Morgunblaðið - 27.09.1998, Qupperneq 64
•o*. -
T|N|T| Express
Worldwide
580 1010
íslandspóstur hf
Hraðflutningar
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Jörundur á
hvíta tjaldið
ÁGÚST Guðmundsson leikstjóri hef-
ur ákveðið að gera kvikmynd byggða
á sögu Jörundar hundadagakonungs.
Hún verður tekin upp hérlendis,
a.m.k. að mestu leyti, leikin á ensku
og tökur fara fram á næsta ári eða
því þarnæsta. Kostnaður við fram-
leiðslu myndarinnar, verður a.m.k.
15 milljónir dollara, eða sem svarar
einum milljarði króna.
Englendingurinn Andy Paterson,
framkvæmdastjóri Oxford Film
Company, verður framleiðandi
myndarinnar en hann var meðfram-
leiðandi að Dansinum, sem Ágúst
leikstýrði og frumsýnd var á mið-
vikudaginn. Paterson útilokar ekki
að þekktir leikarar komi við sögu.
Ágúst segir hugmyndina þá að
segja, í gi'undvallaratriðum, frá því
sem gerðist hér á landi sumarið
1809, þegar Daninn Jörgen Jörgen-
son - Jörundur - tók sér konungs-
tign um tíma. „Við höfum reyndar
ákveðið að fara ekki nákvæmlega
eftir sögunni; halda okkur ekki ná-
kvæmlega við sagnfræðilegar stað-
reyndir," segir Ágúst í samtali við
Morgunblaðið í dag.
Fullkomin saga
Paterson hreifst af sögunni um
Jörund. „Mér finnst þetta nefnilega
fullkomin saga,“ segir framleiðand-
inn.
Paterson segir að gerð myndar-
innar muni kosta a.m.k. 15 milljónir
dollara, um einn milljarð króna, en
það yrði langdýrasta kvikmynd sem
framleidd hefur verið á Islándi.
■ Saga hundadagakonungs/B4
Björn Bjarnason menntamálaráðherra
Aukið fé veitt í
endurmenntun
BJORN Bjarnason menntamálaráð-
herra greindi frá því við upphaf
framhaldsskólaþings í gær að
menntamálaráðuneytið hefði við
undirbúning fjái'laga fyrir árið 1999
lagt áherslu á auknar fjárveitingar
til endurmenntunar kennara og til að
gera námsefni í samræmi við kröfur
nýrra aðalnámskráa fyrir grunn- og
framhaldsskóla. Það kæmi í ljós eftir
fáeina daga hve miklum fjármunum
yrði varið til þessara verkefna.
Endurskoðun hafin
Björn sagði að endurskoðun
námskrár fyrir starfsnám væri hafin.
„I þessari vinnu leggur ráðuneytið
almenna áherslu á stuttar starfs-
menntabrautir, sem miða að fjöl-
breyttara námsframboði og koma til
móts við þarfir þeirra, sem ekki
hyggjast stunda lengra starfsnám
eða skortir til þess forsendur.
Þannig ætti að vera unnt að koma til
móts við þarfir atvinnulifsins fyrir
menntað starfsfólk og stemma stigu
við brottfalli úr framhaldsskólum. Þá
leggur ráðuneytið einnig áherslu á
námskrá fyrir vinnustaðanám, það
er að starfsgreinai'áð skoði sérstak-
lega starfsþjálfunarþáttinn úti í at-
vinnulífinu."
Menntamálaráðhen'a vék að sam-
starfi atvinnulífs og skóla og sagði
það koma sér á óvart hve erfitt væri
að sameina þessa tvo heima. Hann
sagði að sú tilraun sem gerð hefði
verið í Borgarholtsskóla undir
merkjum Fræðslumiðstöðvar bíl-
greina hefði ekki tekist sem skyldi.
Ekki væri komin niðurstaða um
framtíðarskipan námsins, en bæði
skólinn og bílgreinamenn væru óá-
nægðir með óbreytt ástand. Skóla-
húsnæðið væri hannað og innréttað
til að sinna þessu námi og það væri
mikil sóun á fjármunum ef námið
þyrfti að fara fram annars staðar.
Morgunblaðið/RAX
Gervigígar við Mývatn
SKÚTUSTAÐAGÍGAR heitir þyrping gervigíga hafi menn verið skírðir að fornu þegar heiðinn sið-
sem ganga út í Mývatn við Skútustaði. Voru þeir ur var aflagður og kristni tekin upp. Efst á mynd-
friðlýstir sem náttúruvætti. Þar við er einnig Þang- inni má sjá Dritey úti á Mývatni en sunnan við gíg-
brandspollur og segir í íslandshandbókinni að þar ana, neðst á myndinni, er Stakkhólstjörn.
Interpol í
Reykjavík
árið 2000
ÁKVEÐIÐ hefur verið að árs-
fundur þefrra 45 Evrópuríkja,
sem eiga aðild að alþjóðalög-
reglunni Interpol, verði haldinn
í Reykjavík árið 2000.
Þetta var ákveðið í opinberri
heimsókn Þorsteins Pálssonar
dómsmálaráðherra til fram-
kvæmdastjóra Interpol í París á
föstudag, að sögn Smára Sig-
urðssonar, aðstoðaryfírlög-
regluþjóns hjá ríkislögreglu-
stjóra.
Islendingar hafa verið aðilar
að Interpol síðan 1971 en Þ.or-
steinn Pálsson varð fyrstur ís-
lenskra ráðherra til að heim-
aækja höfuðstöðvarnar í París,
að sögn Smára Sigurðssonar. I
föruneyti Þorsteins við heim-
sóknina voru Þórhallur Ólafs-
son, aðstoðarmaður ráðherra,
og Haraldur Johannessen, rík-
islögreglustjóri, auk Smára.
OZ f samstarfí við tölvufyrirtækið Intel og listasafn í New York
OZ í 420 milljóna verk-
efni í Bandaríkjnnum
H UGB ÚNAÐARFYRIRTÆJýlÐ OZ og banda-
ríska tölvufyrirtældðTntel hafa samið um sam-
starf við Whitneý-listasafnið í New York um að
koma yfirlitssýningu um bandaríska myndlist á
tuttugustu öld á Netið og á einkatölvur. Intel
leggur fram 6 milljónir Bandaríkjadala í verkefn-
ið, um 420 milljónir íslenskra króna, og sér um
dreifingu efnisins en OZ á að sjá um alla hönnun
og myndgerð efnisins á tölvuformi sem verður í
þrívídd.
Sjón, sem starfar hjá OZ og er einn þeirra sem
þróað hafa þessa hugmynd, segir samstarf Intel
og OZ hafa byrjað fyrir nokkru en Intel hafi fyrst
beint sjónum sínum að OZ fyrir um þremur ár-
um. Intel hefur sérhæft sig á sviði smíði ör-
gjörva. Nú hafi samstarf fyrfrtækjanna leitt til
þessa verkefnis, sem hann segir það stærsta
sinnar tegundar. Forráðamenn Intel hafi viljað
beina sjónum sínum að listinni og hvernig koma
mætti henni á Netið og valið OZ til þessa verk-
efnis. Segir Sjón meðal annars þrívíddartækni
fyrirtækisins liggja til grundvallar því vali. Verk-
efnið verður unnið af hönnuðum OZ hér á landi
en markaðsdeild fyrirtækisins er í Bandaríkjun-
um.
Myndlist tuttugustu aldarinnar
á Netið og í einktölvur
Umrædd sýning Whitney-listasafnsins spann-
ar aila 20. öldina með verkum allra helstu lista-
manna Bandaríkjanna og segir Sjón að auk verk-
anna sjálfra verði kynnt margvíslegt annað efni
með viðtölum og annarri umfjöllun. Segir hann
með þessu hægt að stórauka möguleika almenn-
ings til að kynnast myndlist.
Tómas Gíslason, yfirmaður hönnunardeildar
OZ, og Andy Grove, stjórnarformaður Intel,
kynntu samstarfið við Whitney-listasafnið á
blaðamannafundi í New York fyrir helgina. Sjón
segir frekari verkefni sf svipuðum toga þegar í
sjónmáli. Andy Grove notaði meðal annars OZ
sem dæmi þegar hann kynnti hugmyndir sínar
um framtíðarsýn.
Eins og fyrr segir er framlag Intel 6 milljónir
Bandaríkjadala sem Sjón segfr' að sé stærsta
framlag einkafyrirtækis til listastarfsemi. Fyrir-
tækið ráðgerir að hefja dreifingu efnisins með
nýjustu einkatölvum sínum á næsta ári.