Morgunblaðið - 27.09.1998, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1998 21
0 „Við erum núna í samvinnu við annan
flokk og þar verða menn að ná sam-
komulagi en stefna okkar er skýr. Ef við
réðum ein værum við kannski búin að
einkavæða bankana.“
0 „Það er ljóst að þjóðin kann að meta það
sem við erum að gera. Það ríkir efna-
hagslegur stöðugleiki, lág verðbólga,
aukinn kaupmáttur og næg atvinna.“
er hægt að treysta til að halda skyn-
samlega á stjórn ríkisins og gæta
þess að ríkisbáknið þenjist ekki of
mikið út.“
Strangar kröfur
til gagnagrunns
- Hvernig er staðan í sambandi
við frumvarpið um miðlægan
gagnagi'unn á heilbiigðissviði? Nú
er komið í ljós að málið er marg-
þættara og flóknara en talið var í
vor, vai• það kannski bráðræði að
ætla að keyra það í gegn á síðasta
þingi?
„Mér fínnst ofsagt að það hafí
staðið til að keyra frumvarpið í
gegn í vor. Ég sit í heilbrigðis- og
trygginganefnd og nefndin fór strax
vandlega í saumana á málinu. Ég er
mjög jákvæð gagnvart því, það vil
ég taka fram strax. Frumvarpið var
lagt fram og var unnið mjög ná-
kvæmlega og vandlega í þingnefnd-
inni en menn töldu sig einfaldlega
þurfa meiri tíma. Þess vegna var
málið ekki klárað síðastliðið vor,
ákveðið var að skoða það betur.
Miklar umræður hafa verið í
gangi og ég tel að það sé mjög gott.
Augu fólks hafa opnast fyrir því að
við þurfum að vanda okkur í með-
ferð persónuupplýsinga. Kröfurnar
sem gerðar eru til miðlæga grunns-
ins eru miklu strangari en við höf-
um verið að gera annars staðar.
Frumvarpið um gagnagrunn er
gríðarlega stórt og mikilvægt mál.
Við erum að fara ofan í ákveðnar
grundvallarspurningar. Mér fínnst
verkefnið óskaplega spennandi og
það er stórkostlegt ævintýri að sjá
hvernig Islensk erfðagreining hefur
vaxið. Velmenntaðir Islendingar,
sem hafa dvalið langdvölum erlend-
is og séð fram á að fá ekki störf við
sitt hæfí hér heima, hafa flykkst
hingað heim.
Eg hef undrast viðbrögð sumra,
þau hafa verið mjög harkaleg gegn
gagnagrunninum og ég hef spurt
sjálfa mig hvernig á því standi.
Mest furðaði ég mig á því í vor þeg-
ar ýmsir sögðu: Það er allt í lagi að
Háskóli íslands geri þetta en ekki
einkafyrirtæki. Mér finnst þetta
engin rök, þessi fyrstu viðbrögð
voru sláandi og ég var mjög ósátt
við þennan málflutning.
Sumir gagnrýnendur frumvarps-
ins segja að einstaklingurinn njóti
ekki nægilegrar persónuvemdar í
miðlæga grunninúm og vernda beri
trúnaðarsamband læknis og sjúk-
lings, það geti verið í hættu. Komið
hafa fram ýmis önnur rök, bæði
með og móti hugmyndinni. En ég
tel að persónuverndin sé mjög vel
tryggð með ákvæðunum um dulkóð-
un í frumvarpinu eins og það er
núna. Hins vegar hef ég sett spurn-
ingamerki við sérleyfið en ég býst
við að það sé mjög eðlilegt að
ákvæði séu um tímabundið sérleyfi.
Á þessari stundu er ég ekki tilbúin
að segja hve langur tíminn á að
vera, nú er gert ráð fyrir 12 árum.
Við getum nýtt menntun og þekk-
ingu þjóðarinnar á þessu nýja sviði.
Að undanförnu höfum við verið að
sækja svo mikið fram í nýjum grein-
um, ég nefni líka upplýsingatækn-
ina. Sjálf hef ég beitt mér mjög í
menntamálum, það er málafiokkur
sem ég tel að við höfum verið að
vinna geysilega vel í undanfarin tvö
kjörtímabil. Góð menntun er undir-
staða þess að þjóðin sé samkeppnis-
fær og þess að við getum búið til
öflug fyrii-tæki þar sem starfar há-
menntað, vellaunað fólk.
Þetta gæti í framtíðinni orðið
okkar stóriðja. Það er beint sam-
band á milli menntunarstigs hverr-
ar þjóðar og efnahagsins."
Engar hópsálir
- Nú er kosningaþing framundan.
Oft er sagt að þingmenn verði frek-
ir til fjörsins á kosningaþingi, vilji
eyða hraustlega af ríkisfé til að sýna
kjósendum að þeir láti til sín taka.
Nú er talað um að draga þurfi úr
þenslu ogrætt um aðjafnvei í vetur
geti orðið að stíga á hemlana.
Hversu öflugur er flokksaginn?
„Ég held að það sé ekkert sér-
stakt sem bendi til þess að við þurf-
um að grípa til óþægilegra ráðstaf-
ana í vetur þótt viðskiptahallinn sé
auðvitað alvarlegur. En um
flokksagann get ég sagt að við erum
engar hópsálir í Sjálfstæðisflokkn-
um og þess hefur aldrei verið kraf-
ist. Skoðanir hafa fengið að njóta
sín og menn hafa verið ófeimnir við
það. Hjá okkur er alltaf svigi-úm
fyrir sjálfstæðar skoðanir. Flokkur-
inn er bæði víðsýnn og frjálslyndur
en jafnframt umburðarlyndur.“
- Geturðu ímyndað þér hvað
þyi-fti að gerast til að virkilega yrði
lamið á fíngurna á þingmanni fyrír
að stíga út aflínunni?
„Já, en það hvarflar ekki að mér
að fara að nefna dæmi um slíkt!"
Staðan á þingi hefur breyst mjög
síðustu mánuðina, gerjun er á
vinstrivængnum og nýir þingflokk-
ar hafa orðið til. Sigríður er spurð
hvaða áhrif þetta muni hafa á störf-
in á þingi.
„Það á eftir að koma í ljós. Ég tel
að lánleysi vinstrimanna í málefna-
starfinu sem þeir hafa verið að
vinna að síðustu vikurnar hafi verið
ótrúlegt. Kostimir í pólitíkinni
gætu orðið ennþá skýrari í vetur en
verið hefur oft áður.
Það ríkir upplausn til vinstri.
Nýjasta uppákoman, þegar sameig-
inlega framboðið var að kynna mál-
efnavinnuna, var með ólíkindum.
Þarna er um að ræða marklausan
og óábyrgan loforðalista og menn
voru hreinlega teknir í bólinu í
kynningunni sem ég tel að hafi bæði
verið klaufaleg og illa undirbúin.
Það var eitthvert fum á fólki, búið
var að byggja upp miklar væntingar
hjá stuðningsmönnum en efndirnar
reyndust síðan mistök á mistök of-
an.“
- En má ekki segja að það geti
verið óheppilegt fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn að hafa ekki burðugrí and-
stæðing að kljást við en væntanlega
vinstrífylkingu? Linast hann
kannski og verður allt of sjálfum-
glaður?
„Það er mjög mikilvægt að kost-
irnir séu skýrir og ég tel að þeir séu
það. Sjálfstæðisflokkurinn hefur
ekki verið jafnsterkur lengi. Það er
margt sem kemur til. Við erum með
mjög öflugan foringja og flokkurinn
hefur komið mjög vel út úr síðustu
tveim kosningum og hefur haft rík-
isstjórnarforystu í sjö ár. Það er
ljóst að þjóðin kann að meta það
sem við erum að gera. Það ríkir
efnahagslegur stöðugléiki, lág verð-
bólga, aukinn kaupmáttur og næg
atvinna."
Misvægi atkvæða
Ákvæði eru í stjórnarsáttmálan-
um um að dregið verði úr misvægi
atkvæða. Sigriður er spurð hvort
vænta megi þess að tillögur um
aukið vægi atkvæða í Reykjavík og
á Reykjanesi í samræmi við búsetu-
þróun verði samþykktar fyrir vorið
og þá bornar undir kjósendur í
þingkosningunum á næsta ári. Hún
segir þetta mál brenna mjög á þing-
mönnum, ekki síst í tveim áður-
nefndum kjördæmum og unnið sé
að hugmyndum þessa efnis, sumum
mjög róttækum.
„Hugmyndirnar ganga m. a. út á
að fækka landsbyggðarkjördæmum
og ég tel að þessari vinnu verði að
ljúka með lagabreytingu sem færi
þetta í betra horf. Það er ekki hægt
að verja það fyrir kjósendum hér í
þéttbýlinu að málin verði áfram eins
og þeim er háttað núna. Þröngir
hagsmunir einstakra þingmanna
mega ekki koma í veg fyrir breyt-
ingar í þessu réttlætismáli.“
- Kemur til greina að kjósa
tvisvar á næsta árí, eins og gert var
1959, til að breytingamar gangi
strax í gildi en ekki þurfí að bíða til
ársins 2003?
„Ég tel að þessar breytingar séu
svo veigamiklar að við þurfum að-
lögunartíma og þess vegna rétt að
kjósa ekki eftir nýju kerfi fyrr en
2003. Þá fá menn svigrúm til að laga
sig að breytingunum og auðveldara
verður að ná samkomulagi um þær.
Þetta eru róttækar hugmyndir,
kjördæmin verða gríðarlega stór ef
þær verða að veruleika. Rætt hefur
verið um að þingmenn fengju aukna
aðstoð til að sinna starfinu, t.d.
gætu þeir verið með starfsfólk úti í
kjördæmunum.“
- Að síðustu, hyggstu bjóða þig
fram til varaformennsku í Sjálf-
stæðisflokknum á næsta lands-
fundi?
„Þessa dagana er ég meira að
hugsa um prófkjör í mínu kjör-
dæmi, Reykjanesi. Ég er formaður
þingflokksins og formaður mennta-
málanefndar, hef gegnt mörgum
öðrum trúnaðarstöðum fyi-ir flokk-
inn og er tilbúin að takast á hendur
hvert það starf sem hann trúir mér
fyrir.“
í dcigfrá kl. 14-17 mun Ingi Þór og
starfsfóll{ Þórshallar taka á mótigestum
og gangandi með léttum veitingum
(líka fyrir börnin), ráðgjöf, myndum,
matseðlum os brosi á vör.
Vegleg hlaðborð fyrir hvers konar tilefni
—---¥M
ÞÓRSHÖLL
Þóishöll - Veislusalir
Brautarholt 20
Sími: 511-1919
Fux: 511-1920
#1 wkbrH £ / j m
i ;|§É| i-iy -