Morgunblaðið - 17.10.1998, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
-H-
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1998 39
Pliínr0iUínMiiMI«
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
STRÍÐSÁTÖKUM
AFSTÝRT?
MIKLUM HÖRMUNGUM hefur vonandi verið afstýrt
með samkomulagi um framtíð Kosovo, sem tókst í við-
ræðum þeirra Richards Holbrooks, erindreka Bandaríkja-
stjórnar, og Slobodans Milocevics, forseta Júgóslavíu. Atl-
antshafsbandalagsríkin höfðu tekið ákvörðun um að beita
loftárásum til að knýja Serba til að láta af kúgun sinni og
þjóðernishreinsunum í héraðinu. Serbum mátti vera ljóst,
að þeir gætu einungis komizt hjá refsiaðgerðum með því að
fallast í meginatriðum á samþykktir Öryggisráðs Samein-
uðu þjóðanna um átökin í Kosovo. Serbar, undir forustu
Milocevics, streittust á móti fram á síðustu stundu, en
gerðu sér væntanlega grein fyrir afleiðingum stríðsátaka
og féllust að lokum á skilyrðin fyrir samkomulagi.
Það felur í sér, að Kosovo verður sjálfstjórnarhérað á ný,
en Milocevic afnam sjálfstjórn íbúanna fyrir nær áratug.
Sérsveitir hers og lögreglu Serba, sem m.a. hafa staðið fyr-
ir fjöldamorðum, verða kallaðar heim, en í staðinn kemur
nýtt lögreglulið, óháð stjórnvöldum í Belgrad, sem skipað
verður Kosovo-Albönum að langmestu leyti. Þá mun 2.000
manna eftirlitslið á vegum Öryggis- og samvinnustofnunar
Evrópu (ÖSE), óvopnað, fylgjast með framkvæmd sam-
komulagsins á jörðu niðri og flugvélar NATO fá heimild til
að fljúga yfir héraðið til eftirlits úr lofti. Innan níu mánaða
skulu fara fram kosningar til þings og sveitarstjórna. Þá
hefur verið fallizt á, að flóttamenn fái að snúa heim óáreitt-
ir þegar í stað og að engar hömlur verði lagðar á alþjóðlega
aðstoð við fólkið. Þá verða skæruliðum Kosovo-Albana
gefnar upp sakir vegna baráttu þeirra við sérsveitir Serba.
Ákvörðun Atlantshafsbandalagsins um loftárásir er í
fullu gildi þar til ljóst er, að Serbar standa að fullu við sam-
komulagið. Loftárásirnar voru heimilaðar frá og með deg-
inum í dag, laugardag, en nú er ráðgert, að Serbar fái
lengri frest til að draga lið sitt að fullu til baka.
Að samkomulaginu steðjar hætta úr tveimur áttum. Ser-
bneskir þjóðernissinnar eiga mjög erfítt með að sætta sig
við sjálfstjórn Kosovo-Albana og afskipti annarra ríkja af
málefnum þeirra. Margir íbúar Kosovo af albönskum ætt-
um vilja ekkert annað en fullt sjálfstæði, enda treysta þeir
Serbum varlega af biturri reynzlu. Skæruliðahópar kunna
því að stofna til átaka við Serba. Hvernig úr rætist mun að
verulegu leyti ráðast af því, hvernig viðræður Serba og
Kosovo-Albana ganga um fyrirkomulag sjálfstjórnar hér-
aðsins.
HVERFALÖGREGLA
HVERFALÖGREGLA, sem ber vinnuheitið Bústaðir,
hefur hafið störf í Háaleitis-, Bústaða-, Grensás- og
Fossvogshverfí í Reykjavík. Verkefnið Bústaðir er að hluta
til sniðið að bandarískri fyrirmynd með breyttum áherzlum
í löggæzlu, sem leitt hefur til fækkunar afbrota í borgum
þar vestra. Er vonazt til að þessi tilraun gefí góða raun hér-
lendis og hefur borgarráð Reykjavíkur fagnað „þeirri
stefnumótun og því metnaðarfulla starfí sem nú er unnið
hjá lögreglunni í Reykjavík og hefur það að markmiði að
bæta ímynd lögreglunnar, gera hana sýnilegri í störfum
sínum og fækka hvers kyns afbrotum".
Fagna ber allri viðleitni til þess að fækka afbrotum og
efla forvarnastarf, sem miðar að því að hindra að ungmenni
komist í kast við lögin. Þannig er unnt að koma í veg fyrir
frekari afbrotaferil. Breytt hugmyndafræði í löggæzlu hef-
ur víða skilað miklum árangri og ástæðulaust er að ætla
annað en svo geti einnig orðið hérlendis.
EKKI SÆMANDI
IATHUGASEMD frá Læknafélagi íslands, sem birtist
hér í blaðinu í fyrradag sagði m.a.: „Að saka slíkan mann
(Ross Andersson) um óvönduð vinnubrögð ber ekki vott um
nauðsynlegt jafnvægi hugans.“ Morgunblaðið óskaði eftir
skýringum formanns Læknafélags Islands á þessum um-
mælum en í blaðinu í gær kvaðst formaður félagsins ekki
sjá ástæðu til að skýra þessi orð frekar.
Það er engum sæmandi, en allra sízt læknum, að viðhafa
slík ummæli um annað fólk. Hin tilvitnuðu ummæli eru ekki
sæmandi Læknafélagi íslands. Þótt harðar deilur hafí stað-
ið í langan tíma um gagnagrunnsfrumvarpið er hægt að
gera þá kröfu til þátttakenda í þeim umræðum, að þeir virði
ákveðin mörk og fari ekki yfír þau í málflutningi sínum.
MHH'
Á KLETTSSVÆÐINU standa fyrir dyrum miklar framkvæmdir.
Mikið framkvæmdaár
hiá Reykjavíkurhöfn
✓
Hugsanleg seta Islendinga í öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna
Stuðningur
Norðurlanda
tryggður
AÐ hefur verið mikið að gera
undanfarið," sagði Hannes
Valdimarsson, hafnarstjóri, í
samtali við Morgunblaðið.
„Það kom lægð í framkvæmdir okkar
um tíma en eftir 1996 kom mikill kipp-
ur í lóðaúthlutun. Það má reikna með
miklum framkvæmdum á okkar vegum
á næstu árum, aukin umsvif í borginni
kalla á auknar framkvæmdir og fram-
kvæmdirnar leiða til þess að umsvifin
aukast enn.“
Undanfarið hefur áherslan á fram-
kvæmdir verið í Örfirisey en á næstu
árum færist þungamiðja framkvæmd-
anna yfir í Sundahöfn.
Hér fer á eftir yfirht yfir fram-
kvæmdir ársins á vegum Reykjavíkur-
hafnar. Við samantektina hefur að
mestu leyti verið byggt á upplýsingum
frá Jóni Þorvaldssyni, forstöðumanni
tæknideildar, og Högna Hróarssyni,
deildarstjóra tæknigagna á skrifstofu
Reykjavíkurhafnar.
Við olíubryggju í Örfirisey er nú
unnið að byggingu skjólgarðs og
bryggju fyrir stór olíuskip. „Þetta er
langstærsta framkvæmd hafnarinnar á
þessu ári. Hún hófst á síðasta ári og
lýkur á næsta ári,“ sagði Hannes
Valdimarsson. Ráðgert er að bryggjan
verði tekin í notkun í september 1999.
Þegar olíuskip fá viðlegu í Reykjavík-
urhöfn mun það heyra sögunni til að
þau leggist við akkeri utan hafnarinnar
og farmi þeirra sé dælt í land um neð-
ansjávarleiðslu.
Verkið skiptist í nokkra meginá-
fanga. Efnisskipti undir bryggju og
dýpkun viðlegu og grúsarfyllingu í
garðstæði og bryggju annast Sæþór hf.
Grjótnám og bygging skjólgarðs er í
höndum starfsmanna Suðurverks hf.
Lárus Einarsson sf. annast byggingu
bryggju. Heildarefnismagn við gerð
skjólgarðs, efnisskipti og grúsaríýll-
ingu er 430 þúsund rúmmetrar en
heildarkostnaður við mannvirkið er
áætlaður um 550 milljónir króna. Um
helmingur kostnaðar fellur til á þessu
ári. Reykjavíkurhöfn stendur að fram-
kvæmdunum en nýtur hönnunarráð-
gjafar frá Almennu verkfræðistofunni
hf.
Gatnagerð við Fiskislóð
Umfangsmiklum gatnagerðarfram-
kvæmdum er þessa dagana að ljúka við
Vesturhöfn, þar sem komið er á teng-
ingu Fiskislóðar við nýtthringtorg við
mót Ánanausta og Mýrargötu. Við
þetta gjörbreytist tenging Vesturhafn-
arinnar við stofnbrautir. Reykjavíkur-
höfn og gatnamálastjóri hafa átt sam-
starf um framkvæmdina en Amar
Kristjánsson ehf. hefur unnið verkið.
Samhliða gatnagerðinni hefur höfnin
unnið að landgerð á svæðinu og Sorpa
hefur flutt til móttökustöð sína við
Ánanaust. Nú er lokið við að fylla land
utan Grandagarðs upp að Ánanaust-
um. Fyllingarefni var dælt úr dælu-
Árið 1998 hefur verið
annasamt hjá starfs-
mönnum Reykjavíkur-
hafnar. Miklar fram-
kvæmdir hafa staðið yfír
á landi hafnarinnar með-
fram strandlengjunni
--------7-------------
allt frá Ananaustum að
Kleppsvík.
skipum frá verbúðarbryggju yfir
Grandagarð um Iagnakerfí sem komið
var upp á síðasta ári.
Búið er að dæla um 150 þúsund
rúmmetrum af fyllingarefni til fram-
kvæmdanna. Vinna er hafin við næsta
fyllingaráfanga utar og er unnið að frá-
gangi garðs og sjóvarna. Um 50 millj-
ónum króna er varið til þessara fram-
kvæmda á vegum hafnarinnar í ár.
Verktakar eru Björgun hf., Völur hf.
og Einar og Tryggvi hf.
Á Klettasvæðinu eru hafnar fram-
kvæmdir og talsverð umsvif eru þar
framundan í framhaldi af því að hafn-
arsjóður hefur gert makaskiptasamn-
inga, sem hafa fært höfninni eignar-
hald yfir lóðum og eignum á svæðinu.
Gerður var samningur við borgar-
sjóð, sem yfirtók lóðir hafnarsjóðs í
Kvosinni sunnan Geirsgögu og land
fyrir götustæði Ósabrautar í Kleppsvík
gegn því að hafnarsjóður fengi lóðir á
Laugamesi upp að Sæbraut. Einnig fái
höfnin lóðir í Gufunesi og í Geldinga-
nesi til að þróa nýja höfn í Eiðsvík.
Nýtt þróunarsvæði við Klett
Með staðfestingu þessa samnings
má þróa stórt hafnarsvæði í Sunda-
höfti, Klettasvæði.
Annan makaskiptasamning gerði
Reykjavíkurhöfn við Olíuverslun Is-
lands og Olíudreifingu. Höfnin keypti
öll mannvirki og lóðaréttindi í olíu-
birgðastöðinni í Laugamesi, starfsem-
inni var hætt og færist hún í olíustöð-
ina í Örfirisey. Þeim hluta lóðarinnar
þar sem olíustöðin stendur í dag á að
skila til Reykjavíkurhafnar fyrir lok
þessa mánaðar.
Fyrir þann tíma á Olíudreifing að
hafa fjarlægt alla olíutanka ásamt
lögnum og búnaði til geymslu á olíu.
Reykjavíkurhöfn mun hins vegar fjar-
lægja lausan jarðveg úr olíustöð og
lækka land til endurúthlutunar á svæð-
inu. Nú þegar er byrjað að lækka og
forma land í olíustöðinni og er stefnt
að verklokum um næstu áramót. Verk-
taki við þær framkvæmdir er Völur.
Þá hefur hafnarsjóður yfirtekið
fiskimjölsverksmiðjuna á Kletti með
makaskiptasamningi við borgarsjóð.
Framkvæmdir við niðuiTÍf verksmiðj-
unnar eru vel á veg komnar en Þor-
steinn Valur Baldvinsson verktaki
vinnur við að fjarlægja 7 hús af lóðinni.
Skorsteinn verksmiðjunnar er þó
ekki hluti verkefnisins en stefnt er að
því að fella hann í nóvember-desember
sem sérstakt verkefni þegar burtflutn-
ingi tanka og rifi húsa er lokið.
Ýmis verkefni við land- og gatna-
gerð hafa verið unnin. Björgun hf. hef-
ur unnið við 50 þúsund rúmmetra
landfyllingu. Völur og Einar og
Tryggvi hafa gengið frá landi og sjó-
vörnum við Skarfaklett og EP véla-
leiga hefur annast gatnagerð í Kletta-
görðum. Framkvæmdakostnaður
Reykjavíkurhafnar í ár nemur þarna
90 mÚljónum króna.
Uppbygging í Kleppsvík
í Kleppsvík var á síðasta ári hafist
handa við gatnagerðarverkefni sam-
hliða framkvæmdum við að byggja
upp aðstöðu fyrirtækja sem fengið
höfðu lóðfr á svæðinu. Verktaki við
gatnagerðina er Strókur ehf.
Samhliða hefur höfnin unnið að
landgerð á svæðinu og hefur lokið við
að fylla land við suðurenda Voga-
bakka, sem úthlutað hefur verið.
Björgun hf. hefur verið verktaki við
útvegun fyllingarefnis og er búið að
dæla í ár um 50 þúsund rúmmetrum af
fyllingarefni til þessara fi-amkvæmda.
í ár hófst undirbúningur að leng-
ingu Vogabakka til suðurs og norðurs.
Unnið hefur verið að dýpkun og efnis-
skiptum fyrir væntanlega bryggju-
gerð. Skipt hefur verið um efni undir
bryggjum og unnið að dýpkun viðlegu.
Efnismagn er um 90 þúsund rúmmetr-
ar. Verktaki er Sæþór. Kostnaður
Reykjavíkurhafnar við þessar fram-
kvæmdir í ár er um 70 milljónir króna.
STEFNA utanríkisráðuneytis-
ins um þessar mundir er að
gera íslendinga virkari í al-
þjóðamálum og sagði Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra í sam-
tali við Morgunblaðið að það væri lið-
ur í því að styrkja stöðu Islands út á
við. Liður í þessu er að Islendingar
sækist eftir sæti í öryggisráði Samein-
uðu þjóðanna. Halldór sagði að það
gæti ekki orðið fyrr en eftir nokkur
ár, en þegar væri komið vilyrði fyrir
stuðningi annarra Norðurlanda við
framboð íslands til setu í öryggisráð-
inu.
„Við þurfum að hefja umræðu um
það hér innan lands og ákveða hvort
við viljum takast á hendur þetta verk-
efni þegar fram líða stundir," sagði
utanríkisráðherra. „Ég er þeirrar
skoðunar að það sé mikilvægt að hafa
það markmið því að það muni styrkja
íslenska utanríkisþjónustu til fram-
búðar.“
Halldór sagði að seta í öryggisráð-
inu myndi veita Islend-
ingum sömu möguleika
til að hafa áhrif og öðr-
um þjóðum og hann
hefði ekki trú á öðru en
að Islendingar réðu við
þetta verkefni.
Norðmenn sækjast
eftir sæti
á næsta ári
„ísland hefur aldrei
verið í öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna,“
sagði Halldór. „Hin
Norðurlöndin hafa ver-
ið þar öll. Það er gert
ráð fyrir því að Norð-
menn sældst eftir sæti
í ráðinu á næsta ári og
það er ljóst að þeir
hafa stuðning hinna
Norðurlandanna til
þess. Þessi mál voru
rædd á síðasta fundi utanríkisráð-
herra Norðurlandanna, sem fór fram
í New York í tengslum við allsherjar-
þingið [23. september sl.]. Þá lýsti ég
því yfir að íslendingar vildu vera með
í þessari mynd og taka þátt í störfum
öryggisráðsins eins og önnur Norður-
lönd. Það fékk undirtektir á þessum
fundi.“
Utanríkisráðherra sagði að eftir
væri að ræða þessi mál betur bæði í
ríkisstjórninni og við utanríkismála-
nefnd Alþingis.
„Þannig að það hafa engar ákvarð-
anir verið teknar í þessu,“ sagði Hall-
dór. „En það liggur fyrir að Norður-
löndin eru tilbúin fyrir sitt leyti að
standa við bakið á íslandi í þeirri við-
leitni."
Hann tók fram að Norðurlöndin
hefðu ávallt komið fram sem heild í
þessu sambandi. Svíar sætu nú í ráð-
inu og hefðu Norðurlöndin unnið
sameiginlega að því framboði. Þau
myndu standa saman að framboði
Noregs á næsta ári og að framboði
Islendinga kæmi til þess. ísland yrði
þá fulltrúi Norðurlandanna og ynni
málið í sambandi við þau.
Engin regla er á setu Norðurland-
anna í öryggisráðinu. Fimm föst sæti
eru þar og kosið er á allsherjarþing-
inu til setu í tíu lausum sætum til
tveggja ára í senn. Þannig voru Svíar
kjörnir árið 1996 til setu 1997 og
1998. I föstu sætunum sitja Banda-
ríkjamenn, Bretar, Frakkar, Kínverj-
ar og Rússar og hafa neitunarvald.
Hinum sætunum er skipt þannig að
fimm koma í hlut Asíu og Afríku, tvö í
hlut Rómönsku Ameríku, tvö í hlut
Vestur-Evrópu og annarra ríkja og
eitt í hlut Austur-Evrópu.
Norðurlöndin hafa ekki sótt að eiga
fulltrúa að staðaldri í ráðinu heldur
reynt að láta einhvem tíma líða á
milli framboða. Danir hafa þrisvar átt
fulltrúa í öryggisráðinu, 1953-54,
1967-68 og 1985-86. Finnar hafa set-
ið þar tvisvar, 1969-70 og 1989-90.
Norðmenn hafa setið þar þrjú kjör-
tímabil, 1954-55, 1963-64 og 1979-80.
Svíar hafa átt fulltrúa þrisvar,
1957-58, 1975-76 og 1997-98.
Það hefur ekki alltaf verið sjálfgef-
ið að Norðurlöndin fengju fulltrúa
sæktust þau eftir því og hafa Svíar
brennt sig á því. Norðmenn hófu
kosningabaráttu fyrir árið 2000 í
fyrra og má búast við því að Islend-
ingar þyrftu lengri tíma, ekki síst af
því að styrkja þarf alþjóðaskrifstof-
una, sem vinnur að öryggismálum og
málefnum Sameinuðu þjóðanna, og
fastanefndina hjá Sameinuðu þjóðun-
um í New York.
Hægt að nýta setu
í öryggisráðinu vel
Walter Douglas, blaðafulltrúi
bandaríska sendiráðsins í Reykjavík,
sagði að lykilatriði væri að hefja und-
irbúning framboðs snemma því að
erfitt gæti verið að tryggja sér kosn-
ingu í tímabundið sæti í öryggisráð-
inu.
Douglas starfaði í öryggisráðinu
þegar hann var í fastanefnd Banda-
ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum í
sendiherratíð Madeleine Albright,
núverandi utanríkisráðherra, á árun-
um 1994 til 1997. Hann nefndi nokkur
dæmi um að þjóðir hefðu nýtt tíma-
bundna setu í öryggisráðinu einstak-
lega vel, þar á meðal Argentínumenn.
„Þeir höfðu á dagskrá að gegna
stærra hlutverki í friðargæslu,“ sagði
hann. „Þeir vildu koma á fót svoköll-
uðum hvíthjálmum sem öndvert við
bláhjálmana myndu samanstanda af
almennum borgurum og aðstoða við
uppbyggingu á átakasvæðum. Fyrsta
hálfa árið voru Argentínumenn mjög
öflugir sáttasemjarar og miðluðu
málum milli deiluaðila í ráðinu. Þeir
gerðu ljóst að þeir hlustuðu á alla og
tækju þátt með það fyrir augum að
vera uppbyggilegir. Þegar þeir síðan
vöktu máls á sínum málstað var þeim
mjög vel tekið í öryggisráðinu."
Hann sagði að Botswana, sem var í
öryggisráðinu frá 1995-96, hefði verið
lykilríki í að sjá til þess að góður full-
trúi frá Afríku, Kofí Annan, yrði til
þess að taka við af Egyptanum
Boutros Boutros-Ghali.
„Botswana stóð sig sérstaklega
vel,“ sagði Douglas. „Botswana er lít-
ið land, sendinefnd þess lítil og hefur ►
ekki mikið umleikis. Sendiherrann
var hins vegar mjög góður og þótt
hann hefði aðeins tvo góða aðstoðar-
menn var litið svo á að Botswana
væri þungavigtaraðili í öryggisráðinu.
Þeir urðu rödd Afríku og önnur ríki
sneru sér til þeirra þegar þau vildu að
rödd Afríku heyrðist."
undahöfn og höfn í Eiðsvík
rirhugaðar framkvæmdir
Ce/dinganes
Reuters
FRÁ fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í
höfuðstöðvum samtakanna í New York.