Morgunblaðið - 13.09.1998, Side 56
56 SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
töumi
iULIt KAVHEfi
£RIE LLOYO
IÖLIA LOUIS-ÖR£YFUS
TSBEY MA6UIRE
OEMI M0SR£
tllSABLTH SflliE
STASLíY ÍIÍOEI
R9SIN VILLtAMS
EAIIOllNt AAROH
¥0ODY ALUN
KIRSTIE ALL£Y
BOB 8ALABAH
RICHARD BEHJAMIH
ERIC BOGOSIAN
8ILLY CRYSTAL
JUOY 9AVIS
HAZELLE S090MAK
MARIEL HEMIHSWAY
HARIf BLDt K VR8TE A
8ESTSELLER A89UT HIS fRIENO
Nð¥. HIS 8ES? FSIENDS Afi£ A83UT
Ti 8EC8HE HIS WORST ENEMIES.
552 8333
Laugavegur
566 8043
Moslellsbær
554 1817 SNÆLAND
Kópavogur
565 4460
Hafnarljörður þar sem nýjustu myndirnar fást
Brjóstahöld:
* Halda vel að.
O Hlýrar renna ekki af öxlum.
* Litir: Ljóst og fölbleikt.
O Stærðir: 34C-42DD.
O Verð aðeins kr. 3.285.
O Buxur fást auðvitað í stíl.
►YASMINE Bleeth
úr Strandvörðum
hefur fengið
hlutverk í sjón-
varpsþáttunum
„Nash Bridges".
Don Johnson er í
aðalhlutverki í
þáttunum í gervi
lögreglumanns-
ins Nash
Bridges. Félagi
hans í lögregl-
unni er leikinn
af Cheech Marin.
Þeir verða skjól-
stæðingar Bleeth,
sem er í innra eft-
irliti lögreglunnar,
þegar þeir eru sak-
aðir um að valda
dauða þriggja sam-
starfsmanna sinna
innan lögreglunnar.
Það fylgir sögunni að
Bleeth og Johnson eigi
eftir að lenda í ástar-
sambandi í þáttunum.
Bleeth
lítur
eftir
Don
Johnson
FOLK I FRETTUM
SUNNUDAGSMYNDIR
SJONVARPSSTÖÐVANNA
Stöð 2 ► 12.25 Stefnumót í Las
Vegas (Meet Me In Las Vegas,
‘56), er söngva- og dansamynd frá
gullöld MGM, með hinni leggja-
fógru Cyd Charisse og Dan Daily.
Hann leikur kúasmala sem gengur
illa í spilaborginni uns hann kynnist
dansmeynni Charisse. Forvitnileg í
sögulegu samhengi. Maltin gefur
★★%.
Stöð 2 ► 14.20 Framhaldsmyndin
Faðir brúðarinnar 2 (Father of the
Bride II., ‘95), er meira - en minna
af því sama. Með Steve Martin og
Diane Keaton. ★★.
Stöð 2 ► 21.00 Undrið (Shine,
‘96). Sjá umfjöllun í ramma.
Sýn ► 21.30 Nemandi gefur því
gaum að höfuðstöðvar háskólans
eru undirlagðar kuklurum í B-hroll-
inum Svartigaldur (Vooodoo, ‘95).
Með Corey Feldman. Fékk ekki
bíódreifmgu hérlendis. Halliwell
gefur 0, og segir hana ónotalega og
hirðuleysislega gerða.
Sjónvarpið ► 22.20 Áhugafólki um
forvitnilegar og óvenjulegar kvik-
myndir, er sérstaklega bent á Ein-
feldningar (Simple Men, ‘92), sem
gerð er af neðanjarðarleikstjóran-
um Hal Hartley, sem er Kvik-
myndahátíðargestum að góðu kunn-
ur. Hér fjallar hann um tvo bræður
sem gera víðreist í leit að föður sín-
um, fyrrum hafnaboltahetju. Kynn-
ast ýmsum furðufuglum í leiðinni.
Maltin gefur ★★★.
Stöð 2 ► 23.35 Enn ein endursýn-
ing á Djöfli í mannsmynd (Prime
Suspect, ‘95). Þetta er 4. hluti.
Helen Mirren fer á kostum, líkt og
hennar er vani og Stuart Wilson af-
ar slappur - að venju.
Sýn ► 23.55 Hinn súkkulaðihúðaði
Mark Harmon leikur titilhlutverkið 1
Worth og veðmálið (Worth Winn-
ing, ‘89), andlega kviðdreginni mynd
um gervikempu sem veðjar um að
hann geti fengið þrjár glæsigellur til
að giftast sér. Með hinni glæsilegu
Madeleine Stowe. Tímasóun. ★
Sæbjörn Valdimarsson
Raunasaga snillings
Stöð 2 ► 21.00 Ástralska mynd-
in Undrið (Shine), kom verulega
á óvart árið 1996, vakti mikið
umtal og hlaut góða dóma. Var
m.a. tilnefnd til fjölda
Óskarsverðlauna og þau féllu
aðlleikaranum, Geoffrey Rush, í
skaut, fyrir ótrúlega innlifaða
túlkun á konsertpíanóleikaran-
um David Helfgott. Þetta er
sönn saga um undrabarn sem
lendir upp á kant við áætlanir
föður síns (Armin Mueller-
Stahl), hvað snertir þjálfun og
nám í píanóleik. Hann upplifði
hildarleik Helfararinnar og ætl-
aði drengnum um of. Ævi þessa
unga manns snerist í raunasögu,
þar sem Helfgott stóðst ekki
álagið og ruglaðist í ríminu um
sinn eftir taugaáfall. Komst til
nokkurs bata fyrir tilstilli eigin-
konu sinnar (Lynn Redgrave),
og ávann sér síðar meir sess í
hjörtum manna víða um heim.
Það er ekki aðeins Rush sem
glansar í aðalhlutverkinu, Noah
Taylor er lítið síðri í túlkun sinni
á píanóleikaranum á sínum yngri
árum. Með Sir John Gielgud.
Fínn leikur, en yfirborðskennd
efnistök, og að líkindum dulítið
ofmetin, þegar maður getur
skoðað hana úr fjarlægð.**
Stutt
Sætir strák-
ar óskast
►“GOÐAN daginn, mér skilst að
þið séuð að leita að karlmönnum í
keppnina um Herra Island."
„Já, alveg log-
andi ljósi,“ svar-
ar hressileg
rödd í símann.
„Hefur þú
áhuga?“
„Ætli ég sé nú
ekki orðinn dá-
lftið of gamall,"
segir blaðamað-
ur og speglar sig hálfsvekktur í
tölvuskjánum. „En þú getur
kannski frætt mig aðeins um
keppnina..."
Elín Gestsdóttir, framkvæmda-
stjóri Fegurðarsamkeppni Islands,
segir að leit standi yfir og eyðu-
blöð liggi frammi á líkamsræktar-
stöðum og sólbaðsstofum.
„Við höfum fengið um 60 ábend-
ingar, bæði frá kunnugum og
drengjunum sjálfum," segir hún og
bætir hlæjandi við, „ef þeir þora.“
Valinu lýkur 23. september og
liggur þá fyrir hvaða 10 til 12
strákar verða þátttakendur frá
höfuðborgarsvæðinu.
Keppnum úti á landi lýkur í
október og verður svipaður fjöldi
þaðan. Lokakeppnin verður svo
haldin 27. nóvember á Broadway.
Tímaþjófur-
inn fær
slæma dóma
►KVIKMYNDIN „Voleur de Vie“
eða Tímaþjófurinn, sem byggð er á
samnefndri skáldsögu Steinunnar
Sigurðardóttur,
fær dræma dóma
í tímaritinu Vari-
ety.
Gagnrýnand-
inn Lisa Nessel-
son segir að
myndin sé
„þunglamaleg,
líflaus vitleysa
sem gefur sig út fyrir að vera þrung-
in merkingu.
Tveir helstu leikarar Frakka... ná
ekki að gæða myndina lífi og myndin
verður hvorki fugl né fiskur þrátt
fyrir óspara notkun myndmáls.
Sagan af nánum samskiptum
tveggja systra reiðir sig of mikið á
þrungnai- þagnir og klisjulegan sym-
bólisma. Þessi þriðja mynd leikstjór-
ans Yves Angelo er líkleg til að njóta
talsverðrar aðsóknar vegna leikar-
anna, en áhorfendur ættu frekar að
fara í smiðju gömlu skandinavísku
meistaranna sjálfra heldur en að
horfa á Tímaþjófínn, sem reynir án
árangurs að vera í stfl Bergmans."
Nokkru seinna í dómnum stendur:
„Það sem hugsanlega hefur virkað í
skáldsögunni gengur ekki upp á
hvíta tjaldinu. Þrátt fyrir að mynda-
taka sé ágæt er umhverfíð óraun-
verulegt og fjarrænt."
„Það eina sem stendur upp úr í
myndinni er ágætt kynlífsatriði, ein
góða játningarræða og eitt ágætt
draumkennt myndskeið. En þegar á
heildina er litið er mjmdin alltof löng
og til að bæta gráu ofan á svart líður
helmingur þessa langa tíma í algjörri
þögn. Tímaþjófurinn er andvana
fædd kvikmynd,“ eru lokaorð þessa
harkalega dóms í Variety.
„I ógöngum“ frum-
sýnd í London
►NÝ STUTTMYND, í ógöngum
eða „Stranded" er frumsýnd í
London í dag. Leikstjórinn er Ir-
inn Ian FitzGibbon og aðalleikar-
inn er Paul Hickey sem menn
kannast við úr Björgun óbreytts
Ryan. Myndin er byggð á leikrit-
inu Paparnir eftir Brian
FitzGibbon. Sverrir Guðjónsson
kontratenór syngur titillag mynd-
arinnar, sem gefið verður út á
plötunni Epitaph sem er væntan-
leg í útgáfu franska útgáfufyrir-
tækisins Opus 111.