Morgunblaðið - 27.09.1998, Síða 12
12 SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
t
!
I
I
landbúnaðarráðuneytinu og úr varð
að samþykkt var að styrkja 100
bændur til framleiðslu á lífrænt
ræktuðu lambakjöti í fimm ár.
Bændumir fá ákveðinn styrk til að
skapa aðstæður til framleiðslunnar
og er einna erfiðast að mæta kröf-
unni um að enginn tilbúinn áburður
sé borinn á tún. Annars skilst mér
að framkvæmdaáætlun með nánari
útlistun á verkefninu verði auglýst
fljótlega."
Bergþóra viðurkennir að ein aðal-
ástæðan fyrir því að jafn mikill
áhugi sé fyrir lífrænt ræktaða
lambakjötinu í Bretlandi og raun
ber vitni sé að breski kjötmarkaður-
inn hafi orðið fyrir umtalsverðu
áfalli á dögunum. Ekki verður held-
ur beðið boðanna og byrjað að
senda nokkur tonn af tiltæku líf-
rænt ræktuðu lambakjöti til Bret-
lands í ár. „Smám saman er svo
gert ráð fyrir að hægt verði að auka
útflutninginn og hefur verið gælt
við að hægt verði að senda 100 tonn
af íslensku lífrænt ræktuðu lamba-
kjöti á breskan markað eftir fimm
ár. Ég á í sjálfu sér ekki endilega
von á að okkur takist að ná því tak-
marki. Hins vegar er ágætt að
stefna hátt og Bretarnir setja í
sjálfu sér ekkert hámark á innflutn-
inginn. Hvað verðið varðar er ljóst
að greitt er talsvert hærra verð fyr-
ir lífrænt ræktaða kjötið en hefð-
bundna lambakjötið. Ég get nefnt
að núna er verið að greiða 15-20%
hærra verð.“
Hjá Steinþóri Skúlasyni, for-
stjóra Sláturfélags Suðurlands,
kemur fram að Sláturfélagið hafi
verið að ná mjög góðum árangri
með ferskt lambakjöt í loftskiptum
pakkningum á markaði í Danmörku
og Ítalíu síðustu þrjú ár. „Útflutn-
ingsskylda fyrirtækisins hefur verið
130 til 140 tonn á ári. Megnið áf því
kjöti fór til þessara tveggja landa á
síðsta ári,“ segir hann og horfir
bjartsýnn fram á við. „Fyrri hluta
næsta árs er áætlað að setja upp
framleiðsludeild í Danmörku með
það markmið að ná að hækka enn
frekar verð til bænda fyrir útflutn-
ing.“
Ferskir bændur til
móts við neytendur
Eins og Aðalsteinn tæpti á hafa
breyttir neysluhættir haft mest að
segja í tengslum við hnignandi
gengi lambakjöts á innanlands-
markaði. Tölur frá framleiðsluráði
landbúnaðarins sýna að lambakjöts-
sala minnkaði úr 43,4 kg í 24,8 kg á
MEIRI AHERSLA
Á REKSTUR OG
STJÓRNUN BÚA
BÆNDASKÓLINN á Hvanneyri
hefur komið til móts við nýjar
þarfir í sauðfjár- og nautgripa-
rækt með auknu námsframboði
innan greinanna að sögn Snorra
Sigurðssonar kennara í naut-
gripadeildinni.
Snorri segir að greina megi
ákveðna áherslubreytingu í
náminu. „Núna er lögð meiri
áhersla á rekstur og stjórnun
búa s.s. með auknu vægi hag-
fræðitengdra greina og fleiri
þátta sem gera tilvonandi bænd-
ur hæfari til að stunda búrekst-
ur. Einn þeirra þátta sem vaxið
hafa í kennslunni undanfarin ár
er forritanotkun. Þessi kennsla
hefur mælst vel fyrir enda tölvu-
notkun í landbúnaði snar þáttur
í hinum daglega rekstri bú-
anna.“
Snorri minnir á að með auk-
inni menntun nemenda Bænda-
skólans hafi endurmenntun stór-
aukist hin síðari ári. Hann nefnir
því til stuðnings að rúmlega 10%
kúabænda og um 5% sauðfjár-
bænda hafi tekið þátt í nám-
skeiðahaldi árið 1997. „Sem liður
í auknu námsframboði verður í
janúar 1999 tekin upp fjar-
kennsla þar sem starfandi bænd-
um og öðrum verður boðið upp á
sérnám við Bændaskólann á
Hvanneyri. Þar er komið til móts
við þá bændur sem erfitt eiga
með að víkja frá búum sínum og
geta þeir þannig lagt stund á
nám án þess að þurfa að setjast á
skólabekk. Þessari nýjung hefur
verið vel tekið frá því hún var
kynnt og útlit fyrir góða aðsókn
að þessu námi á komandi vor-
önn.“
Tölvuöld í sveitum
Ekki þarf að sækja heim
marga bændur til að gera sér
grein fyrir því að tölvuöldin hef-
ur haldið innreið sína bæði í
sveit og borg. Jón Baldur Lor-
ange, forstöðumaður tölvudeild-
ar Bændasamtakanna, segir að
bændur hafi verið mjög áhuga-
samir um hina nýju tækni. „Hlut-
verk okkar hefur verið að hanna
forrit og hvefja bændur til að
nýta sér tölvutæknina. Miðað við
að allt að helmingur notendanna
hefur ekki notað tölvu áður hef-
ur árangurinn verið ótrúlega
góður,“ segir hann.
Hann segir að tvö forrit hafi
verið mest notuð í nautgripa- og
sauðflárrækt undanfarin ár.
„Annað forritið heitir Fjárvís og
hefur verið notað í sauðfjárra;kt-
inni í um fjögur ár. Bændur færa
inn upplýsingar um bústofninn á
cinkatölvuna heima, gögnin eru
send í tölvutæku formi hingað og
héðan fer uppgjörið aftur til
baka. Forritið hefur verið í þró-
un og á að geta lesið inn slátur-
húsupplýsingar frá því í haust,“
segir hann og nefnir að notend-
um forritsins Qölgi stöðugt. Nú
noti um 300 bændur um landið
allt Fjárvís. Enn fleiri eða á bil-
inu 700 til 800 hafa nýtt sér bók-
haldsforritið Búbót. Þar með er
heldur ekki allt upp talið þvf hjá
búnaðarsamböndunum hefur
með aðstoð forritsins verið fært
bókhald fyrir bændur sem ekki
eiga sjálfir tölvur.
Um þessar mundir er tölvu-
deildin að þróa forrit í naut-
griparæktinni hliðstætt Fjárvís.
„Landsambandið óskaði eftir
samstarfi okkar við að gera
Windows-útgáfu af forritinu
Búrektor í júní í sumar. Vinnan
er hafin og er verið að ljúka við
kröfulýsingu og greiningar-
skýrslu fyrir forritið. Forritið á
að vera skrefi fullkomnara en
Fjárvís því að gert er ráð fyrir
því að bændur geti látið forritið
hringja sjálfvirkt inn upplýsing-
ar, þ.e. mjólkurskýrslur í hverj-
um mánuði. Uppgjörið komi svo
sjálfvirkt til baka. Kerfi hjá okk-
ur haldi utan um hverjir séu
búnir að senda og hverjir eigi
eftir að senda inn upplýsingar,“
segir Jón Baldur en stefnt er að
því að koma fyrstu útgáfu for-
ritsins út í aprfi á næsta ári.
Að lokum sagði Jón Baldur að
héraðsráðunautar væru að taka í
notkun nýtt forrit frá Bænda-
samtökunum. I forritinu væru
samkeyrðar upplýsingar úr
skýrsluhaldi hvers bónda að við-
bættum sláturhúsaupplýsingum.
Með því fengi bóndinn strax yfir-
sýn yfir hvernig sláturlömb röð-
uðust í nýja kjötmatinu og gæti
t.d. séð hvemig lömb einstakra
lirúta kæmu út.
mann á ári frá 1985 til 1997. Á sama
tímabili jókst sala á nautgripakjöti
úr 10,7 kg í 12,7 kg, svínakjöti úr 6,6
kg í 14,5 kg og alifuglakjöti úr 6,3
kg í 7,6 kg.
Hópur fjárbænda tók sig til og
stofnaði Félag ferskra fjárbænda í
því skyni að koma til móts við neyt-
endur með fersku lambakjöti utan
hefðbundins sláturtíma. Eyjólfur
Gunnarsson, bóndi á Bálkastöðum í
Hrútafirði, er formaður félagsins.
„Auðvitað felst töluverð fyrirhöfn í
því fyrir bóndann að bjóða ferskt
kjöt utan hefðbundins sláturtíma.
Bóndinn verður að hleypa fyrr til
kinda og láta oftar slátra. Nú byrjar
slátrun í júlí og stendur yfir til ára-
móta. Slátrun hefur svo farið fram
eftir óskum markaðarins og ástandi
lambanna á veturna. Oft er slátrað
tvisvar til þrisvar sinnum í mars og
aprfl og jafnvel fram í maí. Núna
þurfum við að afsetja svona 500 til
1.000 skrokka á viku. Smám saman
verður þróun í átt til enn lengri slát-
urtíma neytendum í hag. Bændur
hafa talið sig koma ágætlega út úr
framleiðslu á fersku lambakjöti. Ein
ástæðan felst í því að með beinum
samningum við Hagkaup hefur
milliliðum fækkað. Yfírborgunin
hefur verið allt að 50% í júlímánuði.
Verðið hefur farið stiglækkandi
fram að sláturtíð aðra vikuna í sept-
ember. Eftir að hefðbundin slátur-
tíð er yfirstaðin fer verðið aftur
hækkandi til jóla.“
Eyjólfur lítur svo á að framleiðsl-
an sé lýsandi fyrir hvernig bændur
séu að losna úr ákveðnum viðjum
sem þeir hafi lengi búið við. „Að
reka fé í kaupstað og hafa ekki hug-
mynd um hvað gerist fyrr en ávísun
berst til baka. Svona gengur auðvit-
að ekld. Framleiðendur verða að
vera meðvitaðir um hvað markaður-
inn vill og hegða sér samkvæmt
því.“
Sláturkostnaður lækki
Á næstu árum er fyrirséð að verð
á kjöti fari lækkandi vegna sam-
keppni milli kjöttegunda og sér-
staklega vegna fyrirséðrar verð-
lækkunar á svína- og alifuglakjöti
og vegna áhrifa frá vaxandi inn-
flutningi kjötvara, að sögn Stein-
þórs Skúlasonar.
Hann segir að til að lágmarka
áhrif þessarar verðlækkunar á verð
til bænda sé mjög mikilvægt að
hægt sé að lækka sláturkostnaðinn.
Auðveldasta leiðin til þess sé að
fækka sláturhúsum. „Sláturhús á
landinu eru of mörg. Að hluta til er
ástæðan arfur frá liðnum tíma þeg- I
ar sauðfé var fleira, samgöngur og f
samgöngutækni verri. Nú er öldin
önnur og því til stuðnings get ég
nefnt að Sláturfélagið hefur komist
að því að hagkvæmt sé að flytja
sauðfé allt frá svæðinu frá Skeiðar-
ársandi til Blönduóss til slátrunar á
Selfossi. Miðað við afköst ætti að
vera hægt að fækka sláturhúsunum
úr um 20 í 4 til 6 á landinu öllu. Sú .
fækkun ætti að getað skilað því að
slátur- og sölukostnaður lækkaði
umtalsvert eða úr um 100 kr. í 60 til I
70 kr. fyrir kflóið.“
Aðalsteinn segist sammála Stein-
þóri um það að lækka verði slátur-
kostnað. Leiðin geti m.a. falist í
þriggja lína sláturhúsi, þ.e. fyrir
nautgripi, svín og sauðfé. „Með því
móti myndi væntanlega byggjast
upp stétt slátrara eins og víða í Evr-
ópu. Fastur mannskapur myndi
starfa í sláturhúsinu og hægt væri
að slátra sauðfé hluta dags og svo
nautgripum og svínum eftir þörfum I
aðra hluta dagsins. Með breyttu
skipulagi væri ekki aðeins stuðlað
að hagkvæmni í rekstrinum því að
þriggja lína sláturhús þjónar ekld
síður lengingu sláturtímans. Ein af-
leiðing hagkvæmninnar yrði vænt-
anlega að sláturhúsum fækkaði.
Hins vegar tel ég ekki skynsamlegt
að fækka sláturhúsum niður í 4 eins
og Steinþór stingur upp á og minni
á að aðrar leiðir er hægt að fara til
að ná fram hagkvæmni. Ég get
nefnt að sami sláturleyfishafi reki
fleiri en eitt sláturhús.“
Að ofan hefur verið reynt að
draga upp mynd af því hvað hefur
verið að gerast í íslenskri sauðfjár-
rækt og mjólkurframleiðslu síðustu
10 ái-in. Litið hefur verið um öxl og
velt upp möguleikum í framtíðar-
þróun greinarinnar. Eins og kunn- .
ugir eflaust gera sér grein fyrir er 1
þessi umfjöllun þó alls ekki tæm-
andi enda af mörgu að taka. Ekki I
verður hins vegar skilið við bændur
áður en tæpt hefur verið á þeirri
staðhæfingu að offjárfesting í tækj-
um, „tækjadella", hafi háð bændum
á tímabilinu. Viðmælendur blaða-
manns voru flestir sammála um að
full ákaft hefði verið fjárfest í
tækjabúnaði í sveitum á undanföm-
um ámm. Almennt álit var að þró-
unin væri að breytast enda virtust f
bændur hafa betra yfirlit yfir rekst-
urinn og taka í framhaldi af því yfir- *
vegaðri ákvarðanir um tækjakaup.
Ekki væri t.a.m. óalgengt að 2 til 4
bændur festu í sameiningu kaup á
nýtísku heyvinnuvélum.
D'æímii im íhivað'
víftáiriím ©g stefimaftmii
gerá fyií'iir þíig
Upplýsingar
um næringarinnihald:
f 38 gr. bréfi blöndu&u
í 284 ml. af mjóik
% af RDS
A-vítamín Ú3 300,0 38%
B1-vítamín mg 0,6 43%
B2-vítamín mg . 1,0 63%
B6-vítamín mg 0,9 45%
B12-vítamín 33 1,7 170%
C-vítamín mg 23,0 38%
D-vítamín Ú9 1,8 36%
E-vítamín mg 3,3 33%
Bíótín mg 0,06 40%
Fólfn 33 84,0 42%
Níasín mg 6,2 34%
Pantótenat mg 3,0 50%
Steinefni
Kalk mg 607,0 76%
Joö 99 94,0 63%
Járn mg 5,5 39%
Magnesíum mg 132,0 44%
Fosfór mg 534,0 67%
Zink mg 6,3 44%
Orka kj
kcal
Prótín g
Kolvetni g
þar af sykur g
Fita g
þar af mettuð g
Trefjar g
Natríum g
Kalíum mg
Vitamfn
1395
330
18,0
37,1
36,5
12,4
7,5
0,6
0,4
810
A-'Wiíftaiiimiim
Naúnsynlegt til vaxtar og vióhalds
vflfja, viohalclui' mýkt ocj hailbi'lgói
höi'uncls. Vflr slímhúh f mtinni, nflíi,
holsi oc) lungum. Sykur viftnnrn gocin
sýkingum ocj bartir sjónina. Hjálpar vift
myhdun boino.
B2-'V/iiftamiiini (RjbófMvfn)
Hjálpar vift aft nýta orkuna í teftu,
hjftlþsr vift mýnclun mólofna og i'áuftra
bloftkoma. Mnuftsynlcgi iil aft vlftbnlcla
bói'uncll, nóglurn, hári og goftri sjón.
NÍÍaCÚP (Niíisirbvliamin B3)
Síoiir blóftrhsina og Imkkar kólflstról i
blofti, VÍbhalrlur táugíikorfimi, Imkkar
háan blóftpn/sling, hjólpar vlft rriflltingu
og stnftlar Aft hoilbrigfti buftar.
zam
tVljóg mlkllvmgt iyrir ói'iíflmiskörfift,
fiýtir fyrir aft sár grói og cr rnikilvcögt
íyrlr stóftuglolka blóftslns. Vlfthblrli.ir
álkalirio jaínvcogi Ifkíirriíiris.
Nestlé Build-Up er brag&gó&ur drykkur sem inniheldur 1/3 af rá&lögðum
dagskammti (RDS) af 12 vítamínum og 6 steinefnum auk prótíns og orku
Build-Up fyrir alla
Góð aðferð til þess að auka neyslu vítamína og
steinefna þegar þú þarft á aukakrafti að halda.
Hentar börnum (eldri en 3ja ára) sem eldra fólki
og öllum þar á milli.
Build-Up á meögöngu og
meö barn á brjósti
Tryggir að nægilegt magn næringarefna sé til
staöar á þessum mikilvæga tíma
Build-Up eftir veikindi
Sér til þess að þú færð öll réttu næringarefnin til
þess aö ná skjótum bata
Build-Up - fljótlegur drykkur
Eitt bréf út í kalda eða heita mjólk eöa
ávaxtasafa gefur þér fljótlegan og bragðgóöan
drykk stútfullan af næringarefnum