Morgunblaðið - 24.10.1998, Blaðsíða 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.1S, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 24. OKTOBER 1998
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR.-MEÐ VSK
einstakir
miðlarar
10-11 og vörudreifíngarmiðstöð Baugs í samstarf um innkaup og lagerhald
011 þurrvara verslan-
anna keypt frá Aðföngum
TÍU-ELLEFU-verslanirnar hafa
náð samkomulagi við Aðföng, vöru-
dreifingarmiðstöð Baugs hf., sem er
móðurfélag Hagkaups, Nýkaups,
Bónuss og Hraðkaups, um innkaup
á allri þurrvöru fýrir 10-U-verslan-
irnar. Oskar Magnússon, stjórnar-
formaður Baugs, staðfesti í samtali
við Morgunblaðið að Baugur hefði
tekið yfir innkaup og lagerhald fyrir
10-11-verslanirnar. Hann vildi ekki
ó «p£já sig nánar um málið að öðru leyti
en því að félagið hefði yfir að ráða
ónýttu húsnæði, sem fullur vilji
væri til að nýta. Hann sagði að það
gæti staðið fleirum til boða að koma
þangað í viðskipti að uppfylltum
eðlilegum skilyrðum.
„Augljóst hagræði“
Hertha Þorsteinsdóttir, inn-
kaupastjóri 10-11-verslananna, seg-
ir að Aðföng hafi boðið verslana-
keðjunni til samstarfs um innkaup.
Eftir að hafa velt málinu fyrir sér
ákvað fyrirtækið að hefja viðskipti
við Aðföng, þar sem það taldi það
skynsamlegan kost, og hefjast þau
viðskipti í næstu viku.
Hertha segir augljóst hagræði að
því að versla við einn birgi og einn
heildsala í stað þess að versla við
marga. Nú muni vörurnar, sem áð-
ur komu í mörgum bflum, koma
með einum bíl í verslanimar.
Um fimmtungur af veltu
10-11-verslananna
Hún segir að sér finnist ekkert
óeðlilegt við að 10-11-verslanirnar
versli við fyrirtæki í eigu stærsta
keppinautarins. Það komi í raun
best út fyrir viðskiptavininn og það
sé það sem skipti öllu máli fyrir
10-11-verslanirnar.
Eingöngu verður um kaup á
pakkavöru að ræða, en pakkavara
er nú um 20% af veltu 10-11-versl-
ananna. Öll ferskvara kemur áfram
frá þeim heildsölum sem 10-11 hef-
ur verslað við til þessa, að sögn
Herthu.
„Þetta er mjög hagstæð og hag-
kvæm lausn. Þeir eru með nær allar
vörur sem við bjóðum í verslunum
okkar og það sem er umfram það
verður keypt sérstaklega frá heild-
sölum,“ sagði hún.
■ Ekkert óeðIiIegt/24
Snjór eins
og um
- hávetur
MIKINN snjó hefur sett niður á
skömmum tíma norðanlands og
á Vestfjörðum í vonskuveðrinu
sem gekk yfir landið á fimmtu-
dag og í gær. Ófært var í gær
um Víkurskarð og var mokstri
frestað þar til í dag. Slæmt veð-
ur var víða í Þingeyjarsýslum í
allan gærdag og fram eftir
kvöldi og vegir meira og minna
ófærir. Töluverðar skemmdir
urðu á hafnarsvæði og flot-
bryggju í höfninni á Húsavík í
fyrrinótt þegar mikill sjór gekk
inn í höfnina.
__ Siyó hefur kyngt niður í
' Ólafsfírði síðasta sólarhring. í
gær rofaði aðeins til og fóru þá
margir út að moka siyó, þeirra
á meðal var Pawel Kolosowski,
sem sjá má á efri myndinni
moka frá bíl foreldra sinna.
Á innfelldu myndinni sést
snjómoksturstæki á ferðinni á
Isafirði í gærdag við að hreinsa
snjó af götum bæjarins.
Fjárflutningabíll
fauk út af
Hjá Fossvöllum, 25 km norð-
ur af Egilsstöðum, fuku tveir
bflar út af veginum, að sögn
fréttaritara Morgunblaðsins. í
'“‘gærmorgun fauk fjárfiutninga-
bfll með 80 lömb út af án þess
Morgunblaðið/Guðmundur Þór
að velta. Hann var bundinn við
tvær dráttarvélar til þess að
hann fyki ekki um koll. Var
lömbunum gefið 1 vagninum. I
gærkvöldi valt gærubfll út af
veginum og fór á hliðina. Engan
sakaði. Þá fór bifreið út af
Djúpvegi, rétt norðan við
Hólmavík, um sexleytið í gær
vegna hálku. Tvær konur voru í
bflnum og sakaði þær ekki, en
töluverðar skemmdir urðu á
ökutækinu. Moka á helstu vegi í
dag.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Atlanta
Tímabund-
ið bann á
flug fyrir
bresk félög
BRESK flugmálayfirvöld hafa sett
tímabundið bann á flug flugfélagsins
Atlanta fyrir bresk flugfélög vegna
alvarlegra frávika á reglum um vott-
un varahluta. Islensk flugmálayfir-
völd hafa gert athugasemdir við
ýmsa viðhaldsþætti félagsins. Þor-
geir Pálsson flugmálastjóri segir að
íslensk flugmálayfirvöld hafi gert
ákveðnar athugasemdir við með-
höndlun varahluta hjá Atlanta, en
sjái ekki ástæðu til að takmarka
flugrekstrarleyfi félagsins. Hafþór
Hafsteinsson, flugrekstrarstjóri Atl-
anta, segir að vissulega komi þetta
illa við félagið, en fjárhagslegt tjón
sé ekki verulegt. „Eg á ekki von á
öðru en að þetta leysist strax eftir
helgi,“ sagði hann. „Bresku flug-
málayfirvöldin gerðu þessar athuga-
semdir beint við íslensk yfirvöld og
við höfum ekkert heyrt beint frá
þeim. Við eigum fund ytra strax á
mánudag og munum þar fá tækifæri
til að koma skoðunum okkar á fram-
færi.“
-------------
Sj dmannasam-
bandsþing
Félög verði
færri og stærri
21. ÞING Sjómannasambands ís-
lands samþykkti ályktun í gær þess
efnis að nauðsynlegt væri að fækka
félögum, sem hafi samningsumboð
til að semja um kaup og kjör sjó-
manna. Þingið taldi að markmiðið
væri að í framtíðinni yrði samið um
kaup og kjör sjómanna á einu borði
og því markmiði mætti ná með stofn-
un eins landsfélags sjómanna.
Sævar Gunnarsson, sem endur-
kjörinn var formaður Sjómannasam-
bandsins á þinginu, segist ekki leyna
þeirri skoðun sinni að landsfélag sjó-
manna eigi að stofna mjög fljótlega.
„Þá á ég við innan tveggja til þriggja
ára. Ef við ætlum að styrkja okkur
og efla í baráttunni fyrir sjómenn,
eigum við að verða með sem fæstar
einingar. Þeim mun færri og stærri,
þeim mun styrkari,“ segir Sævar.
■ SSÍ leggur til/26
Konan enn
Rannsókn Félagsvísindastofnunar á fátækt á Islandi
ófundin
BIFREIÐ konunnar frá Akra-
nesi, sem saknað hefur verið
frá því síðastliðinn þriðjudag,
fannst mannlaus í gærmorgun
við Meyjarsæti á Uxahryggja-
leið skammt frá Armannsfelli.
Víðtæk leit björgunarsveitar-
manna og þyrlu Landhelgis-
gæslunnar fór fram á svæðinu
í gærdag en án árangurs. Hlé
var gert á leitinni þegar myrk-
ur var skollið á upp úr kl. 19 í
gærkvöldi en leit átti að hefj-
ast að nýju í birtingu í morgun,
skv. upplýsingum varðstjóra
lögreglunnar á Selfossi.
12% kvenna á
Islandi undir
fátæktarmörkum
UM 9% þjóðarinnar eru undir fá-
tæktarmörkum, og eru konur þar í
meirihluta, eða 12% á móti 8%
karla, samkvæmt niðurstöðum
rannsóknar sem gerð var á vegum
Félagsvísindastofnunar. I sömu
könnun kemur fram að sé greint út
frá atvinnugreinum er áberandi
hæst hlutfall undir fátæktarmörk-
um meðal þeirra sem stunda land-
búnað, eða 26%. Næst hæst hlutfall
er meðal þeirra sem stunda fisk-
veiðar eða fiskvinnslu, eða 10%.
Þetta kom meðal annars fram á ráð-
stefnu sem Háskóli íslands, Rauði
krossinn og Félagsmálastofnun
stóðu fyrir um aðstæður og kjör
jaðarhópa í íslensku samfélagi.
„Segja má að fátækt sé raunveru-
legt vandamál í nútímasamfélagi og
er ísland þar engin undantekning,"
sagði Karl Sigurðsson sérfræðingur
hjá Félagsvísindastofnun á ráð-
stefnunni. Sagði hann einnig að
greinilegur munur væri á íslandi og
hinum Norðurlandaþjóðunum hvað
varðaði hópa sem hættast væri við
að lenda undir fátæktarmörkum.
Margt benti til þess að velferðar-
kerfið á íslandi styddi ekki nægi-
lega við bakið á þeim sem stæðu
höllum fæti í þjóðfélaginu, s.s. ör-
yrkjum og langveikum.
I könnun sem gerð var á vegum
Félagsmálastofnunar og Sigríður
Jónsdóttir kynnti á ráðstefnunni,
kom í ljós að 55% Reykvíkinga
þurfa oft að neita sér um eitthvað,
en samsvarandi hlutfall er 37% á
hinum Norðurlöndunum.
57% aðspurðra telja
sig vera fátæk
Þegar þátttakendur voru spurðir
hvort þeir teldu sig vera fátæka
sögðust 57% aðspurðra í Reykjavík
telja sig vera fátæk, en 67% þeirra
reyndust falla í þann hóp að vera fá-
tæk i raun og veru. I Helsinki
reyndist hlutfall fátæki-a vera 33%,
en 72% sögðust aftur á móti telja
sig fátæk.
■ Fátækt er/10