Morgunblaðið - 17.10.1998, Blaðsíða 72
i 72 LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
a
HASKOLABIO
HASKOLABIO
__UJll! -V;^.L-L-IllJll LlLUáJÍIj F
« NÝTT OG BETRA'
SA6A-
Hagatorgi, sími 530 1919
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
^
HK DV
SV Mbl
tom fiánks
rivate ryan
1 -i FfPHf f "VJPV 11 '
Sýndkl. 5og9. B.i. 16.
■ , ■
iiilLdLá
Sýndkl.9og11.15. B.i.16.
www.samfilm.is
Stærsta og eina safn
auglýsingamynda í heiminum
Nótt auglýsinga-
ætanna
Jean Marie Boursicot hefur safnað auglýs-
ingamyndum síðan hann var 10 ára og á
orðið ríflega 450 þúsund myndir. Valið sýn-
ishorn úr þeim verður sýnt í kvöld og nótt í
Háskólabíói. Pétur Blöndal ræddi við hann
um auglýsingar sem listform.
Morgunblaðið/Þorkell
Jean Marie Boursicot.
IJR fyrstu auglýsingamyndinni.
„PEGAR ég var tíu ára heillaðist ég
af kvikmyndum,“ segir Jean Marie
Boursicot. „Ég byrjaði því að safna
afgangs filmubútum í kvikmynda-
húsi í heimabæ mínum Marseilles í
Suður-Frakklandi.“
Hann brosir og virðist vera við-
felldinn og viðræðugóður eins og
Frakkar eiga að vera og er staddur
hérlendis til að kynna Nótt auglýs-
ingaætanna sem hefst í Háskólabíói
í kvöld.
^ „Vitaskuld hentu eigendur kvik-
myndahússins ekki kvikmyndum,"
heldur Boursicot áfram. „En þeir
hentu auglýsingum og það varð úr
að ég byrjaði að safna þeim.“
Skapandi auglýsingar
Þegar Boursicot óx úr grasi byrjaði
hann að vinna á auglýsingastofu en
ástríðan fyrir auglýsingamyndum
fylgdi honum. Enda varð honum
snemma ljóst að hvergi var til nein
skrá yfir auglýsingar og þeim var
hent jafnóðum og þær höfðu verið
notaðar.
„Petta byrjaði sem áhugamál en
varð brátt fullt starf,“ segir Bo-
ursicot. „Einhvem veginn varð ég
að fjármagna þetta fyrirtæki enda
er safnið komið upp í ríflega 450
þúsund auglýsingamyndir og mikið
starf að halda utan um skrásetn-
ingu á þessu öllu saman. Pað varð
því úr að stofna til Nætur auglýs-
yingaætanna þar sem almenningi
gæfíst kost á að deila með mér
ástríðunni fyrir skapandi auglýs-
ingum.“
Boursicot segir að þetta komi vel
heim og saman við þá köllun sína í
lífinu að gera fólk meðvitað um að
auglýsingar geti verið annað og
meira en að selja vöru - þær geti
einnig verið listform.
Bönnuð í
múslímalöndunum
Myndin Nótt auglýsingaætanna
hefur verið sj'nd í 41 landi um all-
an heim ef Island er meðtalið og
eru borgirnar orðnar 90 talsins. Er
það allt frá Síberíu til Ástralíu.
„Hún hefur jafnvel verið sýnd í
Kína þótt yfirvöld þar hafi ritskoð-
að myndina og stytt hana úr sex
klukkustundum í fjórar,“ segir Bo-
ursicot.
„Ritskoðunin var ekki pólitísk
heldur meira félagslegs eðlis og tók
Kínverjana þrjá mánuði. Þeir tóku
fyrir að það mættu ekki sjást rass-
ar, kossar eða brjóst. Dalai Lama
var algjörlega bannaður og einnig
mannréttindi og smokkar." Þá hafa
múslímalöndin bannað sýningu
myndarinnar ef Túnis og Marokkó
eru undanskilin.
100 ár frá fyrstu
auglýsingunni
Safn Boursicots er það stærsta
sinnar tegundar í heiminum og
raunar hið eina. Hann er með skjal
frá Heimsmetabók Guinness upp á
það. „Safnið er sögulega hrífandi
mynd af heiminum," segir Bo-
ursicot. í safninu er elsta auglýsing
sem gerð hefur verið og er hún ald-
argömul. Það var auglýsing frá
Sunlight-sápufyrirtækinu og er til
marks um framsýnina á þeim bæ að
fyrirtækið er starfrækt enn þann
dag í dag.“
„En þetta er einnig spegilmynd
af þróun samfélagsins um allan
heim,“ segir Boursicot. „í mynd-
inni má gjörla sjá hversu smekkur
manna breytist og hraðinn eykst
sífellt í þjóðfélaginu. Hann er jafn-
vel mun meiri núna en fyrir tíu ár-
um.“
Það verður mikið um dýrðir í
kvöld. Ásamt Nótt auglýsingaæt-
anna verður sýnt safn íslenskra
auglýsinga og mun Jean Marie Bo-
ursicot gefa álit sitt á þeim.
Þá geta áhorfendur hvílt sig inni
á milli á myndinni, sem er sex tím-
ar, og þegið veitingar í anddyri Há-
skólabíós þar sem búið verður að
koma fýrir bar og þar verða ýmsar
kynningar. Þá verða þeir leystir út
með gjöfum. Aðgangseyrir er 1.200
krónur.
MYNDBOND
Ævintýri
úr hafdjúp-
unum
Litla hafmeyjan
(The Little Mermaid)
'I' o i k n i m y n d
★★★
Framleiðsla: Howard Ashman og
John Musker. Leikstjórn: John
Musker. Handrit: John Musker.
Tónlist: Howard Ashman og Alan
Menken. 82 mín. Sam-myndbönd,
október 1998.
Þessi hugljúfa mynd, sem byggð er
á sögu H.C. Andersens, segh- frá
hafmeyjarprinsessunni Aríel sem
verður ástfangin af
tvífætlingnum og
prinsinum Eric.
Faðir Aríelar er á
móti sambandinu,
og því leitar Aríel á
náðir Ursúlu, sæ-
nomarinnar illu.
Ef hún nær ástum
prinsins í tæka tíð
er hún hólpin, ann-
ars eignast nomin sál hennar. Per-
sónumar em einstaklega vandaðar,
þótt einfaldar séu og heilla áhorf-
endur jafnt nú og fyrir níu áram.
Sáraeinfalt og sígilt ævintýrið
um Aríel er einkar vandlega fram
sett af töframönnum Disney fyrir-
tækisins og markaði ótvíræð tíma-
mót í teiknimyndagerð þegar það
kom út árið 1989. Frábær mynd
fyrir yngstu áhorfenduma en líður
nokkuð fyrir íslensku talsetning-
una, sem þrátt fyrir ágæt vinnu-
brögð ágætra leikara nær ekki því
flugi sem upprunalega talsetningin
gerði. Þetta er mest áberandi í fjöl-
mörgum söngatriðum myndarinn-
ar, en „Litla hafmeyjan" hlaut
tvenn Oskarsverðlaun á sínum
tíma, fyrir tónlist og lagasmíðar.
Frábær teiknimynd sem bömin fá
seint leið á.
Guðmundur Ásgeirsson