Morgunblaðið - 13.09.1998, Side 12
12 SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
RANNSÓKN Á ÁFENGIS- OG VÍMUEFNANEYSLU REYKVÍSKRA UNGMENNA
afskipfaJ
í mestri hættu
Unglingar sem búa við
leiðandi uppeldishætti
eru ólíklegri til áfengis-
og vímuefnaneyslu en
unglingar afskiptalausra
foreldra. Fleiri piltar en
stúlkur drekka mikið í
senn. Þeir eru einnig
líklegri til að hafa próf-
að hass. Þetta eru m.a.
niðurstöður rannsóknar
á áfengis- og vímuefna-
neyslu unglinga sem dr.
Sigrún Aðalbjarnardótt-
ur prófessor stendur að.
Salvör Nordal ræddi við
hana og gluggaði í
skýrsluna.
UPPELDISHÆTTIR for-
eldra geta haft áhrif á það
hvort unglingar neyta
áfengis og vímuefna.
Þannig ero unglingar sem búa við
leiðandi uppeldishætti ólíklegri til að
hafa neytt áfengis við 14 ára aldur og
til að drekka mikið í senn við 17 ára
aldur en þeir sem búa við afskipta-
lausa uppeldishætti. Þetta eru meðal
annars niðurstöður úr viðamikilli
rannsókn Sigrúnar Aðalbjarnardótt-
ur, prófessors við Háskóla íslands, á
áfengis- og fíkniefnanotkun unglinga.
í rannsókninni er athugað hvernig
ýmsir félagslegir, uppeldislegir og
sálfræðilegir þættir tengjast áhættu-
hegðun reykvískra unglinga. Sömu
unglingum var fylgt efth- í þrjú ár frá
því að þeir voru 14 ára til 17 ára ald-
urs og gefst þannig sérstakt tækifæri
til að athuga hvort þættir við 14 ára
aldur segi fyrir um neyslu við 17 ára
aldur. Nýverið birtust niðurstöður úr
hluta þessara gagna þai- sem Sigrún
og Leifur Geir Hafsteinsson fengust
við þá spurningu hvort mismunandi
uppeldishættir tengdust áfengis- og
fíkniefnanotkun unglinga. Jafnframt
könnuðu þau tengsl á milli áfengis-
drykkju unglinga og drykkju for-
eldra og vina. Þá tók athugunin
einnig til neyslu hass og amfetamíns
á þessu aldursskeiði.
Áður hafa verið bh-tar niðurstöður
um tengsl uppeldishátta og reykinga
hjá þessum aldurshópi. Til tölfræði-
legrar úrvinnslu gagna hlaut Sigrún
styrk af fé sem ríkisstjórnin ákvað
að verja til rannsókna á þessu sviði í
framhaldi af stefnumörkun frá árinu
1996 í fíkniefna-, áfengis- og tóbaks-
vömum. Þá hafa Vísindasjóður
Rannsóknarráðs Islands og Rann-
sóknasjóður Háskóla Islands styrkt
rannsóknina á undanfömum árum.
Lciðandi eða afskiptalausir
uppeldishættir
Við athugun á áhrifum uppeldis-
hátta foreldra byggir Sigi’ún á
kenningu Díönu Baumrind sem hef-
ur gert greinarmun á ferns konar
uppeldisháttum, leiðandi, eftirlát-
um, skipandi og afskiptalausum.
Samkvæmt skilgreiningu krefjast
leiðandi foreldrar þroskaðrar hegð-
unar af barninu og taka vel á móti
hugmyndum þess. Þeir setja skýi’
mörk um hvað er tilhlýðilegt og
hvað ekki, nota til þess útskýringar
og hvetja börnin til að skýra út
sjónarmið sín. Þeir eru hvorki uppá-
þrengjandi né setja þeir börnum
sínum stólinn fyrir dyrnar, jafn-
framt sýna þeir börnum sínum
mikla hlýju og uppörvun.
Eftirlátir foreldrar bregðast vel
við hugmyndum barna sinna, leyfa
töluverða sjálfsstjórn og sýna þeim
hlýju. Þeir setja börnum sínum hins
vegar ekki skýr mörk. Þeir eru und-
anlátssamir og forðast beina
árekstra. Skipandi foreldrar stjórna
hins vegar börnum sínum með boð-
um og bönnum og þeir refsa þeim
fyrir misgjörðir. Þeir nota því sjald-
an röksemdir og sýna börnum litla
hlýju og uppörvun. Afskiptalausir
foreldrar ala börnin hins vegar upp
í stjórnleysi, setja ekki mörk og
gera ekki kröfur til þeirra. Þeir
bregast ekki við hugmyndum þeirra
og veita þeim ekki stuðning. Van-
ræksla einkennir uppeldisaðferðir
þeirra.
Uppreisn gegn skipandi uppeldi
Rannsóknin sýnir að unglingum
sem búa við leiðandi uppeldishætti
er síður hætt við að leiðast út í
áfengis- og vímuefnaneyslu en ung-
lingum afskiptalausra foreldra. Við
14 ára aldur höfðu um 42% þeirra
sem eiga leiðandi foreldra prófað
áfengi, 46% eftirlátra foreldra, 67%
skipandi foreldra en hæsta hlutfallið
voru unglingar afskiptalausra for-
eldra eða 71%. Unglingum afskipta-
lausra foreldra er einnig hættara við
að drekka mikið í senn við 17 ára
aldur en þeim sem búa við skipandi
eða leiðandi uppeldishætti. Um 55%
17 ára unglinga afskiptalausra for-
eldra drekka mikið, en hlutfall ung-
linga leiðandi foreldra er þar 28% og
skipandi 31%. Mikil drykkja er skil-
greind sem fímm eða íletri glös í
hvert skipti sem drukkið er. Al-
mennt segja skýrsluhöfundar að
þegar litið er tO leiðandi og afskipta-
lausra foreldra séu línurnar skýrar:
unglingar leiðandi foreldra koma
best út en unglingar afskiptalausra
foreldra eru verst settir. Málið verð-
ur hins vegar aðeins flóknara þegar
kemur að eftirlátum og skipandi
uppeldisháttum. Umhugsunarvert er
að foreldrum sem nota eftirláta upp-
eldishætti virðist takast þokkalega
að halda unglingum frá áfengis-
neyslu á fyiui hluta unglingsáranna
en hátt hlutfall þeirra neytir hins
vegar áfengis við 17 ára aldur og
mikils magns í hvert sinn.
Þá vakti athygli að unglingar skip-
andi foreldra viðast verða fyrir minni
áhrifum af áfengisneyslu vina en
unglingar hinna hópanna. Fram kom
að mun fleiri unglingar skipandi for-
eldra en annarra hópa hafa prófað að
drekka við 14 ára aldur þrátt fyrir að
vinir þeirra drekki ekki. Sigrún segir
að þetta veki þá spurningu hvort
skipandi uppeldishættir sem ein-
kennast af boðum og bönnum ýti til-
tölulega snemma undh- mótþróa hjá
unglingum sem bh’tist þá í því að þeir
byrja snemma að drekka og reykja.
Áfengisneysla for-
eldra og vina
Sigrún segir að tengsl áfengis-
neyslu foreldra og vina við drykkju
unglinga sé kunn og var hún staðfest
í rannsókninni. Um 66% unglinga
sem áttu foreldra sem drukku höfðu
prófað áfengi við 14 ára aldur en
45% þeirra sem ekki áttu foreldra
sem drukku. Foreldrar töldust
drekka ef að minnsta kosti annað
foreldri drakk oft eða báðir foreldrar
stundum.
Tengslin milli di-ykkju unglinga og
drykkju vina voru einnig skýr.
Þannig höfðu 75% unglinga sem áttu
vini sem drukku prófað áfengi við 14
ára aldur en einungis 25% þeirra
sem ekki áttu vini sem drukku
áfengi.
Þegar kannað vai' magn áfengis-
neyslu unglinga kom fram að piltar
drekka meira en stúlkur í hvert
skipti sem þau drekka. Þá eru þeir
unglingar sem hafa prófað áfengi við
14 ára aldur líklegri til að drekka
mikið um 17 ára aldur og eru hér
hlutföllin 52% á móti 27%. Einnig
tengist áfengisneysla vina því hvort
unglingar sem drekka ekki mikið 14
ára geri það 17 ára gamlir, en 51%
þeirra sem áttu vini sem drekka við
14 ára aldur drekkur mikið 17 ára,
en hjá hinum var hlutfallið 25%.
Hass og amfetamín
Fleiri piltai- en stúlkur hafa prófað
hass við 17 ára aldur. Ekki er hins
vegar munur á kynjunum þegar
kemur að amfetamínneyslu. Athug-
un á tengslum uppeldishátta for-
eldra og neyslu hass og amfetamíns
sýndi að unglingar sem búa við af-
skiptalausa og eftirláta uppeldis-
hætti við 14 ára aldur eru líklegri til
að hafa prófað hass við 17 ára aldur
en unglingar sem búa við leiðandi
■uppeldishætti. Þannig bjuggu 45% af
þeim sem höfðu prófað hass við af-
skiptalausa uppeldishætti, 38% við
eftirláta, en 18% skipandi og 12% af
þeim við leiðandi uppeldishætti. Sér-
stök athygli skal vakin á hve hátt
hlutfall unglinga eftirláti’a foreldra
hefur pófað hass. Þá eru unglingar
sem búa við afskiptalausa uppeldis-
hætti þegar þeir eru 14 ára líklegri
til að hafa prófað amfetamín við 17
ára aldur, eða 31% á móti 8%. Niður-
stöðurnar benda einnig til að bæði
áfengis- og tóbaksneysla við 14 ára
aldur segi fyrir um hvort unglingar
eru líklegir til að hafa prófað hass
eða amfetamín við 17 ára aldur. 40%
þeirra sem höfðu prófað hass 17 ára
höfðu drukkið áfengi 14 ára en ein-
ungis 12% þeirra höfðu ekki drukkið
á sama aldri. Hlutfallið var svipað í
tilfelli reykinga við 14 ára aldur.
Skýr skilaboð til foreldra
Sigi’ún segir að þessi rannsókn
sendi skýr skilaboð til foreldra um
að leiðandi uppeldishættir séu væn-
legastir til árangurs. „Við getum
dregið þann almenna lærdóm af
þessari rannsókn að líkumar á því að
unglingar lendi í neyslu eru minnst-
ar hjá unglingum sem búa við leið-
andi uppeldishætti. Það er þó rétt að
leggja áherslu á það að ástæður þess
að unglingar leiðast út í áfengis- og
vímuefnaneyslu eru auðvitað mjög
margar og oft er um að ræða flókið
samspil margvíslegra þátta. Þó svo
að fólk noti leiðandi uppeldishætti
kemur það ekki endilega í veg fyrir
að unglingarnir lendi í neyslu þó lík-
urnar séu minni.“
Sigrún leggur þó áherslu á að hug-
að sé að leiðandi uppeldisháttum
snemma. ,ýUmennt tel ég íslenska
foreldra of undanlátssama og raga
við að setja börnum sínum mörk.
Það er mikilvægt að setja mörk en
það er ekki sama hvernig mörkin eru
sett og áríðandi að byrja snemma í
uppeldinu. Foreldrar verða að skýra
fyrir börnum sínum reglurnar og
ræða við þau, skýra út sjónarmið sín
og fá börnin til að tjá sína hlið mála.
Með samræðu er hægt að byggja
upp traust og virðingu milli foreldra
og barna.“
En hvernig er hægt að leiðbeina
foreldrum í uppeldismálum?
„Það er brýnt að upplýsa foreldra
um mismunandi uppeldishætti og
áhrif þeirra á þroska og hegðun
barnanna. Bent hefur verið á
fræðslu í tengslum við ungbarnaeft-
ii'lit. Fræðslufundir og námskeið fyr-
ir foreldra á skólaaldri væru æski-
leg. Skólinn gæti auðvitað gegnt
mikilvægu hlutverki, til dæmis með
því að vinna markvisst að því að efla
samskiptahæfni nemenda og _ reyna
að ná einnig til heimilanna. Ég get
ekki látið hjá líða að minnast á náms-
efni sem ég hef tekið saman ásamt
Árnýju Elíasdóttur og nefnist „Sam-
vera“. Markmið þessa námsefnis er
að efla samskiptahæfni nemenda og
miðar eitt hefti þessa efnis, „Ræðum
saman: Heima“, að því að hvetja for-
eldra og börn þeirra til að taka á
málum heima fyrir og treysta bönd-
in.“
Úr könnun á áfengis- og
fíkniefnaneyslu reykvískra
unglinga árin 1994-1996
Hlutfall þeirra
14 ára unglinga
sem prófað hafa
að neyta áfengis
Hlutfall 17 ára
unglinga sem
drekka meir en
5 glös í hvert sk.
Hlutfall þeirra
17 ára unglinga
sem prófað hafa
að reykja hass
Hlutfall þeirra
17 ára unglinga
sem prófað hafa
amfetamín
Uppeldisaðferðir
foreldra
ungiinganna
við 14 ára aldur
Afskiptalausir
Skipandi
Eftirlátir
Leiðandi
Eftir áfengis-
neyslu foreldra
Forel. drekka ekki
Foreldrar drekka
Eftir áfengis-
neyslu vinanna
Vinir drekka ekki
Vinirnir drekka
125%
Eftir eigin áfengis-
neyslu á 14 ára aldri
Drakk ekki þá
Drakk 14 ára
125%
112%
■K
Eftir eigin reyking-
um á 14 ára aldri
Reykti ekki þá
Reykti 14 ára
:Jr
52%
25%