Morgunblaðið - 27.09.1998, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1998 27
„Engin vandamál
fylgja Islendingunum“
„ÞAÐ eru engin sérstök vanda-
mál sem fylgja Islendingunum,"
segir Áse Jensen, bæjarstjóri
Hanstholm, ákveðin og undir þau
orð hennar tekur Hans Jorgen
Ravnborg, félagsmálastjóri bæj-
arins. Hins vegar viðurkenna þau
fúslega að ákaft aðstreymi fs-
Iendinga á stuttum tíma fyrir
nokkrum árum hafi valdið bæjar-
yfirvöldum áhyggjum og vanda,
sem nú hafi verið leystur.
„Það sem kom okkur mest á
óvart,“ segir Áse Jensen, „var
hve íslendingarnir áttu erfitt með
að tala dönsku. Við héldum að
það væri ekkert mál, þar sem
danska er kennd í íslenskum skól-
um, en það reyndist öðru nær.“
Áse Jensen, húsmóðirin sem
gerðist bæjarstjóri við fádæma
vinsældir, er hressileg í fasi.
„Hún notar fremur skynsemina
en lagagreinarnar," segir Ravn-
borg, þegar hann lýsir henni og
undir það tekur bæjarstjórinn
Morgunblaðið/Sigrún Davíðsdóttir
ÁSE Jensen, bæjarstjóri í Hanstholm, og Hans Jörgen Ravnborg,
félagsmálastjóri.
gjarnan. Það dugi vel til að stýra
500 bæjarstarfsmönnum.
Höfnin er lífæð bæjarins
Hin þijátíu ára gainla höfn er
nú stærsta útgerðarhöfn Dan-
merkur og Áse Jensen segir það
hafa verið spennandi og skemmti-
legt að fylgjast með uppbyggingu
bæjarins og hún trúi á framtíðar-
möguleika hans. „Hafnarstæðið
er gott og um höfnina liggja leiðir
í allar áttir. Bærinn er ekki nein
útstöð, heldur þungamiðja alls ná-
grannasvæðisins og á því er vax-
andi skilningur."
Frá bænum ganga ferjur til
Noregs, að ógleymdum Smyrli,
sem eftir nokkurra ára hlé siglir
nú aftur til Islands, Færeyja og
Skotlands og nú ekki aðeins
vikulega allt árið, heldur stendur
til að vera með tvær ferðir á
viku. „Við lítum á okkur sem hlið
Norður-Atlantshafsins,“ bætir
Áse Jensen við, „enda sverjum
við okkur í ætt fólks á norður-
slóðum og það er vafalaust þess
vegna sem íslendingum hefur
fallið vel hér.“
Alls koma 80 prósent af tekj-
um bæjarins frá sjávarútvegi og í
bænum eru 45 fiskvinnsluhús.
„Þetta mikla vægi einnar at-
vinnugreinar er mjög óvenjulegt
í Danmörku," segir hún.
Ravnborg félagsmálastjóri
bendir á að bæjarfélagið sé ungt
og um leið sveigjanlegt samfélag.
„Við miðum stundum við að það
sé auðveldara að fá fyrirgefn-
ingu en leyfi. Ætli það sé ekki
kjarninn í Hanstholm-laginu.“
Skylda að læra dönsku
En hvernig var það þá fyrir
rúmlega sex þúsund manna bæj-
arfélag að taka á stuttum tima
við næstum 200 aðkomumönnum?
Ekki alveg auðvelt, viðurkenna
bæði Áse Jensen og Ravnborg.
Bæjarstarfsmenn fóru fyrst að
verða varir við aðflutning Islend-
inganna 1993, en 1994 jókst hann
til muna og þegar flest var
bjuggu um 180 Islendingar í bæn-
um. Utlendingar eru ekkert ný-
næmi í bænum, þar sem fólk af 25
þjóðernum býr, en þessi mikli
straumur á stuttum tíma var ný-
næmi.
Vandinn sem við bænum blasti
var einkum að fá börnin til að
samlagast í skólanum og yfirleitt
voru samskiptin við Islendinga
erfið vegna málaörðugleika.
Tungumálið var tvímælalaust erf-
iðasti hjallinn og bæjarstjórinn
dregur ekki fjöður yfir að það
hafi komið þeim á óvart, þar sem
þau vissu að danska væri skyldu-
námsefni í skólum á íslandi. í
skólanum var kostað til auka-
kennslu fyrir islensku krakkana
og þeim fullorðnu var líka boðið
upp á dönskunámskeið.
„Þeir, sem ekki vildu læra
dönsku af fúsum og fijálsum
vilja, var settur stóllinn fyrir
dyrnar," segir Ravnborg. „Engin
dönskukunnáttta, engin opinber
aðstoð. Svo einfalt var það.“
Hugsun að baki þeirrar ákvarð-
anar var að sá sem ekki lærði
málið væri heldur ekki sjálf-
bjarga og engum væri greiði
gerður með að viðhalda slíku
ástandi.
„Islendingarnir hafa líka skilið
að það er ekki hægt að búa hér
án þess að kunna málið,“ segir
Ravnborg. Það fréttist af vinnu-
stöðum, sem voru að gefast upp á
að ráða Islendinga vegna tungu-
málaörðugleika. Nú eru allar
slíkar hindranir úr vegi. I fyrra
var ráðinn félagsráðgjafí, sem
sérstaklega hefur augu á vanda
sem hlýst af erlendum málum al-
mennt.
í dönskum bæjarfélögum, þar
sem mikið er um islenska náms-
menn, hefur það vakið ergelsi að
makar þeirra mæti á félagsmála-
skrifstofur og telji sig eiga rétt til
eins og annars í félagskerfinu.
Ravnborg kannast ekki við slíka
framkomu Islendinganna í Hanst-
holm. „Þvert á móti sjáum við að
á bæjarskrifstofumar kemur
fólk, sem er að sækja skattkortið
sitt. Það hefur þegar fengið
vinnu og húsnæði án milligöngu
okkar, en oft með hjálp annarra
landa. Það er af og frá að við
verðum varir við að íslendingar
komi til Hanstholm til að reyna
að lifa á kerfinu.“
fslendingarnir
traustir í vinnu
Eftir því sem þau Áse Jensen
og Ravnborg sjá best ríkir nú al-
mennt stöðugleiki í fslendinganý-
lendunni. „Það stafa ekki fleiri
vandamál af Islendingum en
Dönum og þeir skera sig ekki úr
á neinn hátt,“ segir Ravnborg.
Hann segir að í byrjun liafi hins
vegar nokkrir Islendingar átt við
margvíslegan vanda að stríða, en
þeir sem vandræði hafi stafað af
séu fluttir.
Áse Jensen nefnir einnig að
bankarnir hafi orðið varir við að
ýmsir íslendinganna virtust van-
ir að taka út gleðina fyrirfram,
lifa um efni fram, en slíkt sam-
ræmist illa danskri forsjálni og á
því hafi verið tekið af festu.
Islendingarnir eru næstum
undantekningalaust i vinnu og
frá atvinnurekendum bæjarins
heyra þau vel látið af Islending-
um. Þeir þyki traustir og dug-
andi til vinnu. Þeir eru líka kær-
komin viðbót að því leyti að þeir
bæði búa í bænum og vinna þar.
Hvorki Áse Jensen né Ravn-
borg hafa á tilfinningunni að ís-
lendingarnir séu einangraðir.
Þeir hafi smátt og smátt fundið
sér vini og kunningja, bæði Is-
lendinga og Dani og taki þátt í
því, sem fram fari í bænum, til
dæinis íþróttaiðkunum. Börnin
hafi aðlagast vel í skólanum, eigi
danska vini og oft tengist fjöl-
skyldurnar í gegnum vináttu
barnanna. Á bæjarskrifstofunum
í Hanstholm er því allt hið besta
af Islendingunum að segja.
o4_ÆRÐU>——
L E T T A
DANSSVEIFLU
Á TVEIM
DÖGUM!
Áhugahópur F“™ f"" ™
LkJæstu
námskeið
um helgina
7700
dansþátttöku
Netfang: KomidOgDansid@tolvusteli.is
Heimasíða: wwwtolvusteli.is/KomidOgDansid/
Eins árs ábyrgó og
FM. Mattsson af,
í Mora, Svíþjóð
stofnsett 1876
Hitastýrð blöndunartæki
mi fyrir baðkör og sturtur.
ryóvörn innifalin í verói
Baðkarstæki
kr. 13.860,- stgr.
Sturtutæki
kr. 10.470,- stgr.
VERSLUN FYRIR ALLA
Við Fellsmúla
Sími 588 7332
Betri MUSSO - Betra verð
602 STD
Verð frá kr. 2.265.000
Staðalbúnaður 602 ELX: Turbo m/millikæii ♦ Sjálfskipting
ABS-hemlakerfi ♦ Loftpúði fyrir ökumann ♦ Rafstýrður millikassi
Dana Spicer hásingar ♦ Gasdemparar ♦ Diskabremsur á öllum hjólum
Álfelgur og 30“ dekk ♦ Rafmagnsrúður og rafstýrðir hliðarspeglar
Útvarp, geislaspilari og þjófavarnarkerfi ♦ Viðarklætt mælaborð
Leðuráklæði á sætum ♦ Stig bretti ♦ - og margt fleira
602 EL
Verð frá kr. 2.665.000
602 ELX
Verð kr. 3.198.000
Finndu muninn á buddunni
Umboðsmaður j.Þ. bílar
Selfossi, sími 482 3893
; e
Bílastúdíó hf.
Faxafeni 14, 108 Reykjauík,
sími 568 5555, fax 568 5554.
Opið kl. 10-19 mán.-föst., ki. 11-14 laugard