Morgunblaðið - 27.09.1998, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1998 37 '
^rVERLENT
Liðhlaupi ljóstrar
upp um olíusmygl
Bókhaldsnám
Bókhald
2
The Daily Telegraph.
BRESKA leyniþjónustan, MI6,
kom fyrr á árinu upp um ráðabrugg
Iraka um að komast fram hjá olíu-
sölubanni Sameinuðu þjóðanna, eft-
ir að háttsettur embættismaður
flúði land.
Maðurinn sem pm ræðir, Sami
Salih, hafði talið Irani, hina fornu
fjandmenn íraka, á að stunda „olíu-
þvætti“, með því að flytja út íraska
olíu sem hún væri írönsk. Salih not-
færði sér einnig víðfeðmt net lepp-
fyrirtækja til að smygla olíu til
Vesturlanda. Agóðinn af olíusöl-
unni, sem gat numið allt að 60 millj-
ónum íslenskra króna á dag, var
lagður inn á bankareikning í
Jórdaníu og notaður til að kaupa
vopn og fjármagna glæsilíf Sadd-
ams Husseins, forseta Iraks.
En þar kom að Salih féll úr náð-
inni hjá Saddam og var sakaður um
njósnir. Honum var varpað í fang-
elsi, þar sem hann var beittur pynt-
ingum, en slapp þaðan eftir að eig-
inkona hans hafði mútað öryggis-
verði. Hann var fluttur tii Kúrdist;
ans, þar sem hann var látinn laus. í
febrúar si. komst hann yfir landa-
mærin tii Jórdaníu, þar sem hann
leitaði skjóls í breska sendiráðinu
og var í kjölfarið yfirheyrður af
bresku leyniþjónustunni.
Eldflaugar faldar
„undir sundlaugum“
Auk þess að ijóstra upp um
hvernig Irakar færu í ki'ingum olíu-
sölubann SÞ greindi Salih meðal
Rannsókn morðmáls
í Noregi
A annað
hundrað DNA-
próf gerð
NORSKA lögi-eglan hyggst taka
blóðprufur úr allt að 100 mönnum
vegna óhugnanlegs morðmáls í
Norður-Noregi. Þegar hefur DNA-
rannsókn á blóði 38 manna verið bor-
in saman við sýni af morðstaðnum en
lögregla hefur þó ekki hreinsað
mennina af grun en þeir eru allir
íbúar í litlu þorpi suður af Tromso.
Er þetta með umfangsmestu DNA-
rannsóknum sem gerðar hafa verið
þar í landi.
í júlí sl. fannst lík 59 ára konu í
brunarústum heimOis hennar. Er
farið var að rannsaka brunann kom í
ljós að konan hafði verið myrt og var
í fyrstu talið að innbrotsþjófur hefði
verið á ferð. Frekari rannsókn leiddi
hins vegar í ljós að konunni hafði
verið nauðgað og að morðinginn
hefði snúið aftur nokkrum dögum
seinna tii að kveikja í húsinu og fela
þannig ummerkin.
Rúmum mánuði eftir að konan var
myrt, fundust sýni, sem lögregla tel-
ur nægja til sakfellingar og voru allir
karlmenn í Sjovegan, þar sem konan
bjó, og nágrenni beðnir um að leggja
fram fjarvistarsönnun. Þeir sem ekki
gátu gert það, voru beðnir um að
gefa blóð til að bera saman við sýni
lögreglu. Hefur enginn mannanna
neitað því.
4
&
YOGA
Námsskeið
Jóhönnu
hefst aftur
þann 6. okt.
í Mætti
Grafarvogi
skráning og ,
upplýsingar '
í síma:
567-7474
Árangursrik leið til að vinna á kvíða og öðlast
meðvitund um eigið lif, vclfcrð og hamingju
annars í smáatriðum frá skipulagi
öryggisgæslunnai' um Saddam
Hussein og lýsti herbergjaskipan í
hinum gríðarstóru forsetahöllum í
Bagdad. Hann tjáði leyniþjónustu-
mönnum ennfremur að stjórnvöld í
írak beittu ýmsum ráðum til að fela
langdrægar eldflaugar fyrir vopna-
eftirlitssveitum Sameinuðu þjóð-
anna. „Eg hef séð eldflaugar faldar
um allt land. Ég hef séð þær
geymdar undir sundlaugum og á
bóndabæjum", sagði Salih.
Salih skýrði MI6-mönnum
einnig frá gríðarlegri kynhvöt
Saddams Husseins. Hann væri
hrifnastur af konum með stór
brjóst, en væri heldur ekki frá-
hverfur myndarlegum ungum
drengjum, að því er segir í frétt
The Daily Telegraph.
Gölluð
klukkugen
gera mönnum
erfitt að vakna
Vísindamenn hafa komist að því
livers vegna margur á erfitt með
að vakna á morgnana. Klukku-
genin eru gölluð.
Rannsókn á 4.000 manns sem
voru hvað afkastamestir eftir að
skyggja tók leiddi í ljós, að svo-
nefnd klukkugen í þeim, sem
stjórna dagtakti líkamans, voru
stökkbreytt.
Niðurstaðan gæti leitt til þess
að skynsamlegt væri fyrir fólk að
fara í litningapróf til að auðvelda
þeim að velja sér vinnutíma.
Vísindamenn, sem skýra frá
niðurstöðum rannsókna sinna í
tímaritinu S/eep, eða Svefn, segja
að hugsanlega sé nú að hluta til
fundin skýi-ingin á svefnleysi.
Segi innri klukka manns honum
að hann eigi ekki að fara að sofa
fyrr en hálftvö að nóttu sé ekki
að undra þó þeim komi ekki dúr
á auga reyni þeir að fara í hátt-
inn hálfellefu á kvöldin.
Þetta námskeið er framhaldsnámskeið í
bókfærslu og er fyrir þá sem hafa áhuga
á bókhaldi og þá sem þurfa á því að halda
að færa og vinna bókhald til uppgjörs.
Lýsing
Þjálfun í færslu dagbókar. Reikningum fjölgaö og
færöar nokkuð flóknar færslur. Reikningsjöfnuður
kynntur og farið verður í lokafærslur. Með þessu
eru tekin raunhæf verkefni úr atvinnulífinu sem
samhliða eru unnin í tölvubókhaldi og bókfærslu.
Reikningslyklar verða búnir til og settir upp.
Nemendur vinna með þessu raunhæft verkefni úr
bókfærslunni þar sem þeir verða að forvinna, færa
og gera ársreikning.
Námskröfur og námsmat
Þátttakendur þurfa að hafa bókhaldsþekkingu fyrir
námskeiðið. Námsmat miðast við 80% mætingu.
Kennslufyrirkomulag
Kennt er mánudaga og fimmtudaga frá kl. 18:30-
21:30. Námskeiðið hefst
28. september og því lýkur 17. desember. Námið
er 96 kennslutímar.
Verð
Námskeiðið kostar kr. 82.000. Innifalin í verði eru
öll námsgögn. Gert er ráð fyrir að þátttakendur
gangi frá kr. 10.000 staðfestingargjaldi til að
staðfesta þátttöku. Skólinn býður upp á að hægt
sé að borga nárhskeiðið með Visa/Euro
raðgreiðslum í allt að 24 mánuði. Ef námskeiðið
er staðgreitt er gefinn 5% staðgreiðsluafsláttur.
VIÐSKIPTA- OG
TÖLVUSKÓLINN
Faxafeni 10 • Framtíðin • 108 Reykjavík
Sími: 588 5810 • Bréfasími 588 5822
H O N D A
5 d y r a 2.0 i
12 8 h e s t ö fl
Fjórhjóladrifinn fjölskyldubíll - hannaður fyrir íslenskar aðstæður
Innifalið í verði bílsins
s 2.01 4 strokka 16 ventla léttmálmsvél
s Loftpúðar fyrir ökumann og farþega
^ Rafdrifnar rúður og speglar
s ABS bremsukerfi
s Veghæð: 20,5 cm
s Fjórhjóladrif
s Samlæsingar
s Ryðvörn og skráning
v' Útvarp og kassettutæki
✓ Hjólhaf: 2.62 m
S Lengd: 4.52m, Breidd: 1.75m, Hæð: 1.675m
samanburð
Verð á götuna: 2.285.000.- með abs
Sjálfskipting kostar 80.000,-
0]
HONDA
Sími: 520 1100
Umboðsaðilar:
Akureyri: Höldur, s: 461 3014 • Akranes: Bílver, s: 431 1985 • ísafjörður: Bílasala Jóels, s: 456 4712
Keflavík: B.G. Bílakringlan, s: 421 1200 • Egilsstaðir: Bíla og Búvélasalan, s: 471 2011
Aukabúnaður á mynd: Átfelgur og þakbogar