Morgunblaðið - 13.09.1998, Qupperneq 50
50 SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
í DAG
Safnaðarstarf
Friðrikskapella. Kyrrðarstund í
hádegi á morgun, mánudag. Léttur
málsverður í gamla félagsheimilinu
að stundinni lokinni.
Grensáskirkja. Mæðramorgunn
mánudag kl. 10-12.
Neskirkja. Mömmumorgunn mið-
vikudag kl. 10-12. Herdís
Storgaard frá Slysavarnafélagi Is-
lands.
Fella- og Hólakirkja. Bænastund
og fyrirbænir mánudaga kl. 18.
Tekið á móti bænaefnum í kirkj-
unni. Æskulýðsfélag unglinga á
mánudögum kl. 20.30.
Grafarvogskirkja. Bænahópur kl.
20. Tekið er við bænarefnum í
kirkjunni alla daga frá kl. 9-17.
Hjallakirkja. Prédikunarklúbbur
presta í Reykjavíkurprófastsdæmi
eystra er á þriðjudögum kl.
9.15-10.30.
Seljakirkja. Mömmumorgnar á
þriðjudögum kl. 10.
Hvítasunnukirkjan Ffladelfía. Al-
menn samkoma kl. 16.30. Ræðu-
maður Erling Magnússon. Allir
hjartanlega velkomnir.
Brian Tracy
International
Phoenix *• leiðin til hámarks
árangurs í einkalífi og starfi
Helgamámskeið 18.-20. sept. (18 klst.)
Kvöldnámskeið 21.-24- sept. (18 klst.)
Sérsniðið unglinganámskeið í október.
www.islandia.is /-hugborg
sími 557 9904, 899 4023
Leiðbeinandi Jóna Björg Sætran, B.A.
Viltu styrlfja stoðu þma ?
MODEM
/ Ahugavert t
I og speunand *
% nám
Markmið námsins er
að útskrifa nemendur með
hagnýta þekkingu
á tölvunotkun og veita þeim
innsýn í notkunarmöguleika
í tölvu- og
upplýsingaumhverfinu.
Námið er sambærilegt við
60 kennslustunda nám.
Skráning og upplysingar
ísíma 568 5010
H
RAFIÐNAÐARSKÓLINN
Skeifan 11 b - Sími 568 5010
VELVAKAJMPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Hver er
maðurmn?
GUÐBJÖRG hafði sam-
band við Velvakanda og
hefur hún áhuga á að vita
hvort einhver kannist við
manninn á myndinni.
Myndin er líklega tekin í
Árnessýslu, að Kflhrauni á
Skeiðum. Peir sem kann-
ast við myndina hafí sam-
band við Guðbjörgu í síma
588 1058.
Betur má ef
duga skal
ÉG dáðist að borgarstjóra
í sumar er hún fór fyrir
hópi unglinga við að afmá
hið hvimleiða krot sem
herjar á borgina okkar
víðsvegar. Mér kom í hug
fótaþvotturinn forðum,
sem ritningin greinir frá,
er ég sá borgarstjóra í
sjónvarpinu byrja þennan
veggjaþvott með hinum
ungu samborgurum.
En Adam var ekki lengi
í Paradís. Þau höfðu rétt
nýlokið við að þvo ógeðið
af Hallveigarstöðum þegar
nýtt krot var aftur komið á
veggi hússins. Hvað er til
ráða? Á bara að gefast upp
- eða? Nei, og aftm- nei.
Finna verður leið til að
aftná þennan ófögnuð í eitt
skipti fyi’ir öll.
„Þreytt ungmenni" bið-
ur hér á þessum stað í
blaðinu 25. ágúst um fleiri
vegglistamenn og segir
rosalega marga krakka
hér í borg iðka að krota á
veggi svokölluð „tag“.
Kannski - og vonandi - er
þetta þreytta ungmenni
eins og ég orðið þreytt á
sóðaskapnum sem stafar
af hinu ólystilega úða-
brúsakroti um alla borg-
ina. Þar sem sá - eða sú -
er pistilinn skrifaði hér 25.
ágúst sl. virðist þekkja
„rosalega marga krakka
hér í borg sem iðka að
krota...“ þá hvet ég hann
eða hana tfl að fara til
fundar við borgarstjórann
okkar og/eða forstöðu-
menn íþrótta- og tóm-
stundai'áðs Reykjavíkur-
vegi, Fríkirkjuvegi 11 og
bjóða fram krafta sína við
að kalla saman krakkana
sem krota til að ræða við
þá um betri leiðir í fram-
tíðinni fyrir athafnaþörfína
á vegglistarsviðinuj. Slík
samvinna milli borgar og
hinna ungu, sem eru orðn-
ir þreyttir á gamla ki-otinu,
gæti orðið rosalega jákvæð
og leitt til þess að gera
borgina okkar enn litríkari
og lystilegri að lifa í.
H.Þ.
Tapað/fundið
Seðlaveski
týndist
AÐFARANÓTT sl. sunnu-
dags varð ég svo óheppin
að týna svörtu seðlaveski
niðri í miðbæ eða á
Skuggabamum með öku-
skírteini og skilríkjunum
mínum og öðru persónu-
legu sem mig vantar sár-
lega. Sá sem hefur fundið
það vinsamlega skili því og
hafi samband í síma
554 2911.
ÞESSIR duglcgu drengir söfnuðu með tombólu kr. 5.416 til
styrktar Rauða krossi Islands. Þeir heita Andri Gunnars-
son, Steinþór Pálsson og Davíð Þór Gunnai-sson.
COSPER
f ]t Vr L \\ ° \ O 1/ \ ) °fi N. / 1
M* C0SPER / 'W.
ÉG verð að hætta núna. Það er einhver á línunni.
Víkverji skrifar...
HAUSTIÐ kallar tugþúsundir
til starfa: félagasamtök margs
konar, kennara og nemendur, og
síðast en ekki sízt þjóðkjöma þing-
menn okkar. Alþingismenn þreyta
í vetur lokapróf fyrir komandi
þingkosningar. Megi þeim vel
famast.
Alþingi hið forna var háð á Þing-
völlum við Öxará frá árinu 930 til
1798, eða í 868 ár. Þar var kristni
lögtekin árið 1000. Þess merka at-
burðar verður minnst með þjóðhá-
tíð á sama stað árið 2000. Alþingi
var háð í Reykjavík frá 1799 til
1800 og endurreist þar árið 1845.
Starfssvið Alþingis var breyti;
legt frá einnum tíma til annars. í
augum Víkverja er Alþingi samt
sem áður elzta og mikflvægasta
stofnun íslenzku þjóðarinnar - með
bakland sem spannar 1068 ár, frá
fyrsta Öxarárþingi talið. Næstelzt
er Þjóðkirkjan. Kristni var lögtek-
in hér á landi fyrir 998 ámm.
Kristin trú hafði raunar fest rætur
hér fyrir nomænt landnám. Papar,
írskir einsetumenn, sem hér voru
fyrir, játuðu kristna trú. Nokkrir
nomænna landnámsmanna vora
og kristnir. Kristin trú hefur því
fylgt byggð í landinu frá öndverðu.
Alþingi og Þjóðkirkja eru elztu
og traustustu hornsteinar ríkis og
þjóðfélags. Það er í lagi að agnú-
ast ögn út í þessi uppáhaldsnöld-
ur. En ekkert er mikilvægara en
að varðveita þau vel til langrar
framtíðar.
MARGT ER manna bölið. Með-
al bölvalda era fátækt og van-
þekking. Þeima vegna býr rúmur
milljarður manna við hungurmörk.
Hundrað þúsunda deyja árlega -
mörg hver ung að áram - vegna
vannæringar, vegna hernaðará-
taka og vegna sjúkdóma, sem
hægt væri að lækna, ef lyf og
læknar væra til staðar.
Þannig er staðan í endaða þá
öld, sem kennd hefur verið við
menntun, vísindi og tækniframfar-
ir. Fjölmiðlar heimsins standa ekki
á öndinni af þessum sökum. Það
þarf „meira“ til. Þetta era nefni-
lega gamlar sakir, þótt nýjar séu.
Sama gildir um nágrannaneyð,
sem einnig skýtur upp kolli. Það er
enginn Ciinton og engin Mónika í
þeirri hörmungagúrku. Það mark-
aðssetur enginn það sem ekki lag-
ar sig að eftirspum. Eða hvað?
XXX
AFSTAÐA vestrænna velmeg-
unarþjóða (hjá hverjum offita
er vaxandi vandamál, því hver hef-
ur sinn djöful að draga eins og þar
stendur) kann að speglast í þess-
um orðum hins dæmigerða Islend-
ings, Bjarts í Sumarhúsum:
Spurt hef eg tíu milljón manns
sé myrtur í gamni utanlands;
sannlega mega þeir súpa hel,
ég syrgi þá ekki, fari þeir vel.
Þjóðir, sem búa í vellystingum
praktuglega, leggja sálu sína í
annars konar hugðarefni en
hungraðan heim. Múgsefjun sam-
tímans snýst m.ö.o. um annað,
einkum „frægt“ fólk. Til að mynda
poppgoð eða fyrirmenni af annarri
gerð. Ekki sízt þá sem státa af bil-
uðum ástaráttavitum eða öðra
álíka kræsilegu. Að ekki sé nú tal-
að um súper-hvalinn Keikó, þenn-
an miðdepil fjölmiðlafárs og
múgsefjunar.
Málið snýst um það, ef Víkverji
metur málið rétt, að Keikó verður
gefið frelsi með því að færa hann
úr búri í búr - í stafalogn í grennd
Stórhöfða. Heimspressan kemst í
meiriháttar Keikó-stuð og kann
sér engin læti. Leikendur
gróðasinfóníunnar maka krókinn
sem aldrei fyiT. Horgrindur í Suð-
ur-Súdan hverfa í skuggann af
herlegheitunum. Enda sagði
Sumarhúsa-Bjartur: „Sannlega
mega þeir súpa hel, ég syrgi þá
ekki, fari þeir vel.“
XXX
LEIÐARI Morgunblaðsins um
KEA-verzlun í höfuðborginni
varð tilefni lítillar stöku, dulítið
gagnrýninnar. Önnur, í varnartón,
hefur borizt:
Víkveiji var því að flíka
sem vottaði eftirsjá slíka
og hann sakni þess títt
þá allt var svart/hvítt
stjómmál og sjónvarpið hka.