Morgunblaðið - 27.09.1998, Qupperneq 16
16 SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Stormsveip-
urinn Flo Jo
Heimsmethafinn í 100 og 200 m hlaupi
kvenna og þrefaldur ólympíumeistari,
Florence Griffíth-Joyner, lést af völdum
hjartaáfalls sl. mánudag, aðeins 38 ára.
----------------------------------------
Ivar Benediktsson hefur skoðað einstakan
en stuttan feril hennar en á þriðjudaginn
eru 10 ár síðan Joyner setti heimsmet
í 200 m hlaupi sem enn stendur.
Hún tók heiminn með trompi fyrir
tíu árum með ótrúlegum hraða
sínum og nýstárlegri fatatísku.
Hraði hennar var slíkur að á 100 og
200 metra sprettum sáu andstæðing-
arnir í hæla hennar og bak og gátu
aðeins gert sér vonir um það eitt að
hafna í öðru sæti, fyrsta sætið var
frátekið fyrh- þá langfljótustu, Flor-
ence Griffíth-Joyner.
Ótímabært fráfall hinnar 38 ára
gömlu Florence Griffíth-Joyner, eða
Flo Jo, eins og hún var í daglegu tali
kölluð, kom sem þruma úr heiðskíru
lofti fyrir frjálsíþróttamenn og
áhugamenn víða um heim. Pað hefur
orðið til þess að stuttur en einstakur
ferill hennar hefur verið rifjaður upp
en víða hefur hann fallið í skugga af
meintri notkun hennar á hormóna-
lyfjum og af neyslunni hafí hún að
lokum sopið seyðið.
Dolorez Florence Griffith var
fædd í Watts í nágrenni Los Angeles
21. desember 1959. Hún var sjöunda
í röð ellefu systkina. Faðir hennar
var rafvirki og móðirin kennari.
Snemma komu íþróttahæfileikar
hennar í ljós, hún var sterkvaxin og
fljót á sprettinum, en bágur efnahag-
ur fjölskyldunnar kom í veg íyrir að
hún gæti ræktað þessa hæfileika
sem skyldi á unglingsárum. Einnig
bar snemma á þörf hennar fyrir at-
hygli og að skara á einhvern hátt
fram úr öðrum. Á tuttugasta aldur-
sári varð hún að hætta í háskólanámi
án þess að ljúka lokaprófí, fara út á
vinnumarkaðinn og draga björg í bú
fyrir stóra fjölskyldu. Hún réðst sem
gjaldkeri í banka en hafði brennandi
áhuga á spretthlaupum.
Lakkaðar neglur
Á þessum árum hitti hún sprett-
hlaupsþjálfarann Bob Kersee og
hann varð örlagavaldur í lífi hennar.
Kersee sá hæfíleikana og aflaði henni
styrkja til háskólanáms í skóla þar
sem hann var á meðal þjálfara. Undir
stjórn Kersees bætti hún fljótlega
styrk sinn og keppti í fyrsta sinn á
alþjóðlegum vettvangi á heimsmeist-
aramótinu í Helsinki 1983. Þar varð
hún í fjórða sæti í 200 m hlaupi á
22,46 sek. og varð ein bandarískra
kvenna sem náði úrslitum í þessari
grein. Árið eftir varð hún í öðru sæti í
sömu grein á Ólympíuleikunum í Los
Angeles á 22,04 sek. Mesta athygli
vakti hún samt fyrir langar neglur á
fingrum sem voru vandlega lakkaðar
í ýmsum litum.
Eftir að háskólanáminu lauk 1986
hóf hún aftur að vinna í bankanum,
en var í aukastarfí sem
snyrtifræðingur við litla ánægju
Kersees þjálfara, en þar sem litlir
peningar voru í frjálsiþróttum á
þeim ái-um vai' henni nauðugur einn
kostur að segja skilið við frjálsíþrótt-
ir til þess að geta framfleytt sér.
Kersee þjálfari hafði á þessum ár-
um kynnst annarri ungri stúlku sem
hann þjálfaði - Jacqueline Joyner,
sem varð öðru sæti í sjöþraut á
Ólympíuleikunum 1984 og hreppti
fímmta sætið í langstökki á sömu
leikum. Síðar giftust þau og hún tók
upp Kersee-nafnið og varð ein
fremsta íþróttakona sem fram hefur
komið, margfaldur Ólympíu- og
heimsmeistari og heimsmethafí í
sjöþraut og langstökki. Bróðir
Jacqueline, A1 Joyner, ólympíu-
meistai'i í þrístökki karla 1984,
kynntist hins vegar Florence Griffith
í gegnum kunningsskap við Bob
Kersee. Joyner og Florence rugluðu
saman reytum og átti það stærstan
þátt í að hún tók fram keppnisskóna
á ný snemma árs 1987 og hóf æfíng-
ar af meiri krafti en áður undir
stjórn Bobs Kersees. Á heimsmeist-
aramótinu í Róm 1987 keppti hún í
200 m hlaupi og varð í öðru sæti á
21,96. Líkt og á Ólympíuleikunum
þremur árum áður vakti útlit hennar
mikla athygli en auk langi-a og fag-
urlitaðra fingurnagla hljóp hún í
búningi með hettu sem var líkastur
þeim er skautahlauparar klæðast.
Stórstígar framfarir
Pegar árið 1988 gekk í garð var
hún eins og hver annar spretthlaup-
ari í fremstu röð í heiminum. Það
sem einkum vakti athygli á henni var
sérstakur klæðaburðui' þar sem hún
gaf hinni sígildu tísku, stuttbuxum
og hlýrabol, langt nef. Marga rak í
rogastans að sjá hana hlaupa í sund-
bol, eða bikini, á síðum, þunnum
nælonbuxum þar sem aðra skálmina
vantaði ellegar í fyrrgreindum galla
með hettu. Hún var ekki á lista yfír
20 bestu 200 m hlaupara frá upphafi
og ekki á meðal 40 bestu 100 metra
hlaupara þegar þarna var komið
sögu, en sumarið 1988 varð breyting
á. Hún náði að slá heimsmetin svo
hressilega að enn í dag hefur enginn
komist með tærnar þar sem hún
hafði hælana.
Á bandaríska meistaramótinu í
Indianapolis 16. júlí kom hún sem
stormsveipur. I undanúrslitum 100
m hlaupsins hljóp hún á 10,49 sek.,
og hafði þar með bætt sig um 47/100
úr sekúndu á einu ári og sett heims-
met. Gamla metið átti landa hennar
Evelyn Ashford, 10,76 sek., sett fjór-
um ái-um fyrr. Ótrúlegar framfarir
hjá konu sem var nærri 29 ára -
menn vissu ekki hvaðan á sig stóð
veðrið. í úrslitum daginn eftir
tryggði hún sér keppnisrétt á
Ólympíuleikunum um haustið með
því að sigra á 10,61 sek., öðrum
besta tíma sögunnar. Á sama móti
sló hún bandaríska metið í 200 m
hlaupi, hljóp á 21,77 og var aðeins 6
sekúndubrotum frá heimsmeti A-
Pjóðverjanna Maritu Koch og Heike
Drechsler. Áhugamenn um
frjálsíþróttir stóðu á öndinni yfír
þessari fótfráu konu sem engin bönd
virfust halda. Hennar sérgrein var
200 m hlaup en nú var hún skyndi-
lega orðin sú besta í 100 m hlaupi.
Mikið var rætt og ritað um þessar
stórkostlegu framfarir og töldu
margir hana hafa óhreint mjöl í
pokahorninu, en ekkert sannaðist
þrátt fyi'ir að hún færi ítrekað í
lyfjapróf. Stæltur líkaminn vakti
einnig spurningar þar sem hver
vöðvinn hnyklaðist um annan og oft
minnti atgervi hennar frekar á karl-
mann en konu. Áfram hélt hún sínu
striki en efasemdarmennirnir héldu
einnig sínu. Þeir efuðust ekki ein-
göngu um að hún væri „hrein“ held-
ur einnig að vindmælingar í 100 m
hlaupinu í Indianapolis væru réttai'
þar sem nokkur vindur var á vellin-
um, en vindmælir hlaupsins sýndi
logn. Pað var einkennilegt því í
keppni í þrístökki karla, sem fram
fór á sama tíma, var vindur að gera
stökkvurum erfitt fyrir, fór upp í 4,3
m/sek. sem er 2,3 yfír leyfílegum
mörkum. Hvað sem því líður var
metið staðfest og það stendur enn.
Eftir bandaríska meistaramótið
tók eiginmaður hennar, A1 Joyner,
við þjálfun konu sinnar fyrir
Ólympíuleikana í Seoul en Bob
Kersee einbeitti sér að þjálfun Jackie
Joyner sem nú var orðin eiginkona
hans. Keppni í 100 m hlaupi á ÓL í
Seoul var á dagskrá á undan 200 m
hlaupinu. í fyrstu umferð 100 m
hlaupsins setti Flo Jo ólympíumet,
10,88. Hún bar höfuð og herðar yfír
aðra í greininni og hampaði loks gull-
verðlaunum eftir að hafa stungið aðra
keppendur af í úrslitum, hljóp á 10,54
sek. Þá mældist vindur 3 m/sek. og
tíminn því ekki löglegur, en gaf
mönnum sem efuðust um fyrri árang-
urinn byr í seglin.
í 200 m hlaupinu var sama upp á
teningnum, enginn hafði roð við
þessari bandarísku stúlku, ekki einu
Reuters
FLORENCE Griffith-Joyner fagnar öruggum sigri í 100 m hlaupi á ÓL
í Seoul fyrir tíu árum en yfírburðir hennar í hlaupinu voru einstakir -
um þriðjungi úr sekúndu munaði á henni og silfurverðlaunahafanum.
sinni a-þýsku spretthlaupararnir
sem höfðu einokað þessa grein um
tíma og nú hefur verið sannað að
voru allar aldar upp á hormónalyfj-
um frá unglingsárum. Enginn hafði
séð annað eins og Flo Jo bauð upp á
með hraða sínum í undanúrslitum
200 m hlaupsins er hún hljóp vega-
lengdina á 21,56 sek., og bætti
heimsmetið um 15 sekúndubrot. Eitt
hundrað mínútum síðar bætti hún
um betur og hljóp á 21,34 sek. í úr-
slitum og var 38/100, nærri fjórum
metrum á undan silfurverðlaunahaf-
anum Grace Jackson frá Jamaíku
sem var aðeins einum hundraðshluta
frá gamla metinu.
Fáir klöppuðu
Áhorfendur trúðu ekki sínum eig-
in augum og svo ótrúlega sem það
kann að hljóma setti flesta þeirra
hljóða, sárafáir klöppuðu. En Flo Jo
fagnaði ákaft, markmið hennar var í
höfn og eiginmaður hennar og
þjálfari dansaði stríðsdans með hana
í fanginu af fógnuði.
Síðar bætti hún við einu gulli í
safn sitt er hún innsiglaði sigur
bandai'ísku sveitarinnar í 4x100 m
boðhlaupi og var nærri þeim fjórðu
er hún hljóp síðasta sprettinn í
4x400 m boðhlaupi fyrir Bandaríkin
á 48,04 sek.
Eins og venjulega vakti klæða-
burður Flo Jo athygli og neglurnar
löngu sem hún kom með málaði til
Seoul. Á hægi'i hendi voru þrjár
neglur málaðar í bandarísku fánalit-
unum og hinar voru gulllitaðar. En
fyrst og fremst var það einstakur
árangur og spengilegur vöxtur sem
„K0HL 0DER SCHE
Bein útsending (live Ilbertragung) irá kosningavöku Þýska sjónva
Brezel • Allianz • Bie Zeit • Llayd • Sanax • BMW • Wissall • Ííltje • Sauter • AEE • Beck's • Zwillinf,
AÐGANGUR ÓKEYPIS k HAPPDRÆTTI