Morgunblaðið - 17.10.1998, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 17.10.1998, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1998 29 Reuters SAMTÖK heimavinnandi húsmæðra á Ítalíu hittu í gær leiðtoga stjórnmálaflokkanna til að krefjast þess að ríkisstjórn Romanos Prodis tæki aftur við völdum. D’Alema falin stj órnarmynd- un á Italíu Róm. Reuters. OSCAR Luigi Scalfaro, forseti Ítalíu, boðaði Massimo D’Alema, leiðtoga Lýðræðislega vinstri- flokksins sem er arftaki gamla Kommúnistaflokksins, á sinn fund í gær og fól honum stjórnarmyndun- arumboð. Hafði Francesco Cossiga, leið- togi miðflokksins (UDR), fyiT í gær sagt að flokkur sinn gæti vel hugsað sér að styðja ríkisstjórn undir forsæti D’Alemas en með stuðningi UDR í neðri deild ítalska þingsins hefði D’Alema þar starf- hæfan meirihluta. Vonast menn því til þess að loks hilli undir lok stjórnarkreppunnar á Ítalíu, sem staðið hefur í tvær vikur, eða frá því að ríkisstjórn Romanos Prodis féU. Cossiga lagði hins vegar áherslu á að D’Alema yrði að upp- fylla ákveðin skilyrði ef af stuðn- ingi UDR ætti að verða, t.a.m. yrði D’Alema að hafa sýnt fram á að hann hygðist taka á þeim brýnu vandamálum sem að steðj- uðu á Ítalíu, og ekki síður stærri spurningum tengdum stjórnar- skránni. Romano Prodi, fyrrverandi for- sætisráðherra, brást vel við yfirlýs- ingu Cossiga og sagði að ný ríkis- stjórn tæki væntanlega senn til starfa. En D’Alema á sjálfsagt eftir að standa í erfíðum hrossakaupum við UDR áður en stjórn hans fer að taka mynd á sig. D’Alema getur nú treyst á stuðning 290 þingfulltrúa og 31 fulltrúi UDR myndi því tryggja honum hreinan meirihluta í neðri deild þingsins, þar sem sitja 630 fulltrúar. Myndi hann þá ekki þurfa stuðning fulltrúa hófsamra kommúnista, sem eru 21 talsins, sem sögðu skilið við flokk harðlínu- kommúnista eftir að hann felldi ríkisstjóm Prodis. Gæti reynst erfitt að stýra ríkisstjórn er hefði innanborðs bæði kommúnista og UDR og því yrði D’Alema líklega að fórna kommúnistum, sem þó hafa boðið honum stuðning sinn. Tölvu gefn- ar skipanir með hugsun The Daily Telegraph. LÖMUÐUM manni hefur ver- ið gert kleift að gefa tölvu skipanir með hugsun einni saman, eftir að rafskaut var grætt í heila hans, að því er kemur fram í The Daily Tel- egraph. Dr. Roy Bakay, við Emory- háskóla í Atlanta í Bandaríkj- unum, skýrði frá þessu á ráð- stefnu taugaskurðlækna í Seattle á dögunum. Hann sagði að hópur vísindamanna undir sinni stjórn hefði grætt raf- skaut í heila 53 ára manns, sem lamaðist algjörlega eftir heila- blóðfall. Maðurinn er tengdur öndunai-vél og getur ekki talað, en er með fullri meðvitund. Eftir aðgerðina getur hann nú stjórnað bendli á tölvuskjá og gefið skipanir. Bakay sagði að aðgerðin fælist í því að tvær örlitlar glerkeilur með rafskaut á end- unum væi-u græddar í þann hluta heilans sem stjórnar hreyfingum. Heilafrumur gróa smám saman inn í keilurnar og tengjast rafskautunum. Sjúk- lingurinn getur þá þjálfað sig í að beita hugsun til að láta raf- skautin senda boð til magnara, sem festur er við höfuðkúpuna, er sendir loks boð til tölvunn- ar. Könnun á afstöðu Svía til evrópska myntbandalagsins Jafn margir eru með og á móti EMU Stokkhólini. Reuters. SÆNSKUR almenningur skiptist nú í tvær jafnstórar fylkingar með og á móti aðild Svíþjóðar að Efna- hags- og myntbandalagi Evrópu, EMU, ef marka má niðurstöður skoðanakönnunar sem birt var í Stokkhólmi í gær. Könnunin, sem Demoskop-stofn- unin gerði á vegum Merita- Nordbanken meðal 1.002 Svía, sýndi að 40% aðspurðra væru fylgj- andi EMU-aðild en 40% andsnúin. 20% eru óákveðnir. I sambærilegi'i könnun sem gerð var í janúar sl. voru 29% fylgjandi, 42% á móti og 29% óákveðin. „Jákvæðari afstaða í skoðana- könnunum eykur til muna líkumar á EMU-aðild Svíþjóðar. Þetta bæt- ist við horfurnar á að krónan styrk- ist og að vaxtamunurinn fari minnk- andi,“ segir í fréttatilkynningu frá MeritaN ordbanken. Sænsk stjórnvöld ákváðu að land- ið stæði utan við myntbandalagið þegar ellefu ESB-lönd taka upp hina sameiginlegu Evi'ópumynt um næstu áramót. Stjórnin hefur lýst því yfir að ákvörðun um EMU-aðild landsins verði aðeins tekin með samþykki þjóðarinnar, annaðhvort í þjóðaratkvæðagreiðslu eða með þingkosningum. A riæstunni á að hefjast opinber upplýsingaherferð um myntbanda- lagið, sem valdið hefur togstreitu milli jafnaðarmanna og vinstriflokk- anna sem styðja minnihlutastjórn þeirra. Staða sænsks útflutningsiðnaðar og fjárfestingar í Svíþjóð hefur versnað við þann hamagang sem gengið hefur yfir fjármálamarkaði heimsins að undanfómu. Merita- Nordbanken les það út úr niðurstöð- um skoðanakönnunarinnar, að marg- ir Svíar líti svo á, að þessar hremm- ingar á heimsmarkaðnum gerðu að- ild Svíþjóðar að EMU brýna. Indverjar og Pakistanar hefja friðarviðræður á ný Islamabad. Reuters. FRIÐARVIÐRÆÐUR hófust á ný milli Indverja og Pakistana í Islamabad, höfuðborg Pakistans, í gær. UtanríkisráðheiTar landanna munu freista þess að finna lausn á deilunni um Kashmír-hérað, og embættismaður sagði að loknum fyrsta fundi þeirra að viðræðurnar hefðu verið hreinskilnislegar og á vingjamlegum nótum. Samskipti landanna hafa verið af- ar stirð undanfarið ár, vegna deilna um héraðin Jammu og Kashmír í Himalaja-fjöllum. Bæði telja sig eiga tilkall til héraðanna, og hafa tvisvar farið í stríð vegna þeirra. Indverjar ráða yfir tveimur þriðju hlutum Kas- hmír og saka Pakistana um að styðja við baldð á uppreisnarmönnum músh'ma í héraðinu. Stjómvöld í Pakistan hafa vísað því á bug, og segjast aðeins veita Kashmírbúum siðferðilegan stuðning í baráttu þeirra fyrir sjálfsákvörðunarrétti. Shamshah Ahmad, utanríkisráð- herra Pakistans, sagði fréttamönn- um að ekki væri von á neinum „skyndilausnum" á deilumálum Ind- verja og Pakistana. „Við erum að fást við mjög flókin ... og erfið mál“. Ahmad sagði að bæði löndin horfð- ust í augu við nýjar áskoranir eftir að þau framkvæmdu tilraunir með kjarnorkuvopn í maí síðastliðnum. „Það er nauðsynlegt að afstýra hættu á átökum og koma í veg fyrir vígbúnaðarkapphlaup,“ sagði hann við fréttamenn á leið til fundar við K. Raghunath, utanríkisráðherra Indlands. Álnabúðin Mlðbæ v/Háaleltlsbraut • Mikið úrval af ódýrum púðaborðum • Eldhúskappar - blúndu - f mörgum litum • Tilboðshillur með ódýrum efnum • Full búð af nýjum efnum Opið laugardaga kl. 10-14. Sími 588 9440. OPNUNARTILBOÐ Ný rúmgóð verslun Skútuvogi 6 Mikið úrval - skóskápar - tölvuborð - bókahillur - lampar og fl. Opið kl. 10-18:30, laugard. kl. 11-16, sunnud. kl. 13-16.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.