Morgunblaðið - 27.09.1998, Qupperneq 2
2 SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Sveitarstjórn Borgarfjarðar þarf að velja um veg um Rudda eða frestun allra framkvæmda
Fyrsti áfangi
verður vegur
ofan við Flóku
RÍKHARÐ Brjmjólfsson, oddviti
Borgarfjarðarhrepps, segir að á
fundi sveitarstjómar og þing-
manna Vesturlands í fyrradag hafi
komið fram að fyrsti áfangi Borg-
arfjarðarbrautar yrði að vera upp-
bygging vegarins frá Hnakkatjarn-
arlæk að Kieppjárnsreykjum.
Sveitarstjórn muni koma saman
eftir helgi og taka afstöðu til þess
hvort framkvæmdarleyfi verði
veitt og að vegurinn liggi um gamla
vegstæðið um Rudda.
Sveitarstjórnin samþykkti sam-
hljóða fyrr á árinu ályktun þar
sem óskað var eftir að fram-
kvæmdir við smíði brúar yfir
Flóku og uppbyggingu vegarins
niður í Bæjarsveit yrðu hafnar hið
fyrsta. Jafnframt taldi sveitar-
stjórnin rétt að bíða með að taka
ákvörðun um umdeilda veglínu frá
brúnni að Kleppjámsreykjum
þangað til búið væri að samþykkja
Teknir á
127 og 117
km hraða
TVEIR ökumenn voru teknir fyrir
hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á
Selfossi frá kl. 19 á fóstudag til 7 í
gærmorgun. Þá vai- einn ökumaður
stöðvaður vegna gruns um ölvun.
Segir lögreglan það fátítt að svo fáir
séu teknir um helgar.
Annar ökumannanna var tekinn á
Eyrarbakkavegi á 127 km hraða og
hinn á Suðurlandsvegi á 117 km
hraða. Lögreglan segir að tekist hafi
að ná niður ökuhraða með auknu eft-
irliti og meðal annars notkun mynda-
vélar við hraðamælingar. Hefur
skýrslum vegna hraðakstursbrota
fækkað umtalsvert í haust hjá Sel-
fosslögreglunni. Þá segir lögreglan að
notkun öryggisbelta hafi einnig auk-
ist en lögreglan hefur einnig gengið
rösklega fram í að minna á beltin.
-...-.----------
I þriggja vikna
gæsluvarðhald
TVEIR menn, sem handteknir voru í
Reykjavík á föstudag grunaðir um
árás á mann aðfaranótt föstudags,
voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald
fram í miðjan október næstkomandi.
Þeir hafa ekki áður komið við sögu
hjá lögreglu.
Ráðist var á mann um þrítugt á
Ingólfstorgi aðfaranótt föstudags og
honum veittir alvarlegir áverkar á
höfði. Maðurinn er ekki í lífshættu.
Lögreglan heldur áfram rannsókn
málsins.
aðalskipulag. Sumir þingmenn
kjördæmisins voru andsnúnir
þessari framkvæmdaröð. Náðist
samkomulag milli þeirra um að
kanna meðal heimamanna hvort
samkomulag tækist um að byggja
upp veginn milli Flóku og Klepp-
járnsreykja þar sem hann liggur í
dag, í stað þess að færa hann eins
og upphaflega var áformað. Sveit-
arstjórnin frestaði málinu í haust
og óskaði eftir fundi með þing-
mönnunum.
Ríkharð sagði að á fundinum
hefði komið fram andstaða við að
bíða með ákvörðun um veglínu of-
an við brúna þar til aðalskipulag
lapgi fyrir. Vegamálastjóri hefði
sagt að vegagerð fyrir ofan Flóku
yrði að vera í fyrsta áfanga og það
væri slæmur kostur að láta þann
kafla bíða aðalskipulags. Smíði
brúar yfir Flóku yrði hins vegar
hafin fljótlega enda væri búið að
bjóða verkið út. Sveitarstjórnin
stæði því frammi fyrir þeim tveim-
ur kostum, að samþykkja að hefja
framkvæmdir milli Hnakkatjarn-
arlækjar og Kieppjárnsreykja í
fyrsta áfanga eða að öllum fram-
kvæmdum við uppbyggingu Borg-
arfjarðarbrautar yrði slegið á
frest um ótiltekinn tíma.
Fundur hefur verið boðaður í
Sjálfstæðisflokksfélagi Borgar-
fjarðar um helgina og Framsókn-
arflokksfélag Borgarfjarðar hélt
fund í vikunni. Ríkharð sagðist
eiga von á nokkuð harðri umræðu
í sveitinni um þetta mál um helg-
ina og fram að fundi sveitarstjórn-
ar.
Utanríkisráðherra á
allsherjarþingi SÞ
Enga end-
urvinnslu-
kjarnorku-
Vlð SJO
HALLDÓR Ásgrímsson utanrík-
isráðherra sagði í ræðu sinni á
allsherjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna, á föstudagskvöld, að ekki
ætti undir neinum kringumstæð-
um að leyfa endurvinnslu á geisla-
virkum úrgangi kjarnorkuvera við
sjó. Hann sagði að slys, þar sem
geislavirk efni hefðu lekið í hafið,
sýndu hættuna af slíkri starfsemi.
íslenzk stjórnvöld hafa haft
miklar áhyggjur af endurvinnslu-
stöðvum í Sellafield og Dounreay
og kvartað við brezku stjórnina
yfir tilvist þeirra.
í ræðu sinni á allsherjarþinginu
ítrekaði Halldór einnig sérstöðu ís-
lands varðandi loftslagssamning
SÞ og ákvæði hans um takmörkun
á útblæstri gróðurhúsalofttegunda.
„Það er órökrétt og ósanngjarnt
að neita löndum um réttinn til að
nýta hreina og endurnýjanlega
orku til iðnaðar og leyfa á sama
tíma að iðnaður, sem notast við
mengandi jarðefnaeldsneyti, sé
settur á fót annars staðar," sagði
Halldór Ásgrímsson.
Reuters
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðlierra flytur ræðu sína á allsheij-
arþingi Sameinuðu þjáðanna í New York.
Stefnt að því að ljúka 49. flokksþingi Alþýðuflokksins í dag
Litlar breytingar
á æðstu embættum
MORGUNBLAÐINU í dag fylgir
póstkort frá Landsbanka Islands.
(Póstkortinu er dreift á höfuðborg-
arsvæðinu.)
MORGUNBLAÐINU í dag fylgir
auglýsingablað frá Reykjalundi, um
Landssöfnun 2.-4. okt. fyrir endur-
hæfingu á Reykjalundi.
EKKI var búist við miklum breyt-
ingum á æðstu embættum Alþýðu-
flokksins á 49. flokksþingi Alþýðu-
flokksins á Grand Hóteli í Reykjavík
um helgina, en kosningar til emþætt-
anna hófust í gærmorgun og úrslitin
voru kynnt síðar um daginn. Sig-
hvatur Björgvinsson, formaður
flokksins, Asta B. Þorsteinsdóttir
varaformaður, Valgerður Guð-
mundsdóttir ritari og Magnús Norð-
dahl, formaður framkvæmdastjóm-
ar, gáfu kost á sér til áframhaldandi
setu í embættum sínum. Engin mót-
framboð bárust þótt formlega séð
væru allir skráðir alþýðuflokksmenn
í kjöri. Aðeins var séð fram á eina
breytingu í skipan æðstu embætt-
anna, þar sem Sigrún Benedikts-
dóttir, fráfarandi gjaldkeri flokksins,
gaf ekki kost á sér áfram. Reynir
Olafsson gaf hins vegar einn kost á
sér í það embætti.
Almennt var talað um að yfir-
bragð þingsins hefði verið nokkuð
Nokkur bjartsýni
um árangur
sameiginlegs
framboðs
rólegt um helgina þar sem engin
átök hefðu verið um embætti í
flokknum og vegna þess að tekin
hefði verið ákvörðun um að taka
þátt í sameiginlegu framboði félags-
hyggjuflokkanna. Talið er að um
eða yfir 200 alþýðuflokksmenn hafi
tekið þátt í störfum þingsins og ef
marka má almennar stjómmálaum-
ræður þinggesta á föstudagskvöld
virtist nokkur bjartsýni ríkja um ár-
angur sameiginlegs framboðs í kom-
andi alþingiskosningum. Fullyrti
Ágúst Einarsson alþingismaður m.a.
að framboðið gæti fengið um 60% at-
kvæða í kosningunum væri vel hald-
ið á spilunum. Hann sem og fleiri
mæltu einnig fyrir opnum prófkjör-
um í einstökum kjördæmum.
í umræðunum komu hins vegar
fram skiptar skoðanir á sameigin-
legri málefnaskrá félagshyggju-
flokkanna og tóku nokkrir unglið-
anna fram að þrátt fyrir að ekki væri
gert ráð fyrir inngöngu í Evrópu-
sambandið á næsta kjörtímabili
væru þeir , jafnmiklir Evrópusinnar
og þeir hefðu verið“.
Þinginu verður
slitið í dag
Stefnt var að því halda til Háskóla
íslands síðdegis í gær og ræða m.a.
um háskólann og samfélagið en þar
á eftir átti að ræða frekar um sam-
eiginlegt framboð félagshyggju-
flokkanna. í dag á m.a. að kjósa til
flokksstjórnar og verkalýðsmála-
nefndar og fjalla um tillögu að
ályktun um menntasamfélag. Gert
er ráð fyrir því að þinginu ljúki um
klukkan þrjú í dag.
A
► 1-64
Fleygt í djúpu laugina
►Mikil umskipti hafa orðið í
mjólkurframleiðslu og sauðfjár-
rækt undanfarinn áratug. / 10
Hetja eða boðberí
hatursins?
►Margir óttast skoðanir Pauline
Hanson í Ástralíu. /14
Svigrúm fyrir
sjðlfstæðar skoðanlr
►Sigríður Anna Þórðardóttir tók
við starfi formanns þingflokks
sjálfstæðismanna í vor. /20
Hamlngjan er
íHanstholm
►Fyrir nokkrum árum varð til
Islendinganýlenda í Hanstholm í
Danmörku. /24
í þágu sykursjúkra
barna
►Þeim bömum fjölgar sem grein-
ast með sykursýki hér á iandi. /30
B
► 1-16
í felulelk
meðfjöllunum
►Gásadalur á Vogey er ein af-
skekktasta byggð Færeyja. /1
Saga hundadaga-
konungslns fullkomln
fyrlr kvlkmynd
►Ágúst Guðmundsson og Andy
Paterson hyggjast gera kvikmynd
um Jörund hundadagakonung. /4
Öryggl, fegurð
og fjölbreytnl
►islensk kona, Elsa Grimnes,
gegnir starfi borgarminjavarðar í
Stavanger í Noregi. /6
C______________________
► 1-4
Landið og orkan
FERÐALÖQ
► 1-4
Farþegum fjölgaðl
►Um nfu þúsund farþegar ferðuð-
ust með Langjökli ehf. í sumar. /1
Verðum að mlða
vlð það besta
►Nýlega var haldið málþing um
íslenska ferðaþjónustu. /4
E BÍLAR________________
►1-4
Flat Muítlpla
►Sex manna bíllinn Fiat Multipla
kemur verulega á óvart. /1
Fjölhæfur smájeppi
►JIMNY er heitið á nýja smájeDD-
anum frá Suzuki. /4
Fatvinna/
RAÐ/SMÁ
► 1-16
Viðsklptl vlð Ítalíu
og Svfþjjóð
►Fyrirtækjakynning í forseta-
heimsókn. /1
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak ídag 50
Leiðari 32 Brids 50
Helgispjall 32 Stjömuspá 50
Reykjavíkurbréf 32 Skák 50
Skoðun 36 Fólk i fréttum 54
Minningar 38 Útv./gónv. 52,62
Hugsað upphátt 44 Dagbðk/veður 63
Myndasögur 48 Mannl.str. 15b
Bréf til blaðsins 48 Dægurtónl. llb
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6