Morgunblaðið - 27.09.1998, Side 58
58 SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Með minni
rödd
„Jóel klikkar aldrei“ segja gæjarnir í djass-
geiranum um Jóel Pálsson saxófónleikara,
sem á morgun gefur út fyrsta geisladiskinn
, með eigin tónlist. Hildur Loftsdóttir hlust-
aði á Prím með höfundinum.
„PRÍM er draumur að rætast. Það
hlýtur að vera draumur allra tón-
listarmanna að spila sína eigin tón-
list með frábærum hljóðfæraleikur-
um. Prím hefur margvíslega
þýðingu; nýtt tungl, morgunsöngur,
svo er ég líka að ýja að orðinu
„primal“; það fyrsta í röðinni," segir
Jóel um nýja diskinn sem inniheld-
ur tíu lög leikin af Jóel og hópi
snjöliustu djassleikara sem landið á.
Flestir ættu að hafa heyrt Jóel
einhvern tímann spila, en hann hef-
ur leikið með flestöllum djassleikur-
um á Islandi, í poppi, leikhúsi, með
sinfóníunni, Milljónamæringunum
og hefur alls spilað inn á um þrjátíu
íslenskar hljómplötur.
Sterkar rætur
„Mér fmnst að núna sé rétti tíma-
punkturinn fyrir mig að gefa út
disk. Það tekur tíma að fínna sinn
eigin karakter sem tónlistarmaður.
Ég hef hlustað á alls konar tónlist
og er búinn að stúdera gamla og
nýja djasssnillinga, og er núna að
gera hlutina með minni eigin rödd.
Ræturnar þurfa að vera sterkar tii
að greinarnai- nái að vaxa,“ segir
Jóel og vitnar í gamalt máltæki en
heiti margra laganna á Prím eru
einmitt máltæki.
„Fyrst flutti ég hluta laganna á
djassklúbbnum Múlanum í vetur.
Eg fékk mjög jákvæð viðbrögð og
margir hvöttu mig til að taka upp
þessi lög sem ég og gerði. Það er
frábært að hafa aðgang að öllum
þessum stórgóðu tónlistarmönnum
sem voru meira en til í að vera með.
Við tókum allan diskinn upp á
tveimur dögum og öll lögin eru
„læv“. Yfirleitt var hvert lag bara
tvær til þrjár tökur. Við spiluðum
það snemma um daginn og svo aftur
Söngprufur
Söngprufur fyrir rokksöngleikinn RENT verða mánudag og
þriðjudag. 28. og 29. sept. í æfingasal Þjóðleikhússins
Lindargötu 7. frá kl. 16.30.
Leitað er að söngvurum og leikurum sem einnig geta dansað,
á aldrinum 18 tit 35 ára. Skráning á staðnum.
hlÓÐLEIKHÚSIÐ IfjSÍA&HM
Full búð af nýjum vörum
SKÓVERSLUN
KÓPAVOGS
IAMRABORG 3 * SiMI SS4 17S4
Morgurttilaðíð/Árni Sæberg
JÓEL Pálsson er að gefa út geisladiskinn Prím
með djasslögum eftir sjálfan sig.
seinna. í millitíðinni hafði margt
gerst og lagið varð allt öðruvísi. Svo
valdi ég það sem mér fannst best.
Það er einmitt þetta sem er svo
skemmtilegt við djassinn."
Allt í einu
í laginu Hland fyrir hjartað heyr-
ist í hjartalínuriti og það er eina
hljóðið á disknum sem
er sett inn á eftir á.
Lagið túlkar smá-
reynslu sem ég varð
fyrir á giörgæslunni í
vor. Ég fékk
hjartsláttartruflanir,
og það var mjög
erfitt að sannfæra
læknana um að ég
tælri ekki kókaín,
það var dálítið
fyndið. Ég var sem
sagt með hljóðið í
hjartalínuritinu
stöðugt í eyrunum og þannig
kviknaði hugmyndin að laginu.
Lögin eru öll eftir mig nema eitt
þjóðlag „Það mælti mín móðir“. Ég
fékk Matta Hemstock á slagverk og
Hilmar Jensson gítarista til að spila
það með mér, og það var mjög
skemmtilegt. Eg kom með hljóma-
grind sem við studdumst við en
ákváðum ekkert annað fyrirfram.
Þetta varð ein taka og lagið er átta
mínútur. Hilmar galdraði fram hin
ótrúlegustu hljóð á gítarinn, Matti
lamdi sín tól og ég blés yfir og þetta
kom vel út. Sumir sem heyrt hafa
spyrja hvort Hilmar hafi tekið upp
aftur ofan í en hann gerði þetta allt í
einu.“
,myn^trh^;
Snemma beygist krókurinn
Það var líka frábært að hafa
Sigga Flosa, gamla læriföðurinn,
með. Við djöfluðumst þarna saman
hver ofan í annan. Eins og í laginu
GISP! eru tveir saxófónar og líka
tvö trommusett, eða alls sjö manns.
Það voru þvílík læti við að taka
þetta upp, allir á útopnu. I
Bakþankar spilar hann á
bassaklarinett á
móti mér, en það
er meira svona
stemmningarlag
eins og maður
myndi kalla það.
Svo var sérstak-
lega gaman að hafa
Eyþór Gunnarsson
píanóleikara með,
enda löngu orðinn
þekktur fyrir snilli
sína. Við áttum
andríka stund þegar
við tókum upp dúett-
inn_7undi himinn.
Útgáfutónleikarnir verða ekki
fyrr en í desember, þvi ég vil hafa
með mér tónlistarmennina sem
voru í upptökunum, en bæði Einar
Scheving trommuleikari og Gunn-
laugur Guðmundsson bassaleikari
búa í Haag. Við þrír erum búnir að
spila saman síðan við vorum pollar,
og stofnuðum djassband, m.a. með
Móeiði og Páli Óskari, áður en við
vissum nokkur hvað við vorum að
gera. Mér finnst þess vegna sér-
staklega gaman að hafa þá tvo með
mér á disknum, fyrir utan það hvað
þeir eru frábærir tónlistarmenn."
arsdóttú-
Útsölustaðir: Líbia Mjódd, Dísella Hafnarfiröi,
Háaleitisapótek, Grafarvogsapótek, Egilsstaðaapótek,
Apótekiö Hvolsvelll, Apótekið Hellu, löunnar apótek,
ísafjaröarapótek, Borgarnesapótek, Regnhlffabúöin,
Apótekið Suðurströnd, Apótekiö löufelli, Apótekiö
Smáratorgi, Vesturbæjarapótek, Hafnarapótek, Höfn,
Akureyrarapótek, Hraunbergsapótek.
Dreifing: KROSSHAMAR. S. 5888808.
NYTT FRA SVISS
Swíss-O'Par*
Dreifing;
KROSSHAMAR, simi 588 8808
Ekta augnhára- og
augnbrúnalitur
með c-vítamíni.
Allt í einum pakka,
auðvelt í notkun og
endist frábærlega.
Kanntu að
syngja?
Á MORGUN, mánudaginn 28.
september og á þriðjudag
verða opnar söngprufur fyrir
rokksöngleikinn RENT sem
Þjóðleikhúsið hyggst frum-
sýna í félagi við Loftkastalann
næsta vor. Leitað er að söngv-
urum og leikurum sem geta
líka tekið sporið á aldrinum
18-35 ára. Söngprufurnar fara
fram í æfingasal Þjóðleikhúss-
ins, Lindargötu 7, og hefjast
kl. 16.30. Skráning fer fram á
staðnum.
RENT er bandarískur
söngleikur sem var frum-
sýndur á Broadway árið 1996
og hefur verið sýndur við
miklar vinsældir bæði í New
York og London og hlotið
fjölda verðlauna. Baltasar
Kormákur leikstýrir söng-
leiknum og tónlistarstjóri er
Jón Ólafsson.
Gera lífið
skemmti-
legra
TVEIR ungir menn eru að
setja á fót klúbb sem kennir
sig við ár drekans og mun
bera nafnið Aldamótaklúbbur-
inn. Mennimir era Jón Gunn-
ar Geirdal og Jóhann Meuni-
er, og er hugmyndin að
klúbbnum sú að koma saman
200 manns sem einbeita sér að
því að gera lífíð skemmtilegra
og auka aðgang klúbbmeðlima
að því nýjasta sem er að ger-
ast í menningarlífinu.
Gert er ráð fyrir að
meðlimir hittist einu sinni í
mánuði á skemmtun sem
boðuð verður bréfleiðis. Mis-
munandi glaðningur verður í
boði hverju sinni, en það
nýjasta úr heimi lista (jafnvel
óbirt verk) verður í aðalhlut-
verki. Einnig er áætlað að
kynna framandi matargerð
og vín. Hin mánaðarlega
veisla verður ekki haldin á
neinum skemmtistað í borg-
inni, enda ætluð einungis
félögum Aldamótaklúbbsins,
heldur mun mikil leynd hvíla
yfir staðsetningu og því sem í
boði verður hverju sinni.
Einnig verður klúbbfélög-
um boðið upp á sérstakar sýn-
ingar á kvikmyndum, áður en
þær birtast á almennum sýn-
ingum, og ferðir í leikhús og
óperuna eru einnig ráðgerðar.
Ævintýraferðir eru einnig á
döfinni og er ráðgert að halda
upp á áramótin í New York í
fyrstu ferðinni.
Þeir sem hafa hug á að
kynna sér starfsemi
Áldamótaklúbbsins geta farið
í kjallara Fálkahússins á milli
ki. 17-19 í dag.
Fyndinn
Sveinn
SVEINN Waage var valinn
fyndnasti maður Islands á
Astró á fimmtudagskvöld í
keppni þar sem þátttakendur
sýndu fæmi sína í sviðsspaugi.
Hann atti þar kappi við
Bryndísi Ásmundsdóttur og
Rögnvald gáfaða í úrslitum og
hafði betur, en þau þrjú höfðu
haft sigur á þremur undanúr-
slitakvöldum. Fjölmargir
fylgdust með herlegheitunum
á Astró og var mikið hlegið.
Jón Gnarr var kynnir kvölds-
ins.