Morgunblaðið - 13.09.1998, Síða 4
4 SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 6/9 -12/9
►TÆPLEGA tvítugur piltur
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur
á fimnitudagsmorgun af völd-
um áverka sem hann hlaut er
hann varð fyrir bíl á Dalvegi
í Képavogi kvöldið áður.
►TAL hf. hefur ákveðið að
lækka mínútuverð á símtöl-
um milli tveggja GSM-síma
frá Tali niður í 10 kr. á mín-
útu, sama hvenær sólar-
hringsins hringt er. Vcrð á
þessum si'mtölum var áður í
fimm fiokkum á bilinu 10 til
15 kr. mínútan. Verðbreyt-
ingin tekur gildi 15. septem-
ber.
► ÞJÓÐHAGSSTOFNUN
spáir því að kaupmáttur ráð-
stöfunartekna aukist á þessu
ári um 8,3% hér á landi og
um 3% í helstu viðskipta-
löndum íslands. Á sfðasta ári
jókst kaupmáttur ráðstöfun-
artekna hér á landi um 6,9%
en um 2,4% að meðaltali í
viðskiptalöndunum.
► ÍSLENDINGAR munu fara
fram á aukinn rækjukvóta á
Flæmingjagrunni á næsta
ári á 20. ársfundi NAFO,
Norðvestur-Atlantshafsfisk-
veiðiráðsins, sem hefst í
Lissabon á mánudag. Jafn-
framt munu þeir leggja til að
veiðunum verði stjórnað með
heildaraflamarki en ekki
fjölda sóknardaga.
► SÖLUMIÐSTÖÐ hrað-
frystihúsanna hefur gengið
frá samningi við fyrirtækið
Friosur SA í Chile um sölu á
afurðum þeirra og nokkurra
tengdra fyrirtækja í Suður-
Ameríku. Heildarsala Frios-
ur og tengdra aðila inn á
markaðssvæði SH á sfðasta
ári nam um 1,2 milljörðum
króna.
Keikó kominn i
Klettsvíkina
HÁHYRNINGNUM Keikó var sleppt í
sjávarkví í Klettsvík í Vestmannaeyjum
á fimmtudag eftir langa flugferð með C-
17-flutningavél bandaríska flughersins
frá Oregon í Bandaríkjunum og virðist
honum ekki hafa orðið meint af flutn-
ingnum. Skemmdir urðu hins vegar á
lendingarbúnaði flugvélarinnar við
lendinguna og þar sem ekki var hægt að
færa vélina, sem nam staðar nánast á
mótum flugbrautanna á vellinum, var
ílugvellinum lokað fyrir öllu flugi. Sér-
fræðingar bandaríska flughersins og
Boeing-flugvélaverksmiðjanna könnuðu
skemmdir á véhnni og undirbjuggu að
hægt yrði að færa hana úr stað.
Vmmideilu við
Búrfellslínu lokið
SAMNINGAR tókust milli forsvars-
manna rússneska fyrirtækisins
Technopromexport og fulltrúa Félags
jámiðnaðarmanna, Rafiðnaðarsam-
bands Islands og Verkalýðsfélagsins
Þórs á Selfossi efth- þriggja daga vinnu-
stöðvun í vikunni. Félögin fóru fram á
að félagsmálaráðuneytið afturkallaði at-
vinnuleyfi rússnesku starfsmannanna,
eftir að í ljós kom að þeir hefðu gengið í
önnur störf en leyfíð var gefið út fyrir.
Rússnesku verktakarnir hafa unnið við
byggingu Búrfellslínu 3A fyrir Lands-
virkjun sl. vikur.
Fjöldi athugasemda við
gagnagrunnsfrumvarp
HÁTT í tuttugu aðilar sendu heilbrigð-
isráðuneytinu álitsgerðir um ný drög að
gagnagrunnsfrumvarpi. Tölvunefnd
gerði alvarlegar athugasemdir við nær
allar helstu greinar frumvarpsins og
telur einnig að nefndin sé mjög vanbúin
til að takast á við eftirlit með fram-
kvæmd laganna eins og aðbúnaður
hennar er nú. Samkeppnisstofnun taldi
að litlar breytingar hefðu orðið á þeim
ákvæðum frumvarpsins sem hún hafði
áður gagnrýnt,
Clinton sakaður
um meinsæri
I SKYRSLU saksóknarans Kenneths
Starrs til Bandaríkjaþings, sem birt var
almenningi á fóstudag, er því haldið
fram að Bili Clinton Bandaríkjaforseti
hafi logið eiðsvarinn og misnotað for-
setavald sitt til að reyna að fela sam-
band sitt við Monieu Lewinsky. Nefnir
Starr því til sönnunar ellefu atriði, sem
hann telur nægja til að höfðað sé mál til
embættismissis á hendur forsetanum.
David Kendall, lögfræðingur Clintons,
fordæmdi í gær skýrslu Starrs, sem
hann sagði vera persónulega árás en
ekki grundvöll til málshöfðunar.
Prímakov skipaður
forsætisráðherra
DUMAN, neðri deild rússneska þings-
ins samþykkti í gær Jevgení Prímakov
sem forsætisráðherra landsins. Skipun
hans var samþykkt með 317 atkvæðum
gegn 17 og 15 þingmenn sátu hjá.
Studdu hann allir flokkar nema Frjáls-
lyndi lýðræðisflokkurinn, flokkur hins
öfgafulía þjóðemissinna Vladimírs
Zhírínovskís. Kommúnistinn Júrí
Masljúkov verður fyrsti aðstoðarforsæt-
isráðherra, en ígor ívanov, sem nú
gegnir því embætti, verður utanríkis-
ráðherra. Sátt náðist um tilnefningu
Prímakovs á fimmtudag, en áður hafði
Dúman tvisvar hafnað tiinefningu Vikt-
ors Tsjemomyrdíns í embættið.
Spenna á landamærum
Afganistans og Irans
MIKIL spenna hefur ríkt á landamær-
um Irans og Afganistans í vikunni. Raf-
sanjani, fyrrverandi forseti írans, hét
því í gær að morðum Talebana á að
minnsta kosti níu írönskum sendimönn-
um í Afganistan yrði hefnt, en Khatami,
núverandi forseti, hefur lýst þvi yfir að
reynt verði að komast að friðsamlegri
lausn. Um 70 þúsund íranskir hermenn
hafa verið við heræfingar við landamæri
ríkjanna í vikunni.
►KAUP BSkyB, fjölmiðlafyr-
irtækis Ruperts Murdochs, á
knattspyrnufélaginu Man-
chester United í vikunni olli
miklum titringi í bresku
knattspyrnu- og viðskiptalffi.
Yfirtakan á fótboltaliðinu,
sem er það frægasta og rík-
asta í Bretlandi, er jafnframt
talin hafa pólitfsk áhrif og
koma Tony Blair forsætisráð-
herra í erfiða stöðu. Breska
ríkisstjórnin mun á næstunni
taka afstöðu til þess hvort yf-
irtakan brýtur í bága við
samkeppnislög.
► ANDSTÆÐINGAR stjóm-
arinnar f Kambódfu hafa
mótmælt þúsundum saman á
götum höfuðborgarinnar
Phnom Penh sfðan á mánu-
dag. Krefjast þeir afsagnar
forsætisráðherrans Huns
Sens. Lögregla hefur reynt
að bæla mótmælin niður og
hafa að minnsta kosti fjórir
mótmælendur látist af
skotsárum í vikunni. Leiðtog-
ar stærstu stjórnarandstöðu-
fiokkanna neita enn að
ganga til stjórnarsamstarfs
við Hun Sen, og litlar líkur
þylqa til þess að stjórnar-
myndun takist áður en þing
kemur saman 24. september.
►DAVID Trimble, forsætis-
ráðherra Norður-Irlands, og
Gerry Adams, formaður Sinn
Fein, stjórnmálaarms írska
lýðveldishersins, áttu sinn
fyrsta fund á miðvikudag.
Lýstu þeir báðir ánægju sinni
með fundinn, þó enn bæri
ýmislegt í milli þeirra. Þetta
er jafnframt í fyrsta sinn sem
leiðtogar sambandssinna og
lýðveldissinna á Norður-ír-
landi hittast augliti til auglit-
is sfðan árið 1922.
FRÉTTIR
Helgi Símonarson á Þverá í Svarfaðardal er 103 ára í dag
Morgunblaðið/Kristján
HELGI Símonarson er 103 ára í dag en er þrátt fyrir háan aldur léttur
f lund og liinn hressasti.
„Hef haft
gaman af
lífinu“
HELGI Símonarson á Þverá í
Svarfaðardal er 103 ára í dag,
sunnudag. Hann fædddist 13.
september 1895 að Gröf í Svarf-
aðardal. „Eg hef haft gaman af
lífinu,“ sagði Helgi er blaðamað-
ur Morgunblaðsins drakk með
honum morgunkaffi í gær, heima
á Þverá.
Helgi var léttur í Iund og hinn
hressasti, þrátt fyrir að sjón og
heyrn séu farin að daprast og þá
sagði hann að fætumir væm
farnir að gefa sig. Helgi ætlaði
ekki að vera með neitt tilstand á
þessum merku tímamótum en
vonaðist eftir því að geta farið á
Tungurétt og fengið sér kaffi
með sveitungum sínum.
Helgi fylgist vel með fréttum,
hann horfir mikið á sjónvarp og
hlustar á útvarp en sagðist ekki
geta lesið blöðin lengur. Hann
hefur alla tíð verið mikill áhuga-
maður um ensku knattspymuna
og saknar þess að geta fylgst
með ensku liðunum, eftir að Stöð
2 keypti sýningarréttinn. Helgi
sagðist ekki hafa eins gaman af
þýsku knattspyrnunni en hann
var að vonum ánægður með að
Dalvíkingar skyldu tryggja sér
sæti í 1. deild sl. föstudagskvöld.
Helgi sagðist hafa verið gall-
harður framsóknarmaður lengst
af en sér hafi þó ekki alltaf Ifkað
það sem flokkurinn hafi aðhafst.
„Ég var ekkert þægur framsókn-
armaður. Tryggvi Þórhallsson
var minn helsti lærifaðir og ég
fylgdi honum þegar Bændaflokk-
urinn varð til eftir 1930.“
Vill ekki fara á
elliheimili
Helgi keypti Þverá árið 1930
og bjó þar með kýr og kindur,
auk þess sem hann stundaði
kennslu á Dalvík í 19 ár og á Ár-
skógsströnd í 1 ár. Hann lét sig
ekki muna um að ganga til Dal-
víkur er hann stundaði kennslu
þar. Helgi hætti búskap árið
1972 en er enn á Þverá og vill
hvergi annars staðar vera. Helgi
hefur alla tíð verið reglumaður
og hann segir að það eigi stóran
þátt í þessum háa aldri sínum.
Hann sagðist ekki hafa áhuga á
að fara inn á elliheimili og slíkar
stofnanir væru aðeins fyrir fólk
sem þyrfti á slíkri vistun að
halda. Á Þverá búa nú félagsbúi
Símon, sonur Helga, og Guðrún
Lámsdóttir, dótturdóttir hans.
Helgi giftist Maríu Stefáns-
dóttur hinn 4. júní 1927 en hún
lést 20. nóvember 1963. Þau
eignuðust 6 böra, upp komust
þijú þeirra en aðeins eitt þeirra
er á lífi.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Ljósamessa í Grafarvogskirkju
GRAFARVOGSBÚAR héldu ljósamessu í Grafar- kveikti á kerti og setti á borð sem lögð vom í kross.
vogskirkju í gær og var hún liður í Grafarvogshátíð Böm úr grunnskólum Grafarvogs lásu bænir og í
sem íbúar hverfisins héldu. Guðsþjónusta einni þeirra var beðið fyrir öllum börnum í hverf-
ljósamessunnar fór þannig fram að hver gestur inu sem og öllum börnum heimsins.
Atlanta tekur í fyrsta sinn þátt í alþjóðlegri flugsýningu
„ Skemmtileg’asta
til að auglýsa
Farnborough, Morgunbladið.
„VIÐ höfum aldrei auglýst starf-
semi okkar, hér bregðum við út af
því og þetta er skemmtilegasta að-
ferðin til að auglýsa sig,“ sagði Am-
grímur Jóhannsson, forstjóri Atl-
anta-flugfélagsins, en fyrirtæki
hans er ásamt Tæknivali með bás á
alþjóðlegu flugsýningunni í Farn-
borough á Englandi, sem nú er
haldin í fimmtugasta sinn.
Sýningin í ár er sú umfangsmesta
til þessa en þar sýna 50 þjóðir, ís-
land í fýrsta sinn, og þama em um
170 nýjar flugvélar af öllum stærð-
um, frá minnstu einkavélum til
stærstu farþegaþotna og fullkomn-
ustu orrustuþotna. „Það hefur verið
stríður straumur flugrekenda í bás-
inn okkar og undirtektir verið góð-
ar. Þátttaka í sýningu sem þessari
krefst mikils og góðs undirbúnings
og þótt ennþá séu tveir dagar eftir
má segja að það hafi verið þess virði
að taka þátt í henni,“ segir Am-
grímur ennfremur. Á bás Atlanta er
kynnt flugrekstrarkerfið Albatross
sem fýrirtækið hefur þróað í sam-
vinnu við Tæknival og býður nú öðr-
um flugrekendum til kaups.
Undrandi á umfangi
starfsemi Atlanta
„Starf okkar er að leigja út flug-
vélar til verkefna fýrir aðra flugrek-
aðferðin
si g“
endur. Hér em þeir og hvergi er
betra að ná sambandi við þá. Hér
hafa skapast persónuleg sambönd
við fólk sem við sjáum nú allt í einu
augliti til auglitis en höfum til þessa
aðeins rætt við í síma og hingað hafa
einnig komið nýir flugrekendur.
Það kannast margir við fyrirtæki
okkar, þekkja nafnið og þegar þeir
hafa sest hér niður og kynnt sér
starfsemina hafa þeir margir gapað
af undmn bæði yfir stærð flugvéla-
flotans og útbreiðslu og umfangi
starfseminnar. Þess vegna hefur
verið mjög gaman að koma Islandi á
kortið hér í Farnborough," sagði
Amgrímur.