Morgunblaðið - 27.09.1998, Side 20
20 SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaöið/Golli
SIGRÍÐUFt Anna Þórðardóttir: „Góð menntun er undirstaða þess að þjóðin sé samkeppnisfær og þess að við getum búið tll öflug fyrir-
tæki þar sem starfar hámenntað, vel launað fólk.“
Svigrúm fyrir
sjálfstæðar
skoðanir
Kosningaþing er framundan í vetur og má
búast við að flokkarnir noti ræðustólinn vel
til að efla ímynd sína og sérstöðu. Kristján
Jónsson ræddi við Sigríði Onnu Þórðar-
dóttur, sem tók við starfí formanns þing-
flokks sjálfstæðismanna í vor.
BÚAST má við fjörugu
þingi í vetur, kosningar
verða á næsta ári og
gerjun hefur verið í
flokkaskipan að undan-
fomu, klofningur og sambræðsla á
víxl. Sigríður Anna Þórðardóttir var
í maí kjörin formaður þingflokks
sjálfstæðismanna, fyrst kvenna, og
ljóst að hún þarf ekki að óttast
verkefnaskort. Þingflokksfor-
mennska er ein af helstu ábyrgðar-
stöðum sem þingmenn er ekki sitja í
ríkisstjórn gegna og hefur oft verið
stökkpallur þeirra sem stefna á ráð-
herrastól.
Að sögn Sigríðar hefur öll starfs-
aðstaða þingmanna batnað geysi-
lega á þessum áratug, allir hafa nú
sína eigin skrifstofu og tölvu. Ritar-
ar sjá nú um að skrifa fundargerðir
þingnefnda, ekká þarf að fara langt
aftur í tímann til að sjá nefndar-
menn fyrir sér párandi fundargerð-
ir og álit.
Sigríður er með háskólapróf í ís-
lensku, sagnfræði og grísku og var
árum saman grunnskólakennari.
Hún var með mikla reynslu þegar
hún tók við embætti þingflokksfor-
manns, hafði setið í stjóm þing-
flokksins frá því að hún var kjörin á
þing fyrir Reyknesinga árið 1991 og
var varaformaður hans áður en hún
tók við stjórninni.
-Hverjar verða helstu áherslur
flokksins á næsta þingi? Getum við
búist við samstöðu um stóru málin,
fiskveiðistjóm, gagnagrunn, nýt-
ingu hálendisins, bankasölu og
einkavæðingu almennt? Nú hafa
verið raddir í þingflokknum um
breytta stefnu varðandi kvótakerfið
og fleiri mál.
„Okkur hefur nú yfirleitt auðnast
að ná samstöðu um málin og ég tel
að sá góði árangur sem við erum bú-
in að ná á þessum síðustu tveimur
kjörtímabilum sýni að okkur gengur
vel að ná saman í einstökum málum.
Það er ekki nema eðlilegt í svona
stómm flokki að þar séu ólíkar skoð-
anir og ég tel að það sé gott og hollt.
Sett var á laggimar níu manna
nefnd á vegum þingsins síðastliðið
vor um auðlindagjald og við vonum
að hún skili hugmyndum um ára-
mótin. Skipun nefndarinnar sýnir
að Sjálfstæðisflokkurinn er fús að
skoða þessi mál heildstætt og í mik-
illi alvöm. Fulltrúar okkar í nefnd-
inni era þekktir fyrir að hafa mis-
munandi skoðanir á þessum málum.
Ég vil ekkert segja um niðurstöð-
una en bind miklar vonir við að hún
verði eitthvað gagnlegt sem við get-
um byggt á. Fiskveiðistjórnunar-
kerfíð hefur verið gagnrýnt mikið.
Skoðanakannanir sýna að fólk er
misánægt með kvótakerfið en eng-
inn hefur getað bent á hvað eigi að
koma í staðinn, einhverja lausn sem
hægt verði að sættast á. Það er eng-
inn ágreiningur um að það verður
að stjóma veiðunum og takmarka
sóknina. Við emm að sjá mikinn ár-
angur af því sem við höfum verið að
gera en þetta var mjög erfitt og
sársaukafullt á síðasta kjörtímabili
þegar kvótaniðurskurður var í há-
marki.
Það er í auðlindagjaldsmálinu
sem brýtur á flokknum og hann er
fús að skoða þessi mál með opnum
huga, finna einhverja viðunandi
lausn. Við munum þó alls ekki fara
að brjóta niður kerfi sem hefur
reynst ágætlega eða fara að leggja
auknar álögur á sjávarútveginn sér-
staklega, einhver íþyngjandi gjöld.
Sumir hafa verið að nefna svo háar
tölur í þessu sambandi að það er
útilokað að þær nái fram að ganga.“
Sigríður vill ekki viðurkenna að
framsóknarmenn hafi knúið sitt í
gegn í hálendismálunum. Hún segir
að full samstaða hafi verið í báðum
þingflokkunum um þjóðlendufmm-
varp forsætisráðherra. Umræður
um þessi mál í þjóðfélaginu hafi ver-
ið á villigötum. Stjórnsýslulega séu
sveitarfélögin sá aðili sem fari með
skipulagsmál og síðan bætist við
svæðisskipulag sem Jeysi þau mál
sem út af standi. Óeðlilegt hefði
verið að láta ekki aðliggjandi sveit-
arfélög halda utan um skipulagsmál
hálendisins, þeim sé fullkomlega
treystandi fyrir því. Ef einhver
sveitarfélög misstíga sig í þessum
efnum verður það hins vegar mjög
alvarlegt mál.“
Hún er spurð hvort hún sé ánægð
með þá lendingu sem náðist í
bankasölumálunum. „Já, miðað við
aðstæður er ég þokkalega ánægð en
hefði sjálf verið tilbúin að ganga
lengra. Ég held að þetta hafí verið
viðunandi lausn og ljóst sé að við
munum halda áfram á braut einka-
væðingar. Þetta er aðeins spurning
um það hversu hratt á að fara. En
það er búið að marka stefnuna,
bankarnir era orðnir að hlutafélög-
um og verið er að selja hlut í Lands-
bankanum og Búnaðarbankanum.
Viðbrögð almennings sýna að fólk
vill eignast hlut i bönkunum og það
er mjög mikilvægt. Sparnaður í
landinu eykst og tryggt er að eign-
araðildin verði mjög dreifð."
Elnkavæðlngarstefna
sjálfstæðismanna skýr
- Hvernig fmnst þér að stefna
flokksins eigi að vera í þessum mál-
um í næstu kosningum? Er nóg að
nota almennt orðalag um að halda
skuli áfram á braut einkavæðingar,
þ.á m. að bankarnir verði seldir,
eða fínnst þér að setja þurfí ákveðin
tímamörk?
„Stefna Sjálfstæðisflokksins er
alveg Ijós, við viljum einkavæða
bankana. Við erurh núna í samvinnu
við annan flokk og þar verða menn
að ná samkomulagi en stefna okkar
er skýr. Ef við réðum ein værum við
kannski búin að einkavæða bank-
ana.
Og auðvitað viljum við einkavæð-
ingu á fleiri sviðum, það er ekkert
launungarmál og vildum að hún
gengi hraðar fyrir sig. Upp á
síðkastið hafa heyrst sterkar raddir
úr heilbrigðiskerfinu sem benda á
að ástæða sé til að skoða meira en
gert hefur verið aukna einkavæð-
ingu þar. Ég teldi það mjög skyn-
samlegt að hlusta á þessar raddir.
Við sjálfstæðismenn höfum ekki
verið með heilbrigðisráðuneytið
lengi og ég tel einsýnt að þessi mál
verði rædd á næsta landsfundi."
- Nú er það Ijóst að hugmyndir
framsóknarmanna um sölu á hlut í
Landsbankanum til SE-bankans
sænska komu sjálfstæðismönnum á
óvart. Er samstarfíð við þingflokk
framsóknarmanna nógu gott?
. „Ég tel að umræðan um sölu
bankanna hafi farið mjög bratt af
stað og farið fram úr því sem menn
voru raunvemlega að gera. En sam-
starfið milli stjómarflokkanna er
mjög gott, það ríldr gagnkvæmt
traust og tillitssemi. Samstarfið
milli þingflokksformannanna hefur
verið mjög gott og verður það ör-
ugglega áfram í vetur.
Auðvitað koma öðm hverju upp
einhverjir núningsspunktar, annað
væri óeðlilegt. Þá em málin rædd
og leidd til lykta. Ef til vill má segja
að bankamálin séu dæmi um þetta.“
- Stundum er sagt að Sjálfstæðis-
flokkurinn sé með fjöldafylgi eins
og krataflokkarnir á hinum Norður-
löndunum vegna þess að hann hafí
fylgt svipaðri stefnu í velferðarmál-
um og þeir. Telurðu að einkavæðing
í heilbrigðis- og menntamálum geti
haft í för með sér allt annað samfé-
lag hér en við þekkjum nú, eitthvað
sem minni á Bandaríkin og myndir
þú vilja ganga svo langt?
„Ég myndi ekki vilja kerfi eins og
notað er í Bandaríkjunum. Við eig-
um alltaf að sníða kerfið að okkar
þörfum og nota okkar aðferðir. En
ég er ekki sammála því að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi tekið upp ein-
hverja kratastefnu frá Norðurlönd-
um. Flokkurinn er einstakur í
flokkaflóru Norðurlandanna og hef-
ur algera sérstöðu. Hugsjónir hans
hafa átt mjög greiðan aðgang að
þjóðinni og stefnan átt djúpan sam-
hljóm hjá henni.
Flokkurinn hefur svo sannarlega
verið að taka til í ríkiskerfinu. Búið
er að gerbreyta mörgu í rekstri
þess og koma á betri vinnubrögð-
um. Við sjáum þetta meðal annars á
fjárlagatillögunum fyrir næsta ár,
við emm í fyrsta sinn um langt
skeið að skila afgangi og borga
verulega niður skuldir. Flokkurinn
hefur sýnt það og sannað að honum