Morgunblaðið - 17.10.1998, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
4
AKUREYRI
Alþjóðleg viðskiptamiðstöð til umræðu á fundi Verslunarráðs
Markmiðið að skjóta fleiri
stoðum undir atvinnulífið
ALPJÓÐLEG viðskiptamiðstöð -
nýir möguleikar fyrir fyrii-tæki í al-
þjóðaviðskiptum, var yfirskrift há-
degisverðarfundar Verslunarráðs
íslands á Fosshóteli KEA á Akur-
eyri í gær. Framsögumenn voru
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmda-
stjóri Verslunarráðs og Jóhannes
Geir Sigurgeirsson, stjórnarfor-
maður KEA, en þeir áttu báðir sæti
í verkefnisstjórn á vegum ríkis-
stjómarinnar sem hefur haft þetta
mál til umfjöllunar.
Vinna við frágang frumvarps um
alþjóðlega viðskiptamiðstöð, með
sértakri áherslu á verslun með sjáv-
arfang, er nú á lokastigi og í máli
Vilhjálms Egilssonar kom fram að
hann vonaðist til að hægt yrði að
leggja frumvarpið fyrir Alþingi
jafnvel í þessum mánuði og afgreiða
það fyrir jól, eða snemma á næsta
ári. I máli beggja frummælenda
kom fram að hugmyndin hefði feng-
ið mjög jákvæð pólitísk viðbrögð.
„Allt umhverfi hefur breyst mjög
mikið en fyrir fimm árum hefði
þessi hugmynd sett allt á annan
endann," sagði Jóhannes Geir. Vil-
hjálmur tók undir þau orð og sagði
fólk í dag mun móttækilegra fyrir
þessum hugmyndum en áður.
„Vaxtarmöguleikar í fiski tak-
markast af því hráefni sem við fáum
úr sjónum. Við erum hins vegar að-
eins með um 3% af milliríkjavið-
skiptum með fisk og þar er markað-
urinn.“
Vilhjálmur sagði að markmiðið
með stofnun alþjóðlegrar viðskipta-
miðstöðvar væri að skjóta fleiri
stoðum undir íslenskt atvinnulíf,
auka fjölbreytni atvinnulífsins, auka
þjóðartekjur og síðast en ekki síst
að skapa möguleika á nýjum há-
launastörfum í þjóðfélaginu. „Þetta
byggist á því að nota það sem við
höfum og eins verðum við að reyna
að auka tekjur ríkissjóðs. Pá er al-
þjóðavæðing íslenskra fyrirtækja
stöðugt að aukast og þau þurfa að
sækja meira út á markaðinn en þau
hafa verið að gera.“
Nýta sérþekkingu okkar
Vilhjálmur sagði að fyrirtæki eins
og ÍS, SH og SÍF kæmu ekki til
með að vaxa mikið út á það að selja
íslenskan fisk. Og ætli þau að vaxa
þurfa þau að fara að versla með fisk
sem veiddur er af öðrum en Islend-
ingum. Þessi hugmynd er líka fyrir-
byggjandi aðgerð og jafnframt
vamaraðgerð og líki fyrirtækjum
ekki þau starfsskilyrði sem þeim
eru búin hér á landi má búast við að
þau leiti annað. Við þessu þarf að
bregðast, stöðva flutning fyrirtækja
úr landi og laða þau sem eru farin
aftur til landsins.“
Saumum fyrir
börnin í Bosníu
V ::
Saumaðu
bangsa eða
oarnahúfu
°ggleddu
oornin í
Bosníu
m feið
í dag býðst öllum að mæta í Radíó Naust og sauma barnahúfu eða
bangsa fyrir börnin í Bosníu. Allt efni. leiðbeinandi og saumavélar
verða frítt á staðnum. Eimskip og Hjálparstofnun kirkjunnar koma
svo öllum jólagjöfunum til þakklátra barna í Bosníu.
©
Husqvarna
á Akureyri
ídag
RáDIOIlllli
Blaðbera
vantar í eftirtalin hverfi: Lyngholt/Stórholt,
Gerðahverfi, Oddeyrargötu/Brekkugötu,
Ása byggð/J örf a byggð.
Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur
í bæinn.
Góður göngutúr sem borgar sig.
Morgunblaðið
Kaupvangsstræti 1, Akureyri
Sími 461-1600
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og upplýs-
ingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í upplagseftirliti og eru seld að meðaltali
rúmlega 53.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík
þar sem eru hátt í 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
Morgunblaðið/Kristján
VILHJÁLMUR Egilsson, framkvæmdastjtíri Verslunarráðs, og Jó-
hannes Geir Sigurgeirsson, stjómarformaður KEA, voru framsögu-
menn á fundi Verslunarráðs um alþjtíðlega viðskiptamiðstöð.
Vilhjálmur sagði að þetta væri
hægt með því að nýta okkar sér-
þekkingu, nýta legu landsins og nú-
tíma fjarskiptatækni. Einnig með
því að nýta það alþjóðlega álit sem
við njótum sem leiðandi þjóð í
vemdun og uppbyggingu fiski-
stofna. „Pað er því eðlilegt að fyrir-
tæki sem sérhæfa sig á alþjóðavett-
vangi í sölu sjávarfangs og tækni-
og viðskiptakunnáttu í sambandi við
sjávarfang séu á íslandi."
Tekjuskatturinn 5%
Jóhannes Geir fór yfir þau starfs-
skilyrði sem lagt er til að sett verði
vegna stofnunar alþjóðlegrar við-
skiptamiðstöðvar. I máli hans kom
m.a. fram að stofnendur geti verið
hvort sem er innlendir eða erlendir
aðilar en að sérstök skráningar-
nefnd skuli gaumgæfa umsóknh' og
aðstandendur hennar. Alþjóðleg
viðskiptafélög geta ekki fært kostn-
að af starfsemi sinni yfir á aðra að-
ila en unnt er að óska heimildar til
að færa bókhald og ársreikninga í
eriendri mynt.
Jóhannes Geir sagði gert ráð fyr-
ir að tekjuskattur alþjóðlegra við-
skiptafélaga væri 5% og tekjuskatt-
ur vegna arðgreiðslna til erlendra
eigenda verði 5%. Alþjóðleg við-
skiptamiðstöð greiðir ekki eignar-
skatt og skal vera undanþegin
stimpilgjöldum utan þau skjöl er
varða kaup slíkra félaga á vörum og
þjónustu eða rekstrarfjármunum
hérlendis.
Hugmyndin um alþjóðlega fjár-
málamiðstöð á Islandi er ekki ný af
nálinni og í máli Vilhjálms kom
fram að Jón Sólnes hefði komið
fram með slíka hugmynd inn á Al-
þingi árið 1973. Þá var sett nefnd á
laggirnar árið 1992 og sagði Vil-
hjálmur að niðurstaða þeirrar
nefndar hefði verið á þann veg að
ekki ætti að reyna að byggja upp al-
þjóðlega fjármálastarfsemi hér á
landi og voru færð ýmis rök fyrir
þeirri niðurstöðu.
„Það hefur margt breyst og þró-
unin erlendis hefur orðið önnur en
spáð var. Hér innanlands hafa
einnig orðið miklar breytingar og
nánast búið að skipta um alla lög-
gjöf á fjármagnsmarkaðnum á und-
anfömum árum og stundum oftar
en einu sinni,“ sagði Vilhjálmur.
Listaverkið
á Renniverk-
stæðinu
ÞJÓÐLEIKHUSIÐ sýndi Lista-
verkið, franskt verðlaunaleikrit
eftir Yazminu Reza, fyrir fullu
húsi á Renniverkstæðinu á Akur-
eyri í gærkvöld. Listaverkið hefur
notið mikilla vinsælda en verkið
var sett upp í Þjóðleikhúsinu fyrir
tveimur árum en sýningar svo
færðar í Loftkastalann.
Listaverkið er gamanleikur og
fjallar um þrjá vini og breyting-
una sem verður á samskiptum
þeirra er einn þeirra kaupir lista-
verk sem hinir tveir hafa ekki
smekk fyrir. Verkið íjallar því
bæði um listina og ekki síður um
vináttuna. Með hlutverk í Lista-
verkinu fara þrír af þekktustu
leikurum þjóðarinnar af yngri
kynslóðinni, þeir Ingvar E. Sig-
urðsson, Baltasar Kormákur og
Hilmir Snær Guðnason en leik-
stjóri er Guðjón Pedersen.
Önnur sýning á verkinu á
Renniverkstæðinu er í kvöld og sú
þriðja annað kvöld. Listaverkið
verður einnig sýnt á Renniverk-
stæðinu um næstu helgi og ef að-
sókn verður góð, eins og flest
bendir til, er til athugunar að sýna
verkið eina helgi til viðbótar norð-
an heiða.
Tónleikar
karlakóra
í frétt í Morgunblaðinu í gær um
tónleika Karlakórs Akureyrar-Geys-
is í Dalvíkurkirkju í dag laugardag,
var annar einsöngvara kórsins,
Magnús Friðriksson, sagður Þor-
steinsson og leiðréttist það hér með.
Gestgjafarnir í Karlakór Dalvíkur
syngja einnig nokkur lög á tónleik-
unum sem hefjast kl. 16.00.
Aksjón
17. október, laugardagur
12.00^-Skjáfréttir
17.00^-Dagstofan Umræðuþáttur í
samvinnu við Dag. (e)
18.00^Blak 1. deild. KA -
Þróttur N.
21.00^-Kvöldljós Kristilegt efni frá
sjónvarpsstöðinni Omega.
18. október, sunnudagur
12.00^-Skjáfréttir
17.00^ Dagstofan Umræðuþáttur í
samvinnu við Dag. (e)
21.00Þ-Kvöldljós Kristilegt efni frá
sjónvarpsstöðinni Omega.
19. október, mánudagur
12.00^-Skjáfréttir
18.15^Kortér Fréttaþáttur í sam-
vinnu við Dag. Endursýndur kl.
18.45,19.15 19.45, 20.15 20.45
21.00^-Mánudagsmyndin - Hud-
sucker Proxy Ungur maður nær
undra skjótum frama innan stórfyrir-
tækis, en það er ekki allt sem sýnist
og næðingssamt á topþnum. Aðal-
hlutverk. Tim Robbins, Jennifer Ja-
son Leigh og Paul Newman. 1993.
Kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA: Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11 á morgun.
Barnakór kirkjunnar syngur, sunnu-
dagaskólabörn og foreldrar þeirra
velkomnir. Guðsþjónusta á FSA kl.
17 á sunnudag. Æskuiýðsfélagsfund-
h- í kapellunni kl. 17 á sunnudag. Bi-
bh'ulestur í Safnaðarheimili á mánu-
dagskvöld í umsjá sr. Guðmundar
Guðmundssonar, sálmur nr. 103 les-
inn og íhugaður með yfirskriftinni
Lofgjörð og gleði. Mömmumorgunn í
Safnaðarheimili frá 10 til 12 á mið-
vikudag. Guðný Bergvinsdóttir, full-
trúi frá Rauða krossi íslands, kynnir
hjálpartæld til að koma í veg fyrir
slys á bömum á heimilum, yfirfer
sjúkrakassann og kynnir barnfóstru-
námskeið. Tveggja kvölda námskeið
um karlmennsku verður þriðjudags-
kvöldin 20. og 27. október næstkom-
andi. Innritun og nánari upplýsingar
eru í kirkjunni.
GLERÁRKIRKJA: Barnasamvera
og messa í kirkjunni með sameigin-
legu upphafi kl. 11 á morgun, sunnu-
dag. Undir sálmi fyrir predikun
ganga börnin í safnaðarsalinn þar
sem verður skemmtilegur sunnu-
dagaskóli. Fundur æskulýðsfélags-
ins verður kl. 20 sama dag. Biblíu-
lestur og bænastund frá kl. 20 til 21
á mánudagskvöld. Náttsöngur kl. 21
á mánudagskvöld. Kyrrðar- og til-
beiðslustund kl. 18.10 á þriðjudag,
20. október. Hádegissamvera kl. 12
til 13 á miðvikudag, 21. október
Helgistund og léttur málsverður
Opið hús fyrir foreldra og börn á
fimmtudag frá kl. 10 til 12
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 á sunnudag, almenn
samkoma kl. 17 í umsjá unga fólks-
ins. Heimilasamband kl. 15 á mánu-
dag, unglingasamkoma kl. 20 á
þriðjudagskvöld, krakkaklúbbur fyr-
ir 6-10 ára á miðvikudag kl. 17
Hjálparflokkur kl. 20 á miðvikudag
21. október, Ellefu plús mínús, fvrir
10-12 ára kl. 17 á fóstudag. Fata-
markaður frá kl. 10 til 17 á fóstudae-
HVITASUNNUKIRKJAN: Verkleg
þjálfun fyrir unglinga kl. 14 í dag
laugardag. Bænastund frá kl. 20-21 í
kvöld. Sunnudagaskóli fjölskyldunn-
ar á morgun, sunnudag, kl. 11.30 Bi-
blíukennsla fyrir aila aldursflokka
Reynir Valdimarsson kennir um verk
heilags anda. Brauðsbrotning. Léttur
hádegisverður á vægu verði kl. 12 30
Samkoma sama dag kl. 20. G. Thodór
Bfrgisson predikar. Fjölbreyttur
söngur. Pössun fyrir börn yngri en 6
ára. Heimasíða Hvítasunnukirkjunn-
ar: www.gospel.is og Vonarlínan
sími 462-1210, símsvari allan sólar-
hringinn með uppörvunarorðum úr
ritningunni.
KAÞOLSKA KIRKJAN: Messa kl
18 í dag, laugardag, 0g kl. 11 i
morgun, sunnudag, í kirkjunni við
Eyrai'landsveg 26.
LAUGALANDSPRESTAKALL'
Messa í Grundarkirkju kl. 13 30 á
sunnudag og þætti sóknarprestl
gaman að sjá væntanleg fermingar-
böm og foreldra þein-a þar. Sama
dag er messa á Kristnesspítala kl 15
Sunnudagaskólinn hefst í Möðru-
vallakirkju á morgun kl. 11. Rútur
aka frá Æsustöðum ki. 10 30 að
Vatnsenda í Torfufell og þaðan í
Möðruvelli, frá Austui-hlíð leggur á
sama tíma af stað rúta og ekur Evia
fjarðarbraut eystri í Möðruvelli oc
kl. 10.15 leggur rúta af stað frá
Leiruvegi og ekur hina vestari Eyja-
fjarðarbraut upp í Djúpadal með við-
komu í Hólshúsum og Grund og bað
an frá Argerði í Möðruveili. Gaman
væri að foreldrar sæu sér fert að
vera svolítið með. Ráðgert er að
vikulegar bæna- og kyrrðarstundir
verði á miðvikudögum kl. 21 í kaníf
ulinu við Munkaþverá og stefnt^að
því að hin fyrsta verði 21. október.
------♦-♦♦■—
Bingtí hjá
KFUM og K
BINGÓ verður spilað í sa) kfttm
og K í Sunnuhlíð kl. 15 á sunnudag
18. október. Agóði rennur til starf’
semi KFUM og K á Akureyri Góðfr
vinningar eru í boði og eru þeir við
alfra hæfi. Gos og sælgæti selt á
staðnum og boðið er upp á molasopa
-