn með
grilli, 800/1100W, 5 mismunandi stillingum,
60 mín. tölvuklukku, snúningsdiski,
barnaöryggi o.m.fl.
Ideline Tornado Compact er nett ryksuga
meb3 síu kerfi, vibvörunarljós lýsir þegar skipta
þarf um poka, inndraganleg rafmagnssnúra,
ál-leggur, 3 hausar, 1200 W.
Samsung VP-A20er 8mm
sjónvarpsmyndavél meb 16x abdrætti,
0.3 lux, fjarstýringu o.fl.
SuperTech SCR-701 CD er ferbatæki meb
geislaspilara, FM/MW/LW-útvarpi, tvöfaldri kassettu,
tengi fyrir heyrnartól, innbyggbu loftneti o.m.fl.
Grensósvegi 11
Sími: 5 886 886