Morgunblaðið - 27.09.1998, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1998 41
sumrin og vann að búi foreldra
sinna á Vatnsskarðshólum, þá fór
hún í kaupavinnu í nokkur sumur,
var m.a. tvö sumur í Odda á Rang-
árvöllum hjá sr. Erlendi og Önnu
konu hans. Þá fór hún eitt sumar í
kaupavinnu að Bergþórshvoli með
vinkonu og sveitunga, Sigurlínu
Guðbrandsdóttur frá Loftsölum.
Þar mynduðust vinatengsl sem
sum entust til síðustu stundar.
Það urðu stór þáttaskil í lífi
frænku minnar þegar hún gerðist
ráðskona hjá Gunnari Ólafssyni,
útgerðarmanni í Vestmannaeyjum,
þá með dóttur sína barnunga. Því
hlaut starf ráðskonunnar að vera
margþætt og gestagangur mikill
og stórt hús að hugsa um. Ver-
mennimir héðan úr Mýrdalnum
sem héldu til heima hjá Gunnari á
þessum árum minntust Guðnýjar
með miklu þakklæti. Svo vel vakti
hún yfir velferð þeirra og aðbúnaði
öllum. Það var til þess tekið hversu
mikla alúð Guðný lagði í að hjúkra
Gunnari eftir að hann lagðist rúm-
fastur og þurfti orðið fulla aðhlynn-
ingu, hvernig þessi smágerða kona
réð við að hreyfa og hagræða þess-
um stóra manni, ekki síst vegna
þess að hún var aldrei heilsusterk,
var m.a. alla tíð böguð af kviðsliti.
En henni tókst að hafa Gunnar
heima og hjúkra honum nánast til
hinstu stundar, en hann hafði þráð
það mjög að fá að vera heima sem
lengst. Gunnar Ólafsson lést 26.
júní 1961, komin á 98. árið.
Um haustið 1961 fluttu þær
mæðgur svo aftur til Reykjavíkur,
fyrst á heimili Rögnu og Nikulásar
á Hringbrautinni og síðar í Ból-
staðarhlíðina. Þaðan fluttu þær síð-
an 1979 í Álfheima 3, þar sem fjöl-
skyldan hefur búið síðan.
Fyrsta minningin um þessa
kæru frænku mína er frá þeim
tíma þegar hún dvaldi hér á Skeið-
flöt, þá með Sigrúnu dóttur sína
barnunga. Það voru einhverjir nýir
ferskir straumar úr borginni sem
fylgdu henni, ýmislegt sem hún
hafði meðferðis sem ungur sveita-
drengur hafði ekki áður augum lit-
ið. Gleði mín var mikil þegar Guð-
ný saumaði handa mér tjald úr lé-
reftspokum (hveitipokum), ná-
kvæma smækkaða eftirlíkingu að
tjöldum frá þeim tíma.
Það var eins og allur saumaskap-
m’ léki í höndum hennar, hvort sem
það voru viðgerðir eða nýsaumur,
og allt var jafnvandað, fallegt og
vel frá gengið og þolinmæði hennar
við hvers konar vandasöm verkefni
í prjóna- eða saumaskap var tak-
markalaus.
Guðný átti sterkar taugar hing-
að í Mýrdalinn og hún reyndi að
halda tengslunum við með því að
fylgjast með mönnum og málefn-
um hér austurfrá. Hér átti hún
margt vina og kunningja og hing-
að austur í Mýrdal kom hún oftast
á hverju sumri meðan heilsan
leyfði.
Með Guðnýju er gengin einstök
sæmdarkona til orðs og æðis, ég
minnist þess aldrei að hafa heyrt
hana hallmæla nokkrum manni og
ef hún heyrði slíkar orðræður
reyndi hún ætíð að bera blak af
þeim umrædda. Ekki minnist ég
þess að hafa nokkru sinni séð hana
skipta skapi, þó var hún ákveðin í
skoðunum og gat verið fóst á sínu
ef því var að skipta.
Ötal sinnum lenti Guðný inni á
sjúkrastofnunum en aldrei kvart-
aði hún. Eg held að þetta einstaka
lundarfar hennar og bjartsýni á líf-
ið og tilveruna hafi ætíð hjálpað
henni til að komast til heilsu á ný.
Að lokum viljum við bræðurnir á
Skeiðflöt þakka Guðnýju einstaka
vináttu og velvilja frá fyrstu tíð.
Hún gleymist okkur seint fórnfýsi
hennar þegar móðir okkar lá bana-
leguna, þá kom hún austur til að
aðstoða okkur við að hjúkra henni.
Við sendum Sigrúnu, Sigur-
grími, Þórunni, Guðnýju Ósk, Vid-
ar og börnum þeirra dýpstu sam-
úðarkveðjur.
Blessuð sé minning okkar kæru
frænku.
Eyþór Ólafsson.
Eiginmaður minn, bróðir, faðir, tengdafaðir,
afi, langafi og langalangafi,
JÓN ÞÓRIR JÓNSSON,
Réttarholtsvegi 33,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 29. september kl. 13.30.
Blóm og kransar afþökkuð, en þeim sem vildu
minnast hins látna er bent á líknarstofnanir.
Þórunn Vilmundardóttir,
Stefán H. Jónsson,
Unnar Jónsson,
Stefán Hólm Jónsson,
Vilmundur Jónsson,
Jórunn Jónsdóttir,
Gunnar Valur Jónsson,
Þórir Jónsson,
Hafdís Kristinsdóttir,
Svava Guðnadóttir,
Hrönn Andrésdóttir,
Halberg Siggeirsson,
Kristín Sigurðardóttir,
Sigurbjörg Sigurðardóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐFINNA GÍSLADÓTTIR
frá Krossgerði,
Berufjarðarströnd,
verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju á morgun,
mánudaginn 28. september kl. 13.30.
Valborg Eiríksdóttir, Haraldur Lúðvíksson,
Þóra Eiríksdóttir, Tryggvi Sveinsson,
Elsa Eiriksdóttir Bird, Samúel F. Bird,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför ástkærs föður okkar,
tengdaföður og afa,
GUÐMUNDAR FRIÐRIKSSONAR
útgerðarmanns,
Heinabergi 22,
Þorlákshöfn.
Friðrik Guðmundsson,
Gitte Jakobsen,
íris Friðriksdóttir,
Kristín Friðriksdóttir,
Guðmundur Friðriksson,
Erna Marlen,
Guðmundur Þorkelsson,
Líney Magnea Þorkelsdóttir,
Ólöf Þóra Þorkelsdóttir.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför móður minnar, tengda-
móður, ömmu og systur,
SIGRÍÐAR EINARSDÓTTUR
frá Bakka,
áður Grundartúni 2,
Akranesi.
Sérstakar þakkir til lyflækningadeildar Sjúkra-
húss Akraness, Skátafélags Akraness og
Lionsklúbbsins Eðnu.
Birna G. Hjaltadóttir, Gísli H. Sigurðsson,
Hjalti, Þorbjörg og Halldór,
Halldór Einarsson.
+
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför
elskulegs sonar okkar, bróður og barnabarns,
ÓLA GEIRS HÖSKULDSSONAR,
Hlíðarhjalla 68,
Kópavogi.
Höskuldur Pétur Jónsson, Teódóra Óladóttir,
Signý Höskuldsdóttir,
Dagný Ásgeirsdóttir,
Óli Geir Þorgeirsson, Ása Þorgeirsdóttir,
Kristrún Magnúsdóttir.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
ÞÓRU ÞÓRÐARDÓTTUR
frá Miðhrauni,
Skriðustekk 14,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Reykjalundi
og Vífilsstöðum fyrir ómetanlega umönnun.
Kristján A. Kjartansson, Hrafnhildur Guðmundsdóttir,
Ingþór Kjartansson, Elísabet G. Árnadóttir
og barnabörn.
+
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
SIGRÍÐAR ÁRNADÓTTUR,
Arnarbæli,
Grímsnesi.
Elín Guðmundsdóttir, Jósef Skaftason,
Kristín Erna Guðmundsdóttir, Jónas Elíasson,
Guðrún Erna Guðmundsdóttir,
Árni Guðmundsson,
Kamilla Sigríður Jósefsdóttir,
Guðmundur Arnar Kristínarson.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför móður okkar,
ÖLMU TYNES,
Austurströnd 8,
Seltjarnarnesi.
Guðmundur Rúnar Einarsson,
Ragnar Páll Einarsson,
Sverrir Einarsson,
Elín Guðrún Einarsdóttir,
Anna Sigríður Einarsdóttir,
Norma Einarsdóttir
og fjölskyldur.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför eiginmanns míns, föður,
tengdaföður og afa,
ÞÓRMUNDAR ERLINGSSONAR,
Holtsgötu 19,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á Landakoti fyrir
hlýja og góða umönnun í veikindum hans.
Oddný Kristjánsdóttir,
Jónatan Þórmundsson, Sólveig Ólafsdóttir,
Þórmundur Jónatansson og fjölskylda,
Sigurður Freyr Jónatansson og fjölskylda.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu
vegna andláts og útfarar móður okkar, tengda-
móður og ömmu,
ÁSLAUGAR GÍSLADÓTTUR,
Hæðargarði 35,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild
A-5 á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fyrir hlýju og góða
umönnun. Sóknarnefnd og samstarfsfólki í
Bústaðakirkju þökkum við kærleik og virðingu.
Árný Valgerður Ingólfsdóttir, Kolbeinn Guðmundsson,
Sigríður Ingólfsdóttir, Pétur Stefánsson,
Ólafía Ingibjörg Ingólfsdóttir, Sigurður Óli Gunnarsson,
Áslaug Pálsdóttir,
Ingólfur Kolbeinsson,
Helga Kolbeinsdóttir,
Ólafur Kolbeinsson,
Elsa Kristín Sigurðardóttir,
Jóhannes Ingi Sigurðsson.