Morgunblaðið - 27.09.1998, Side 1
STOFNAÐ 1913
219. TBL. 86. ÁRG. SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Ellemann
í spreng
Kaupmannahöfn. Morgunbladið.
HVAÐ gerði Uffe Ellemann-Jensen
inni á skrifstofunni sinni eftir að úr-
slitin í kosningunum 11. mars voru
ljós og áður en hann kom fram og
ræddi við blaða-
menn? Sú spuming
brann á vörum
margra ennúhefur
Ellemann leyst frá
skjóðunni.
í endurútgáfu
minningabókar
sinnar „Din egen
dag er kort“ hefur
Ellemann bætt við eftirmála, þar
sem hann segir frá kosningakvöld-
inu, þegar hann sá vonir sínar um
forsætisráðherrastólinn verða að
engu. Tölurnar sveifluðust fram og
aftur og hann róaði taugamar með
hverjum kaffíbollanum eftir annan.
Þegar tapið lá ljóst fyrir stóðu
blaðamenn utan við skrifstofu
Ellemanns, en kaffidrykkjan hafði
einnig sagt til sín. Honum fannst þó
heldur ómyndarlegt að það fyrsta
sem hann segði við blaðamenn væri
að hann þyrfti á salernið. Hann
sendi því kvenfólkið fram og lét svo
pottaplöntu taka við afrakstri kaffí-
drykkjunnar.
Þjóðverjar kjósa í dag um hvaða stjórn leiði þá inn í 21. öldina
Urslita kosninganna beðið
með mikilli eftirvæntingu
Frankfurt. Morgunblaðið.
Fimmtungur kjósenda enn óákveðinn
TALNINGAR atkvæða eftir kosn-
ingarnar til þýzka Sambandsþings-
ins, sem fara fram í dag, er nú beðið
með meiri eftirvæntingu en dæmi
eru um síðustu áratugi. Samkvæmt
síðustu skoðanakönnunum, sem birt-
ar voru fyrir kosningarnar, hafði
Jafnaðarmannaflokkurinn SPD enn
nokkurt fylgisforskot á Kristilega
demókrata (CDU), flokk Helmuts
Kohls kanzlara. En óljóst þykir með
öllu, hve margir flokkar ná að kom-
ast inn á þing og hvers konar meiri-
hlutasamstarf verður mögulegt. Á
lokakosningafundum flokkanna á
föstudagskvöld sögðust leiðtogar
þeirra allir sigurvissir.
Rita Suessmuth, forseti Sam-
bandsþingsins, hvatti alla sem kosn-
ingarétt hafa - 60 milijónir Þjóðveija
- til að neyta kosningaréttar síns og
gefa öfgaflokkum ekki minnsta
tækifæri til að ná árangri. Samkvæmt
skoðanakönnunum var fyrir helgina í
kringum fímmtungur kjósenda enn
óákveðinn sem skapar mikla óvissu
um úrslitin. Vegna þessarar óvissu
var reiknað með því að kosningaþátt-
taka yrði mikil, sennilega yfír 80%.
Skoðanakannanastofnanir spáðu
óvenjumikilli þátttöku ungra kjós-
enda.
Nýjustu skoðanakannanirnar,
sem birtar voru í gær, laugardag,
gáfu enga skýrari vísbendingu um
vilja kjósenda. Forsa-stofnunin
mældi fylgi SPD í kringum 42% og
CDU 38%. En jafnvel þótt fylgisfor-
skot SPD mældist í hinum ýmsu
könnunum á bilinu eitt til fjögur
prósentustig væri munurinn á fylgi
stóru flokkanna tveggja það lítill að
hann yrði að teljast innan skekkju-
marka. Dagblaðið Die Welt birti
meðaltal úr öllum helztu könnunun-
um og fékk með því út að fylgi SPD
væri 40,5%, CDU 38,3%, Græningja
6,5% og Frjálsra demókrata (FDP),
samstarfsflokks CDU í ríkisstjórn
síðastliðin 16 ár, 5,5%.
Óvíst að smáflokkarnir
nái 5% markinu
Ekki þykir hægt að segja fyrir
hvort PDS, arftakaflokki austur-
þýzka kommúnistaflokksins, takist
að vinna þau þrjú einmenningskjör-
dæmi sem hann þarf til að fá út-
hlutað þingsætum í samræmi við
hlutfallslegt fylgi, en ekki er gert ráð
fyrir að það nái 5% sem annars er
lágmarkið sem til þess þarf sam-
kvæmt stjórnarskránni. Vegna þess
hve óljóst er hve mikið fylgi bæði
stóru flokkamir sem og þeir litlu fá,
er með öllu opið hvers konar stjórn-
arsamstarf verður mögulegt þegar
upp verður staðið. CDU og FDP
stefna að því að halda áfram sam-
starfí sínu, en SPD og Græningjar
stefna í grundvallaratriðum að því að
leggja saman krafta sína, fái þeir til
þess þingmeirihluta. En hvorki SPD
né CDU hafa útilokað að mynda
„stóru samsteypu", ef ekki verður
hægt að mynda meirihlutastjóm
með öðru móti.
Flokkarnir ráku á fóstudagskvöld
endahnútinn á kosningabaráttuna
með fjöldafundum SPD í Berlín,
CDU í Mainz, Græningja í Darm-
stadt og FDP í Oberursel norðan
Frankfurt am Main. CSU, systur-
flokkur CDU í Bæjarlandi, hafði
þegar bundið enda á kosningabarátt-
una fyrir sitt leyti með fjöldafundi í
Munchen, og PDS fyrir sitt leyti í
Berlín.
■ Ný miðja/6
Reuters
Georg enn
á ferð
FELLIBYLURINN Georg sótti í
sig veðrið yfir hlýju hafinu á
Mexíkóflóa í gær. Var búist við
að hann kæmi að landi í suð-
urrikjum Bandaríkjanna í
gærkvöld. Þótt Georg hefði ekki
valdið þeim usla í Flórída og ótt-
ast hafði verið tryggðu yfirmenn
dýragarðsins í Miami öryggi
flamingófugla með því að koma
þeim í öruggt skjól inni á salerni.
Nýttu þeir tækifærið til að
spegla sig í bak og fyrir.
--------------
Lyf gegn
kvefi?
Washington. Reuters.
VÍSINDAMENN tilkynntu í gær að
nýjar rannsóknir sýndu að aukin von
væri nú til þess að þróa lyf gegn
kvefí. Nýjar kannanir þykja sýna að
nota megi lyfið relenza sem bóluefni
gegn kvefveirunni. Önnur rannsókn
sýndi að lyfið zanamivir kom í veg
fyrir kvefsmit í sex af hverjum sjö
sem það fengu og loks hefur lyfið
GS4104 reynst minnka jyáningar
þeiiTa sem þegar hafa kvef.
C '‘bl'NNU