Morgunblaðið - 27.09.1998, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 20/9 - 26/9
►ÍSLAND á að verða til-
raunamarkaður fyrir
tækninýjungar í símaþjón-
ustu með tilkomu nýs síma-
fyrirtækis, Íslandssíma hf., á
markaðinn. Fyrirtækið, sem
er í eigu fjögurra aðila, hug-
búnaðarfyrirtækisins OZ hf.,
Guðjóns Más Guðjónssonar,
Skúla Mogensen og Arnars
Sigurðssonar, mun bjóða
upp á alhliða sfmaþjónustu,
jafnt innanlands-, miililanda-
og farsímtöl. Netið mun
verða í stóru hlutverki hjá
hinu nýstofnaða fyrirtæki og
meðal annars mun mönnum
verða gert kleift að hringja
ódýrt til útlanda í gegnum
Netið.
►TVÆR tilraunir voru
gerðar fyrr á þessu ári til
innbrots í tölvukerfi Krabba-
meinsfélagsins. Tölvuþrjót-
unum tókst þó f hvorugu til-
vikinu að komast inn í sjálft
tölvukerfið og að gögnum og
skrám Krabbameinsfélags-
ins. Þeim tókst hins vegar að
komast inn í pósttölvu fé-
lagsins, sem veitir aðgang að
Netinu, og olli annar þeirra
talsverðum skemmdum á
hugbúnaði tölvunnar. Unnt
var að rekja slóð hans til
baka og kom í ijós að um var
að ræða 15 ára íslending. í
hinu tilvikinu var slóð tölvu-
þrjótsins rakin til Tékklands.
Hann olli engu tjóni á tölvu-
kerfi félagsins og var ekki
aðhafst frekar í því máli.
►LEIÐA má líkum að því að
verðtryggðar skuldir heimil-
anna f landinu séu um tveim-
ur milljörðum króna lægri
nú f september en þær voru
fyrir þremur mánuðum
vegna 0,6% lækkunar vísi-
tölu neysluverðs á þessu
tfmabili.
Kröfu SH hafnað
VERZLUNARDÓMUR Parísar hafn-
aði í vikunni kröfum Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna á hendur íslenzkum
sjávarafurðum og fyrri eigendum Gel-
mer-verksmiðjanna í Frakklandi um
riftun kaupa ÍS á franska fyrirtækinu
og fébótum vegna þess máls. Forsendur
niðurstöðu dómsins voru í meginatrið-
um þær að enginn skriflegur samningur
við SH hefði legið fyrir og að hvorki að-
aleigandinn fyrrverandi né ÍS hefðu
gerzt brotlegir við lög.
43 milljarða aukning
SKULDIR heimilanna við opinberar
lánastofnanir, lífeyrissjóði, tryggingafé-
lög og bankakerfi námu 407 milljörðum
króna um mitt þetta ár og höfðu aukist
um 43 milljarða króna frá sama tíma í
fyrra eða um 11,8%. Þetta er talsvert
meiri aukning skulda heimilanna en ár-
ið á undan, því skuldir þeirra jukust um
28 milljarða króna frá júlíbyrjun 1996
til júnfloka í fyrra, sem jafngildir 8,3%
aukningu.
Þungar áhyggjur
FULLTRÚAR tölvunefnda og sam-
bærilegra stofnana í ríkjum Evrópska
efnahagssvæðisins lýsa þungum
áhyggjum sínum vegna áforma ís-
lenzkra stjómvalda um miðlægan
gagnagrunn á heilbrigðissviði og hvetja
ríkisstjómina til að endurskoða gagna-
gmnnsfrumvarpið í Ijósi alþjóðasátt-
mála á þessu sviði. Þetta kemur fram í
ályktun fundar fulltrúa frá EES-ríkjun-
um á 20. alþjóðaráðstefnunni um vemd
persónuupplýsinga sem haldin var á
Spáni í síðustu viku.
Góður hagnaður
FLUGLEIÐIR og dótturfélög skfluðu
liðlega 560 milljóna króna meiri hagnaði
af reglulegri starfsemi á sumarmánuð-
unum, júlí og ágúst, en á síðasta ári.
Hagnaðurinn nemur tveimur milljörð-
um kr. samkvæmt bráðabirgðauppgjöri
og er hagnaðurinn þessa tvo mánuði
orðinn meiri en tap félagsins fyrstu sex
mánuði ársins.
Clinton enn
vinsæll
MYNDBAND af yfirheyrslu Kenneths
Starrs, sérskipaðs saksóknara, yfir Bill
Clinton, forseta Bandaríkjanna, var birt
opinberlega á mánu-
dag en lítið nýtt þótti
koma þar fram.
Stuðningsmenn for-
setans töldu frammi-
stöðu Clintons með
miklum sóma og
missti forsetinn ekki
stjórn á skapi sínu
eins og haldið hafði
verið fram. Repúblikanar hafa þó hafn-
að óskum margra demókrata um að
Bandaríkjaþing léti sér nægja að ávíta
forsetann og tilkynnti Henry Hyde, for-
maður dómsmálanefndarinnar, í fyrra-
dag að nefndin myndi ákveða á fundi 5.
eða 6. október hvort lagt yrði til við
þingið að hefja rannsókn sem leitt gæti
tfl málshöfðunar til embættismissis.
Kosið í Svíþjöð
JAFNAÐARMENN, undir stjórn for-
sætisráðherrans Görans Perssons,
guldu afhroð í sænsku þingkosningun-
um sem haldnar voru
síðasta sunnudag.
Fékk flokkurinn ein-
ungis 36,6% og tapaði
næstum 10% pró-
sentustigum. Borg-
aralegu flokkamir
náðu hins vegar ekki
að nýta sér fylgis-
hrun jafnaðarmanna
og telja fréttaskýrendur líklegt að Carl
Bildt, leiðtogi hægri manna, hætti af-
skiptum af sænskum stjómmálum í
kjölfarið. Sennilegt er að Persson sitji
áfram í embætti, ef til vill með stuðningi
Vinstriflokks Gudmnar Schyman, sem
telst sigurvegari kosninganna, fór í 12%
úr rúmlega 6%. Lítil þátttaka var í
kosningunum, einungis um 78% Svía
greiddu atkvæði sem telst lítið á sænsk-
an mælikvarða.
►KJELL Magne Bondevik,
forsætisráðherra Noregs,
kom aftur til vinnu í fyrra-
dag eftir nærri fjögurra
vikna veikindaleyfi en þung-
lyndi mun hafa hijáð
Bondevik. Sagðist forsætis-
ráðherrann, er hann sneri
aftur til vinnu, að hann væri
kominn til fullrar heilsu en
vildi lítið segja annað um
veikindi sín en það að vinnu-
álag hefði verið orðið of mik-
ið.
►ÍRÖNSK stjémvöld
ábyrgðust á fimmtudag að
öryggi rithöfundarins Salm-
ans Rushdie yrði tryggt og
tilkynntu Bretar og Iranar í
kjölfarið að stjúramálasam-
band landanna yrði tekið
upp að nýju. Khomeini
erkiklerkur dæmdi Rushdie
til dauða árið 1989 fyrir guð-
last í bók hans Söngvar
Satans en írönsk stjóravöld
hafa nú afturkallað dauða-
dóminn. Lýsti Rushdie yfir
miklum fögnuði, en hann
hefur þurft að fara huldu
höfði í nær áratug.
►ÞINGKOSNINGAR fara
fram í dag, sunnudag, í
Þýskalandi og þykir allt
benda til að Helmut Koh)
kanslari hverfi frá völdum
að þeim ioknum. Ekki er þó
víst að jafnaðarmönnum
(SPD), undir stjóra Gerhards
Schröders, takist að hrista
Kohl og kristilega
demókrata (CSU) af sér og
hefur fylgi flokkanna mælst
svipað, um 40% hjá báðum,
síðustu dagana. Veldur þetta
því að menn spá því nú að
flokkarnir neyðist til að sam-
einast um stjórnartaumana.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/RAX
Byggt uppi á Höfða
UPPI á Höfða vinna byggingaverktakar hörðum voru á þaki þessarar nýbyggingar þjást líklega
höndum að verkefni sínu enda víst að ýmislegt þarf ekki af lofthræðslu enda yrði þeim lítið úr verki ef
að klára áður en veturinn skellur á. Mennirnir sem það væri tilfellið.
Abyrgðir ættingja
á undanhaldi
UNDANFARIN ár hefur verið
töluverð umræða í þjóðfélaginu um
óhóflega notkun sjálfskuldará-
byrgða einstaklinga. Hefur lána-
stofnunum verið legið á hálsi fyrir
að krefjast slíkra ábyrgða, sem
gjaman eru fengnar frá ættingjum,
með tilheyrandi óheppilegum afleið-
ingum. Hefur því verið haldið fram
að nær væri að fara að dæmi ann-
arra þjóða og meta lánstraust
manna út frá þeim sjálfum í stað
þess að byggja á undirskriftagleði
og fasteignum vina og vandamanna.
Á móti koma rótgróin viðhorf í ís-
lensku þjóðfélagi um samningsfrels-
ið og skuldbindingargildi samninga
- orð skulu standa. Mönnum eigi að
vera frjálst að taka á sig ábyrgðir
með samningum það sé helgur rétt-
ur sem ekki eigi að skerða nema í
lengstu lög. Auk þess stafi við-
skiptaöryggi hætta af því ef ekki sé
hægt að ganga að því gefnu að gerð-
ir samningar haldi.
Félagshyggjan
Hinum fyrrgreindu félagslegu
forræðissjónarmiðum hefur heldur
vaxið fiskur um hrygg síðustu ár.
Þannig var leidd í lög árið 1986
regla um að ógilda mætti ósann-
gjarna samningsskilmála (36. gr.
samningalaga nr. 7/1936). Tæpum
tíu árum síðar var gengið enn
lengra og hnýtt við ákvæðum að
evrópskri fyrirmynd um heimild til
að víkja til hliðar einhliða skilmálum
í neytendasamningum sem talist
gætu ósanngjamir.
Síðastliðið vor gekk svo í gildi
samkomulag milli banka, spari-
sjóða, greiðslukortafyrirtækja,
Neytendasamtakanna og stjórn-
valda um notkun sjálfskuldará-
byrgða. Þar er kveðið á um skyldu
fjármálafyrirtækja til að upplýsa
ábyrgðarmann um hvað í ábyrgð
felist, meta greiðslugetu lántakanda
áður en annar gengst í ábyrgð sé
lánið hærra en ein milljón króna og
benda á þennan kost ef upphæðin
er lægri. Þá ber að tilkynna ábyrgð-
armanni um vanskil sem verða á
fjárhagslegri skuldbindingu sem
hann er í ábyrgð fyrir og ekki má
breyta skilmálum láns nema með
samþykki hans. Loks má nefna að
tekið er fyrir stofnun sjálfskuldará-
byrgðar þar sem ekki er tilgreind
hámarksfjárhæð. Þetta samkomu-
lag hefur auðvitað ekki lagagildi en
fastlega má búast við því að lánveit-
endur, sem eru aðilar að samkomu-
laginu, en það eru auðvitað ekki all-
ir þeir sem stunda lánastarfsemi í
atvinnuskyni, fari eftir því.
Hins vegar hefur í raun ekki mik-
ið reynt fyrir dómstólum á gildi
Héraðsdómur Reykja-
víkur ógilti í liðinni viku
ábyrgðarskuldbindingu
sem ættingjar gáfu
leigutaka vegna þess að
hún væri ósanngjörn.
Páll Þórhallsson fer
yfír réttarþróunina
í þessum efnum.
sjálfskuldarábyrgða út frá sjónar-
miðinu um hvort þær séu sann-
gjamar eða ekki. Má sjálfsagt rekja
það til þess að reglur þessar eru
nýjar af nálinni auk þess sem
sjaldnast er haldið uppi vörnum í
skuldamálum nema helst um form
máls. Undantekningar eru þó til frá
þessu. Þannig var mál með vexti í H
1993.2328 að ættingjar manns nokk-
urs gáfu árið 1987 út skuldabréf til
tólf ára að fjárhæð rúmlega þrjár
milljónir til handa banka einum. Að-
dragandi þessa var allóvenjulegur.
Maðurinn hafði verið starfsmaður
bankans en orðið uppvís að fjár-
drætti. Til þess að afstýra kæru
féllust ættingjamir á að gefa út
skuldabréf sem nam tjóni bankans á
þeirri óskráðu forsendu að maður-
inn myndi svo greiða af því. Það
gekk ekki eftir og endurgreiðslur
reyndust ættingjum hans fjárhags-
lega ofviða. Sagði í dómnum að ekki
hefði verið jafnræði með aðiljum við
samningsgerðina og forsvarsmönn-
um bankans ljóst að skuldbindingin
væri ekki í samræmi við fjárhag
viðsemjenda. Var skuldabréfið ógilt
með vísan til 36. gr. samningalaga
og bankanum gert að endurgreiða
það sem búið var að greiða af bréf-
inu.
Tryggingarvfxill
Málavextir vom öllu hversdags-
legri í H 1996.3267. Þar krafði
öldrað kona greiðslukortafyrirtæki
um endurgreiðslu rúmlega þriggja
milljóna króna sem hún hafði orðið
að punga út með vegna greiðslu-
kortaskulda tengdasonar sínar.
Hafði konan skrifað upp á svokall-
aðan tryggingai’víxil án þess að þar
væri færð inn nokkur hámarksfjár-
hæð. Hæstiréttur féllst ekki á að 36.
gr. samningalaganna ætti við. Hins
vegar hafi konan mátt treysta því
að greiðslukortafyrirtækið léti ekki
viðgangast úr hömlu á hennar
áhættu að korthafmn fengi haldið
áfram viðskiptum þrátt fyrir mis-
notkun korts síns. Taldi Hæstirétt-
ur eðlilegt að setja þak ábyrgðar
konunnar við 2.160.000 kr. (!) eða
tvöfalda mánaðarlega úttektarheim-
ild tengdasonarins, en þess má geta
að hann hafði úr nokkrum kortum
að spila frá sama fyrirtæki og hafði
eins og gengur sérstaka heimild til
úttekta erlendis.
Fjárhagsleg geta
Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur
21. september síðastliðinn gæti haft
hvað mesta almenna skírskotun af
þessum dómum ef hann reyndist
endanlegur. Þannig háttaði til að
maður nokkur tók á leigu söluturn
og gengust kona hans og dóttir í
ábyrgð fyrir efndum leigusamnings-
ins. Þegar vanskil urðu gekk
leigusalinn að ábyrgðarmönnum og
nam höfuðstóll kröfu hans liðlega
átta hundruð þúsund krónum. I
dómnum segir að samkvæmt skatt-
framtölum þeirra mæðgna, skýrsl-
um þeirra fyrir dómi og atvikum
máls að öðru leyti þyki ljóst að
ábyrgðarskuldbinding þeirra hafi
ekki verið í neinu samræmi við fjár-
hagslega getu þeirra. Þegar litið sé
til þess að leigusali gat samkvæmt
leigusamningnum rýmt húsnæðið
fyrirvaralítið yrðu vanskil máttu
þær ekki ætla að skuldbinding
þeirra yrði jafnvíðtæk og raun bar
vitni. Yrði að telja að forsendur
skuldbindingar þeirra, tengsl við
leigutaka, fjárhagsstaða við samn-
ingsgerð og önnur atvik geri það að
verkum að ábyrgðarskuldbindingin
teldist ósanngjöm í skilningi 36. gr.
samningalaganna. Var því fallist á
sýknukröfu.
Gengið lengra
Þarna er tvennt sem einkum vek-
ur athygli. Annars vegar að ábyrgð-
in skuli síður halda vegna tengsla
mægðnanna við leigutakann. Hins
vegar að fjárhagsstaða þeirra er
þær gengust undir ábyrgðina skipti
máli. Er ekki þar með verið að
kippa fótunum undan því sem
tíðkast að menn fái vini og vanda-
menn með venjuleg efni til að gang-
ast í ábyrgðir fyrir sig? Hvernig
gætu lánveitendur treyst á ábyrgðir
ef þær reyndust ógildar við þessar
aðstæður sem ekki verður á
nokkum hátt séð að séu sérstakar?
Það er ekki þar með sagt að það sé
eftirsjá að skuldbindingum af þessu
tagi en þarna er vissulega mun af-
drifaríkari afleiðingar en leiða má af
fyrrgreindum hæstaréttardómum.
Miðað við niðurstöðuna í H
1996.3267 hefði mátt búast við að
þak yrði sett á ábyrgðina í stað þess
að ógilda skuldbindinguna með öllu.