Morgunblaðið - 26.05.1998, Qupperneq 72
Atvinnutryggingar
Við sníðum
þær að þínu
fyrirtæki.
wl
MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3010, NETFANG: RlTSrrJ@MBL.IS, AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTl 1
ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 126 KR. MEÐ VSK
Leggja til 32 þús. tonna aukinn þorskkvóta
Svamlað í
Staðfestir viðreisn
þorskstofnsins
sólinni
SÓLBEKKIRNIR í Árbæjarlaug-
inni voru vel nýttir í gær enda
fyrsti sólardagur í höfuðborginni
í þónokkurn tíma. Um 15 stiga
hiti var í Reykjavík í gær og sól-
in skein í heiði.
Veðurstofa íslands spáir
skýjuðu veðri í dag með suðvest-
an golu, en á föstudag, laugardag
og sunnudag á aftur að létta til
suðvestanlands, með rólegri
norðanátt. Þá er von til þess að
þeir sem vinna inni geti nýtt sér
veðrið, en flestir geta verið sam-
mála um að það mætti vera oftar
sem góða veðrið ber upp á helgi.
■ Sólrík/4
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra segir að tillögur Haf-
rannsóknastofnunarinnar staðfesti
viðreisn þorskstofnsins og að þær
erfiðu aðgerðir sem á sínum tíma
hafi verið gripið til séu að skila
—- , árangri. Hann segir að ákvörðun
um aflaheimildir á næsta fisk-
veiðiári verði teknar innan skamms.
Morgunblaðið/RAX
HAFRAN N SÓKNASTOFNUNIN
hefur lagt til að aflahámark í þorski
á næsta fiskveiðiári verði 250
þúsund tonn og er það aukning um
32 þúsund tonn frá tillögum stofn-
unarinnar og aflamarksins fyrir yf-
irstandandi fiskveiðiár. Þá leggur
stofnunin til að hámarksafli í loðnu
verði aukinn úr 850 þúsund tonnum
í 945 þúsund tonn.
Hins vegar er lagt til að ýsukvót-
’inn lækki úr 40 þúsund tonnum í 35
þúsund tonn og úthafsrækjukvótinn
úr 70 þúsund tonnum í 60 þúsund
tonn. Einnig er lagt til að leyfilegur
hámarksafli í skarkola verði minnk-
aður úr níu þúsund tonnum í sjö
þúsund tonn og hámarksafli í humri
verði minnkaður úr 1,5 þúsund
tonnum í 1,3 þúsund tonn. Tillögur
varðandi aðra fiskstofna eru
óbreyttar frá tillögum Haf-
rannsóknastofnunarinnar frá því í
fyrra.
Að mati Þjóðhagsstofnunar fela
tillögur Hafrannsóknastofnunarinn-
ar í sér 3% aukningu í afla-
verðmæti, talið í þorskígildum, sem
samsvarar allt að 3 milljörðum
króna í auknu útflutningsverðmæti,
en það ætti að skila ríkissjóði
700-800 milljónum króna í auknar
tekjur á næsta ári.
Guðjón A. Rristjánsson, forseti
Farmanna- og fiskimannasambands
íslands, segir að uppbygging þorsk-
stofnsins hafi verið umfram það
sem gert hafi verið ráð fyrir og því
teldi hann að óhætt hefði verið að
auka veiðarnar að minnsta kosti um
20% og leyfa 270 þúsund tonna há-
marksafla.
Rristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, segir að tillögurnar séu
undirstrikun um jákvæðan árangur
af því uppbyggingarstarfi sem unn-
ið hafi verið þar sem samtök út-
vegsmanna hafi farið íyrir í því að
mæla með vísindalegum ráðum og
að eftir þeim skuli hafa verið farið.
■ Hámarksafli/24
_ Verðmæti útflutn-
ings 2-3 milljarðar
Landsbanki tapaði 707 millj. vegna afskrifta og afskriftarsamninga út af Lind
Skýrsla Ríkisendurskoðunar
þótti ekki tilefni til aðgerða
BANRARÁÐ Landsbanka íslands
á?-*fékk í janúar 1996 rækilega greinar-
gerð um málefni Lindar hf. og fór í
framhaldi þess á leit við Ríkisend-
urskoðun að hún færi yfir gögn
málsins. Ríkisendurskoðun skilaði
greinargerð, sem var kynnt við-
skiptaráðherra, og komst
bankaráðið að þeirri niðurstöðu að
ekki væri þörf frekari aðgerða. í
framhaldi af ákvörðun bankaráðs
ákvað Ríkisendurskoðun að aðhaf-
ast ekki frekar í málinu nema fram
kæmu nýjar upplýsingar. Það var í
lok ársins 1996.
__.. Þetta kemur fram í svari, sem
Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, veitti í gær við fyrir-
spum Ástu Ragnheiðar Jóhannes-
dóttur þingmanns um málefni
Landsbankans og Lindar. Leitaði
viðskiptaráðuneytið svara hjá
Landsbankanum og bankaeftirlitinu.
I svarinu segir að mikið hafi verið
m fjallað um málefni fyrirtækisins í
bankaráði Landsbankans til að leita
skýringa á tapi bankans og hvernig
tryggja mætti að slíkt endurtæki
sig ekki í framtíðinni. Bankaráðið
hefði fengið rækilega greinargerð
um málið í janúar 1996 þar sem leit-
ast hefði verið við að „upplýsa og
varpa ljósi á þær ákvarðanir, sem
leiddu til hins mikla taps fyrirtækis-
ins“. í framhaldi af því hefði
bankaráðið farið þess á leit að
Ríkisendurskoðun færi yfir gögn
málsins, einkum með tilliti til þess
hvort ástæður væru til frekari að-
gerða samkvæmt lögum um með-
ferð opinberra mála.
í fréttatilkynningu, sem Ásta
Ragnheiður sendi frá sér í
gærkvöld er spurt hvaða tillögur
Ríkisendurskoðun hafi gert í skýrsl-
unni frá 1996 og hvort við-
skiptaráðherra hefði haft hana und-
ir höndum þegar hann svaraði fyrir-
spurn um málefni Lindar hf. á þingi
í júní 1996. í svari sínu þá gat við-
skiptaráðherra ekki veitt upplýsing-
ar um tap bankans.
í svarinu kemur fram að samtals
hefði Landsbankinn tapað eða myndi
tapa sem næmi 707 milljónum króna
vegna afskrifta og afskriftaframlags
bankans vegna eignarleigusamninga
Lindar hf. Að auki hefði sölutap
rekstrarleigueigna verið um 16 millj-
ónir króna. Tapið er því samanlagt
723 milljónir króna.
Telur tapið vera um
einn milljarð
I fréttatilkynningu Ástu Ragn-
heiðar kveðst hún telja að tap
Landsbankans vegna Lindar sé
a.m.k. einn milljarður króna vegna
þess að tapað hlutafé hafi verið 194
milljónir króna. „Þetta eru alls
917,1 milljón, sem er þó ekki upp-
reiknað til núvirðis," segir Ásta
Ragnheiður í yfirlýsingunni. „Það
má búast við því að tapið sé mun
meira en hér segir.“
Tekið er fram í svarinu að þegar
félagið hafi hafið rekstur árið 1986
hafi uppsveifla verið í efnahagslífinu
og vextir á eignarleigusamningum
verið mjög háir, en erfiðleikar hafi
komið í ljós þegar uppsveiflunni
lauk. í stað þess að taka strax á
vandanum hefði skuldum ítrekað
verið skuldbreytt í von um bætta
stöðu skuldara, en efnahagsbati lát-
ið standa á sér.
Landsbankinn keypti Samvinnu-
bankann í upphafi árs 1990 og
eignaðist þá 30% hlut í Lind hf. 1992
varð bankinn eini eigandi íyrirtækis-
ins, sem hætti rekstri og sameinaðist
Landsbankanum í ágúst 1994.
Árið 1995 skiluðu Löggiltir endur-
skoðendur hf. skýrslu þar sem sagði
að tölur bæru með sér að „alvarlegir
misbrestir [hefðu verið] í útlánaferli
og eftirfylgni félagsins með útlánum
um langt skeið“. Sagði að verulegan
hluta af ábyrgðinni hefðu skýrslu-
höfundar getað rakið til ákvarðana
framkvæmdastjóra félagsins, Þórð-
ar Ingva Guðmundssonar.
■ Svar viðskiptaráðherra/10-11
Meirihlutaviðræð-
ur víðast hafnar
Magnús
Gunnars-
son bæjar-
stjóri í
Hafnarfírði
FORMLEGAR samningavið-
ræður um samstarf flokka í
bæjar- og sveitarstjómum
hófust víða í gær og sums staðar
hefur þegar verið skrifað undir
málefnasamning. Algengast er
að stefnt sé að samstarfi Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknar-
flokks. Framsóknarmenn munu
víðast eiga fulltrúa í bæjar-
stjómum. Næstalgengast er
samstarf þeirra og sameigin-
legra framboða vinstrimanna.
Gengið var frá samstarfi
Sjálfstæðis- og Framsóknar-
flokks í Hafnarfirði í gærkvöld.
Bæjarstjóri verður Magnús
Gunnarsson, oddviti sjálfstæðis-
manna, Þorsteinn Njálsson,
oddviti framsóknarmanna, for-
maður bæjarráðs og Valgerður
Sigurðardóttir Sjálfstæðisflokki
forseti bæjarstjórnar.
Útlit er fyrir áframhaldandi
samstarf Sjálfstæðis- og Fram-
sóknarflokks í Rópavogi. Við-
ræður em hafnar milli oddvita
Framsóknarflokks og G-Iista í
Mosfellsbæ og Framsóknar-
flokks og E-lista á Akranesi.
Áframhaldandi samstarf
Framsóknarflokks og Sjálf-
stæðisflokks er nú rætt í Borg-
arbyggð og í Grindavík, sömu
flokkar hófu viðræður á sunnu-
dag á ísafirði og fulltrúar þeirra
hafa þegar ákveðið samstarf í
Skagafirði og á Siglufirði. Stefnt
var að undirskrift samstarfs-
samnings þeirra í Árborg í
gærkvöld og formlegar viðræð-
ur em hafnar í Reykjanesbæ.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks
og Akureyrarlista ræðast við á
Akureyri og fulltrúar S-lista á
Dalvík hafa boðið framsóknar-
mönnum samstarf. Þá standa
yfir viðræður milli framsóknar-
manna og F-lista í Austur-
héraði og fulltrúar framboðs-
lista á Höfn töldu að þar fæm
línur að skýrast í dag.
■ Kosningar/2, 12-20, 36,
54,55, 1B-12B
Viðurkenndi
tíu rán
UNGUR maður hefur verið hand-
tekinn í Reykjavík fyrir gripdeildir
og rán í og við miðbæinn undan-
farna mánuði. Maðurinn hefur veist
að fullorðnum konum og rænt þær.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hefur maðurinn viðurkennt
tíu gripdeildir frá því í febrúar.
Fyrsta atvikið átti sér stað um
miðjan febrúar þegar hann tók
veski af fullorðinni konu og í mars
urðu fimm eldri konur fórnarlömb
hans. Tvisvar í apríl réðst hann á
konur og hrifsaði af þeim veski og
tvisvar í maí, síðast við Alþingis-
húsið sl. laugardag. Ránin framdi
maðurinn fyrst og fremst til að fjár-
magna fíkniefnaneyslu sína.
Málin teljast öll upplýst og verða
send til ákæm.