Morgunblaðið - 13.09.1998, Page 16
16 SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1998
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Fyrirlestur
um þýðingar
og þýðingar-
fræði
DR. Astráður Eysteinsson pró-
fessor flytui' opinberan fyrir-
lestur um þýðingar og þýðing-
arfræði í
Pjóðarbók-
hlöðunni,
mánudaginn
14. september
kl. 17.15, á
fæðingardegi
dr. Sigurðar
Nordals.
Fyrirlestur-
inn er í boði
Stofnunar
Sigurðar Nor-
dals og nefnist
„Babelskui’ arfui-: Um þýðingar
og þýðendur.“
Astráður Eysteinsson er pró-
fessor í bókmenntafræði við
Háskóla Islands. Hann hefur
um árabil kennt þýðingarfræði
við skólann. Þá hefur hann þýtt
erlendar bókmenntir á ís-
lensku. Ástráður fjallar um
þýðingar og bókmenntir í bók
sinni Tvímæli sem Bókmennta-
fræðistofnun gaf út árið 1996.
í tengslum við fyrirlestur
Ástráðs verður opnuð sýning í
Þjóðarbókhlöðunni á þýðingum
á íslenskum bókmenntum á
önnur mál.
Sýningum
lýkur
Listasafn ASI
SÝNINGUM Sigríðar Ólafs-
dóttur í Ásmundarsai og Hel-
enu Guttormsdóttur í Gryíj-
unni lýkur í dag, sunnudag.
Safnið er opið frá kl. 14-18.
Gallerí Fold
Höggmyndasýningu Sus-
anne Christensen í baksal Gall-
erís Foldar við Rauðarárstíg
lýkur í dag, sunnudag.
Galleríið er opið daglega frá
kl. 10-18, laugardaga kl. 10-17
og sunnudaga kl. 14-17.
Grafíksýning
framlengd
GRAFÍKSÝNIG Sveinbjargar
Hallgrímsdóttur í Listmuna-
húsi Ófeigs, Skólavörðugstíg 5,
hefur verið framlengd um eina
viku.
Sýningin er opin þegar List-
munahúsið er opið, mánu-
daga-föstudaga kl. 10-18 og
laugardaga kl. 11-14. Sýning-
unni lýkur laugardaginn 19.
september.
Málverkasýn-
ing í Ólafsvík
SIGRÚN Jónsdóttir myndlist-
armaður opnar málverkasýn-
ingu á Hótel Höfða í Ólafsvík
sunnudaginn 13. desember. A
sýningunni eru 42 myndir og
er þetta hennar 18. einka-
sýnig.
Sýnigunni er sölusýning og
lýkur sunnudaginn 20. septem-
ber. Sýningin er opin daglega
frá kl. 16-22.
Leikhússport
í Iðnó
KEPPNI í leikhússporti verð-
ur í Iðnó, mánudagskvöld kl.
20.30. Þetta er í þriðja sinn
sem sem slík keppni er haldin.
Kynnir er Benedikt Erlings-
son.
ERLEIVDAR
BÆKUR
Spennusaga
10 LB. PENALTY
eftir Dick Francis. Jove Books 1998.
306 síður.
BRESKI metsöluhöfundurinn
Dick Francis hefur skrifað eitthvað
tæplega fjörutíu spennusögur á sín-
um ferli sem flestar ef ekki allar
bera áhuga hans á veðreiðum og
hestamennsku fagurt vitni. Hann á
stóran hóp dyggra lesenda og hafa
bækur hans verið þýddar á fjölmörg
tungumál meðal annars íslensku.
Francis sendir að meðaltali frá sér
eina bók á ári og nýlega kom sú
nýjasta, „10 lb. Penalty“, út í vasa-
broti. Það er ósköp fáguð en
viðburðasnauð saga um samband
fóður og sonar og er tileinkuð syni
höfundarins svo kannski er Fi'ancis
með henni að brúa kynslóðabilið.
Það er aldrei að vita.
Leiðin í Downingstræti 10
Heiti bókarinnar er fengið úr máli
þeirra sem stunda veðreiðarnar og
vísar til þess, ef rétt er skilið, að
undir ákveðnum kringumstæðum
ei'u hestar þyngdir með litlum lóðum
Faðir og sonur,
hross og pólitík
fyrir kappreiðar til
þess að jafna keppn-
ina. Aðalpersóna sög-
unnar þráir það heit-
ast að verða frægur
knapi. Hann er átján
ára sonur upprenn-
andi stjórnmála-
manns. Karl faðir
hans kemur því svo
íyrir að hann er rek-
inn frá efnilegu
hrossabúi en fer þess í
stað að vinna fyrir föð-
ur sinn í kosninga-
baráttu á lands-
byggðinni.
Það helsta sem ger-
ist í kosningunum er
að skotið er á fóður drengsins og
honum með því sýnt banatilræði.
Einnig er fiktað í Range Rover jepp-
anum hans. Einhverjum er greini-
lega mjög umhugað um að karlinn
komist ekki á þing en ekki vinnst tími
til þess að garfa mikið í málinu því
nóg er að starfa, hampa
börnum, hitta húsmæður,
halda fundi, vinna kosn-
ingar. Fyrr en vaiir er
allt um garð gengið, árin
líða, faðirinn stefnir á
Downingstræti 10 og viti
menn, enn er honum
hætta búin.
Eins og áður sagði er
hér um einstaklega
átakalitla sögu að ræða
sem á auðvelt með að
svæfa lesandann. Ein-
faldleikinn er alls-
ráðandi. Annað hvort eru
persónur Francis sér-
staklega vel af guði
gerðar og ghmrandi í
öllu því sem þær taka sér fyrir
hendur eða þajr eru lævísar og
ómerkilegar og jafnvel tilbúnar að
myrða úr launsátri. Stjórnmálamað-
urinn, faðir drengsins, er svo full-
komið valmenni að maður er ekki í
minnsta vafa um að hann mun gista
Dick
Francis
Dagur
Islend-
inganna
KIMISI
Sólon Is 1 anilus
JAZZHÁTÍÐ
REYKJAVÍKUR
Tríó Michaels Kneihs. Michael
Kneihs pianó, Bjarni Sveinbjörnsson
bassa og Pétur Grétarsson trommur.
Föstudaginn 11.9. 1998.
FÖSTUDAGUR á cjjasshátíð var
dagur íslendinganna. Atta
hljómsveitir léku í miðborg Reykja-
víkur og á Kringlukránni. Fimm alís-
lenskar, tvær leiddai- af útlendingum
tengdum íslandi og sú áttunda
sænsk: Drum ‘n’ Bass sveitin Yoga.
Þrjár sveitanna voru undir stjórn
söngkvenna, hinnar pólsku Natönzu
Kurek, sem gift er Guðlaugi Guð-
mundssyni bassaleikara, Kristjonu
Stefánsdóttur frá Selfossi, sem
stundar nám í djasssöng við tónlist-
arakademíuna í Amsterdam og
Andreu Gylfadóttur, sem alltof
sjaldan lætur ljós sitt skína sem
djasssöngkona. Ómar Axelsson lék
með kvartetti sínum á Kringlu-
kránni og Jazzmenn Alfreðs Al-
freðsson léku á Fógetanum. í dómi í
Politiken um hljómdisk Gunnars
Ormslevs taldi Boris Rabinowitsch
Alfreð fyrsta módeme djas-
strommara íslands. Alfreð trommar
alltof sjaldan núorðið. Hann hefur
tvisvar áður leikið á djasshátíðinni í
Reykjavík. í fyrra skipti með hljóm-
sveit Arna Schevings og Pantti
Lasanen og í það síðara með hljóm-
sveit sinni og Jóns Möllers píanista.
Jón er annar djassleikari sem alltof
sjaldan heyrist í, en hann er ekki við
píanóið hjá Alfreð núna heldur bróð-
ir hans Carl. Þorleifur Gíslason blæs
í saxófón með Jazzmönnunum og
hann er einnig alltof sjaldan í
sviðsljósinu. Með þeim leika svo
yngri menn: Stefán O. Jakobsson
básúnuleikari og Birgir Bragason
bassisti.
Michael Kneihs er austurískur, en
móðir hans fædd hér á landi; píanist-
inn Sibyl Urbancic. Hún er dóttir
kraftaverkamannsins í íslensku tón-
listarlífí - Victors Urbancic og Pétur
bróðir hennar var ágætur djass-
bassaleikari á árum áður. Hálfsystir
Michaels er svo leikkonan Rut Ólafs-
dóttir, sem lék aðalkvenhlutverkið í
Tár úr steini.
Michael lék klassískt bíbopp og
standarda, sem hann hefur útsett
fyrir píanótríó og með honum léku
Bjarni Sveinbjörnsson á bassa, en
hann leikur m.a. með Kuran Swing
og á trommumar Pétur Grétarsson,
sem er jafnvígur á bíbopp og frjáls-
djass, sem leikhústónlist og allt hvað
nafnið hefur.
Þeir hófu leikinn á blús sem Miles
Davis er skrifaður fyrir: Blues By
Five og helltu sér síðan útí ópus eftir
Bud Powell: Celia. Bud Powell er
mestur allra bíbopp píanista í mínum
huga og ekki heiglum hent að leika
verk hans. Michael komst þokkalega
frá því, en greinilegt er að hann er
ekki rútíneraður djasspíanisti, enda
fæst hann mikið við kennslu jafn-
framt að leika djass. Hann var betri í
standördunum og útsetning hans á
The Way You Look Tonight
skemmtileg og Body And Soul, My
Romance og If I Schould Loose You
leikin af næmni. Bjama Sveinbjörns-
son vantar Iíka rútínuna, en hann er
einstaklega smekklegur bassaleik-
ari, en oft hætti honum til að vera
helst til kraftlítill. Það á ekki við um
Pétur Grétarsson. Hann keyrði upp
sveifluna og átti góða sólóa, sér í lagi
í Jobimsömbu, en sú var tíðin að
sömburnar voru ekki hans sterkasta
hlið.
Þetta var ljúft kvöld, en Kneihs
hefur ekki enn tekist að skapa sér
persónulegan stíl, en það á því miður
við um ansi marga djassleikara nú um
stundir. Troðfullt var á Sóloni og þó
kaldir vindar blésu um stræti Reykja-
víkur á fóstudagskvöld lét fólk það
ekki aftra sér frá að fara á milli staða
og hlýða á djassinn. í kvöld lýkur svo
djasshátíð Reykjavíkur er Ray
Brown og félagar leika í íslensku
óperunni. Löngu er uppselt á þá tón-
leika.
Vernharður Linnet
Downingstræti fyrr en varir þótt
Francis geri máttvana tilraunir til
þess að setja stein í götu hans.
Gula pressan
Almesti þrjótur sögunnar er
blaðamaður á vegum gulu pressunn-
ar, ljótur bæði og úrillur, sem hefur
yndi af að grafa upp slúður úr
fortíðinni; hann er eini karakterinn
sem er eitthvað nálægt því að vera
skemmtilegur. Sögumaðurinn, sonur
verðandi forsætisráðherra, er skyn-
ugur strákur en hálfgert dauðyfli;
aðdáun hans á karli föður sínum er
takmarkalaus og veit ég ekki hvort
hún á sér einhverja samsvörun í lífi
Francis. Aðrar persónur sögunnar
eru lítt áhugaverðar.
Francis tekur sinn tíma í að segja
söguna og hikar til dæmis ekki við að
lýsa nákvæmlega ferðalagi um for-
sætisráðherrabústaðinn og því sem
fyrir augu ber. Tilgangurinn með því
er alls óviss og líkt og annað í sögunni
ekki líklegt til þess að fá hjarta les-
andans til þess að slá örar.
Bókin er sjálfsagt ágæt viðbót
þeim sem yndi hafa af að lesa sögur
Dick Francis og líkar hinn hófstillti
og kurteisi breski frásagnarstíll og
rólyndislega andrúmsloft. Fyi’ir
spennufíkla er þessi saga þó alls
ekki.
Arnaldur Indriðason
JAZZHÁTÍÐ
Reykjavíkur 1998
lýkur í dag
Sólon Islandus
Tríó Ólafs Stephensen leikur
„Pönnukökujazz" kl. 15. Tríóið
skipa, auk Ólafs Stephensen,
sem leikur á píanó, Tómas R.
Einarsson, sem spilar á kontra-
bassa, og Guðmundur R. Ein-
arsson trommuleikari.
Islenska óperan
Tríó Ray Brown, kl. 21. í
tríóinu eru með Ray, sem leikur
á kontrabassa, Geoff Keezer,
píanóleikari og Kareem Riggins
trommuleikari.
Anna Júlía
sýnir í
Galleríi
Nema hvað
NU stendur yfir sýning Önnu
Júlíu Friðbjömsdóttur í Gall-
erínu Nema hvað, (áður Fiskur-
inn), á Skólavörðustíg 22c.
Anna Júlía sýnir verkstúfa
með vísindalegu ívafi og em
verkin að hluta partur af út-
skriftarverki hennai- frá London
Guildhall University nú í sumar.
Sýningin stendur til 27. sept-
ember og er opin fimmtudaga
og fóstudaga kl. 15-19 og laug-
ardaga og sunnudaga kl. 14-17.
Dansflokkurinn
Nýr fram-
kvæmdastjóri
MAGNÚS Ámi Skúlason hefur
látið af starfi framkvæmdastjóra
íslenska dansflokksins eftir
rúmlega tveggja ára starf og var
Valgeir Valdimarsson ráðinn til
starfans frá 1. september sl.
Valgeir er 26 ára heim-
spekinemi og hefur m.a. starfað
að auglýsinga- og kynningar-
málum. Um síðustu páska vann
Valgeir að uppsetningu Kórs
Langholtskirkju á Mattheus-
arpassíunni og hefur veitt Sin-
fóníuhljómsveitinni ráðgjöf um
Sinfóníuvefinn.