Morgunblaðið - 27.09.1998, Side 42
* 42 SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð, hlýhug og
vináttu við andlát og útför hjartkærrar eigin-
konu minnar, móður okkur, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
KRISTÍNAR BJARNEYJAR ÓLAFSDÓTTUR
Ijósmóður
frá ísafirði,
Dalbraut 59,
Akranesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks 14-G og 13-B Landspítalans og einnig til
starfsfólks og Ijósmæðra Sjúkrahúss Akraness.
Guð blessi ykkur öll.
Kristmundur Breiðfjörð Bjarnason,
Ólöf G. Kristmundsdóttir, Samúel Þór Samúelsson,
Kristin Br. Kristmundsdóttir,
Svavar Cesar Kristmundsson, Guðný Helga Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
SIGRÍÐAR FANNEYJAR JÓNSDÓTTUR,
húsfreyju á Egilsstöðum.
Sérstakar þakkir flytjum við starfsfólki Sjúkrahússins á Egilsstöðum fyrir
einstaka umönnun og hlýhug.
Jón Egill Sveinsson, Magna Gunnarsdóttir,
Ingimar Sveinsson, Guðrún Gunnarsdóttir,
Ingunn Ásdísardóttir,
barnabörn og fjölskyldur.
+
Við þökkum af alhug þá samúð og hlýju sem
okkur hefur verið sýnd við andlát og útför eig-
inkonu minnar, dóttur, móður okkar, tengda-
móður, ömmu og tengdadóttur,
KRISTÍNAR HALLDÓRSDÓTTUR,
Kveldúlfsgötu 9,
Borgarnesi.
Vinátta ykkar hefur veitt okkur ómetanlegan
styrk á sorgarstundu.
Guðmundur Lind Egilsson,
Halldór F. Klemenzson,
Áslaug Lind Guðmundsdóttir, Arnar Kristinsson,
Halldór Lind Guðmundsson, Anna María Malmquist,
Jóhanna Lind Guðmundsdóttir,
Kristinn Lind Guðmundsson,
Stefán Orri, Kolbrún Lind, Snædís og Gunnar Logi,
Jóhanna Lind Pálsson.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns,
föður okkar, fósturföður, tengdaföður og
afa,
ÓLAFS Þ. ÞÓRÐARSONAR,
Melási 6,
Garðabæ.
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir,
Heiðbrá Óiafsdóttir,
Ágúst Heiðar Ólafsson,
Áslaug Ólafsdóttir, Arnar Bjarnason,
Arinbjörn Ólafsson, Karen R. Gísladóttir,
Hinrik Gíslason, Ása S. Eiríksdóttir
og barnabörn.
ROGER B.
HODGSON
+ Látinn er í Vest-
urheimi Roger
B. Hodgson, verk-
fræðingur. Roger B.
Hodgson kom
hingað til lands með
herliði Bandaríkj-
anna á árum síðari
heimsstyrjaldarinn-
ar og hafði tengsl
við ísland um hálfr-
ar aldar skeið.
Roger Brigham
Hodgson fæddist 18.
apríl 1918 í Brook-
lyn í New York. For-
eldrar hans voru
hjónin Katherine Randall Hodg-
son og John Lawson Hodgson.
Voru þau bæði af enskum ætt-
Roger kom til íslands í herliði
Bandaríkjamanna á árum síðari
heimsstyrjaldarinnar. Var hann í
hópi yfirmanna, hafði stöðu
kapteins, og var löngum staðsettur í
Hvalfirði. Eftir dvölina hér á landi
var hann sendur til Þýskalands þar
sem hann var til stríðsloka.
Roger kvæntist 25. júní 1944
Svönu Guðrúnu Jóhannsdóttur, en
hún var móðursystir mín. Svana var
fædd í Fagurlyst í Vestmannaeyj-
um 20. febrúar 1921. Hún var dóttir
hjónanna Magneu D. Þórðardóttur
og Jóhanns Þ. Jósefssonar, alþing-
ismanns og ráðherra. Svana var
glæsileg kona svo af bar. Hún gekk
í Verzlunarskólann og Tónlistar-
skólann í Reykjavík og í skóla í
Danmörku og Þýskalandi. Hún
hafði næman smekk fyrir menningu
og listum og bar fagurt heimili
þeirra þess vitni. Svana lést 12.
um. Roger ólst upp
frá níu ára aldri í
Wellesley í
Massachusets í hópi
fjögurra systkina og
átti hann systurnar
Betty og Barböru og
bróðurinn John.
Roger aflaði sér
menntunar og lauk
prófi í verkfræði frá
hinum víðkunna
háskóla Massachu-
setts Institute of
Technology, MIT, í
Boston, Massachu-
setts. Starfaði hann
sem verkfræðingur meðal ann-
ars hjá stórfyrirtækinu Raythe-
on í Bandaríkjunum.
nóvember 1992. Við fráfall hennar
var mikill harmur kveðinn að Roger
og fjölskyldunni.
Roger og Svana eignuðust fimm
börn sem öll eru hreykin af íslensk-
um uppruna sínum. Þau eru: John
Ives, f. 25.9. 1944 í Reykjavík, en
yngri systkini hans voru fædd í
Wellesley, hann starfar við félags-
lega þjónustu í þágu aldraðra á
Cape Cod og á hann einn son;
Margaret Svana, f. 5.11. 1946, skrif-
stofustjóri í MIT, gift dr. Robert
Hay Enders, verkfræðingi, og eiga
þau tvær dætur; Robert Eric, f.
27.7. 1948, endurskoðandi á Flórída,
kvæntur Marciu Ruth Hodgson
stjórnmálafræðingi og eiga þau
tvær dætur; dr. Thomas Olafur
Hodgson f. 8.8.1950, prófessor í sál-
arfræði við háskólann í Syracuse í
New York; og yngst er Laura
Agústa f. 25.4. 1952, sem starfar við
Skilafrestur
minningargreina
EIGI minningargi'ein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef
útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og
þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. I miðviku-
dags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf gi-einin að ber-
ast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein
eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útfór hefur farið fram, er
ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað
getur þurft að fresta birtingu gi-eina, enda þótt þær berist innan hins
tiltekna skilafrests.
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson,
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suðurhlið 35 ♦ Sími 581 3300
AUan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
ÚTFARARSTOFA
OSWALDS
simi551 3485
ÞJÓNUSTA ALLAN
SÓLARHRINGINN
AÐALSTRÆTI -iB • 101 RHYKJAVÍK
K l'. 480896-2469 • l'AX 551 3645
I.ÍKKISI'UVINN'USTOI'A
EYVINDAR ÁRNASONAlt
staðarblaðið á Cape Cod. Dóttir
Svönu af fyrra hjónabandi með
Sturlaugi H. Böðvarssyni, útgerðar-
manni á Akranesi, er Ingunn Helga
Sturlaugsdóttir, geðlæknir í Boston,
gift Hauki Þorgilssyni viðskipta-
fræðingi og eiga þau fjögur börn.
Olst Ingunn Helga upp á heimili
móður sinnar og stjúpföður.
Heimili Svönu og Rogers stóð
lengi framan af í Wellesley. Um það
leyti sem sem Roger lét af störfum
vegna aldurs fluttu þau Svana heim-
ili sitt í bæinn Cummaquid á Cape
Cod í Massachusetts. Þar fékkst
Roger meðal annars við að gera upp
seglbáta enda var hann hagur í
höndunum og góður smiður. Þegar
við hjónin buggum tímabundið í
Washington DC buðu þau Svana og
Roger okkur í heimsókn og taka
þátt í þakkargjörðarhátíð að band-
arískum hætti. Minnist ég þess með
ánægju að koma á heimili þeirra,
sem hafði á sér íslenskan brag, og
hitta íjölskylduna við þetta
tækifæri.
Roger B. Hodgson var tengdur
íslandi traustum böndum og bar
góðan hug til lands og þjóðar. Hann
átti kærar minningar héðan og
hafði gaman af að koma á fornar
slóðir. Mér þótti jafnan fróðlegt
þegar hann rifjaði upp dvöl sína hér
á landi á stríðsárunum og lífið á
þeim tíma. Þegar hann kom sum-
arið 1997 voru þeir hér samtímis
nokkra daga, Roger og yngsti son-
urinn Tommy. Áttum við fjölskyld-
an þá ánægjulegar stundir með
þeim á heimili móður minnar og á
heimili okkar Daggar á
Bergstaðastrætinu. í síðustu
heimsókn sinni hingað til lands und-
ir lok árs í fyrra sótti Roger okkur
hjónin heim eins og endranær. Var
hann þá viðræðugóður eins og jafn-
an og gamlir tímar ofarlega í huga
hans.
Roger kvæntist öðru sinni og er
seinni kona hans Ásdís Helgadóttir
frá Seglbúðum í Landbroti. Hún var
ekkja Einars Hauks Ásgrímssonar
verkfræðings, en hann og Svana
Guðrún Jóhannsdóttir voru systra-
börn. Böm Ásdísar og Einars
Hauks eru Ásgrímur Helgi Einars-
son og Gyða Sigríður Einarsdóttir.
Roger B. Hodgson lést 14. sept-
ember sl. áttræður að aldri. Minn-
ingarathöfn um hann fór fram á
Cape Cod 19. september.
Við fráfall Rogers B. Hodgsons
flyt ég börnum hans, fjölskyldum
þeirra og öðrum ástvinum innilegar
samúðarkveðjur okkar Daggar,
móður minnar, Ágústu Jóhanns-
dóttur, bræðra minna, Jóhanns og
Arnar, og fjölskyldna okkar.
Ólafur ísleifsson.
Sérfræðingar
í blómaskreytinjíum
’ við öll tækifæri
I löblómaverkstæði 1
IISlNNA I
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090
+
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og vináttu við andlát og útför systur
okkar, móðursystur og frænku,
KRISTÍNAR MARKÚSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deilda A-7 og
A-3 á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Karitas og
starfsfólks heilsugæslustöðvar Seltjarnarness.
Alda Markúsdóttir,
Gunnþórunn Markúsdóttir,
Helga Markúsdóttir,
Margrét Eggertsdóttir, Guðbjörn Sigurmundsson,
Hildur, Árni og Alda Kristín.
Marmari ♦ Granít ♦ Blágrýti ♦ Gabbró
íslensk framleiðsla
o
|
5
|
5
I
o
Fersk blóm og
skreytingar
við öll tækifæri
Opið til kl.10 öll kvöld
Persónuleg þjónusta
Fákafeni 11, sími 568 9120
2
|
2
1
2
|
5
ölölitotttotö