Morgunblaðið - 13.09.1998, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 13.09.1998, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1998 31 Fjárveitingin er um 55 milljónir króna á ári og sú upphæð dugar næstum. Þegar menn fara að hafa tekjur af skógræktinni borga þeir 30% af nettóhagnaðinum til ríkissjóðs, en halda eftir 70% af tekjunum sjálfir komum að áðan, þá er skógrækt ekki fyrir bráðláta. Við verðum að halda áfram. Þetta hefur þegar skapað einhverjar tekjur og þó það sé ekki mikið enn sem komið er, þá lofar það góðu í þeirri miklu lægð sem verið hefur í landbúnaði hér á landi seinni árin. Þetta hefur orðið til þess að menn hafa getað tollað á jörðum sínum. Jarðir sem ekki var nokkur leið að selja, seljast nú um leið og það kvisast út að þær séu falai’. Og þær seljast ekki bara, heldur byggjast líka.“ Miklar breytingar í vændum Helgi er stoltur af árangrinum sem náðst hefur, en segir jafn framt að margir átti sig ekki enn á því hvað þessi mikla skógrækt mun hafa í fór með sér. Margt muni breytast á Héraði og nágrenni. „Búast má við að eftir svona 20 til 25 ár verði þær jarðir sem voru með í verkefninu frá byrjun komn- ar með viðlíka hávaxna skógarreiti og fyrir eru á Fljótsdal. Bai’a miklu stærri reiti. Á tuttugu árum voru gróðursettar um 700.000 plöntur á vegum Fljótsdalsáætlunar, en á vegum Héraðsskóga hafa milli 9 og 10 milljónir plantna verið gróður- settar síðan árið 1990. Búið er að gróðursetja í á fjórða þúsund hekt- ara, en ef ég man rétt þá er gamli skógurinn á Hallormsstað 750 hektarar. Á næstu árum má því bú- ast við gríðarlegum breytingum á Héraði. Nú þegar er farið að bera á því að fólk hrekkur við þegar skóg- urinn fer að byrgja útsýni, t.d. yfir Lagarfljót. Skógurinn breytir auðvitað ásýnd lands þar sem áður var mó- eða graslendi og þeir sem hafa alist upp við ákveðið útsýni þurfa að venjast nýju landi ef þannig mætti að orði komast.“ DANSSVEIFLU Adögum! um helSina námskeið Áhugahópur um almenna 557 7700 dansþátttöku á fslandi hringdu n ú n a Netfang: KomidOgDansid@tolvuskoli.is Heimasíða: wwwtolvuskoli.is/KomidOgDansid/ Hjukrunar- fræðingar til starfa í Súdan MARIANNA Csillag hjúkrunar- fræðingur er á leið til hjálparstarfa á vegum Rauða kross Islands vegna hungursneyðarinnar i Suð- ur-Súdan. Hún mun starfa við hlið starfsmanna Alþjóða Rauða kross- ins og Rauða hálímánans í Súdan í fæðumiðstöð sem komið hefur ver- ið upp í bænum Tied. Það er þriðja fæðumiðstöð Rauða krossins í Bahr E1 Ghazal-héraðinu þar sem alvarlegur matvælaskortur hefur ríkt undanfarnar vikur. Maríanna Ásmundur verður í Tied í sex mánuði. Rauði kross Islands og deildir hans hafa auk þess ákveðið að verja 2,5 milljónum króna til hjálpar- starfsins í Súdan og ríkisstjórn ís- lands hefur varið einni milljón króna til hjálparstarfsins. Maríanna hefur áður starfað fyrir Rauða kross íslands í Tansaníu, Króatíu og Afganistan. Auk hennai’ starfa nú átta sendifulltrúar Rauða kross íslands í Afríku, Evrópu og Asíu. YQ6M: Yoga - breyttur lífsstíll 7 kvölda grunnnámskeið með Ásmundi Gunnlaugssyni. Mánudag og miðvikudag kl. 20-21:30. Hefst 16. sept. Námskeiðið hentar fólki á öllum aldri, reynsla af jóga er ekki nauðsynleg. Frír aðgangur að tækjasal og opnum jógatímum fylgir meðan á námskeiðinu stendur. Efni: ★jógaleikfimi (asana) ★ mataræði og lífsstfll ★ öndunaræfingar ★slökun ★andleg lögmál sem stuðla að velgengni, jafnvægi og heilsu. ■ ■Im, STU D I O Auðbrekku 14, Kópavogi, sími 544 5560. 3D Srudio MRX - NámsheiO 3D Studio MAX — grunnur Farið í gegnum grunnatriði 3D Studio MAX forritsins og hvernig það er byggt upp. Meðal þess sem farið verður í er: hvernig á að búa til einfalda hluti, hvernig á að brey- ta hlutum, hnitakerfi, „transforms", „modifier stack", „space warps", Ijós, myndavélar, hreyfingar. Eftir þetta námskeið eiga nemendur að hafa góða yfirsýn yfir hvernig forritið vinnur og geta gert einfalda hluti. 3D Studio MAX — Framhald 1: Modeling í þessu námskeiði verður farið í hvernig á að búa til hluti, bæði tvívíða og þrívíða. Meðal þess sem tekið verður fyrir er "lofting", "booleans" og "Nurbs modeling Kunnátta í því að búa til hluti er grundvöllur fyrir frekara námi í 3D Studio MAX. 3D Studio MAX — Framhald 2: Efnisáferðir og lýsing Efnisáferðir (materials): Hér verður farið í það hvernig á að búa til nýjar efnisáferðir í 3D Studio MAX. Farið verður í „Material Editor", „mapping types", hvernig á að búa til speglanir, „raytrace" efni, ofl. Lýsing (lighting): Lýsing er mjög mikilvæg í 3D Studio MAX sem og öðrum þrívíd- dargrafíkforritum. Farið verður í hinar ýmsu tegundir Ijósa, eiginleika þeirra og hvernig skal nota þau til að ná sem bestum árangri við lýsingu. 3D Studio MAX — Framhald 3: Animation Nú byrjar fjörið! Eftir að nemendur hafa lært að búa til hluti og setja á þá góðar efnisáferðir og lýsingu, er komið að því að láta þá hreyfast og gera eitthvað. Farið verður í hvernig farið er að þessu í 3D Studio MAX. Meðal þess sem verður tekið fyrir er „track view", hvernig á að láta hluti ferðast eftir ferlum, hvernig á að láta staðsetningu, stærð, snúning ofl. breytast, „morphing", „forward" og „inverse kinematics". Skráning og upplýsingar í síma 568 5010 Hvert námskeið er 20 kennslustundir RAFIÐNAÐARSKÓLINN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.