Morgunblaðið - 24.10.1998, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1998 31
Þessi auglýsing er birt í upplýsingaskyni ogfelur ekki i sér tilboð um sölu hlutabréfa
FJARFESTINGARBANKl
ATVINNULÍFSINS H F
SALA HLUTABRÉFA í FBA
OG SKRÁNING ÞEIRRA Á VERÐBRÉFAÞINGI ÍSLANDS
Seljandi:
Ríkissjóður íslands
Útgefandi:
Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf.
Umsjón með útboði og milliganga við skráningu:
Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf.
Boðin eru til sölu hlutabréf í eigu ríkissjóðs að fjárhæð allt að 3.332 milljónir króna að nafnverði.
Hlutabréfin verða seld í tveimur áföngum. Annars vegar er um að ræða sölu til
einstaklinga og lögaðila með áskriftarfyrirkomulagi þar sem heimilt er að skrifa sig
fyrir hlutum fyrir allt að 3 milljónum króna að nafnverði og sölu til starfsmanna
samkvæmt sérstökum skilmálum fyrir allt að 1 milljón króna að nafnverði. Hins
vegar er um að ræða tilboðsölu þar sem það hlutafé sem ekki selst í almennri sölu
verður selt með tilboðsfyrirkomulagi og er hverjum og einum heimilt að gera
tilboð í allt að 3% af heildarnafnverði hlutafjár bankans.
Tekið verður á móti áskriftum hjá FBA, Ármúla 13a, Reykjavík, og í eftirtöldum bönkum,
útibúum þeirra og dótturfyrirtækjum í verðbréfaþjónustu, sparisjóðum og fyrirtækjum í
verðbréfaþjónustu auk rafrænnar áskriftar í gegnum heimasíðu FBA, www.fba.is
Búnaðarbanki íslands hf.
Handsal hf.
Kaupþing hf.
Landsbanki íslands hf.
Verðbréfastofan hf.
Fjárvangur hf.
íslandsbanki hf.
Kaupþing Norðurlands hf.
Sparisjóðirnir
Stjórn Verðbréfaþings fslands hefur samþykkt að taka á skrá öll hlutabréf FBA,
sem þegar hafa verið gefin út, samtals að nafnverði 6.800 milljónir króna, á
Aðallista VÞÍ að loknu útboði, enda hafi FBA uppfyllt öll skilyrði skráningar, þar
með talin skilyrði um fjölda hluthafa og dreinngu hlutafjár. Hlutaféð er allt í
einum flokki jafnrétthárra bréfa. Útboð nýrra hlutabréfa er ekki fyrirhugað í
tengslum við skráninguna.
Niðurstöður útboðsins í heild sinni verða birtar í viðskipta- og upplýsingakerfi VÞÍ
ásamt endanlegri dagsetningu skráningar. Þess er vænst að skráning verði um
miðjan desember n.k.
Áskriftartímabil í almennri sölu er 30. október - 12. nóvember 1998. Tilboðssala
fer fram 23. - 27. nóvember. Unnt er að nálgast skráningarlýsingu frá og með 26.
október á sölustöðum, á heimasíðu FBA: www.fba.is og hjá FBA, Ármúla 13a,
Reykjavík.
FJÁRFESTINGARBANKl
ATVINNULÍFSINS H F
ÁRMÚLI 13a
108 Reykjavík
Sími: 580 50 00
Fax: 580 50 99
www.fba.is