Morgunblaðið - 13.09.1998, Síða 18
18 SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
SKÝRSLA STARRS TIL BANDARÍKJAÞINGS
SKYRSLA sú sem saksókn-
arinn Kenneth Starr af-
henti Bandaríkjaþingi á
miðvikudag og gerð var op-
inber á föstudag hefur valdið póli-
tísku uppnámi í Bandaríkjunum. I
skýrslunni gerir saksóknarinn ítar-
lega úttekt á sambandi Bill Clintons
Bandaríkjaforseta og Monicu
Lewinsky, er starfaði sem lærlingur
í Hvíta húsinu. Starr rekur hvernig
samskipti þeirra þróuðust í kyn-
ferðislegt samband og tínir til
minnstu smáatriði í nánustu sam-
skiptum forsetans og stúlkunnar.
Hann styður framburð hennar með
framburði fjölmargra annan-a
vitna, skrám yfír símtöl og viðveru-
skráningu í Hvíta húsinu svo eitt-
hvað sé nefnt.
Það er niðurstaða saksóknarans
að forsetinn hafí gerst sekur um
meinsæri er hann neitaði því eið-
svarinn við yfirheyrslu í máli Paulu
Jones að hann hefði átt í kynferðis-
legu sambandi við Lewinsky. Hann
hafí svo aftur framið meinsæri í yf-
irheyrslu hjá kviðdómi Starr í
ágúst. Saksóknarinn telur einnig
sannað að forsetinn hafi reynt að
hindra framgang réttvísinnar og
misnotað embættisvöld sín. Alls
nefnir hann í skýrslu sinni ellefu at-
riði, sem hann telur grundvöll máls-
höfðunar af hálfu þingsins er leitt
gæti til embættissviptingar.
Starr fýlgir röksemda-
færslu sinni eftir af mikilli
hörku í skýrslunni og hvað
eftir annað gerir hann lítið
úr málflutningi forsetans við
yfirheyrslur. Nú bíður for-
setans það erfiða verkefni að
sannfæra þingið og þjóðina
um að hann verðskuldi ekki
að verða sviptur embætti.
Þegar á föstudag virtist ljóst
að forsetinn myndi beita tví-
þættri vöm. Annars vegar
að halda áfram að lýsa því
yfir opinberlega að hann
iðrist þess að hafa átt í sam-
bandi við Lewinsky og höfða
þar með til samúðar þjóðar-
innar. Takist forsetanum að
halda fylgi sínu meðal al-
mennings má telja ólíklegt
að þingið grípi til málshöfð-
unar. Hins vegar er ljóst að
lögfræðingar forsetans
munu ráðast á skýrslu St-
arrs af fullri hörku, halda
fast við að framburður for-
setans hafi verið gefinn í
góðri trú og reyna að sýna
fram á að annarlegar póli-
tískar hvatir liggi að baki
skýrslunni en ekki lagaleg
rök og leit að réttvísi.
Einlægni eða
stöðumat?
DOMS
ÞJÓÐARINN-
AR BEÐIÐ
Skýrsla Kenneth Starrs um samband Bill Clintons og Monicu
Lewlnsky hefur vakið blendin viðbrögð í Bandaríkjunum. Ná-
kvæmar kynlífslýsingar skýrslunnar hafa valdið deilum og sak-
sóknarinn verið gagnrýndur fyrir að ganga alltof langt í rannsókn
sinni á málefnum forsetans. Hins vegar ríkir gífurleg óvissa um hið
pólitíska framhald málsins og flestir þingmenn virðast vilja bíða og
sjá hvernig hinir pólitísku vindar munu blása á næstu dögum.
Bill Clinton hóf föstudag-
inn á því að ávarpa árlegan
fund trúarleiðtoga í Hvíta
húsinu. Ræða hans þótti
mögnuð og einlæg og greinilegt var
að erfiðar tilfinningar bærðust í
brjósti forsetans á meðan hann
flutti hana. Clinton bað alla málsað-
ila fyrirgefningar en hét því jafn-
framt að berjast áfram og lýsti því
yfir að lögfræðingar hans myndu
einskis láta ófreistað til að verjast
skýrslu Starrs. „Það má hins vegar
ekki breiða yfir það með lögfræði-
legum hártogunum að það sem ég
gerði var rangt,“ sagði Clinton.
Viðbrögðin við ræðu forsetans
voru misjöfn. Bandarísk blöð hafa
eftir sumum ónefndum samstarfs-
mönnum að þetta hefði verið ræðan
sem hann hefði átt að flytja er málið
kom fyrst upp á yfirborðið. Aðrir
líktu ræðunni við ræðu sjónvarps-
predikarans Jimmy Swaggart árið
1988 er bað grátandi um fyrirgefn-
ingu eftir kynlífshneyksli. Flestir
þeirra trúarleiðtoga er tjáðu sig um
málið voru hins vegar hrærðir og
töldu forsetann hafa tekið skref í
rétta átt.
í Washington Post í gær er lýst
yfir efasemdum um að ræðan muni
afla forsetanum samúðar. Haft er
eftir stjórnmálasérfræðingi við
Hai-vard-háskóla að ekki sé ljóst
hvort ræðan hafi endurspeglað til-
finningar eða stöðumat forsetans.
Öðru máli hefði gegnt ef ræðan
hefði verið flutt fyrr.
BANDARÍSKU forsetahjónin héldu sínu striki á föstudagskvöld eftir að skýrsla Starrs var birt opinberlega. Þau komu fram
saman á fundi með Bandaríkjamönnum af írskum uppruna, þar sem þau gerðu sér far um að sýna að vel færi á með þeim.
Clinton flutti einnig ræðu á föstu-
dag við minningarathöfn um fórnar-
lömb sprengjutilræðanna í Kenýa
og Tansaníu og á föstudagskvöld
var haldin athöfn á suðurtúni Hvíta
hússins er forsetahjónin tóku þátt í.
Þar heiðruðu Bandaríkjamenn af
írskum uppruna forsetann fyrir
framlag hans til friðar á Norður-ír-
landi. Fjölmargir ræðumenn hældu
forsetanum á hvert reipi og fór
greinilega vel á með Bill og Hillary
Clinton á meðan á
ræðuhöldunum stóð.
Þau sátu hlið við hlið,
hvísluðust oft á og
brostu.
Lögfræðingar hefja
gagnsókn
Lögfræðingar Clint-
ons höfðu fyrr um dag-
inn hafið gagnsókn, líkt
og forsetinn hafði boðað
í ræðu sinni í bæna-
morgunverðinum. Aður
en skýrsla Starrs var
gerð opinber lagði Da-
vid Kendall, lögfræð-
ingur forsetans, fram 78
síðna greinargerð þar
sem málsmeðferð St-
arrs er gagnrýnd harð-
lega og sú ákvörðun að
leyfa forsetaembættinu
ekki að kynna sér innihald skýrsl-
unnar fyrirfram fordæmd.
Það var ljóst af máli Kendalls að
forsetinn mun að hluta til byggja
vöm sína áfram á því að ummæli
hans við yfirheyrslur hafi verið
lagalega rétt þó að þau kunni að
hafa verið misvísandi. Kendall lagði
áherslu á að þar með væri ekki um
meinsæri að ræða óháð því hversu
afvegaleiðandi ummælin hefðu ver-
ið. Vel gæti verið að einstaklingar
KENNTETH STARR
Gekk saksóknarinn
of langt í skýrslu
sinni?
DAVID KENDALL
Lögfræðingar forsetans
hyggjast láta hart mæta
hörðu.
minntust einstakra atburða með
ólíkum hætti. Þar með væri þó ekki
sagt að þeir væru að ljúga.
Þá gerði hann harða hríð að sak-
sóknaranum fyrir að kafa ofan í
einkalíf forsetans og velta sér upp
úr smáatriðum varðandi kynferðis-
legt samband hans og Monieu
Lewinsky. Markmið Starrs væri að
„auðmýkja, niðurlægja og koma
pólitísku höggi“ á forsetann. Ekkert
réttlæti að hafa jafnnákvæmar kyn-
lífslýsingar í skýrsl-
unni og raun ber vitni.
„Það eru margar
svæsnar ásakanir í
skýrslu saksóknarans
en engin trúverðug
sönnunargögn um að
forsetinn hafi brotið af
sér með þeim hætti að
það gefi tilefni til máls-
höfðunar," sagði
Kendall á blaðamanna-
fundi. Hafnaði hann
öllum helstu ásökunum
Starrs.
Charles Ruff, lög-
fræðingur forsetaemb-
ættisins, sem einnig
sat blaðamannafundinn
sagði ásakanir um að
forsetinn hefði misnot-
að embættisvöld sín
vera „þvætting“.
Kendall sagði að hann væri sann-
færður um að málsmeðferð þingsins
yi'ði sanngjörn en hann hefur átt
fund með formanni dómsmála-
nefndar fulltrúadeildarinnar.
Lögmenn forsetans voru spurðir
á blaðamannafundi á fóstudags-
kvöld hvort þeir teldu líkur á að for-
setinn gæti sætt sig við mildari
refsingu en málshöfðun til embætt-
ismissis, á borð við þingvítur. Ruff
svaraði spurningunni ekki beint en
á orðum hans mátti skilja að ekki
væri hægt að útiloka þann kost.
Eftirsjá meðal þingmanna
Þær opinskáu lýsingar á kynferð-
islegu sambandi Clintons og Lewin-
sky, sem lesa má í skýrslu Starrs
kom mörgum í opna skjöldu. Vissu-
lega hafði verið ljóst um nokkurt
skeið að lýsingar á kynferðislegum
athöfnum yrðu hluti skýrslunnar en
fæstir áttu von á því að sumar
fréttastofur myndu telja sig knúnar
til að merkja einstök fréttaskeyti
með viðvörun til viðkvæmra les-
enda.
Svo virðist sem sumir af hörðustu
andstæðingum Clintons hafi séð eft-
ir því að hafa gert skýrsluna opin-
bera eftir að hafa kynnt sér innihald
hennar. „Eg hef líklega aldrei lesið
jafnbersöglar lýsingar áður,“ sagði
repúblikaninn Mark Souder, sem
hvatt hefur til afsagnar Clintons. í
samtali við Washington
Post segir Souder að líklega
sé enginn Bandaríkjamaður
sáttur við að kafað sé þetta
djúpt ofan í kynlíf annars
einstaklings. Annar þing-
maður repúblikana, Clay
Shaw, krafðist þess að
skýrslan yrði tekin af net-
inu nokkrum klukkustund-
um eftir að hann hafði
greitt tillögu um opinberun
hennar atkvæði.
Demókratinn James
Moran, sem greiddi at-
kvæði gegn tillögunni, sagði
að þingmenn hefðu tekið
ákvörðun um að breyta
bandarísku þjóðinni í
„gluggagægja".
Rök Starrs fyrir því að
tína til einstök smáatriði
kynferðislegra athafna eru
þau að það hafi verið nauð-
synlegt til að sýna fram á að
forsetinn hafi logið eiðsvar-
inn. Margir bandarískir
lagasérfræðingar létu hins
vegar í ljós þá skoðun, eftir
að hafa séð skýrsluna, að
þetta væri óþarft. Hægt
hefði verið að lýsa því sem
fram fór án þess að tína til
smáatriði. Einn þeirra sagði
að til samanburðar mætti
nefna að ekki þyrfti að sýna
afskorið höfuð fómarlambs
til að sanna að viðkomandi
hefði látið lífið.
Sumir voru þó þeirrar
skoðunar að Starr hefði verið knú-
inn til að semja skýrslu sína á þenn-
an hátt. Ekki hefði verið nóg að
sanna að kynlíf hefði verið í spilinu
heldur að tilteknar kynferðislegar
athafnir hefðu átt sér stað sem
stönguðust á við framburð forset-
ans. Paul Rothstein, lagaprófessor
við Georgetown-háskóla, segir
nauðsynlegt að sýna fram á eðlis
málsins vegna hver hafi snert hvern
og hvar. „Það er hins vegar hræði-
legt að þetta sé niðurstaðan," sagði
hann.
Mikið áfall fyrir forsetann
Flestir þingmenn sem hafa tjáð
sig um málið virðast sammála um
að viðbrögð almennings við skýrsl-
unni muni ekki skýrast fyrr en eftir
nokkra sólarhringa. Margir sögðust
vilja kynna sér efni skýrslunnar
fyrst og sjá andsvör forsetans.
Ljóst er þó að skýrslan er mikið
áfall fyrir Clinton þó svo að ljóst
hafi verið um nokkurt skeið að hún
yrði honum síður en svo hagstæð.
Bent hefur verið á að það sé forset-
anum í óhag að umræðan byggist
ekki lengur á vangaveltum heldur
tilteknum staðreyndum.
Það er síðan annað mál hvort
skýrslan gefi jafnríkt tilefni til
málshöfðunar til embættismissis og
Starr telur. Nokkrir stuðnings-